Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Allt utan efnis

Höfundur
LaXi
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Sun 29. Feb 2004 18:09
Reputation: 0
Staðsetning: Norðausturlandskjördæmi ;)
Staða: Ótengdur

Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf LaXi » Lau 18. Des 2010 22:27

Heilir og sælir kæru vaktarar.

Ég ákvað að senda þetta hérna inn á Koníaksstofuna strax þar sem ég var ekki að sjá frekar auðveldlega í hvaða flokki þetta ætta að vera - vona að það verði séð í gegnum fingur með það ef það var ekki rétt ákvörðun hjá mér, og að þráðarstjóri færi þennan þráð þá á viðeigandi stað.


Mig langar til að komast að því hvaða/hvernig tölvustóla þið eruð að nota, og hvernig stólum þið mælið með.

Þannig er mál með vexti að ég er að hugsa um að fjárfesta í einum almennilegum, endingargóðum og umfram allt þægilegum og "ergónómískum" tölvustól.

Sjálfur er ég með mjóbaks- og hálsvandamál, þannig að hann verður fyrst og fremst að styðja vel við þessi svæði, og helst með stillanlegum höfuðpúða.
Gott væri ef hann væri á hjólum (með bremsu, ef til er), með stillanlegu skammeli/fótahvílu, stillanlegum örmum, gott að liggja í honum og horfa á kvikmyndir/þætti, gott að sitja í honum langtímum saman og browsa/skrifa, en samt helst ekki leður-áklæðis stól. Þetta er svona það helsta sem ég er að sækjast eftir.

Ég skoða þó vissulega allt sem að varpað er fram.

Verð er ekkert atriði ( eða mjög, mjög lítið atriði ) þar sem að ég þarf að hugsa vel um hálsinn og bakið á mér ef ég á ekki að verða öryrki fyrir aldur fram.
Endingargæði og þægilegheit eru hinsvegar mikið atriði.

Spurning hvort maður þurfi "medical grade" stól ? :popeyed

Með þökkum fyrirfram fyrir hvaða svör/ábendingar/linka sem að veitt eru,

LaXi



Skjámynd

johnnyb
Nörd
Póstar: 100
Skráði sig: Fös 12. Jún 2009 11:49
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf johnnyb » Lau 18. Des 2010 22:39

tölvustóllinn minn er svona http://egodekor.is/item.php?iditem=688 og er mjög þæginlegur \:D/

annars mundi ég fá mér stól sem hægt er að halla of festa í þannig stöðum
og með stillanlegum örmum þannig að ég mundi líklega fá mér svipaðan þessum
http://www.rumfatalagerinn.is/rl/vefverslun/?ew_877_cat_id=18233&ew_877_p_id=22597014&product_category_id=86483


CIO með ofvirkni

Skjámynd

gissur1
Geek
Póstar: 858
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 20:36
Reputation: 12
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf gissur1 » Lau 18. Des 2010 22:42

Fékk svona í afmælisgjöf í fyrra og hann er algjör snilld, mjög þæginlegur til langtíma setu í tölvunni, get stillt allt í honum og læst bakinu í hvaða halla sem er.

Bara snilldar stóll í alla staði! Mæli með honum :happy

Edit. Svo er hægt að stilla armana endalaust, fram/aftur, upp/niður, hallað þeim í allar áttir og allskonar.
Síðast breytt af gissur1 á Lau 18. Des 2010 22:43, breytt samtals 1 sinni.


Microsoft Surface Pro 2017 [i7 - 16GB RAM - 512GB SSD] + Thinkvision P27Q

Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2730
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf SolidFeather » Lau 18. Des 2010 22:43

Ef ég væri háls- og bakveikur þá myndi mér ekki detta í hug að kaupa stól úr rúmfatalagernum.



Skjámynd

MatroX
Bannaður
Póstar: 3540
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf MatroX » Lau 18. Des 2010 22:54

N1 voru að taka inn mjög þægilega og flotta stóla sem eru ekkert svo dýrir. endilega checkaðu á því á Bíldshöfða 9.


Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |


Höfundur
LaXi
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Sun 29. Feb 2004 18:09
Reputation: 0
Staðsetning: Norðausturlandskjördæmi ;)
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf LaXi » Lau 18. Des 2010 23:04

johnnyb : efa það ekki að það sé .... ehm... þægilegt að vera í þessum "tölvustól" þínum í smátíma.... en ekki mjög lengi ef maður er bak- og hálsveikur...
- takk samt fyrir tillöguna ! ;)
gissur1 : hefurðu einhverja hugmynd um hvað þessi stóll kostar ? í dag, eða hvað hann kostaði þegar þú fékkst hann ? andar bakið vel ? þ.e., maður svitnar ekki eins og svín á bakinu við að sitja í honum í nokkra tíma ? :D
SolidFeather : skil það mjög vel - þó er ekki loku fyrir það skotið að það geti leynst góður stóll í þannig verslunum, þó að það sé hæpið að ég finni nokkuð þar sem að hentar mér og mínum gæðakröfum ! :megasmile
MatroX : ég er á norðurlandi eystra, rétt hjá Akureyri - heldurðu að þeir gætu nokkuð verið með eitthvað úrval af stólum í N1-versluninni þar ? eða er þetta eitthvað sér-skrifstofudæmi sem þeir eru að selja þarna á Bíldshöfðanum :?:

Þakka ykkur samt öllum fyrir góð svör og tillögur - en er enginn á vaktinni sem hefur sama/svipuð criteria og ég, og jafnvel bak- eða hálsvandamál sem gera það að verkum að þeir þurfa verulega góða stóla ? Gaman væri að heyra frá þeim :!: :?: :!:

Hver er annars drauma-þæginda/"ergónómíski"-stóllinn sem að vaktarar myndu punga út fyrir ef þeir ættu pening fyrir honum ? :santa :lol: \:D/ :?:



Skjámynd

MatroX
Bannaður
Póstar: 3540
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf MatroX » Lau 18. Des 2010 23:14

LaXi skrifaði:MatroX : ég er á norðurlandi eystra, rétt hjá Akureyri - heldurðu að þeir gætu nokkuð verið með eitthvað úrval af stólum í N1-versluninni þar ? eða er þetta eitthvað sér-skrifstofudæmi sem þeir eru að selja þarna á Bíldshöfðanum :?:

Þakka ykkur samt öllum fyrir góð svör og tillögur - en er enginn á vaktinni sem hefur sama/svipuð criteria og ég, og jafnvel bak- eða hálsvandamál sem gera það að verkum að þeir þurfa verulega góða stóla ? Gaman væri að heyra frá þeim :!: :?: :!:

Hver er annars drauma-þæginda/"ergónómíski"-stóllinn sem að vaktarar myndu punga út fyrir ef þeir ættu pening fyrir honum ? :santa :lol: \:D/ :?:


jú þeir ættu að vera með eitthvað úrval á akureyri líka. en ég er slæmur i baki, öxlum og ég prufaði stólana hjá N1 og það voru nokkrir þar sem ég mun kíkja á þegar mér vantar annan stól. Ég sit núna í Eco Leather High Back Executive Office Chair [WD5380]. hann er framleiddur 2004 og er enþá næstum eins og nýr. þetta er mjög þægilegur og traustur stóll. hann er mjög þungur og vel bygður. þetta er ekki svona plast rúmfatalagers stóll þetta er úr timbri og járni hehe


http://www.officechairsonsale.com/eco-leather-executive-office-chair-wd5380.html


Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7592
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf rapport » Lau 18. Des 2010 23:30

Fyrir fólk með stoðkerfisvandamál en er í skrifstofuvinnu, þá kemur bara einn stóll til greina sem framtíðarfjárfesting...

http://www.penninn.is/Vorur-og-thjonust ... 71b153daed

Persónulega finnst mér hann over rated en þeir sem ég þekki til sem eru slæmir í bakinu o.s.frv. þeir enda lltaf á að fá sér svona og eru drullu sáttir við hann...




