Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Höfundur
dreki
Græningi
Póstar: 40
Skráði sig: Mán 19. Apr 2004 11:28
Reputation: 0
Staðsetning: Hérna
Staða: Ótengdur

Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf dreki » Mið 19. Des 2012 11:44

Sælir vaktarar!

Er að reyna að velja mér fartölvu sem að ég mun taka með mér út í skóla á næsta ári og er búinn að þrengja valið niður í þessar 3. En þar sem ég hef ekki mikla reynslu af fartölvum eru öll komment og uppástungur vel þegnar.

Kröfurnar hjá mér eru að ég vil meiri upplausn heldur en 1300*700, dedicated skjákort er líklega nauðsynlegt þar sem ég vil ekki lenda í vandræðum með að heimsækja Skyrim af og til :) og ég vil reyna að halda þyngd og stærð niðri þannig að stærri skjár en 15.6 tommu er ekki inní myndinni.

Þær tölvur sem ég er búinn að finna og vill endilega fá komment á frá þekkingarmeiri mönnum en mér :) :
http://www.tolvutek.is/vara/lenovo-ideapad-y500-mbg2amh-fartolva-svort
Heyrt fína hluti um lenovo fartölvur og þessi virðist hafa speccana sem ég er að leita eftir fyrir utan afar stutta batteríendingu!

http://start.is/product_info.php?cPath=138_268&products_id=3569
Þessar líta nokkuð spennandi út, hægt að fá flotta specca fyrir verðið en er einhver með reynslu af dreamware vélum? Vont að vera kominn hinu megin á hnöttinn ef vélin ákveður að deyja :-k

http://www.samsungsetrid.is/vorur/635/
Þessi er kannski ekki alveg eins góða specca eins og hinar en mjög flott og nett auk þess að vera líklega með bestu batteríendinguna. En er eitthvað sem þið mynduð telja að réttlæti þennan mikla verðmun (t.d. að samsung séu með eina minnstu bilanatíðni eins og sölumaður í samsungsetrinu hélt fram?)

Ef einhverjir hér vita um svipaðar vélar sem mér hefur yfirfarist, þá eru allar ábendingar vel þegnar.

Skjámynd

Svansson
has spoken...
Póstar: 163
Skráði sig: Lau 14. Apr 2012 21:20
Reputation: 0
Staðsetning: Hérna
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf Svansson » Mið 19. Des 2012 12:56

Sjálfur er ég að skoða þessa lenovo fartölvu, mér finnst 3 klst frekar góð ending meða við vélbúnaðinn. En veistu eithvað um hvort það sé íslenskt lyklaborð á henni?

550D - 3770K - GTX760 - Rm750W - z77 OC formula - 250gb - 2tb - h100i

Skjámynd

Legolas
Geek
Póstar: 818
Skráði sig: Fim 22. Júl 2004 22:18
Reputation: 2
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf Legolas » Mið 19. Des 2012 13:01

Dreamware W150ERQ

INTEL Core QuadCore i5-6600k @4.3GHz : GIGABYTE Z170x-Gaming 3 G1 (Skylake) : GIGABYTE GTX1060 G1 GAMING 6GB :
CORSAIR Vengeance LPX 2x8GB DDR4 3.000MHz : BenQ EX3501R
+ DELL P2714H

Höfundur
dreki
Græningi
Póstar: 40
Skráði sig: Mán 19. Apr 2004 11:28
Reputation: 0
Staðsetning: Hérna
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf dreki » Mið 19. Des 2012 13:37

@ pedoman
Nei veit það ekki en skilst á tölvutek að hún eigi að lenda í dag og vera komin fram í verslun á morgun þannig að maður getur tékkað á henni þá.

@legolas
er það rétt skilið hjá mér að þú eigir dreamware tölvu? Ef svo, ertu búinn að eiga hana lengi og hvernig hefur hún verið að reynast?

Skjámynd

Legolas
Geek
Póstar: 818
Skráði sig: Fim 22. Júl 2004 22:18
Reputation: 2
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf Legolas » Mið 19. Des 2012 13:54

dreki skrifaði:@ pedoman
Nei veit það ekki en skilst á tölvutek að hún eigi að lenda í dag og vera komin fram í verslun á morgun þannig að maður getur tékkað á henni þá.

@legolas
er það rétt skilið hjá mér að þú eigir dreamware tölvu? Ef svo, ertu búinn að eiga hana lengi og hvernig hefur hún verið að reynast?

