Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Skjámynd

Höfundur
kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf kiddi » Fös 28. Nóv 2014 14:52

Ég ákvað að snúa aftur í heim PC eftir að hafa unnið á Mac síðustu 3 ár (ástæðurnar eru margþættar og verðskulda heilt forum út af fyrir sig!), en þar á undan hafði ég verið PC nörd síðan 1992. Ég vinn við kvikmyndagerð, þeas. tölvugrafík & tæknibrellur og því er ég tiltölulega kröfuharður á vélbúnað, og það forrit sem ég nota helst er þannig að klukkutíðni sigrar core fjölda, þannig að ég tók tvær Intel i7 4790K vélar, í sitthvorri tegund af kassa (skrifstofan fær feitu vélina, heimaskrifstofan verður með minni vélina).

Stærri vélin (Corsair Graphite 760T) fékk Corsair H110i vatnskælinguna og af forvitnissökum ákvað ég að prófa stock kælinguna fyrir minni kassann (Corsair Obsidian 450D). Ég ákvað að prófa þetta því mér fannst H110i vatnskælingalausnin ekki vera neitt sérstaklega hljóðlát, og var því forvitinn hversu hljóðlát & öflug stock viftan væri. Kom reyndar á óvart, hversu mikil písl þessi vifta er.

Eftir 10 mínútna rennsli í Prime95 lítur þetta svona út (efri vélin er stockviftan, neðri vélin er Corsair H110i vatnskæling)
Mynd

Ég ákvað að slökkva á Prime95 þegar ég sá vélina með stock-viftunni fara að snerta 100c, þorði ekki lengra.

Spurningin er, hvað þykir ykkur eðlilegt hitastig fyrir 4790K undir álagi, þið sem þekkið til? Ég veit að Google hefur mörg svör, en mig langar að heyra frá ykkur :)

Seinni spurningin er, hvaða lausn mynduð þið velja til að geta haft örgjörvann sprækann og í góðum fíling, án þess að vera með mikinn hávaða? Er til hljóðlátari lausn en H110i? Er Noctua skrímslið málið?

Smá að lokum, smá klámmynd:
Mynd



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16529
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2122
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf GuðjónR » Fös 28. Nóv 2014 15:02

Það er gert með stæl ef það er gert á annað borð! Flottar græjur!
Ég myndi vilja sjá hvernig Noctua NH-D15 örgjörvakælingin kæmi út úr þessu testi.



Skjámynd

Squinchy
FanBoy
Póstar: 778
Skráði sig: Mið 05. Maí 2010 15:23
Reputation: 45
Staðsetning: Grafarholt
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf Squinchy » Fös 28. Nóv 2014 15:22

Ef þú vilt hljóðláta vél sem helst hljóðlát til lengri tíma þá væri Noctua eflaust betri lausninn, ég setti H80i í mína fyrir u.þ.b ári síðan og þarf að fara rífa hana úr núna um helgina vegna skrölt óhljóða í dælunni eflaust bara mánudags eintak en samt vesen að þurfa rífa allt úr til að laga/skipta einhverju út vs á noctua þá fer viftan bara í versta falli og einfalt að skipta henni út

Mjög líklegt að ég skipti yfir í D14 eða D15 eftir að hin kemur úr viðgerð/útskiptum, eða prófa að skipta um viftur þar sem stock vifturnar frá corsair gefa frá sér leiðinda víbring IMO


Fractal Design R4 White | MSI Z270 Gaming Pro Carbon | i7 7700K @4.5GHz | Noctua NH-D15 | 32GB Corsair DDR4 @3200MHz | MSI GTX 1080 Ti Gaming X 11GB | 250GB Samsung 850 EVO SSD | Corsair RM750x | 27" ASUS PG279Q | Presonus 22VSL | M-Audio BX5a

Fractal Design R5 Black | FreeNAS | Gigabyte M3 Sniper | i7 3770K @3.9GHz | Noctua NH-U12s | 24GB DDR3 | 10TB | Eaton 5SC 1000i UPS


hkr
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 23. Jan 2009 14:22
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf hkr » Fös 28. Nóv 2014 15:33

Hef séð fólk vera að skella öðrum viftum á H100i, man þó ekki alveg hvaða viftur það eru og eflaust einhver hér sem getur bent þér á þær.

En þú ert eflaust að nota Corsair Link forritið til þess að stilla H100i, er það ekki?




