teikniborð/skjár/thing?


Höfundur
J1nX
vélbúnaðarpervert
Póstar: 920
Skráði sig: Fim 15. Mar 2007 12:18
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

teikniborð/skjár/thing?

Pósturaf J1nX » Þri 05. Maí 2020 19:29

Núna er dóttir systir minnar að fermast í ár og hún gjörsamlega elskar að teikna, teiknar á striga, blöð og allskonar og mér datt í hug hvort það sé ekki til einhver tæknivædd leið fyrir hana til að dunda sér í þessu þar sem við búum út á landi og þurfum oft að bíða í dágóðan tíma eftir sendingum af málningu/strigum og þess háttar.. langar að gefa henni svoleiðis í fermingar/afmælisgjöf.

ég er eitthvað búinn að vera að googla þetta og fann eitthvað Wacom dæmi á elko.is https://elko.is/wacctl6100lkn-wacom-intuos-teiknibord-bt-medium-svart en finnst það vera full lítið, er til einhver stærri gerð af svona sem kostar ekki handlegg og nýra?




Mossi__
vélbúnaðarpervert
Póstar: 922
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 404
Staða: Ótengdur

Re: teikniborð/skjár/thing?

Pósturaf Mossi__ » Þri 05. Maí 2020 20:25

Daginn.

Skvo..

Ef þig langar að fá græju til að teikna beint skjáinn, þá er ýmislegt í boði.

Getur fengið nýjan iPad og keypt Apple penna með, en þá ertu fastur í iPad umhverfinu. Þér finnst það sem þér finnst um það.

Ég nota svoleiðis m.a. það er afar hentugt og ýmis mjög góð öpp á iOS sem gera góða hluti (t.a.m Procreate). En, Öppin eru góð og penninn er mjög góður.

Ef þig langar að vera innan Windows kerfisins, þá er ýmislegt í boði. T.a.m. Lenovo Yoga með Active Penna, eða Surface Pro með sínum penna. Vélarnar eru mjög góðar, en þá ertu bundinn við ca 14" widescreen skjá.

Ég mæli sterkt með þessum. Mæli samt frekar með Lenovo tölvunni, því ég lenti í Display Scaling veseni með Surface vélina og fannst penninn ekki mjög góður.
Þessar vélar eru hæfar í Professional Artwork.

Wacom Intuos og Intuos Pro borðin eru þannig að þú ert með flötinn á borðinu en horfir á venjulega tölvuskjáinn þegar þú teiknar. Ég vandist þessu í raun aldrei fyrir teikningar. En þessar græjur eru mjög góðar.

Wacom er toppurinn á þessum græjum.

Ef að þig langar að fara í top tier, þá myndi ég mæla með Cintiq, frá Wacom. Þeir voru að gefa út fyrir stuttu Wacom One, sem er svona.. budget Cintiq.. teikniskjár fyrir hobbýiasta. Ég hef ekki prófað þá sjálfur, en get lofað þér því að þú ert öruggur með vörur frá þeim. Sá er 13"3 tommur og er þá aukaskjár aem þú tengir við tölvu.

https://www.wacom.com/en-us/products/pe ... /wacom-one

Svo geturðu farið lengra og farið í stærri Cintiqs.

Það eru til svo budget teikniskjáir, Kamvas frá HUION og svo Artist frá XP Pen. Mín tilfinning fyrir þeim er samt svona.. kínadrasl og drivera vesen. Þó hef ég ekki persónulega reynslu af þessum vörum, en ég líka ætla bara að forðast þær.


Uuuu... ég get ábyggilega svarað fleiri spurningum hafirðu þær.

Gangi þér vel.




Höfundur
J1nX
vélbúnaðarpervert
Póstar: 920
Skráði sig: Fim 15. Mar 2007 12:18
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: teikniborð/skjár/thing?

Pósturaf J1nX » Þri 05. Maí 2020 21:09

Þakka þér kærlega fyrir þessar upplýsingar, ætlað skoða þetta :) er í lagi að ég hendi á þig pm ef ég hef einhverjar fleiri spurningar?




