Öryggi á netkerfum


Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2796
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 349
Staðsetning: Danmark
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Öryggi á netkerfum

Pósturaf jonfr1900 » Þri 02. Apr 2024 21:27

Hérna er myndband um öryggi á netkerfum. Sýnist á öllu að ég geti hætt að kaupa þessa hefðbundu routera sem ég hef verið kaupa.




Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3168
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 545
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Öryggi á netkerfum

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 03. Apr 2024 07:00

Miklu skemmtilegra að hafa möguleikann á öllum þessum Enterprise fídusunum sem eru ekki í boði á þessum hefðbundnu routerum hugsaða fyrir hefðbundin heimili :) Sjálfur nota ég Pfsense en OPNSense lítur mjög vel út.

Þetta er það sem ég hef stillt aukalega á Pfsense Eldvegg eftir basic uppsetningu.

Aðgreini Heimanet,gestanet og Vinnunet á mismuandi Vlön.

Nota Cloudflare 1.1.1.2 og 1.0.0.2 sem DNS resolver á Pfsense Eldvegg sem blokka þekkt malware og C2C slóðir.

Stilli DNS yfir TLS.

Nota pfblockerNG: Er að nota þekkta IP blacklista til að lágmarka þær ip tölur sem eru að scanna eldvegginn minn og sniffa port og DNSBlacklista auglýsingar og einhverjar custom reglur sem ég hef smíðað.


Just do IT
  √


Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2796
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 349
Staðsetning: Danmark
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Öryggi á netkerfum

Pósturaf jonfr1900 » Lau 04. Maí 2024 02:29

Ég þarf bara að kaupa svona tölvu fyrir net samband þegar ég er fluttur aftur til Danmerkur. Þar sem þá verð ég kominn með ljósleiðara. Þarf þá einnig að fá mér WiFi punkta fyrir þráðlausa sambandið á sama tíma. Get þá kannski notað núverandi routera í að stækka þráðlausa svæðið ef ég þarf þess, sem kannski þarf ekki.




Knud
Græningi
Póstar: 32
Skráði sig: Sun 28. Mar 2010 23:31
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Öryggi á netkerfum

Pósturaf Knud » Mán 07. Okt 2024 11:08

Er áhugasamur um OPNsense, ertu búinn að prófa þetta?




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2796
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 349
Staðsetning: Danmark
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Öryggi á netkerfum

Pósturaf jonfr1900 » Mán 07. Okt 2024 23:44

Knud skrifaði:Er áhugasamur um OPNsense, ertu búinn að prófa þetta?


Nei. Ég hef ekki haft pening í þetta ennþá. Mögulega hef ég ekki pening í þetta fyrr en árið 2026 en það verður að koma í ljós. Þar sem ég þarf einnig að kaupa WiFi AP og Switch fyrir heimanetið.