orn skrifaði:jonfr1900 skrifaði:Annars er það að benda á Ísrael þegar umræðan er um Úkraínu ekkert nema Sovéskur Whataboutism og ekkert annað.
Ég get ekki séð að neinn hafi verið með neitt whataboutism hér. Ég held að það hafi orðið einhver misskilningur hérna. Minuz1 var (að mér fannst) að velta vöngum yfir því hvers vegna Pútín væri svona bíræfinn og teldi sig komast upp með þetta. Ég held að þetta hafi farið eitthvað öfugt ofan í fólk á þessu spjalli og verið sé að ætla einhverja aðra merkingu en átti að vera lögð til málsins.
Mér fannst það áhugaverður punktur hjá honum og fannst þess virði að reyna að árétta það þ.s. mér fannst Appel vera svo heitt í hamsi yfir þeirri sýn.
Þetta er ekki sambærilegt, þó eru bæði siðlausar aðgerðir ríkisstjórna viðkomandi ríkja og brot á alþjóðlegum lögum.