urban skrifaði:Ég myndi reikna þetta út vel og lengi áður en þú ferð að spá í því hvort að þú hagnist eitthvað á þessu, þrátt fyrir að þú náir 50% sparnaði þá væriru fjöldamörg ár að spara á þessu.
Já, ég átta mig alveg á því að þetta er ólíklegt til að vera sparnaðaraðferð. Það sem ég meinti var að það yrði fróðlegt að sjá, og að ég auðvitað vonaðist til, að kostnaður myndi lækka. En það hefur alls ekki úrslitaáhrif á ákvörðunina um hvort ég setji gólfhita
urban skrifaði:Síðan myndi ég skoða mjög vel aðrar leiðir en að fræsa í gólfin, frekar leiðin sem jagermeister kom með, það geturu lagt sjálfur að stórum hluta og sleppur við fræsingu, hún er algert horror.
Okay Hvað er það sem gerir fræsingu að horror?
Ég hélt að vélarnar hjá þessum fagmönnum sem eru í þessu alla daga væru orðnar svo góðar að það væri nánast ekkert ryk sem slyppi lengur.
Er það enn rykið sem er horror eða eitthvað annað sem mér yfirsést?
Spyr, þar sem ég veit ekki betur og vil vita áður en ég fer af stað
Manager1 skrifaði:Fræsarinn er svona ca. mittishár þannig að hann kemst ekki undir neðstu þrepin í stiganum. Það er annað hvort hægt að sleppa því að leggja hita undir neðstu þrepin eða fræsa með t.d. slípirokk.
Snilld, takk fyrir þessar upplýsingar. skiptir litlu máli þó að það sé ekki hiti undir neðstu þrepunum, en kannski skemmtilegra að hafa hitann þar sem einhver gæti þvælst.