Höfundur
LaXi
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Sun 29. Feb 2004 18:09
Reputation: 0
Staðsetning: Norðausturlandskjördæmi ;)
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf LaXi » Lau 18. Des 2010 23:36

MatroX : takk fyrir þetta, ætla að kíkja í N1 verslunina og athuga hvort að þeir hafi eitthvað gáfulegt úrval hjá sér ! En þessi sem þú átt núna og ert að nota, er hann ekki með gerfileðurs- eða bara plain leðuráklæði ? Mér finnst það sjálfum gríðarlega óþægilegt hvorutveggja :S

rapport : Takk fyrir þetta - mig rámaði eitthvað í að það væri einhver svona rándýr stóll sem að einstaklingar með stoðkerfisvandamál sæktu í á endanum, en mundi ekki hvaða stóll það var. En scheize hvað hann er dýr fyrir því ! Var hann ekki á rétt rúm 100k fyrir Hrun ?
Ert þú e.t.v. sjálfur með stoðkerfisvandamál og notar annan stól, og þá hvaða ? Fyrst þú segir að þér finnist þessi overrated ?



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7592
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf rapport » Sun 19. Des 2010 00:07

Það eru tveir með svona í vinnunni vegna bakverkja og auðvitað hefur maður prófað að setjast í þetta og ég átti bara erfitt með að stilla hann þannig að ég gæti sáttur setið í honum...

Ég er finn í bakinu, það eina sem ógnar mínu "bak-öryggi" er Marel tjaldið í húsdýragarðinum, fór skelfilega í bakinu við að toga í "kaðalviktina" í smá pabbakeppni þarna eitt sumarið.

Ég skrifstofublókin á móti dedicated æfinga löggumann = tók mig líklega 2 mánuði að jafna mig almennilega...

Þannig að ég skil að ef bakið á manni er slæmt þá er 270þ. stóll samt alveg þess virði að losna við sársaukann og allt vesenið sem þessu fylgir.




Gets
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mið 01. Ágú 2007 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf Gets » Sun 19. Des 2010 00:26

Hirslan eru líka með skrifstofuhúsgögn og stóla og hérna eru þeir með einn góðan http://www.hirzlan.is/catalog.asp?id=580&proid=98 "hef sest í hann og líkaði vel" er dýr en kostar samt ekki alveg augun úr.
Ég myndi ræða við þá hvort að þetta geti hentað þér.




Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf Dazy crazy » Sun 19. Des 2010 02:11

rapport skrifaði:Það eru tveir með svona í vinnunni vegna bakverkja og auðvitað hefur maður prófað að setjast í þetta og ég átti bara erfitt með að stilla hann þannig að ég gæti sáttur setið í honum...

Ég er finn í bakinu, það eina sem ógnar mínu "bak-öryggi" er Marel tjaldið í húsdýragarðinum, fór skelfilega í bakinu við að toga í "kaðalviktina" í smá pabbakeppni þarna eitt sumarið.

Ég skrifstofublókin á móti dedicated æfinga löggumann = tók mig líklega 2 mánuði að jafna mig almennilega...

Þannig að ég skil að ef bakið á manni er slæmt þá er 270þ. stóll samt alveg þess virði að losna við sársaukann og allt vesenið sem þessu fylgir.