Já passar, hún er bara dásamleg í alla staði og er að skora mjög vel í öllun testum. Ég mundi aldrei skipta henni út fyrir Samsunginn og hvað þá Lenovo

INTEL Core QuadCore i5-6600k @4.3GHz : GIGABYTE Z170x-Gaming 3 G1 (Skylake) : GIGABYTE GTX1060 G1 GAMING 6GB :
CORSAIR Vengeance LPX 2x8GB DDR4 3.000MHz : BenQ EX3501R
+ DELL P2714H

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6787
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 939
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf Viktor » Mið 19. Des 2012 14:50

Myndi ekki mæla með DreamWare tölvunum.

Félagi minn lenti í því að HDMI tengið hætti að virka svo það þurfti að skipta um móðurborð.
Það sama gerðist nokkrum mánuðum eftir, án þess að það kæmi neitt óeðlilegt fyrir vélina, bara eðlileg notkun á tenginu til að horfa á sjónvarp reglulega.

Mun betra build quality t.d. í HP dv2 tölvu sem félagi minn á, og Dell XPS vélunum.
Ef þú setur HDMI í þær er það ekki svona laust og lélegt eins og í DreamWare. Svona tengi þurfa að vera mjög vel styrkt og fest við móðurborðið og mega alls ekki geta hreyfst mikið, því þetta er fljótt að missa samband.

Mynd

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

start
Nörd
Póstar: 123
Skráði sig: Lau 15. Nóv 2003 15:59
Reputation: 19
Staðsetning: Bæjarlind 1, Kópavogi
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf start » Mið 19. Des 2012 16:05

Sallarólegur skrifaði:Myndi ekki mæla með DreamWare tölvunum.

Félagi minn lenti í því að HDMI tengið hætti að virka svo það þurfti að skipta um móðurborð.
Það sama gerðist nokkrum mánuðum eftir, án þess að það kæmi neitt óeðlilegt fyrir vélina, bara eðlileg notkun á tenginu til að horfa á sjónvarp reglulega.

Mun betra build quality t.d. í HP dv2 tölvu sem félagi minn á, og Dell XPS vélunum.
Ef þú setur HDMI í þær er það ekki svona laust og lélegt eins og í DreamWare. Svona tengi þurfa að vera mjög vel styrkt og fest við móðurborðið og mega alls ekki geta hreyfst mikið, því þetta er fljótt að missa samband.

Verð nú að svara þessu þó það sé búið að ræða þetta einstaka mál á öðrum eldri þræði. Þessi vinur þinn braut tengið, svo einfalt var það og fékk nýtt móðurborð út úr tryggingunum. Þetta hefur ekkert með dreamware að gera, hefði gerst á hvaða tölvu sem er. Þetta gerðist ekki við "eðlilega" notkun enda ef þetta tengi væri gallað þá hefði einhver annar lent í þessu líka.

starionturbo
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 24. Des 2007 11:23
Reputation: 8
Staðsetning: localhost
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf starionturbo » Mið 19. Des 2012 16:18

Tæki þessa Lenovo vél, hún er speccalega séð best.

Foobar

Skjámynd

Plushy
Vaktari
Póstar: 2277
Skráði sig: Fim 02. Sep 2010 18:20
Reputation: 20
Staðsetning: Grafarvogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf Plushy » Mið 19. Des 2012 19:31

Mæli ekki með þessari Lenovo tölvu. Gæti vel verið að það komi sér vel að vera með öflugt skjákort og HD Skjá, en raunin er að það er EKKI gaman að vera með max 3 klst batterýendingu.

Ég vel oftast batterýendingu framyfir flest annað.

starionturbo
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 24. Des 2007 11:23
Reputation: 8
Staðsetning: localhost
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf starionturbo » Fim 20. Des 2012 00:38

Thad er alveg persónubundid. Eg nota ferdavel sem workstation, mer er sama um batteryisendingu. bara dock heima og a vinnustödum.

