Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Höfundur
Amplus
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Sun 01. Maí 2016 15:46
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Amplus » Sun 15. Maí 2016 01:18

Góðan dag,

Foreldrar mínir eiga heima úti á landi þar sem eini möguleikinn á sjónvarpsefni er í gegnum örbylgjuloftnet. Ég sannfærði pabba að uppfæra í nýjasta myndlykilinn sem er með upptöku möguleika ef maður tengir harðan disk við hann, sem ég og gerði. Skellti við hann 1TB external usb drifi sem er með sér power snúru. Þetta dótarí hefur verið frekar óstabílt hjá pabba. Það hefur gerst nokkrum sinnum að afruglarinn týnir flakkaranum sem endar með því að ég þarf að formata diskinn aftur í tölvunni, þá sér græjan hann aftur og getur formatað hann á sínu lokaða formati og pabbi getur farið að taka aftur upp Bold and the Bautiful og Nágranna \:D/ . Með þessu tapar kalllinn náttúrlega öllum uppsöfnuðum upptökum með reglulegu millibili #-o .

Hvernig er það, hefur einhver hér svipaða reynslu af þessu dótið? Ætli það sé böggaður hugbúnaður á afruglaranum eða ætli harði diskurinn sé farinn að gefa sig? Þegar ég formataði diskinn síðast sá ég partition-ir á honum sem afruglarinn hafði útbúið, þær eru a.m.k. ennþá til staðar en samt týnir afruglarinn disknum...

https://vodafone.is/sjonvarp/sjonvarpsthjonusta/myndlyklar/

Umræddur afruglari er númer 2 í röðinni á bakvið ofangreinda slóð.

Höfundur
Amplus
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Sun 01. Maí 2016 15:46
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf Amplus » Mið 18. Maí 2016 14:49

Spurði Vodafone og fékk þetta svar:

Tæknimennirnir eru búnir að skoða og það er eitthvað skrýtið í gangi þá annaðhvort í lyklinum eða harða disknum.

Það er ekki þeirra reynsla að hann hagi sér með þessum hætti, gerðar voru ansi miklar prófanir áður en hann var innleiddur og hann prófaður á móti fjölda flakkara og USB kubba.

Skrárnar eru þó alltaf læstar en það eru vegna þess að verið er að taka upp höfundaréttarvarið efni og krafa að það sé dulkóðað.

Þeir mæla með því að þú prófir annan lykil bara til að vera alveg viss um að hann sé ekki vandamálið.

Best að fara að versla harðan disk... :svekktur

arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 130
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf arons4 » Mið 18. Maí 2016 18:00

Amplus skrifaði:Spurði Vodafone og fékk þetta svar:

Tæknimennirnir eru búnir að skoða og það er eitthvað skrýtið í gangi þá annaðhvort í lyklinum eða harða disknum.

Það er ekki þeirra reynsla að hann hagi sér með þessum hætti, gerðar voru ansi miklar prófanir áður en hann var innleiddur og hann prófaður á móti fjölda flakkara og USB kubba.

Skrárnar eru þó alltaf læstar en það eru vegna þess að verið er að taka upp höfundaréttarvarið efni og krafa að það sé dulkóðað.

Þeir mæla með því að þú prófir annan lykil bara til að vera alveg viss um að hann sé ekki vandamálið.

Best að fara að versla harðan disk... :svekktur

Búinn að prófa annan myndlykil eins og bent var á?

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf jonsig » Mið 18. Maí 2016 21:49

tæknimaður er ekki lögvarið starfsheiti XD , fúskarar upp til hópa .

Skjámynd

einarhr
Vaktari
Póstar: 2011
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 276
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf einarhr » Fim 19. Maí 2016 00:35

jonsig skrifaði:tæknimaður er ekki lögvarið starfsheiti XD , fúskarar upp til hópa .

Hvað með það þó það sé ekki lögvarið starfsheiti og frekar barnalegt af þér að segja að Tæknimenn séu fúskarar upp til hópa þar sem margir af bestu tölvuviðgerðarmönnum/tæknimönnum er ekki með gráðu í Rafeindavirkjun.

Ef þú hefur sannanir fyrir því að (tæknimenn) séu fúskara upp til hópa þá væri ég til í að þú birtir þær hér á vaktinni

| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 130
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf arons4 » Fim 19. Maí 2016 12:18

jonsig skrifaði:tæknimaður er ekki lögvarið starfsheiti XD , fúskarar upp til hópa .

Þarft ekki lögvarið starfsheiti til að kunna á sérhæfðan búnað(td þennan ml) sem þú lærir ekkert um við það að sækja þetta starfsheiti.

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf jonsig » Sun 22. Maí 2016 22:50

Tilgangurinn einmitt með að láta fólk sem ætlar sér að bjóða einhverskonar þjónustu er að láta það gangast undir einhverskonar fagpróf .Þá aðallega til að vernda kúnnan .