Mossi__
vélbúnaðarpervert
Póstar: 922
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 404
Staða: Ótengdur

Re: teikniborð/skjár/thing?

Pósturaf Mossi__ » Þri 05. Maí 2020 21:41

Alveg sjálfsagt.




mikkimás
Gúrú
Póstar: 594
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 113
Staða: Ótengdur

Re: teikniborð/skjár/thing?

Pósturaf mikkimás » Þri 05. Maí 2020 21:51

J1nX skrifaði:Þakka þér kærlega fyrir þessar upplýsingar, ætlað skoða þetta :) er í lagi að ég hendi á þig pm ef ég hef einhverjar fleiri spurningar?

Af hverju ekki bara að henda spurningunum inn á þennan þráð og leyfa öðrum í svipuðum hugleiðingum að njóta góðs af?




asigurds
Nörd
Póstar: 138
Skráði sig: Mið 14. Júl 2010 11:55
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: teikniborð/skjár/thing?

Pósturaf asigurds » Þri 05. Maí 2020 23:08

Gaf stelpunni minni svona fyrir ca 2 árum. https://www.amazon.com/gp/product/B072K ... UTF8&psc=1 Var ánægð með hann enn henni finnst hann aðeins of stór í dag og myndi vilja eitthvað minn og er því lítið notaður. Er til sölu ef einhver hefur áhuga. skoða skipti á minni græju / ipad.




Höfundur
J1nX
vélbúnaðarpervert
Póstar: 920
Skráði sig: Fim 15. Mar 2007 12:18
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: teikniborð/skjár/thing?

Pósturaf J1nX » Þri 05. Maí 2020 23:54

asigurds skrifaði:Gaf stelpunni minni svona fyrir ca 2 árum. https://www.amazon.com/gp/product/B072K ... UTF8&psc=1 Var ánægð með hann enn henni finnst hann aðeins of stór í dag og myndi vilja eitthvað minn og er því lítið notaður. Er til sölu ef einhver hefur áhuga. skoða skipti á minni græju / ipad.


hvað hafðirðu hugsað þér að fá fyrir hann?




Mossi__
vélbúnaðarpervert
Póstar: 922
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 404
Staða: Ótengdur

Re: teikniborð/skjár/thing?

Pósturaf Mossi__ » Mið 06. Maí 2020 00:29

Mig langar að benda ykkur á að af öllum svona skjám sem eru ekki frá Wacom, þá (skv reviews og word of mouth) þá eru Huion vörurnar að koma best út. :)

bæði með gæði á vörum og support og svona.

En vil samt að það komi aftur fram að ég hef ekki reynslu af þeim sjálfur.




Dóri S.
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
Reputation: 72
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: teikniborð/skjár/thing?

Pósturaf Dóri S. » Fös 08. Maí 2020 02:14

Mossi__ skrifaði:Mig langar að benda ykkur á að af öllum svona skjám sem eru ekki frá Wacom, þá (skv reviews og word of mouth) þá eru Huion vörurnar að koma best út. :)

bæði með gæði á vörum og support og svona.

En vil samt að það komi aftur fram að ég hef ekki reynslu af þeim sjálfur.


Huion er fínt, en XP-Pen og fleiri merki eru alls ekki að koma verr út. Ég á sjálfur XP-Pen og Wacom borð og í fullri alvöru þá er supportið hjá XP-pen betra. :)




Dóri S.
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
Reputation: 72
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: teikniborð/skjár/thing?

Pósturaf Dóri S. » Fös 08. Maí 2020 02:17

asigurds skrifaði:Gaf stelpunni minni svona fyrir ca 2 árum. https://www.amazon.com/gp/product/B072K ... UTF8&psc=1 Var ánægð með hann enn henni finnst hann aðeins of stór í dag og myndi vilja eitthvað minn og er því lítið notaður. Er til sölu ef einhver hefur áhuga. skoða skipti á minni græju / ipad.

Ég er með Wacom 13HD og XP-Pen 15.6 og væri alveg til í að skipta við þig (Það er hægt að skoða milligjöf) ef annað borðið gæti hentað stelpunni þinni. :)