Foobar

Skjámynd

FuriousJoe
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1623
Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
Reputation: 20
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf FuriousJoe » Fim 20. Des 2012 01:11

Lenovo vélin er virkilega flott, og kom í takmörkuðu magni. Þú ert með i5, 8GB DDR3 1600, 2GB GeForce skjákort, kemur með Win8 sem er eitt fallegasta stýrikerfi sem ég hef séð. Baklýst lyklaborð, 1000 netkort o.s.f - Auðvitað má búast við 3 tíma rafhlöðuendingu, þú ert með virkilega öfluga vél þarna. - Svo má benda á að með power save stillingunni geturu fengið meiri nýtni úr rafhlöðunni ef þú ert t.d að nota hana fyrir skóla og vilt svo leika þér í tölvuleik þegar þú kemur heim. ;)

Ef þú ert að fara að eyða 170-180.000 kalli í tölvu skaltu taka tölvuna sem býður þér mest, og hentar fyrir það sem þú vilt. Svo ef þú tekur þessa Lenovo, mæli ég hiklaust með tryggingu hjá Tölvutek. - Alltof oft sem fólk segir "Neinei, erum með heimilistryggingu" og svo kemur eitthvað fyrir, og þau þurfa að borga 20-40.000+ í sjálfsábyrgð og heimilistryggingin getur hækkað eftir tjónið. Tryggingin kostar aðeins 10.000kr og borgar sig strax. Klárlega þess virði þegar menn henda 180.000 í tölvu.

Virkilega góð tilfining að halda á fartölvu, vitandi það að ef þú missir hana, verður hún lagfærð að kostnaðarlausu.

Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD

darkppl
Gúrú
Póstar: 543
Skráði sig: Mán 12. Júl 2010 21:40
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf darkppl » Fim 20. Des 2012 01:24

þarf maður að kaupa hana strax eða getur maður beðið tildæmis nokkra daga með trygginguna

I7-8700K|Corsair H-150i|Asus Maximus X Hero (Wifi) |32GB G.Skill Tridend Z RGB|GTX 1080ti |
Coolermaster Mastercase 5|

Skjámynd

FuriousJoe
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1623
Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
Reputation: 20
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf FuriousJoe » Fim 20. Des 2012 01:36

darkppl skrifaði:þarf maður að kaupa hana strax eða getur maður beðið tildæmis nokkra daga með trygginguna

Held það séi gefinn 1-2 viku umhugsunarfrestur, en tölvan þarf að vera metin þegar að því kemur - til að ganga úr skugga um að hún hafi þegar orðið fyrir tjóni.

Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1322
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf Klemmi » Fim 20. Des 2012 01:41

FuriousJoe skrifaði:Svo ef þú tekur þessa Lenovo, mæli ég hiklaust með tryggingu hjá Tölvutek. - Alltof oft sem fólk segir "Neinei, erum með heimilistryggingu" og svo kemur eitthvað fyrir, og þau þurfa að borga 20-40.000+ í sjálfsábyrgð og heimilistryggingin getur hækkað eftir tjónið. Tryggingin kostar aðeins 10.000kr og borgar sig strax. Klárlega þess virði þegar menn henda 180.000 í tölvu.

Kostar 10.000kr.- og borgar sig strax? Þessi setning meikar ekkert sense.

En auðvitað borgar hún sig EF þú skyldir vera svo óheppinn að missa tölvuna eða skemma á annan hátt. Það er þó alltaf þannig að tryggingar snúast um að iðgjöldin eru hærri heldur en tjónagreiðslur, húsið vinnur alltaf, svo ég get ekki verið sammála þér að þegar litið sé á heildarmyndina borgi það sig fyrir alla að kaupa slíka tryggingu.

Sjálfur hef ég átt ~10 fartölvur og aldrei lent í tjóni, sjö-níu-þrettán.

Skjámynd

FuriousJoe
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1623
Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
Reputation: 20
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf FuriousJoe » Fim 20. Des 2012 01:47

Klemmi skrifaði:

Nei, ég er einfaldlega að meina að þetta borgi sig strax vegna þú verður strax öruggur með tölvuna þína. Það þýðir ekki að hugsa eftir á, og þótt að þú hafir ekki orðið fyrir tjóni þýðir ekki að það gerist aldrei. - Fyrir einstakling að borga 10.000kr aukalega fyrir tölvu sem kostar hátt í 200.000 er ekki tap, það er gróði, því þú ert með tæp 200.000 kr tölvu og vilt vera öruggur með hana. Ég veit um fólk sem ég þekki persónulega, sem keypti sér tölvu og helti yfir hana mánuði seinna, ef hann hefði ekki verið með trygginguna þá hefði hann þurft að borga annaðkvort sjálfsábyrgð eða allt tjónið. - Með þessari tryggingu þarftu ekki að borga krónu.

