MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Ég er með brotinn viftuspaða í kæliviftu þannig að kortið er ónothæft vegna titrings. Ég hef fundið síðu sem selur varaviftur en datt i hug hvort einhver hérna liggi með svona varahlut fyrir lítið? Önnur hugmynd væri að klippa spaðann á móti af og gá hvort jafnvægi náist og titringurinn hættir. Hafa einhverjir hér hugmyndir að lausn?
- Viðhengi
-
- IMG-0929.jpg (761.49 KiB) Skoðað 8710 sinnum
-
- IMG-0930.jpg (2.42 MiB) Skoðað 8710 sinnum
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Önnur viftan kælir örugglega nóg, þannig að ég myndi prófa að taka þá biluðu úr umferð og setja þungt álag á kortið og fylgjast með hvað hitastigið fer upp í.
Svo bara sjá hvaða svör koma hér, hvort einhver eigi þetta til fyrir þig, annars bara panta á Ali eða eBay
Svo bara sjá hvaða svör koma hér, hvort einhver eigi þetta til fyrir þig, annars bara panta á Ali eða eBay
Síðast breytt af Klemmi á Sun 13. Feb 2022 23:52, breytt samtals 1 sinni.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 352
- Skráði sig: Fös 14. Sep 2012 10:54
- Reputation: 16
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Líka hægt að taka viftuna af og nota kassaviftu eða örgjörva viftu strappaða á
Annars bara eins og klemmi segir
Annars bara eins og klemmi segir
-
- Kóngur
- Póstar: 6395
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 463
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
klippir bara spaðann á móti, setur smá balance á þetta
CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
worghal skrifaði:klippir bara spaðann á móti, setur smá balance á þetta
Erfitt þegar spaðarnir eru í oddatölu, ég mæli með að taka alla spaðana af
Edit: það er reyndar viðvörun á sjálfu kortinu að það sé "The most powerful graphics card", sennilega best að skella bara 120mm kassaviftu í stað þeirra biluðu og kalla það gott.
Síðast breytt af Dropi á Mán 14. Feb 2022 09:49, breytt samtals 1 sinni.
LG 38GN95B-B 3840x1600p160Hz - Logitech GMX508 - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1251
- Skráði sig: Fim 10. Des 2009 17:06
- Reputation: 100
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
ertu búinn að prófa að baka þetta í ofni? smá djók
CPU: Intel i9-14900KS
Móðurborð: Asus z790 apex encore
Minni: G.skill 2x24gb 8400mhz cl40
Skjákort: RTX 4090 rog strix
Turn psu: lian li o11d xl rog, Dark Power Pro 1600w13xQL120
Kæling: EK CR360 direct die AIO
SSD: Samsung SSD 980 PRO 1TB x2
Skjár: asus pg32uqr
Lyklaborð Mús heyrnatól : Corsair k100 rgb, corsair Virtuos

- spjallið.is
- Póstar: 419
- Skráði sig: Lau 02. Nóv 2019 02:27
- Reputation: 44
- Staðsetning: 815
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
ég lenti í því sama með 980ti kortið mitt. Ég braut bara spaðann sem ér á móti brotnuðum spaða og þá hætti kortið að titra því þyngdin var jöfn.
Síðast breytt af osek27 á Mán 14. Feb 2022 18:21, breytt samtals 1 sinni.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 986
- Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
- Reputation: 42
- Staðsetning: RVK
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Ef þú veist um viftuspaðann má nú alltaf líma hann á aftur og sjá hvort það haldi ekki.
Annars myndi ég prófa eins og einhver nefni að brjóta viftuspaðann á móti (eins nálægt 180° og hægt er, þrátt fyrir oddatölu)
Síðan er alltaf hægt að henda Noctua viftum á þetta í svipaðari stærð, eða panta sambærilegar á Aliexpress. En annars lítið mál að láta aðrar viftur passa með smá tilþrifum.