Davidoe
Fiktari
Póstar: 90
Skráði sig: Þri 04. Sep 2007 15:48
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf Davidoe » Fös 28. Nóv 2014 15:36

Láta noctua viftur á kælinguna, á mínútu 5 hérna https://www.youtube.com/watch?v=u8HsjgtMzEg heyriru í viftunum sem verið er að prófa.


|i7-920@4GHz|Megahalems|GA-EX58-UD5|3x4GB+3x2GB 1600MHz|
|ZM850-HP|HD 5770|Zalman MS1000|Samsung 840 250GB|

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16529
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2122
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf GuðjónR » Fös 28. Nóv 2014 15:56

hkr skrifaði:Hef séð fólk vera að skella öðrum viftum á H100i, man þó ekki alveg hvaða viftur það eru og eflaust einhver hér sem getur bent þér á þær.

En þú ert eflaust að nota Corsair Link forritið til þess að stilla H100i, er það ekki?


Tacens vifturnar sem Kísildalur er með eru mjög hljóðlátar.



Skjámynd

Höfundur
kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf kiddi » Þri 02. Des 2014 21:50

Smá update! Ég skottaðist í Tölvutækni í dag og verslaði mér Noctua NH-D15 skrímslið og skipti út rétt áðan fyrir Intel stockviftupíslina. Ég notaði bara aðalviftuna sem fylgdi Noctua en setti ekki aukaviftuna í (hún er optional) vegna þess að ég vildi bæði prófa þetta bara með einni viftunni og svo er ég ekki viss um að ég hafi pláss fyrir optional viftuna, auk þess er ein kassaviftan akkurat þar sem optional viftan þyrfti að komast fyrir. Kannski set ég hana í síðar, en ég er hæstánægður með niðurstöðuna þó ég sé bara með aðra viftuna af tveim í gangi.

Mynd

Meðalhitinn í Idle var áður ca. 45°c með stock viftunni en fór niður í 30°c með Noctua. Hinsvegar með Prime95 fór hitinn bara upp í 50-55°c sem er alveg frábært, þar sem viftan er ótrúlega hljóðlát þó hún sé undir fullri pressu. Stockviftan var í 80-100°c undir pressu og gríðarlega hávær í þokkabót. Ég er með Corsair H110 vatnskælingu í hinni vélinni minni og ég er ekki frá því að Noctua standist henni snúning með miklu minni látum að auki, eini gallinn við Noctua í raun er að þessi græja er ekki beint augnayndi og hún fyllir rækilega upp í kassann fyrir þá sem vilja hafa glugga og horfa á innyflin sín.

Svo fylgdi með "Low-Noise-Adaptor" millistykki til að draga úr kraftinum í Noctua viftunum þ.a. ég get gert þetta enn hljóðlátara á kostnað nokkurra hitastiga, sem mér sýnist ég bara hafa mjög vel efni á að gera 8-)




vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf vesley » Þri 02. Des 2014 23:09

Svo þetta varst þú sem að komst uppí Tölvutækni í dag að kaupa NH-D15 ;)

Hef sett saman nokkrar vélar með NH-D15 og í öll þau skipti hef ég sleppt "Low-Noise-Adaptor" þar sem kassavifturnar eða aðrar viftur yfirgnæfa Noctua kælinguna alveg svo að um munar, Logan hjá Tek-Syndicate spáði einmitt í því af hverju hann fylgdi því eins og hann sagði " The fans are already so damn quiet!"

Þessi kæling er einmitt ekkert "eye-candy" en ég er þrátt fyrir það heillaður af henni :) sést mjög vel hvað Noctua leggur mikið í hönnunina á vörunum sínum.



Skjámynd

Höfundur
kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf kiddi » Þri 02. Des 2014 23:36

Já það ætli það hafi ekki verið ég, ef þú seldir bara eitt stykki í dag 8-) Þetta ætti að vera að seljast á hverjum degi, þetta dásamlega apparat. Og já, vandaðasta innpökkun á vöru sem ég hef nokkurntíman séð! Nú langar mig bara í fleiri Noctua viftur, sama hvað þær kosta! :-"