Sama hvort "húsið" séi að græða eða ekki, þá ert ÞÚ tryggður gegn tjóni á þinni fartölvu, þér að kostnaðarlausu. - Og það eitt og sér er klárlega að borga sig strax.

Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD

Höfundur
dreki
Græningi
Póstar: 40
Skráði sig: Mán 19. Apr 2004 11:28
Reputation: 0
Staðsetning: Hérna
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf dreki » Fim 20. Des 2012 01:57

Legolas skrifaði:
dreki skrifaði:@ pedoman
Nei veit það ekki en skilst á tölvutek að hún eigi að lenda í dag og vera komin fram í verslun á morgun þannig að maður getur tékkað á henni þá.

@legolas
er það rétt skilið hjá mér að þú eigir dreamware tölvu? Ef svo, ertu búinn að eiga hana lengi og hvernig hefur hún verið að reynast?

Já passar, hún er bara dásamleg í alla staði og er að skora mjög vel í öllun testum. Ég mundi aldrei skipta henni út fyrir Samsunginn og hvað þá Lenovo

Hvað áttu við með að þú myndir aldrei skipta henni út fyrir samsung og hvað þá Lenovo? Ég veit reyndar ekki mikið með samsung vélarnar en eftir að skoða forums þá virðast menn almennt nokkuð sáttir með Lenovo merkið. Er það einhver miskilningur hjá mér?

Höfundur
dreki
Græningi
Póstar: 40
Skráði sig: Mán 19. Apr 2004 11:28
Reputation: 0
Staðsetning: Hérna
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf dreki » Fim 20. Des 2012 02:01

FuriousJoe skrifaði:Lenovo vélin er virkilega flott, og kom í takmörkuðu magni. Þú ert með i5, 8GB DDR3 1600, 2GB GeForce skjákort, kemur með Win8 sem er eitt fallegasta stýrikerfi sem ég hef séð. Baklýst lyklaborð, 1000 netkort o.s.f - Auðvitað má búast við 3 tíma rafhlöðuendingu, þú ert með virkilega öfluga vél þarna. - Svo má benda á að með power save stillingunni geturu fengið meiri nýtni úr rafhlöðunni ef þú ert t.d að nota hana fyrir skóla og vilt svo leika þér í tölvuleik þegar þú kemur heim. ;)

...

Jú speccarnir eru góðir :) veistu hversu mikið þessi power save stilling myndi vera að gera fyrir mann á þessari vél?

Skjámynd

FuriousJoe
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1623
Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
Reputation: 20
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf FuriousJoe » Fim 20. Des 2012 02:06

dreki skrifaði:

Þú getur vel bætt við amk klukkutíma. (hef ekki mælt það persónulega, bara gisk.) - Power Save minnkar birtuna á skjánum og "slakar á" tölvunni, fínt í ritvinnslu o.s.f - svo þegar þú stingur henni í samband við rafmagn ætti hún að fara sjálfkrafa á venjulega eða "high preformance" stillingu, fer eftir því hvernig þú setur þetta upp. (finnur allt undir "Power Options".) - Og þá taka tölvuleikirnir við :)

Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1322
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf Klemmi » Fim 20. Des 2012 02:27

FuriousJoe skrifaði:Ég veit um fólk sem ég þekki persónulega, sem keypti sér tölvu og helti yfir hana mánuði seinna, ef hann hefði ekki verið með trygginguna þá hefði hann þurft að borga annaðkvort sjálfsábyrgð eða allt tjónið. - Með þessari tryggingu þarftu ekki að borga krónu.

Sama hvort "húsið" séi að græða eða ekki, þá ert ÞÚ tryggður gegn tjóni á þinni fartölvu, þér að kostnaðarlausu. - Og það eitt og sér er klárlega að borga sig strax.

Þú ert að borga 10þús krónur alveg óháð því hvort þú lendir í tjóni eða ekki, það er frekar langt frá því að vera kostnaðarlaust/borga ekki krónu.

Þessar fullyrðingar hjá þér eru eins og að segja að ef þú kaupir lottómiða þá sértu strax farinn að græða, því möguleikinn á endurborgun sé handan við hornið, þó svo að líkurnar séu vissulega meiri á tjóni heldur en lottóvinning, en að sama skapi er verðið á tryggingunnni hærra og "vinningsupphæðin" lægri.

