Ég er með nýtt snjall sjónvarp, ps4, ps5 og apple tv allt á sama stað fyrir framan gifs vegg , bakvið gifsvegginn er router tengdur við ljósleiðara
eins og staðan er núna þá eru öll tækin tengd með wifi ac
en datt í hug til að ná sem mestum donwload hraða á tækjunum
væri þá ekki þetta besta leiðin:
ljósleiðara internet router -> 1gb switch -> sjónvarp,ps4,ps5,appletv
og tengja þetta þá með cat5e eða cat6 köplum?
mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
Síðast breytt af green á Þri 22. Ágú 2023 14:30, breytt samtals 1 sinni.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 341
- Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
- Reputation: 116
- Staða: Ótengdur
Re: mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
Færð alltaf mest solid tenginguna yfir netsnúru/ljóslínu.
Ef þú getur auðveldlega gengið snyrtilega frá þessu að þá er ekki spurning að bora bara í gegn og setja upp tengla sitthvoru megin og svo þann búnað sem þú telur þig þurfa.
Ef þú getur auðveldlega gengið snyrtilega frá þessu að þá er ekki spurning að bora bara í gegn og setja upp tengla sitthvoru megin og svo þann búnað sem þú telur þig þurfa.
Re: mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
er cat5e nógu góður þá úr router í switch?
eða þarf ég cat6?
eða þarf ég cat6?
Síðast breytt af green á Þri 22. Ágú 2023 15:15, breytt samtals 1 sinni.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 341
- Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
- Reputation: 116
- Staða: Ótengdur
Re: mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
Mæli hiklaust með cat6 framyfir 5 bara uppá framtíðina.
Verðmunurinn er ekki mikill þar.
Verðmunurinn er ekki mikill þar.
Re: mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
hvernig hub/switch mælirðu með? sem er undir 10þ kallinum
Re: mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
https://www.computer.is/is/product/swit ... tl-sg1008d
eða
https://tl.is/8-port-gigabit-easy-switch.html
Ættu að looka þokkalega hjá hinum tækjunum.
eða
https://tl.is/8-port-gigabit-easy-switch.html
Ættu að looka þokkalega hjá hinum tækjunum.
NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo
Re: mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
Fyrir svona stutta vegalengd er Cat5e algjörlega nóg, og munurinn á cat5e og cat6 er enginn, betra að fara strax í Cat6A ef maður ætlar í eitthvað betra yfir höfuð.
Netgear eru með ágætis svissa (sá einn að vísu 16por) hjá Tölvulistanum á útsölu á c.a. 12þús. Fyrir eitthvað meira fanzy væri vænlegast að fara í Unifi eða cisco catalyst en það er algjörlega óþarfi nema þig vanti 802.11q. Ég setti upp netgear 8porta sviss hjá foreldrum mínum fyrir einhverjum 5 árum og hann hangir enn, sem er ágætt miðað við að þeim virðist takast að eyðileggja allan netbúnað sem þau komast yfir, en sjálfur er ég með Cisco svissa heima sem hafa gengið í c.a. 8 ár án vandræða.
Bara ekki fara í TP-link eða D-link, þeir virka oftast ágætlega fyrst, en endast ekki mjög lengi að fenginni reynslu.
Ef þig vantar að komast í gegnum vegginn og ert ekki klár á fráganginum þá get ég vísað á rafvirkja sem ég þekki sem er vandvirkur og fínn þegar kemur að þessum netmálum.

- Stjórnandi
- Póstar: 2858
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Reputation: 217
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Re: mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
... bara eftirádósir og ethernettengla sitthvorumeginn. Einn switch hinum meginn og málið dautt. Ég myndi fá lánaðan studfinder með rafmagnstester þannig þú sért pottþétt ekki að fara bora einhverja vitleysu. Til að gera þetta líka enn meira huggulegra... fá lánaðan crimper og útbúa stuttar snúrur svo snúrufarganið sé ekki sýnilegt. 5 tæki eru 14 snúrur skilurðu
Síðast breytt af CendenZ á Mið 23. Ágú 2023 10:32, breytt samtals 1 sinni.
Re: mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
CendenZ skrifaði:... bara eftirádósir og ethernettengla sitthvorumeginn. Einn switch hinum meginn og málið dautt. Ég myndi fá lánaðan studfinder með rafmagnstester þannig þú sért pottþétt ekki að fara bora einhverja vitleysu. Til að gera þetta líka enn meira huggulegra... fá lánaðan crimper og útbúa stuttar snúrur svo snúrufarganið sé ekki sýnilegt. 5 tæki eru 14 snúrur skilurðu
Mæli mun frekar með því að versla stuttar tilbúnar snúrur, nánast allir selja Cat kapla en ekki Cat snúrur, ætlaða í fastar lagnir en ekki tengisnúrur.
NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 341
- Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
- Reputation: 116
- Staða: Ótengdur
Re: mörg tæki á sama stað við internet í gegnum lan eða wifi?
TheAdder skrifaði:CendenZ skrifaði:... bara eftirádósir og ethernettengla sitthvorumeginn. Einn switch hinum meginn og málið dautt. Ég myndi fá lánaðan studfinder með rafmagnstester þannig þú sért pottþétt ekki að fara bora einhverja vitleysu. Til að gera þetta líka enn meira huggulegra... fá lánaðan crimper og útbúa stuttar snúrur svo snúrufarganið sé ekki sýnilegt. 5 tæki eru 14 snúrur skilurðu
Mæli mun frekar með því að versla stuttar tilbúnar snúrur, nánast allir selja Cat kapla en ekki Cat snúrur, ætlaða í fastar lagnir en ekki tengisnúrur.
Til að bæta við þetta, verslanir einsog Ískraft, Pronet og fleiri sérhæfðar verslanir eru með tilbúna kapla í fleiri stærðum en almennt er í boði í töluverslunum og þvíumlíkum búllum.