þótt þú þekkir einhvern sem kann eitthvað í einhverju fagi réttlætir ekki starfsemi fúskara . Það er greinilegt að ég steig á einhverjar tær þarna .

arons4 skrifaði:
jonsig skrifaði:tæknimaður er ekki lögvarið starfsheiti XD , fúskarar upp til hópa .

Þarft ekki lögvarið starfsheiti til að kunna á sérhæfðan búnað(td þennan ml) sem þú lærir ekkert um við það að sækja þetta starfsheiti.

Hvað ertu að bulla ?

Og til að svara einarhr . þá eru félagsmenn í félagi "tæknifólks"(fúskara) í rafiðnaði , innan RSÍ að nálgast annað þúsundið .

arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 130
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf arons4 » Þri 24. Maí 2016 12:12

jonsig skrifaði:Tilgangurinn einmitt með að láta fólk sem ætlar sér að bjóða einhverskonar þjónustu er að láta það gangast undir einhverskonar fagpróf .Þá aðallega til að vernda kúnnan .

þótt þú þekkir einhvern sem kann eitthvað í einhverju fagi réttlætir ekki starfsemi fúskara . Það er greinilegt að ég steig á einhverjar tær þarna .

arons4 skrifaði:
jonsig skrifaði:tæknimaður er ekki lögvarið starfsheiti XD , fúskarar upp til hópa .

Þarft ekki lögvarið starfsheiti til að kunna á sérhæfðan búnað(td þennan ml) sem þú lærir ekkert um við það að sækja þetta starfsheiti.

Hvað ertu að bulla ?

Og til að svara einarhr . þá eru félagsmenn í félagi "tæknifólks"(fúskara) í rafiðnaði , innan RSÍ að nálgast annað þúsundið .

Menn sem vinna með sérhæfan búnað(eins og tildæmis eina týpu af myndlyklum) fá lítið sem ekkert út úr neinu námi sem veitir þeim lögbundið starfsheiti. Heldur sækja þeir sína kunnáttu til framleiðandans.

Get nefnt sem dæmi cisco, ekkert lögvarið starfsheiti í kringum þann búnað(enda mjög sérhæfður) en þrátt fyrir það er besta kennslan á hann vottuð af framleiðandanum sjálfum, ekki ríki eða lögum.

Að kalla alla tæknimenn fúskara er fáránlegt.

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf hagur » Þri 24. Maí 2016 12:59

Jonsig mætti nú aðeins róa sig í því að tala niður til fólks og láta eins og hann viti allt best. Smá auðmýkt er mikill mannkostur.

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf jonsig » Þri 24. Maí 2016 20:10

Finnst eðlilegt að menn sem taka sér mörg ár og fórnir til að ná ákveðnum titlum geti varið sitt fag og þegar fúskarar taka sér fancy starfstitla og reyna squeeza sér inná þeirra fagsvið finnst mér eðlilegt að í þá hlaupi réttmætur pirringur .

ps , var að tjá mig um félag "tæknifólks" í rafiðnaði , ekki heildina í síðasta pósti.

Fyrir þá sem eru að misskilja hugtakið fúskari eða skilja það ekki yfir höfuð .
https://is.wiktionary.org/wiki/f%C3%BAskari .

capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf capteinninn » Þri 24. Maí 2016 20:21

jonsig skrifaði:Finnst eðlilegt að menn sem taka sér mörg ár og fórnir til að ná ákveðnum titlum geti varið sitt fag og þegar fúskarar taka sér fancy starfstitla og reyna squeeza sér inná þeirra fagsvið finnst mér eðlilegt að í þá hlaupi réttmætur pirringur .

ps , var að tjá mig um félag "tæknifólks" í rafiðnaði , ekki heildina í síðasta pósti.

Fyrir þá sem eru að misskilja hugtakið fúskari eða skilja það ekki yfir höfuð .
https://is.wiktionary.org/wiki/f%C3%BAskari .

Fór eitthvað framhjá mér en var ekki búið að staðfesta að "tæknimaður" væri ekki lögvarið og í raun ekki neinn titill. Get ekki verið sammála því að þótt einhver titli sig tæknimann að hann sé einhver fúskari.

Annars ef við miðum við wiki sem þú vísar í þá eru aðilar sem hafa unnið með ákveðinn búnað í einhvern tímann ekki fúskarar þar sem þeir hafa meira en afar takmarkaða þekkingu á því sviði. Myndi telja að tæknimenn hjá símafyrirtækjum sem hafa gert ýmsar prófanir á búnaði væru því ekki "fúskarar" eins og þú talar um.

Er sammála hagur að smá auðmýkt sé mikill mannkostur.

Skjámynd

einarhr
Vaktari
Póstar: 2011
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 276
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf einarhr » Þri 24. Maí 2016 20:28

jonsig skrifaði:Finnst eðlilegt að menn sem taka sér mörg ár og fórnir til að ná ákveðnum titlum geti varið sitt fag og þegar fúskarar taka sér fancy starfstitla og reyna squeeza sér inná þeirra fagsvið finnst mér eðlilegt að í þá hlaupi réttmætur pirringur .

ps , var að tjá mig um félag "tæknifólks" í rafiðnaði , ekki heildina í síðasta pósti

Fyrir þá sem eru að misskilja hugtakið fúskari eða skilja það ekki yfir höfuð .
https://is.wiktionary.org/wiki/f%C3%BAskari .

Á meðan lærðir Rafvirkjar og Rafeindavikjrar sækja ekki í þessi störf þá er lítið hægt að gera annað en að fá ófaglærða í starfið. Það að þú kalli þá fúskara segir allt um þig, ss að þú lítur niður á fólk.

VIð td bilanagreinindug á PC þá segir rafeindavirkjanámið lítið þar flestir sem eru í þessum buissnes eru að skipta út íhlutum og finna stýrikerfisvillur.

Þú bendir á núna að þú hafir að verið að tala um rafiðnað, það eru já ákveðnar reglur varðandi hverjir mega draga rafmagn ofl en það er alfarið á ábyrgð þess Rafvirkjameistara sem tekur það fólk í vinnu. Taktu tryllingin á yfirmann þinn sem tímir ekki að borga laun frekar enn að ráðast á tæknimenn á vaktinni og hættu þessu snobbi

| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf hagur » Þri 24. Maí 2016 20:43

jonsig skrifaði:Finnst eðlilegt að menn sem taka sér mörg ár og fórnir til að ná ákveðnum titlum geti varið sitt fag og þegar fúskarar taka sér fancy starfstitla og reyna squeeza sér inná þeirra fagsvið finnst mér eðlilegt að í þá hlaupi réttmætur pirringur .

ps , var að tjá mig um félag "tæknifólks" í rafiðnaði , ekki heildina í síðasta pósti.

Fyrir þá sem eru að misskilja hugtakið fúskari eða skilja það ekki yfir höfuð .
https://is.wiktionary.org/wiki/f%C3%BAskari .

Skil það fullkomlega. Finnst þú bara heldur fljótur að stimpla fólk fúskara án þess að hafa eitthvað fyrir þér í því. Auðvitað eru tæknimenn misjafnir eins og þeir eru margir, alveg eins og allir aðrir og klárlega fúskarar inná milli þar eins og annarsstaðar. Þeir eru samt vonandi í minnihluta.

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Háskerpumyndlykill fyrir loftnet og upptaka. Reynslusögur?

Pósturaf jonsig » Þri 24. Maí 2016 21:45

einarhr skrifaði:
jonsig skrifaði:Finnst eðlilegt að menn sem taka sér mörg ár og fórnir til að ná ákveðnum titlum geti varið sitt fag og þegar fúskarar taka sér fancy starfstitla og reyna squeeza sér inná þeirra fagsvið finnst mér eðlilegt að í þá hlaupi réttmætur pirringur .

ps , var að tjá mig um félag "tæknifólks" í rafiðnaði , ekki heildina í síðasta pósti

Fyrir þá sem eru að misskilja hugtakið fúskari eða skilja það ekki yfir höfuð .
https://is.wiktionary.org/wiki/f%C3%BAskari .

Á meðan lærðir Rafvirkjar og Rafeindavikjrar sækja ekki í þessi störf þá er lítið hægt að gera annað en að fá ófaglærða í starfið. Það að þú kalli þá fúskara segir allt um þig, ss að þú lítur niður á fólk.

VIð td bilanagreinindug á PC þá segir rafeindavirkjanámið lítið þar flestir sem eru í þessum buissnes eru að skipta út íhlutum og finna stýrikerfisvillur.

Þú bendir á núna að þú hafir að verið að tala um rafiðnað, það eru já ákveðnar reglur varðandi hverjir mega draga rafmagn ofl en það er alfarið á ábyrgð þess Rafvirkjameistara sem tekur það fólk í vinnu. Taktu tryllingin á yfirmann þinn sem tímir ekki að borga laun frekar enn að ráðast á tæknimenn á vaktinni og hættu þessu snobbi

Segjum svo að skortur sé á byggingaverkfræðingum , eigum við að leysa það með að hleypa sjálflærðum meina inní fagið og sjá hvernig það endar, bara tek dæmi .

Maður á að geta verið ósáttur við svona vankannta á vinnumenninguni hérna á íslandi án þess að vera blammeraður niður . Kallaður hrokagikkur , bessewisser osvfr. Það þarf að standa vörð um lögvarðar starfsgreinar því ávinningurinn af því er ekki metinn til fjár .

En frá því öllu hef ég ekki yfir neinu að kvarta við minn yfirmann ,er meira en sáttur við mín hlutskipti :)