Enn fremur verðurðu að horfa til þess að jú, þessi tölva er 180þús króna virði þegar þú kaupir hana, en á fyrstu mánuðunum fellur hún hratt í virði og eftir ár er hún metin á ca. 110þús krónur, því lengra sem líður frá kaupum er tryggingin orðin minna virði.

Svo verður að horfa til þess hversu langt tryggingin nær. Coverar hún öll möguleg tjón eða bara þau tjón sem hafa áhrif á virkni tölvunnar? Coverar þetta brot á bodyi ef ekkert annað bilar í leiðinni? Takka sem brotna af lyklaborði eða týnast því lítill krakki komst í tölvuna? Coverar hún fleiri en eitt slys á tryggingatímanum?

Bætt við*
Úfff, þetta er þó komið vel off topic hjá okkur, þetta má ræða annars staðar :)
Afsakið OP!

Skjámynd

Legolas
Geek
Póstar: 818
Skráði sig: Fim 22. Júl 2004 22:18
Reputation: 2
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf Legolas » Fim 20. Des 2012 10:49

Sallarólegur skrifaði:Myndi ekki mæla með DreamWare tölvunum.

Félagi minn lenti í því að HDMI tengið hætti að virka svo það þurfti að skipta um móðurborð.
Það sama gerðist nokkrum mánuðum eftir, án þess að það kæmi neitt óeðlilegt fyrir vélina, bara eðlileg notkun á tenginu til að horfa á sjónvarp reglulega.

Mun betra build quality t.d. í HP dv2 tölvu sem félagi minn á, og Dell XPS vélunum.
Ef þú setur HDMI í þær er það ekki svona laust og lélegt eins og í DreamWare. Svona tengi þurfa að vera mjög vel styrkt og fest við móðurborðið og mega alls ekki geta hreyfst mikið, því þetta er fljótt að missa samband.

??? hvaða bull er þetta, ég er að nota HDMI og plögga í og úr nokkrum sinnum í mánuði og þetta er í fullkomnu lagi. [-(

P.S
Mun betra build quality t.d. í HP
HP :hnuss eru með eina hæstu bilanatýðni í heiminum, búinn að sjá margar greinar í mörg ár um það.

Hvað áttu við með að þú myndir aldrei skipta henni út fyrir samsung og hvað þá Lenovo? Ég veit reyndar ekki mikið með samsung vélarnar en eftir að skoða forums þá virðast menn almennt nokkuð sáttir með Lenovo merkið. Er það einhver miskilningur hjá mér?

Ég er bara að segja að ég hef átt marga lappa og ég er ánægðari með DreamWare vélina en allar aðrar sem ég hef átt og/eða notað.
Síðast breytt af Legolas á Fim 20. Des 2012 10:56, breytt samtals 1 sinni.

INTEL Core QuadCore i5-6600k @4.3GHz : GIGABYTE Z170x-Gaming 3 G1 (Skylake) : GIGABYTE GTX1060 G1 GAMING 6GB :
CORSAIR Vengeance LPX 2x8GB DDR4 3.000MHz : BenQ EX3501R
+ DELL P2714H

Skjámynd

Plushy
Vaktari
Póstar: 2277
Skráði sig: Fim 02. Sep 2010 18:20
Reputation: 20
Staðsetning: Grafarvogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf Plushy » Fim 20. Des 2012 10:56

starionturbo skrifaði:Thad er alveg persónubundid. Eg nota ferdavel sem workstation, mer er sama um batteryisendingu. bara dock heima og a vinnustödum.

Já en hann tekur fram að hann sé að fara nota hana í skólanum, ekki sem workstation

Höfundur
dreki
Græningi
Póstar: 40
Skráði sig: Mán 19. Apr 2004 11:28
Reputation: 0
Staðsetning: Hérna
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf dreki » Fim 20. Des 2012 13:46

Sælir vaktarar, ég þakka fyrir innleggin.

Eftir töluverðar pælingar hef ég ákveðið að taka samsunginn úr valinu. Þó að hún sé sexy þá finnst mér hún of dýr miðað við hvað maður er að fá. Eftir standa Dreamware og Lenovo. Var að vonast eftir því að fá meira feedback á Dreamware vélarnar. Einn ánægður og einn ekki, er ekki komin nein reynsla á þessar vélar ennþá á meðal vaktara?

