Tölvukaup

Skjámynd

Höfundur
Marino
Nýliði
Póstar: 17
Skráði sig: Mið 05. Mar 2003 10:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Tölvukaup

Pósturaf Marino » Fös 07. Mar 2003 16:22

Ég er að leggja upp í tölvukaup og er núna að hugsa um eftirfarandi búnað:

Örgjörvi: AMD 2000XP, er hann Thoroughbred 0.13 micron? Á tolvuvirkni.net stendur að AMD 2200XP sé á 14.863kr, þó annað standi hér á vaktin.is og mundi það þá borga sig að taka hann, eða jafnvel að taka frekar P4 2.4GHz (478/533) á 23.051kr.

Móðurborð: Ég er nokkuð ákveðinn í að taka MSI K7N2G-ILSR, nForce 2 borð með innbyggðu GF4 skjákorti og einhverju flottu hljóðkorti
http://www.computer.is/vorur/3137.

Vinnsluminni: DDR 512MB (333), bara þar sem ég fæ það ódýrast, ekkert svo sem meira um það að segja.

Skjákort: Bíð með að taka skjákort þar til ég verð ríkur eða þarf á því að halda, þangað til nota ég bara GF4 skjákortið sem er innbyggt á móðurborðinu.

HD: 80GB (7200/8MB/ATA100) WD diskur á 12.990kr í expert :wink: en kannski ætti maður að taka 120GB á 17.990kr, maður gæti nú alveg misst sig á DC++

DVD drif: ég hugsa aðallega um það ódýrasta en er einhver sérstök tegund sem ég ætti að taka, eða passa mig á.

Skrifari: Sama og með DVD drifið, en hafið þið einhverja reynslu af AOpen skrifurum, einn í Expert á 5.790kr, Nero fylgir með.

Skjár: Einhver notaður eða ódýr 17", það á kannski einhver sem les þetta skjá sem hann er tilbúinn að selja ódýrt??

Kassi: Er að reyna að gera upp við mig hvort ég ætti að taka Chieftec kassa (Winner eða Dragon, er einhver munur fyrir utan verð og útlit?) eða bara ódýrasta kassann sem ég finn með 350w PSU.

Viftur: Þarf ég fleiri viftur en þá sem á að fylgja með örgjörvanum?

Endilega segið mér hvað ykkur finnst
Síðast breytt af Marino á Lau 08. Mar 2003 10:39, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kiddi » Fös 07. Mar 2003 17:22

Varðandi DVD drif & skrifara, þá mæli ég með Samsung DVD/CDRW combo drifunum, þau eru SNILLD! Fást m.a. hjá Tölvulistanum & computer.is, e-ð í kringum 11þús fyrir 16x DVD reader og 48x CD-R skrifara (endurskrifar á 24) - Þau eru með 8mb buffer (plextor er með 2mb) og hafa reynst mér mjög vel =)



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Fös 07. Mar 2003 17:40

Ef að þú ætlar að nota DC++ þá myndi ég skella mér á 120GB

Winner og Dragon kost alveg jafn mikið....... Eini munurinn sem að ég hef tekið eftir er sá að framaná Dragon kössunum er mynstrið framaná "línótt" en á Winner er það "kössótt".

Allir örgjörvar koma í "Retail" og "OEM" pakkningum. Ef að það fylgir ekki vifta með örranum þínum þá geturru bara keypt eina einfalda sem að dugar. Þ.e.a.s. ef að þú ætlar ekki að overclock'a eða þá ætlar að gera tölvuna eins hljóðláta og þú getur.



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kiddi » Fös 07. Mar 2003 17:50

Varðandi viftur, þá er hægt að vinna heimavinnu líka :)

http://www6.tomshardware.com/cpu/20030113/index.html - Þetta eru reviews um AMD XP kæliviftur...

http://www6.tomshardware.com/cpu/20010521/index.html - Fleiri cooler reviews... svoldið gömul grein en ætti að gefa þér hints um hvernig kæliviftur þú átt að eltast við..



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16452
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2086
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Fös 07. Mar 2003 18:30

Þetta lítur vel út hjá þér, allt nema amd...svo tæki ég 120gb meira pláss minni hávaði...



Skjámynd

Dári
Ofur-Nörd
Póstar: 252
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 04:23
Reputation: 0
Staðsetning: on teh Internet!!!1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dári » Fös 07. Mar 2003 19:46

Hvaða hvaða, AMD er fínt :)



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Fös 07. Mar 2003 20:24

AMD er betra en fínt.... :)



Skjámynd

kemiztry
Gúrú
Póstar: 592
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:15
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Pósturaf kemiztry » Fös 07. Mar 2003 20:42

Sé ekkert fínt við brunarústir :?


kemiztry

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16452
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2086
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Fös 07. Mar 2003 22:13

AMD sucks!