Ég togaði einmitt í þennan andskotans kaðal um daginn þegar ég fór í húsdýragarðinn og varð drulluslæmur í bakinu, ég held að það sé vegna þess að önnur höndin er alltaf neðar en hin og þess vegna snýst uppá bakið á manni. Þoli ekki þennan kaðal... þetta býður líka svo uppá að maður reyni :lol:


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4197
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1351
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf Klemmi » Sun 19. Des 2010 02:43

Hvernig kaðal eruði eiginilega að tala um? :catgotmyballs



Skjámynd

sakaxxx
FanBoy
Póstar: 752
Skráði sig: Fim 24. Jan 2008 16:22
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf sakaxxx » Sun 19. Des 2010 02:54

http://www.rumfatalagerinn.is/rl/vefver ... y_id=86483

er með svona alveg þokkalegur ekki margir stillimöguleiakr kostaði 7990 fyrir hrum minnir mér :knockedout


2600k gtx780 16gb

sjónvarps Intel Core2 Quad q6600 @3.0 Gtx660
  ▲
▲ ▲

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7592
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf rapport » Sun 19. Des 2010 02:56

Dazy crazy skrifaði:
rapport skrifaði:Það eru tveir með svona í vinnunni vegna bakverkja og auðvitað hefur maður prófað að setjast í þetta og ég átti bara erfitt með að stilla hann þannig að ég gæti sáttur setið í honum...

Ég er finn í bakinu, það eina sem ógnar mínu "bak-öryggi" er Marel tjaldið í húsdýragarðinum, fór skelfilega í bakinu við að toga í "kaðalviktina" í smá pabbakeppni þarna eitt sumarið.

Ég skrifstofublókin á móti dedicated æfinga löggumann = tók mig líklega 2 mánuði að jafna mig almennilega...

Þannig að ég skil að ef bakið á manni er slæmt þá er 270þ. stóll samt alveg þess virði að losna við sársaukann og allt vesenið sem þessu fylgir.


Ég togaði einmitt í þennan andskotans kaðal um daginn þegar ég fór í húsdýragarðinn og varð drulluslæmur í bakinu, ég held að það sé vegna þess að önnur höndin er alltaf neðar en hin og þess vegna snýst uppá bakið á manni. Þoli ekki þennan kaðal... þetta býður líka svo uppá að maður reyni :lol:


Ég fór svo illa að ég var næstum búin að fleygja næsta krakka úr kerru og lata trilla mér að bílnum, gekk þarna um eins og spassi bölvandi eins og róni í fráhvörfum þar til fólk féllst á að það væri ekki hægt að tjilla þarna lengur.

Svo voru engin bakbelti til þannig að ég var í 3-4 daga bara með 3-4 sárabindi vafinn um mig til að geta staðið uppréttur.


En þetta getur passað hjá þér, það er eitthvað spes við þetta helvíti því að ég var að bera mig rétt að, nota hnéin en ekki bakið...

p.s. hvað náðir þú miklu? Man ekki hvort við vorum að berjast við að fara yfir 120Kg eða 200Kg (man að þetta var spurning að fara yfir eitthvað með "2".

p.p.s. Þetta er s.s. andstaðan við vigt, maður togar í spotta sem kemur úr "vigt" sem maður stendur á og hún mælir hve mörg Kg maður er að "toga"...



Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1395
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf kubbur » Sun 19. Des 2010 03:23

LaXi skrifaði:
rapport : Takk fyrir þetta - mig rámaði eitthvað í að það væri einhver svona rándýr stóll sem að einstaklingar með stoðkerfisvandamál sæktu í á endanum, en mundi ekki hvaða stóll það var. En scheize hvað hann er dýr fyrir því ! Var hann ekki á rétt rúm 100k fyrir Hrun ?
Ert þú e.t.v. sjálfur með stoðkerfisvandamál og notar annan stól, og þá hvaða ? Fyrst þú segir að þér finnist þessi overrated ?


12 ár deilt með 265 þús er ekki það mikið


Kubbur.Digital


Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf Dazy crazy » Sun 19. Des 2010 03:38

rapport skrifaði:
Dazy crazy skrifaði:
rapport skrifaði:Það eru tveir með svona í vinnunni vegna bakverkja og auðvitað hefur maður prófað að setjast í þetta og ég átti bara erfitt með að stilla hann þannig að ég gæti sáttur setið í honum...