Skjámynd

MatroX
Bannaður
Póstar: 3540
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf MatroX » Þri 02. Des 2014 23:40

kiddi skrifaði:Já það ætli það hafi ekki verið ég, ef þú seldir bara eitt stykki í dag 8-) Þetta ætti að vera að seljast á hverjum degi, þetta dásamlega apparat. Og já, vandaðasta innpökkun á vöru sem ég hef nokkurntíman séð! Nú langar mig bara í fleiri Noctua viftur, sama hvað þær kosta! :-"

ein spurning, varstu búinn að prufa setja hina viftuna á? ég átti á sínum tíma noctua nhd-14 og það er einmitt ein flottasta loft kæling sem ég hef notað þá er ég ekki að tala um útlit haha og þá munaði alveg 4-6° hvort ég var bara með eina eða 2 viftur á henni,

er með h100i núna en mér finnst hún alltof hávær með stock viftum og svona er örrinn með vifturnar á 30% svo ég heyri varla í þeim en mér finnst þetta samt glataðar hita tölur

hiti.jpg
hiti.jpg (447.31 KiB) Skoðað 2917 sinnum



EDIT setti betra screenshot


Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4194
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1338
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf Klemmi » Mið 03. Des 2014 00:02

kiddi skrifaði:Smá update! Ég skottaðist í Tölvutækni í dag og verslaði mér Noctua NH-D15 skrímslið og skipti út rétt áðan fyrir Intel stockviftupíslina. Ég notaði bara aðalviftuna sem fylgdi Noctua en setti ekki aukaviftuna í (hún er optional) vegna þess að ég vildi bæði prófa þetta bara með einni viftunni og svo er ég ekki viss um að ég hafi pláss fyrir optional viftuna, auk þess er ein kassaviftan akkurat þar sem optional viftan þyrfti að komast fyrir. Kannski set ég hana í síðar, en ég er hæstánægður með niðurstöðuna þó ég sé bara með aðra viftuna af tveim í gangi.


Og hvað eru mörg "vift" í því?



Skjámynd

Maniax
Ofur-Nörd
Póstar: 228
Skráði sig: Þri 24. Júl 2012 14:59
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf Maniax » Mið 03. Des 2014 08:39

Er einmitt með svipað setup, NH-D15 og 4790K
Keyri þetta sem server og því er þetta í gangi 24/7, hitinn er að fara niður fyrir 20°c oft á næturnar og heyrist ekkert í þessu
Hæst fór örgjörvinn í 52°c á fyrsta kjarna í Stress Test í Intel Xtreme Tuning tólinu
http://i.imgur.com/2AoAhYz.jpg
Viðhengi
4790k server.PNG
4790k server.PNG (329.01 KiB) Skoðað 2836 sinnum




Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf Tbot » Mið 03. Des 2014 09:43

Er búinn að vera með D14 gerðina í tæp 2 ár, frábær.

Það heyrist meira í hinum viftunum en henni, Þessar eru ekkert augnayndi, en þar sem ég glápi lítið inn í kassann, tek ég virkni fram yfir "fancy".



Skjámynd

Höfundur
kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf kiddi » Mið 03. Des 2014 12:09

MatroX skrifaði:ein spurning, varstu búinn að prufa setja hina viftuna á?


Nei ekki búinn að prófa að setja hina, ég þarf að fjarlægja kassaviftu úr kassanum svo ég geti komið hinni fyrir, veit ekki hvort ég nenni en aldrei að vita :)

Tbot skrifaði:Er búinn að vera með D14 gerðina í tæp 2 ár, frábær. Það heyrist meira í hinum viftunum en henni, Þessar eru ekkert augnayndi, en þar sem ég glápi lítið inn í kassann, tek ég virkni fram yfir "fancy".


Já þetta dót svínvirkar, núna eftir að ég er búinn að keyra allar viftur niður þá heyri ég eiginlega bara í hörðu diskunum snúast, jafnvel þó tölvan sé undir pressu. Eina sem ég tapa raunverulega er að tölvan fer ekki eins hátt í Turbo Boost, s.s. hún fer ekki uppí 4.2 / 4.4 / 4.6 GHz sem hún gerir ef hún fær að sleppa viftunum lausum.

Klemmi skrifaði:Og hvað eru mörg "vift" í því?


Ég er nú bara hálf montinn yfir því að þú nenntir að telja viftin og svo bolda þau í þokkabót!



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4334
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 383
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf chaplin » Mið 03. Des 2014 13:59

þessi græja er ekki beint augnayndi


Blasphemy! Fallegasta kæling (og tala nú ekki um viftunar!) sem ég hef séð! Er ég í alvöru einn um þetta!?