Skjámynd

Castrate
spjallið.is
Póstar: 435
Skráði sig: Mið 25. Sep 2002 14:27
Reputation: 0
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Castrate » Fös 07. Mar 2003 22:27

Skil ekki afhverju fólk er svona rosalega á móti AMD. segjandi að það séu alltaf einhver vandamál, og að hann ofhitni og einhvað. Ég hef átt 3 Amd núna í gegnum seinustu 4 ár og þeir hafa allir staðið svo sannarlega fyrir sínu, engin hitavandamál ekkert rugl og ég er með VIAKT333 chipsett, og þeir eru nú ekki frægir fyrir að vera með stabíl chipsett allavega hafa nokkur chipsett verið hörmung hjá Via. Öll þessi vandamál er gömul tíð. Nýja Nforce2 er gjörsamlega frábært chipsett. Vinur minn með Nforce2 og AMD 2000xp og hann hefur ekki hixtað hjá honum tölvan engin vandamál what so ever. Svo með það að með amd fylgi hávaði að þá er það allt einstaklingsbundið ég er núna með 3 80mm viftur í tölvunni minni heyrist einhvað pínu í henni ekkert til að kvarta undan. Svo eru alltaf að koma nýjar og hljóðlátari viftur fyrir AMDinn.


kv,
Castrate

Skjámynd

Höfundur
Marino
Nýliði
Póstar: 17
Skráði sig: Mið 05. Mar 2003 10:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Marino » Lau 08. Mar 2003 10:34

Er AMD 2000XP með Thoroughbred 0.13 micron? Borgar það sig að fara upp í AMD 2200XP ef hann kostar ekki nema 14.863kr? [url=http://www.arena-chieftec.com/?page=products_big&id=62&k_id=1&language=uk]

Svarti Winner kassinn[/url] er á 12.900kr í Tölvulistanum sem er 2000kr minna en aðrir Winner og Dragon kassar þar. En hvort á ég að taka hann eða t.d. Antler kassa sem er helmingi ódýrari, ég á ekki allt of mikinn pening en hvað er ég að græða á því að Winner kassann? Fyrir utan útlit.

Kiddi: Það er fínt að geta séð þessar reviews, en málið er þó ég sjái einhverjar góðar viftur þarna hef ég ekki hugmynd um hvar þær fást á Íslandi, eða hvort þær fáist hér yfirleitt :( En með Samsung comboið, ég var upphaflega að hugsa um að taka það en einhver var að tala um meiri bilanatíðni í svona comboum, en það er kannski bara rugl? Það er varla hægt að skrifa beint af CD þegar þetta er bara eitt drif?

Castrate: Veistu frá hvaða framleiðanda móðurborð vinar þíns er? Hvernig viftur ert þú með? Mæliru með þeim eða kannski einhverjum öðrum sem þú hefur heyrt um?

Ég þakka öll svör sem ég hef fengið, þið megið samt alveg hætta að rífast um AMD :D



Skjámynd

ElGorilla
Nörd
Póstar: 135
Skráði sig: Mán 09. Des 2002 10:26
Reputation: 19
Staða: Ótengdur

Pósturaf ElGorilla » Lau 08. Mar 2003 11:38

Ég er með svona Antler kassa og þetta er alveg hin fínasti kassi ekkert að honum, nóg pláss og svoleiðis.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Lau 08. Mar 2003 13:15

Ég endurtek: "Winner og Dragon kost alveg jafn mikið"
Tekið af hugver.is: Turn, 360W, AMD samþ. Vinnustöð/ miðlari. ''Dragon'', svartur eða silfur 12.900
Tekið af tolvulistinn.isSvartur Chieftec Winner MiddleTurnkassi, 360W+P4, með hurð á framhlið, WX-01B-D 12.900



Skjámynd

Castrate
spjallið.is
Póstar: 435
Skráði sig: Mið 25. Sep 2002 14:27
Reputation: 0
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Castrate » Lau 08. Mar 2003 19:32

Hann er með ASUS A7N8X. Verslaði sér þetta allt úti held að þetta fáist á http://www.bodeind.is Svo eru vifturnar mínar 1 panflo og 2 sunon viftur. Annars ef þú áttpening að þá mæli ég með pabst viftunum sem fást í miðbæjarradíó í rvk. Það eru hörku viftur eða svo var mér sagt og þær kostar um það bil 4k stykkið. Annars fást sunon í íhlutum skipholti. biður um hljóðlátustu vifturnar kosta 2000 og einhvað man ekki alveg. En þetta er auðvitað allt einstaklingsbundið með hávaðan. Svo á maður eftir að kíkja á þessar stealth viftur sem http://www.start.is er með þær eru cheap as hell en veit ekkert hvort þetta sé hljóðlátt eða ekki.


kv,
Castrate

Skjámynd

ElGorilla
Nörd
Póstar: 135
Skráði sig: Mán 09. Des 2002 10:26
Reputation: 19
Staða: Ótengdur

Pósturaf ElGorilla » Sun 09. Mar 2003 00:22

Þessar stealth viftur eru að fá góða dóma sko.