Ég er finn í bakinu, það eina sem ógnar mínu "bak-öryggi" er Marel tjaldið í húsdýragarðinum, fór skelfilega í bakinu við að toga í "kaðalviktina" í smá pabbakeppni þarna eitt sumarið.

Ég skrifstofublókin á móti dedicated æfinga löggumann = tók mig líklega 2 mánuði að jafna mig almennilega...

Þannig að ég skil að ef bakið á manni er slæmt þá er 270þ. stóll samt alveg þess virði að losna við sársaukann og allt vesenið sem þessu fylgir.


Ég togaði einmitt í þennan andskotans kaðal um daginn þegar ég fór í húsdýragarðinn og varð drulluslæmur í bakinu, ég held að það sé vegna þess að önnur höndin er alltaf neðar en hin og þess vegna snýst uppá bakið á manni. Þoli ekki þennan kaðal... þetta býður líka svo uppá að maður reyni :lol:


Ég fór svo illa að ég var næstum búin að fleygja næsta krakka úr kerru og lata trilla mér að bílnum, gekk þarna um eins og spassi bölvandi eins og róni í fráhvörfum þar til fólk féllst á að það væri ekki hægt að tjilla þarna lengur.

Svo voru engin bakbelti til þannig að ég var í 3-4 daga bara með 3-4 sárabindi vafinn um mig til að geta staðið uppréttur.


En þetta getur passað hjá þér, það er eitthvað spes við þetta helvíti því að ég var að bera mig rétt að, nota hnéin en ekki bakið...

p.s. hvað náðir þú miklu? Man ekki hvort við vorum að berjast við að fara yfir 120Kg eða 200Kg (man að þetta var spurning að fara yfir eitthvað með "2".

p.p.s. Þetta er s.s. andstaðan við vigt, maður togar í spotta sem kemur úr "vigt" sem maður stendur á og hún mælir hve mörg Kg maður er að "toga"...


Ég veit nefnilega ekki hvað ég náði mikið, togaði og fann strax að það væri eitthvað ekki í lagi í bakinu og sleppti strax því væntumþykja mín fyrir bakinu vann þrjóskuna og ég þakka fyrir það þegar ég les lýsingarnar á þínu tilfelli en hún birti eldsnöggt fyrst 90 og svo kom 150 þegar ég var búinn að sleppa sýndist mér bölvandi.
Þarf að reyna þetta einhverntímann með það í huga að snúa ekki uppá bakið. :D
Annars er ég með stól úr rúmfatalagernum og mér finnst hann ekki geta hallast nóg aftur.


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6799
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf Viktor » Sun 19. Des 2010 03:47

Er með IKEA "leður"stól, hann er þægilegur og búinn að endast mjög vel. Um tveggja ára, lítur út eins og nýr.
Mynd


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1797
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf Danni V8 » Sun 19. Des 2010 11:24

Ég var með einhvern ódýran tölvustól úr Ikea. Tók stólinn af fótunum og sauð bílsæti við :D Það eru komin rétt tæplega 6 ár síðan og ég nota stólinn ennþá, en hann er orðinn frekar lúinn greyið. Þarf að finna annan bílstól til að sjóða í þetta :P


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1179
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 166
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf g0tlife » Sun 19. Des 2010 15:29

Mynd


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold


k0fuz
vélbúnaðarpervert
Póstar: 994
Skráði sig: Sun 05. Jún 2005 20:06
Reputation: 19
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf k0fuz » Sun 19. Des 2010 15:41

Þessi hérna: http://www.ikea.is/products/618 er

G
e
ð
v
e
i
k
u
r

:megasmile :megasmile


ASRock Z790 Pro RS WiFi | Intel i5 13600K @ 5.1GHz | Noctua NH-D14 | Gainward GeForce RTX 3060Ti Ghost OC | 2x16GB G.Skill Ripjaws S5 5600MHz DDR5 | 240GB Corsair MP510 NVMe & 250GB Samsung 850 EVO SSD | 2TB & 3TB Seagate | BenQ Zowie 25" XL2546 240Hz | 650W Corsair RM650x PSU.