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS

Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf Hnykill » Mið 03. Des 2014 17:37

Ég er einmitt að fara setja saman nýja tölvu og var fastur á að fá mér Corsair H110 kælinguna.. eruði að segja mér að Noctua NH-D15 sé að skila sömu afköstum ? ..er búinn að festa kaup á NZXT Sentry 2 viftustýringu og ætla að bæta við 2x Tacens Ventus II 140mm http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1982 .. og keyra þá 4x 140 mm viftur á kannski 1200 RPM með H110 kælingunni.. er það ekki skynsamlegra en þessi Noctua NH-D15 hlunkur ?

Já og þetta verður í Thermaltake Armor Revo ATX http://www.tolvutek.is/vara/thermaltake ... si-svartur


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

Höfundur
kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf kiddi » Mið 03. Des 2014 18:07

Hnykill skrifaði:.. eruði að segja mér að Noctua NH-D15 sé að skila sömu afköstum ?


Sko, ég er viss um að H110 geti kælt betur undir meira álagi og til lengri tíma, og getur eflaust étið í sig aðeins hærra O/C en Noctua viftan, EN, og hér kemur stórt EN. H110 í fullri virkni er allt annað en hljóðlátt, ég geng meira að segja svo langt að segja að það sé beinlínis óþolandi hávært ef maður leyfir viftunum að fara á fullt. Noctua hinsvegar er svo gott sem hljóðlaus, líka á fullum snúningi. Kannski er málið að skipta út Corsair H110 viftunum fyrir Noctua viftur, eins og Davidoe nefnir hérna ofar í þræðinum. Kostur við H110 er svo að hann skilur eftir svakalega stórt og myndarlegt pláss í miðjum kassanum til að dást að móðurborðinu sínu, á meðan flest móðurborð falla í skuggann af Noctua skrímslinu :) Fyrir þá sem eru með lokaða kassa er þetta non-issue, og ég myndi taka held ég Noctua framyfir Corsair H110 alla daga vikunnar. Er jafnvel að gæla við að skipta út í hinni tölvunni minni og fá mér aðra Noctua, vill einhver kaupa lítið notaða H110 vatnskælingu? :megasmile




Framed
Nörd
Póstar: 133
Skráði sig: Fös 28. Nóv 2003 02:54
Reputation: 11
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf Framed » Mið 03. Des 2014 18:16

Þetta hjálpar mönnum kannski að taka ákvörðun um CPU kælingar. Hann er að vísu ekki með Noctua NH-D15 heatsink en það sem hann er að nota lítur allavega út fyrir að vera sambærilegt. Hann hins vegar notar Noctua viftur með öllu, þar með talið með Corsair H100i vatnskælingunni.

Persónulega geri ég ráð fyrir að fylgja fordæmi hans þegar ég set saman nýja borðtölvu í náinni framtið. Coming soon TM.




Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf Hnykill » Mið 03. Des 2014 18:42

kiddi skrifaði:
Hnykill skrifaði:.. eruði að segja mér að Noctua NH-D15 sé að skila sömu afköstum ?


Sko, ég er viss um að H110 geti kælt betur undir meira álagi og til lengri tíma, og getur eflaust étið í sig aðeins hærra O/C en Noctua viftan, EN, og hér kemur stórt EN. H110 í fullri virkni er allt annað en hljóðlátt, ég geng meira að segja svo langt að segja að það sé beinlínis óþolandi hávært ef maður leyfir viftunum að fara á fullt. Noctua hinsvegar er svo gott sem hljóðlaus, líka á fullum snúningi. Kannski er málið að skipta út Corsair H110 viftunum fyrir Noctua viftur, eins og Davidoe nefnir hérna ofar í þræðinum. Kostur við H110 er svo að hann skilur eftir svakalega stórt og myndarlegt pláss í miðjum kassanum til að dást að móðurborðinu sínu, á meðan flest móðurborð falla í skuggann af Noctua skrímslinu :) Fyrir þá sem eru með lokaða kassa er þetta non-issue, og ég myndi taka held ég Noctua framyfir Corsair H110 alla daga vikunnar. Er jafnvel að gæla við að skipta út í hinni tölvunni minni og fá mér aðra Noctua, vill einhver kaupa lítið notaða H110 vatnskælingu? :megasmile


