Mér datt í hug í gær, laugardag, að gera speedtest á nettengingunni minni, hafði einhverja skrítna tilfinningu fyrir því að tengingin hjá mér væri kannski ekki stillt á réttann hraða. Og viti menn, samkvæmt speedtest.net þá var ég með rétt tæplega 7Mbit Hringdi því í dag og spurði á hvaða hraða tengingin væri stillt á og þá var hún bara stillt á 6Mbit og það var víst ekkert mál að setja hana í 12Mbit Skildi nú ekki alveg hvað var í gangi og spurði því afhverju tengingin hefði verið stillt á 6 en ekki 12 og þá var það víst vegna þess að hjá sumum höndlar símalínan ekki heil 12Mbit og þess vegna er tengingin lækkuð, oftast er þetta t.d. vegna þess að símstöð er ekki nógu nálægt manni eða símasnúran úr vegg í router er aðeins of löng. En hjá mér er sú snúra aðeins 30-40 cm og svo er símstöðin bara rétt hjá húsinu mínu svo ég var ekki alveg að skilja afhverju ég hafði verið lækkaður
En svo man ég eftir því að fyrir mjög löngu síðan, jafnvel fyrir allt að tveimur til þremur árum síðan, þá var ég með um 10 metra langa símasnúru í router sem ég var með inní herberginu mínu og þá var alltaf smá álag á netinu frá einni tölvu að drepa netið fyrir öllum hinum tölvunum og því held ég að Tal hafi lækkað mig þá til að laga vandan sem væri svosem gott og blessað nema fyrir utan það að nú lýtur út fyrir að síðan þá hafi ég verið að borga fyrir 12Mbit en aðeins verið að fá helminginn af því og það í mjög langan tíma!
Núna er ég að sjálfsögðu mjög ánægður með að vera kominn með tvöfallt betri tengingu en ég var með svo ég kvarta lítið við því en nú hef ég verið að borga 100% verð fyrir 50% tengingu mjög lengi, hef ég rétt á einhverjum skaðabótum eða eitthvað?
Var að vísu að kíkja á verðskránna hjá Tal til að sjá muninn á 12Mbit og tengingum þar fyrir neðan en það lýtur út fyrir að í dag séu þeir eingöngu með "allt að" 12Mbit tengingar svo ég býst nú svosem við því að ég geti lítið gert annað en að kenna sjálfum mér um fyrir að hafa ekki athugað þetta mun fyrr Samt voru þeir fyrir einhverju síðan með aðrar lakari tengingar sem kostuðu þá auðvitað eitthvað minna og því finnst mér að fyrst ég var lækkaður í hraða þegar það var þá hefði kostnaðurinn á þeim tíma líka átt að lækka, en það er kannski svoldið seint að spá í því núna er það ekki?
Hvað segið þið annars um svona klúður?
Var með 6Mb tengingu en borgaði fyrir 12Mb!
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1128
- Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
- Reputation: 8
- Staðsetning: Rivertown
- Staða: Ótengdur
Var með 6Mb tengingu en borgaði fyrir 12Mb!
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Var með 6Mb tengingu en borgaði fyrir 12Mb!
Þú varst með vandamál sem þeir löguðu með ákveðnum leiðum, þeas með því að lækka tenginguna. Ekki breyta þeir því fyrr en þeir fá beiðni um það og uppl. um að línan höndli það núna?
Þitt mál held ég alveg út í gegn.
Þitt mál held ég alveg út í gegn.
Re: Var með 6Mb tengingu en borgaði fyrir 12Mb!
Klárlega bara þitt mál.
Ég bað sérstaklega um að mín tenging rúllaði á 8 en ekki 12 til að fá aðeins meiri stöðugleika. Vodafone er alveg sama á hvaða hraða tengingin þín er og stilla hana bara eins og þú biður um. Ég geri ráð fyrir að Tal sé með svipaða stefnu, enda að keyra sitt á kerfi Vodafone.
Mig grunar líka að það sé ekkert verið að fikta í því sem virkar. Ef að þú ert á 6mbps þá er enginn að fikta í tengingunni þinni nema þú biðjir um það.

- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 956
- Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
- Reputation: 14
- Staðsetning: Babýlon norðursins
- Staða: Ótengdur
Re: Var með 6Mb tengingu en borgaði fyrir 12Mb!
Tjah.. TAL lækkuðu nú tenginguna mína um daginn niður í 6mbit úr 8 án þess að ég væri að biðja þá um það..
ég hringdi eitt símtal og núna er hún komin í 10mbit og er jafnvel betri en áður.. veit ekki afhverju þeir lækkuðu hana til að byrja með og það var eitthvað fátt um svör hjá þeim..
..en mér er svosem alveg sama.. þeir "leiðréttu" þetta bara fyrir eitt orð
ég hringdi eitt símtal og núna er hún komin í 10mbit og er jafnvel betri en áður.. veit ekki afhverju þeir lækkuðu hana til að byrja með og það var eitthvað fátt um svör hjá þeim..
..en mér er svosem alveg sama.. þeir "leiðréttu" þetta bara fyrir eitt orð
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1128
- Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
- Reputation: 8
- Staðsetning: Rivertown
- Staða: Ótengdur
Re: Var með 6Mb tengingu en borgaði fyrir 12Mb!
Já, maður verður greinilega að passa sig á þessu. Mestu mistökin hjá mér í upphafi var að vera með einhverja 10 metra símasnúru úr vegg yfir í router en það er auðvitað mjög mikilvægt að hafa þá snúru enis stutta og mögulegt er en ég er í góðum málum með það núna Svo bara muna að gera hraðapróf öðru hverju, sérstaklega ef eitthvað vesen virðist vera í gangi með netið.