Sjónvarpshugleiðingar


Höfundur
coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Sjónvarpshugleiðingar

Pósturaf coldcut » Mið 01. Okt 2008 15:16

Sælir vaktarar

Ég ætla að fara og versla mér LCD sjónvarp um helgina/eftir helgi og ég kíkti í Elko áðan og sá þar nokkur flott. Þetta verður sjónvarp sem á að vera inni í svefnherbergi í svona 2,5 m sjónfjarlægð (frá haus að sjónvarpi) og er ég þess vegna mest spenntur fyrir 32" sjónvarpi, held að 37" yrði of stórt.
´
Mér leist best á þessi hérna, en þau eru í ódýrari kantinum:
LG 32"
Philips 32"
En svo voru aðeins dýrari:
Samsung 32"
Philips 32"

svo ég spyr; er það þess virði að eyða 30-40 kalli meira í þessi dýrari sjónvörp eða eru hin bara alveg nóg?

ef þið getið bent mér á eitthvað betra "bang for the buck" þá endilega gerið það og ef ykkur finnst að ég ætti að taka 37" í staðinn þá segjið mér það og sýnið mér eitthvað gott ef þið nennið ;)

með fyrirfram þökk



Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarpshugleiðingar

Pósturaf Halli25 » Mið 01. Okt 2008 16:10

Bara eitt áður en þú hleypur til og kaupir sjónvarp í elkó... http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=32PFL5403D

er að kosta 10K minna hjá SM en hjá Elkó :)

Mín speki varðandi skjá og sjónvarpskaup er að sjá í raun er best áður en keypt er og þá helst að sjá tækin sem þú ert að spá í hlið við hlið. Þú ert líka að borga fyrir aukna tengimöguleika á dýrari tækjum sem getur sparað þér að kaupa HDMI tengibox seinna meir t.d.


Starfsmaður @ IOD


Höfundur
coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarpshugleiðingar

Pósturaf coldcut » Mið 01. Okt 2008 16:19

takk fyrir svar

en ég skoðaði þessi ódýrari tæki betur í dag og sá að þó það standi að þau séu bara með 2 HDMI þá eru 2 aftan á og 1 á hliðinni. En eitt þeirra er merkt 1(DVI), hvað þýðir það?
Og ég var nú líka svolítið að fiska eftir því hvort LG og Philips væru eitthvað góð merki í LCD sjónvörpum?



Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarpshugleiðingar

Pósturaf Halli25 » Mið 01. Okt 2008 17:03

coldcut skrifaði:takk fyrir svar

en ég skoðaði þessi ódýrari tæki betur í dag og sá að þó það standi að þau séu bara með 2 HDMI þá eru 2 aftan á og 1 á hliðinni. En eitt þeirra er merkt 1(DVI), hvað þýðir það?
Og ég var nú líka svolítið að fiska eftir því hvort LG og Philips væru eitthvað góð merki í LCD sjónvörpum?

Félagi minn keypti sér Philips fyrir ári síðan og er verulega ánægður með það... sem betur fer þar sem ég seldi honum það :)

Samsung er auðvitað stórt merki í Panel framleiðslu og LG er mjög virt merki svo öll þessi 3 merki ættu að standa fyrir sínu.

DVI er með sömu gæði og HDMI mynd en ekkert hljóð svo þú þarft alla vega 2 snúrur í staðinn fyrir 1 með HDMI.


Starfsmaður @ IOD

Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3080
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 48
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarpshugleiðingar

Pósturaf beatmaster » Mið 01. Okt 2008 20:08

Raftækjaverslun Íslands er að loka, það verður einhver Súperútsala sem að byrjar á morgunn held ég, þar færðu allavegana 32" LG tæki á 99.990, farðu bara og skoðaðu á morgunn ef að þú ert forvitinn, en þetta fer sjálfsagt allt fljótt :)


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.


Höfundur
coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarpshugleiðingar

Pósturaf coldcut » Mið 01. Okt 2008 20:58

en hvernig er þá með ábyrgð ef fyrirtækið er að loka? =/




dellukall
Fiktari
Póstar: 83
Skráði sig: Mið 12. Mar 2008 21:06
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarpshugleiðingar

Pósturaf dellukall » Mið 01. Okt 2008 21:08

Kvöldið,var einu sinni að spá í TV tæki og las mér aðeins til.Var mjög hissa hvað LG tækinn fengu góða dóma hví ég þekkti ekkert til þeirra :wink:



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3080
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 48
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarpshugleiðingar

Pósturaf beatmaster » Mið 01. Okt 2008 21:48

coldcut skrifaði:en hvernig er þá með ábyrgð ef fyrirtækið er að loka? =/
RÍ flokkast undir deild innann Johan Rönning, allar ábyrgðir eru að sjálfsögðu Rönnings og verða það áfram :)


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.