Ég veit að það er núna hægt að setja Android stýrikerfið inná Pi 3 og nýrra en er einhver möguleiki á því á Pi 1? Er búinn að gúgla allt vit frá mér og hef bara ekki tekist að finna neina lausn, efast um að þetta sé hægt en hvað veit maður svosem?
![Anxious 8-[](./images/smilies/eusa_shifty.gif)
DoofuZ skrifaði:Ég hef eiginlega ekkert annað að gera við þessa tölvu, finnst gaman að fikta og langar mjög mikið að fá þetta til að virka. Er að vísu búinn að eyða aðeins of miklum tíma í gúgl og prófarnir sem hafa ekki skilað neinu enn sem komið er og er ekki bjartsýnn á framhaldið.
Er enginn séns á að geta keyrt Nova TV appið á Pi 1? Get ég ekki sett eitthvað einfalt Linux kerfi upp á tölvunni og keyrt apk í einhverjum emulator þar eða eitthvað slíkt?
mjolkurdreytill skrifaði:Er ekki einfaldasta svarið bara að prófa að fylgja leiðbeiningum fyrir Raspberry 3 og sjá hvað kemur út úr því?
Í versta falli virkar þetta ekki. En þó svo að þetta virki. Mun þessi tölva geta streymt sjónvarpsefni?
thrkll skrifaði:Kannski frekar ólíklegt að það eitt sé vandamálið, en er spennubreytirinn sem þú ert að nota ekki örugglega með 1.2A eða hærra output (sem er það sem RPi 1 B krefst)?
Ef ég man rétt er regnbogakassinn yfirleitt til marks um vitlaust power supply.
DoofuZ skrifaði:thrkll skrifaði:Kannski frekar ólíklegt að það eitt sé vandamálið, en er spennubreytirinn sem þú ert að nota ekki örugglega með 1.2A eða hærra output (sem er það sem RPi 1 B krefst)?
Ef ég man rétt er regnbogakassinn yfirleitt til marks um vitlaust power supply.
Ég á ekki spennubreyti, hef bara notað usb snúru í rafmagn sem er bara 1AVar einmitt að skoða það að kaupa spennubreyti en fann bara einn í Computer.is og hann er ekki til. Held ég verði þá að kaupa einn svoleiðis erlendis frá og verð þá bara að bíða með að prófa þetta meira í bili
hagur skrifaði:Áttu ekki USB símahleðslutæki? Þau eru flest c.a 2 amper eða meira. Virka fínt með Raspberry Pi.