Gagnaveita Reykjavíkur leggur ljósleiðara
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 84
- Skráði sig: Þri 20. Okt 2009 22:59
- Reputation: 28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Gagnaveita Reykjavíkur leggur ljósleiðara
Ég var búinn að bíða eftir því í nokkur ár að þeir kæmu í götuna, svo loksins rættist draumurinn sérfræðingur kom fyrst og ákvað að inntakið skyldu vera í sérbyggðum bílskúrnum sem er 15 metra frá húsinu. Ekki var hægt að hagga þeirri ákvörðun. Síðan komu þeir lögðu ljóleiðarann um götuna og inn í skúr. Nokkru síðar komu menn sem voru í hálftíma að reyna að blása fíbernum frá skúrum og inn inn í hús, en þeir gáfust upp og fékk ég upplýsingar um það hjá GR að tengingu inn inn í húsið var hafnað. Hvernig finnst ykkur þessi þjónusta, og hef ég einhverja möguleika að nýta mér þetta svona.?
-
- /dev/null
- Póstar: 1454
- Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
- Reputation: 226
- Staðsetning: In the forest
- Staða: Ótengdur
Re: Gagnaveita Reykjavíkur leggur ljósleiðara
Geturðu ekki bara fengið ljósleiðarann í gang úti í skúr og sett lankapal á milli skúrs og húss?
Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 84
- Skráði sig: Þri 20. Okt 2009 22:59
- Reputation: 28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Gagnaveita Reykjavíkur leggur ljósleiðara
nidur skrifaði:Geturðu ekki bara fengið ljósleiðarann í gang úti í skúr og sett lankapal á milli skúrs og húss?
Þá þarf ég eftir sem áður að grafa upp garðinn á milli skúrsins og hússins. Svo er spurning hvort ég geti komið upp WiFi frá skúr og senda það yfir ?
-
- /dev/null
- Póstar: 1454
- Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
- Reputation: 226
- Staðsetning: In the forest
- Staða: Ótengdur
Re: Gagnaveita Reykjavíkur leggur ljósleiðara
Persónulega myndi ég bara grafa fyrir 2 köplum, en þú getur fengið þér directional Wifi antennas til að senda á milli með góðum styrk og örugglega með fínum hraða.
Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16575
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2137
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Gagnaveita Reykjavíkur leggur ljósleiðara
joker skrifaði:nidur skrifaði:Geturðu ekki bara fengið ljósleiðarann í gang úti í skúr og sett lankapal á milli skúrs og húss?
Þá þarf ég eftir sem áður að grafa upp garðinn á milli skúrsins og hússins. Svo er spurning hvort ég geti komið upp WiFi frá skúr og senda það yfir ?
Það er smámál að grafa smá skurð á milli og setja eitt rör ofan í.
-
- Gúrú
- Póstar: 589
- Skráði sig: Þri 18. Ágú 2009 10:41
- Reputation: 4
- Staðsetning: Garðabær
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 84
- Skráði sig: Þri 20. Okt 2009 22:59
- Reputation: 28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Takk Gagnaveita Reykjavíkur
Fljótlega eftir að ég setti þetta inn hafði GR samband við mig og þeir aðstoðuðu mig að ljúka málinu. Ég varð reyndar að sjá um jarðvinnuna sjálfur þar á meðal að grafa upp stéttina (með snjóbræðslu) fyrir framan hús. Að lokum fannst rör í jörðu sem hægt var að nýta fyrir fíberinn og inn í hús. Nú er ég kominn með margfalt hraðari tengingu en ljósnetið gat boðið uppá. Kærar þakkir Gagnaveita Reykjavíkur fyrir frábæra þjónustu.
Re: Gagnaveita Reykjavíkur leggur ljósleiðara
Fannst rör í jörðu? semsagt ekki rör sem þeir vissu af og því væntanlega ekki þeirra eigið? það er bannað og lélegt af GR ef það er þá þannig.
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 84
- Skráði sig: Þri 20. Okt 2009 22:59
- Reputation: 28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Gagnaveita Reykjavíkur leggur ljósleiðara
wicket skrifaði:Fannst rör í jörðu? semsagt ekki rör sem þeir vissu af og því væntanlega ekki þeirra eigið? það er bannað og lélegt af GR ef það er þá þannig.
Þetta var ónotað rör í minni eigu og átti að notast fyrir símalögn út í bílskúr.