Hlynur
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Fara með viftuna á túrbínuverkstæðið hjá stálsmiðjunni í jafnvægisstillingu. Og stofna modd þráð kringum það á reddit.
Eða hita bara tombólu odd og stinga í brotið. Þrýfa í kring með acetón eða alkahóli og setja superglue í kring eða epoxy
Eða hita bara tombólu odd og stinga í brotið. Þrýfa í kring með acetón eða alkahóli og setja superglue í kring eða epoxy
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Þessi vifta gæti ekki haft óheppilegri fjölda blaða. Sama hvort þú brýtur einn, tvo eða þrjá í viðbót munu blöðin aldrei skiptast jafnt.
-
- Kóngur
- Póstar: 6496
- Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
- Reputation: 315
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Hausinn skrifaði:Þessi vifta gæti ekki haft óheppilegri fjölda blaða. Sama hvort þú brýtur einn, tvo eða þrjá í viðbót munu blöðin aldrei skiptast jafnt.
11 er prímtala. Það er yfirleitt notaður prímtölufjöldi af blöðum í viftur, þar sem að það veldur minni titring.
"Give what you can, take what you need."
-
- Vaktari
- Póstar: 2105
- Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
- Reputation: 175
- Staðsetning: Heima
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Ég legg til að taka báðar vifturnar af, og festa tvær 80-120mm noctua viftur á þeirra í stað með hersluböndum (a.k.a. plast-ströppum, a.k.a. dragböndum).
Ath. Ég tek enga ábyrgð á þessum ráðleggingum.
Ath. Ég tek enga ábyrgð á þessum ráðleggingum.
i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Það þarf að taka burt 2 spaða, þá verða 4 hvoru megin. *Mögulega* nærðu jafnvægi þannig.
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Og taka svo myndir af ferlinu og setja inn hér, svo við getum fylgst með!
-
- Vaktari
- Póstar: 2409
- Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
- Reputation: 156
- Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Ég get prófað að 3D prenta nýja spaða, þér að kostnaðarlausu. Væri þá aðalega bara æfing fyrir mig og gaman að sjá hvort það virki
CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Black skrifaði:Ég get prófað að 3D prenta nýja spaða, þér að kostnaðarlausu. Væri þá aðalega bara æfing fyrir mig og gaman að sjá hvort það virki
nærðu svona fínni áferð á plastið með venjulegum 3d prentara í dag ?
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1744
- Skráði sig: Sun 02. Jan 2011 12:37
- Reputation: 41
- Staða: Ótengdur
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Black skrifaði:Ég get prófað að 3D prenta nýja spaða, þér að kostnaðarlausu. Væri þá aðalega bara æfing fyrir mig og gaman að sjá hvort það virki
Til í að fylgjast með þessu ef þetta rætist
Custom made fans!!!
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Hizzman skrifaði:Það þarf að taka burt 2 spaða, þá verða 4 hvoru megin. *Mögulega* nærðu jafnvægi þannig.
eftir á að hyggja, NEI þú færð ekki jafnvægi. viftan er ekki simetrísk ef það vantar eitt blað öðru megin og tvö hinu megin.
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Takk allir fyrir ýmsar vangaveltur. Ég prófaði það einfaldasta fyrst, þe. klippa einn spaða af svona uþb beint á móti þessum brotna. Það virðist bara hafa verið nóg, ekkert óhljóð frá viftunni og eftir því sem mér er sagt þá virkar allt eins og á að gera. Lagfæringin tók innan við 5 sekúndur. Alltaf gott þegar eindaldast og fljótlegast og ódýrast virkar best. Ég get þá seinna skrúfað viftuna af ef verður vesen og sett aðra eins í staðinn eða kassaviftu en þangað til verður þetta svona.
Re: MSI GeForce 1060 - brotinn viftuspaði
Já, flott. þú ættir samt að leita að nýrri viftu. Titringur gæti eyðilagt þessa með tímanum.