Skjámynd

FuriousJoe
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1623
Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
Reputation: 20
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf FuriousJoe » Fim 20. Des 2012 14:12

Klemmi skrifaði:
FuriousJoe skrifaði:Ég veit um fólk sem ég þekki persónulega, sem keypti sér tölvu og helti yfir hana mánuði seinna, ef hann hefði ekki verið með trygginguna þá hefði hann þurft að borga annaðkvort sjálfsábyrgð eða allt tjónið. - Með þessari tryggingu þarftu ekki að borga krónu.

Sama hvort "húsið" séi að græða eða ekki, þá ert ÞÚ tryggður gegn tjóni á þinni fartölvu, þér að kostnaðarlausu. - Og það eitt og sér er klárlega að borga sig strax.

Þú ert að borga 10þús krónur alveg óháð því hvort þú lendir í tjóni eða ekki, það er frekar langt frá því að vera kostnaðarlaust/borga ekki krónu.

Þessar fullyrðingar hjá þér eru eins og að segja að ef þú kaupir lottómiða þá sértu strax farinn að græða, því möguleikinn á endurborgun sé handan við hornið, þó svo að líkurnar séu vissulega meiri á tjóni heldur en lottóvinning, en að sama skapi er verðið á tryggingunnni hærra og "vinningsupphæðin" lægri.

Enn fremur verðurðu að horfa til þess að jú, þessi tölva er 180þús króna virði þegar þú kaupir hana, en á fyrstu mánuðunum fellur hún hratt í virði og eftir ár er hún metin á ca. 110þús krónur, því lengra sem líður frá kaupum er tryggingin orðin minna virði.

Svo verður að horfa til þess hversu langt tryggingin nær. Coverar hún öll möguleg tjón eða bara þau tjón sem hafa áhrif á virkni tölvunnar? Coverar þetta brot á bodyi ef ekkert annað bilar í leiðinni? Takka sem brotna af lyklaborði eða týnast því lítill krakki komst í tölvuna? Coverar hún fleiri en eitt slys á tryggingatímanum?

Bætt við*
Úfff, þetta er þó komið vel off topic hjá okkur, þetta má ræða annars staðar :)
Afsakið OP!

Þetta coverar allt tjón á tryggðum búnaði, og þetta lottó dæmi hjá þér er útí hött. - Hvernig er "vinningsupphæðin" lægri en tryggingin ef að tölvan þín verður fyrir bíl (líklegt?) og þú færð allt bætt ? ertu að segja mér að það myndi kosta þig 10.000kr að laga svoleiðis tjón og þessvegna þarftu ekki tryggingu ? Það myndi sennilega kosta þig tæp 200.000 frekar, úr þínum vasa.
Bið þig um að lesa rólega yfir það sem ég skrifaði :)

En já, off topic - skulum hætta þessu :)

Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD

DabbiGj
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 10. Mar 2010 16:11
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf DabbiGj » Fim 20. Des 2012 18:04

Legolas skrifaði:

P.S
Mun betra build quality t.d. í HP
HP :hnuss eru með eina hæstu bilanatýðni í heiminum, búinn að sjá margar greinar í mörg ár um það.

Ágætt að hafa séð margar greinar en flestar kannanir sem að ég hef séð að þá sitja HP vel fyrir ofan miðju og eru á stöðugri uppleið.

Annars myndi ég taka Lenovo vélina

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4330
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 383
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við val á milli 3 fartölva

Pósturaf chaplin » Fim 20. Des 2012 19:09

FuriousJoe skrifaði:Bið þig um að lesa rólega yfir það sem ég skrifaði :)

Ég er svo óþæginlega allt of mikið sammála Klemma í þessu dæmi!

Þú græðir aldrei á því að kaupa þér þessa tryggingu, þú gætir hinsvegar sparað þér nokkurn aurinn ef slys gerist og ef heimilistryggingin coverar tjónið ekki.

Svo hef ég sjálfur smá efasemdir um trygginguna.

Ef ég kaupi vélina og trygginguna, hendi svo tölvunni í gólfið, fæ ég hana bætt? (fáranlegt dæmi, langar bara að vita það).

Og ef 1 x í viku með brotinn skjá, fæ ég hann alltaf bættan? (aftur fáranlegt dæmi, er bara að reyna að skilja hvað nákvæmlega tryggingin coverar).

Tæknilega ekki séð beint-offtopic þar sem við erum að reyna að komast að mikilvægum upplýsingum hjá einum af tölvunum sem OP langar að versla.

youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS