En svo man ég eftir því að fyrir mjög löngu síðan, jafnvel fyrir allt að tveimur til þremur árum síðan, þá var ég með um 10 metra langa símasnúru í router sem ég var með inní herberginu mínu og þá var alltaf smá álag á netinu frá einni tölvu að drepa netið fyrir öllum hinum tölvunum og því held ég að Tal hafi lækkað mig þá til að laga vandan sem væri svosem gott og blessað nema fyrir utan það að nú lýtur út fyrir að síðan þá hafi ég verið að borga fyrir 12Mbit en aðeins verið að fá helminginn af því og það í mjög langan tíma!
Núna er ég að sjálfsögðu mjög ánægður með að vera kominn með tvöfallt betri tengingu en ég var með svo ég kvarta lítið við því en nú hef ég verið að borga 100% verð fyrir 50% tengingu mjög lengi, hef ég rétt á einhverjum skaðabótum eða eitthvað?
Var að vísu að kíkja á verðskránna hjá Tal til að sjá muninn á 12Mbit og tengingum þar fyrir neðan en það lýtur út fyrir að í dag séu þeir eingöngu með "allt að" 12Mbit tengingar svo ég býst nú svosem við því að ég geti lítið gert annað en að kenna sjálfum mér um fyrir að hafa ekki athugað þetta mun fyrr
Samt voru þeir fyrir einhverju síðan með aðrar lakari tengingar sem kostuðu þá auðvitað eitthvað minna og því finnst mér að fyrst ég var lækkaður í hraða þegar það var þá hefði kostnaðurinn á þeim tíma líka átt að lækka, en það er kannski svoldið seint að spá í því núna er það ekki?Hvað segið þið annars um svona klúður?