Skjámynd

fannar82
spjallið.is
Póstar: 498
Skráði sig: Mán 04. Okt 2010 16:42
Reputation: 3
Staðsetning: 6° norðar en helvíti
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf fannar82 » Sun 19. Des 2010 15:43

einhvern glataðan ikea 8þús króna leðurstól


(\/) (°,,°) (\/) WOOBwoobwoobwoob!


corflame
Tölvutryllir
Póstar: 678
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
Reputation: 0
Staðsetning: Keyboard central
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf corflame » Sun 19. Des 2010 18:15

rapport skrifaði:Fyrir fólk með stoðkerfisvandamál en er í skrifstofuvinnu, þá kemur bara einn stóll til greina sem framtíðarfjárfesting...

http://www.penninn.is/Vorur-og-thjonust ... 71b153daed

Persónulega finnst mér hann over rated en þeir sem ég þekki til sem eru slæmir í bakinu o.s.frv. þeir enda lltaf á að fá sér svona og eru drullu sáttir við hann...


Er með einn svona í vinnunni, er reyndar á stól nr. 3 núna (á 3 árum), fínt að sitja í þessu þegar búinn að stilla hann til, en mér finnst endingin skelfileg m.v. hvað þetta kostar.



Skjámynd

gissur1
Geek
Póstar: 858
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 20:36
Reputation: 12
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf gissur1 » Sun 19. Des 2010 18:24

LaXi skrifaði:gissur1 : hefurðu einhverja hugmynd um hvað þessi stóll kostar ? í dag, eða hvað hann kostaði þegar þú fékkst hann ? andar bakið vel ? þ.e., maður svitnar ekki eins og svín á bakinu við að sitja í honum í nokkra tíma ? :D

Þakka ykkur samt öllum fyrir góð svör og tillögur - en er enginn á vaktinni sem hefur sama/svipuð criteria og ég, og jafnvel bak- eða hálsvandamál sem gera það að verkum að þeir þurfa verulega góða stóla ? Gaman væri að heyra frá þeim :!: :?: :!:

Hver er annars drauma-þæginda/"ergónómíski"-stóllinn sem að vaktarar myndu punga út fyrir ef þeir ættu pening fyrir honum ? :santa :lol: \:D/ :?:


Veit því miður ekki hvað hann kostaði og vill helst ekki vera að spurja að því.

Það er net-bak svo það andar óendanlega vel.


Microsoft Surface Pro 2017 [i7 - 16GB RAM - 512GB SSD] + Thinkvision P27Q

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7592
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða tölvustóla eru vaktar-notendur að nota ?

Pósturaf rapport » Sun 19. Des 2010 19:28

corflame skrifaði:
rapport skrifaði:Fyrir fólk með stoðkerfisvandamál en er í skrifstofuvinnu, þá kemur bara einn stóll til greina sem framtíðarfjárfesting...

http://www.penninn.is/Vorur-og-thjonust ... 71b153daed

Persónulega finnst mér hann over rated en þeir sem ég þekki til sem eru slæmir í bakinu o.s.frv. þeir enda lltaf á að fá sér svona og eru drullu sáttir við hann...


Er með einn svona í vinnunni, er reyndar á stól nr. 3 núna (á 3 árum), fínt að sitja í þessu þegar búinn að stilla hann til, en mér finnst endingin skelfileg m.v. hvað þetta kostar.


Það fór einn í vinnunni eftir nokkra mánaða notkun, en það er 12 ára framleiðanda ábyrgð = það kom maður að gera við hann ( tók 2-3 daga)...

Ég tók líka fram að mér finnst þessi stóll ofmetinn... fuck dýrt helvíti...