Þessa vegna vil ég hafa 4x Viftur á H110 á lægri snúning til að minnka hávaða.. svo auðvitað "Memory clearince"... ég græja þetta dót í Janúar og gef ykkur svo tölurnar af þessu :klessa


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.


vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf vesley » Mið 03. Des 2014 21:15

kiddi skrifaði:Já það ætli það hafi ekki verið ég, ef þú seldir bara eitt stykki í dag 8-) Þetta ætti að vera að seljast á hverjum degi, þetta dásamlega apparat. Og já, vandaðasta innpökkun á vöru sem ég hef nokkurntíman séð! Nú langar mig bara í fleiri Noctua viftur, sama hvað þær kosta! :-"



Stærðin á pakkningunum getur nú hrætt marga, þó kælingin sé nú mjög stór þá passar hún í flesta mid-size ATX kassa án einhverra vandræða.

Kemst viftan ekki fyrir hægra megin eins og búist er vanalega við ? Nú hef ég sett þessa kælingu í kassa með vinnsluminni sem hafði þokkalega stóra minniskubba og var það án vandræða, (NZXT H440)



Skjámynd

MatroX
Bannaður
Póstar: 3540
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf MatroX » Mið 03. Des 2014 21:22

vesley skrifaði:
kiddi skrifaði:Já það ætli það hafi ekki verið ég, ef þú seldir bara eitt stykki í dag 8-) Þetta ætti að vera að seljast á hverjum degi, þetta dásamlega apparat. Og já, vandaðasta innpökkun á vöru sem ég hef nokkurntíman séð! Nú langar mig bara í fleiri Noctua viftur, sama hvað þær kosta! :-"



Stærðin á pakkningunum getur nú hrætt marga, þó kælingin sé nú mjög stór þá passar hún í flesta mid-size ATX kassa án einhverra vandræða.

Kemst viftan ekki fyrir hægra megin eins og búist er vanalega við ? Nú hef ég sett þessa kælingu í kassa með vinnsluminni sem hafði þokkalega stóra minniskubba og var það án vandræða, (NZXT H440)

getiði ekki flutt inn þessar noctua viftur?


Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |


vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf vesley » Mið 03. Des 2014 21:49

MatroX skrifaði:
vesley skrifaði:
kiddi skrifaði:Já það ætli það hafi ekki verið ég, ef þú seldir bara eitt stykki í dag 8-) Þetta ætti að vera að seljast á hverjum degi, þetta dásamlega apparat. Og já, vandaðasta innpökkun á vöru sem ég hef nokkurntíman séð! Nú langar mig bara í fleiri Noctua viftur, sama hvað þær kosta! :-"



Stærðin á pakkningunum getur nú hrætt marga, þó kælingin sé nú mjög stór þá passar hún í flesta mid-size ATX kassa án einhverra vandræða.

Kemst viftan ekki fyrir hægra megin eins og búist er vanalega við ? Nú hef ég sett þessa kælingu í kassa með vinnsluminni sem hafði þokkalega stóra minniskubba og var það án vandræða, (NZXT H440)

getiði ekki flutt inn þessar noctua viftur?


Það er verið að vinna í því "as we speak"



Skjámynd

Maniax
Ofur-Nörd
Póstar: 228
Skráði sig: Þri 24. Júl 2012 14:59
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf Maniax » Mið 03. Des 2014 21:49

MatroX skrifaði:getiði ekki flutt inn þessar noctua viftur?

x2



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf Hnykill » Mið 03. Des 2014 22:50

Er líka búinn að spá í þessum http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6835608044 í staðinn fyrir Tacens Ventus II 140mm http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1982 ætla frekar að taka þessar frá Kísildal og keyra á low RPM á viftustíringunni ;)

Corsir H110 er klárlega að verða fyrir valinu.. + Tacens Ventus II 140mm og 1200 RPM á þeim öllum ;) :klessa svo verður mitt næsta setup.. ... ég sé engann ræða um betra setup ;)

Corsair H110 með Default viftum, + Tacens Ventus II 140mm í Pull... í Thermaltake Armor Revo ATX Kassa, með nzxt sentry 2 viftustýringu. Þetta verður kassi án flöskuháls ;) :klessa


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.


vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Smá vangaveltur varðandi örgjörvakælingu

Pósturaf vesley » Fös 30. Jan 2015 17:44

Tók smá tíma en Noctua NF-A14 er væntanleg hjá Tölvutækni 13.febrúar :)

http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2883