Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús


Höfundur
Fernando
Fiktari
Póstar: 92
Skráði sig: Mán 17. Okt 2005 19:02
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf Fernando » Mið 13. Ágú 2008 15:10

Sælir spjallverjar :)

Nú fer skólinn að byrja og mig vantar nýja fartölvu. Verðið má fara upp í 120.000 kr.

Ég er að leita að stöðugri vél sem ég get notað til að horfa á kvikmyndir, glósa og það væri ekki verra ef að hún réði við einhverja tölvuleiki.

Er ekki nógu vel inn í fartölvumálum í dag og því bið ég um ráðleggingar frá ykkur.

Fyrirfram hallast ég að HP, hef góða reynslu af þeim, og fyrirlít Acer :wink: . Þetta eru þó ef til vill ranghugmyndir.


Von um góð svör,

Fernando




Dr3dinn
Tölvutryllir
Póstar: 616
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 21:44
Reputation: 97
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf Dr3dinn » Mið 13. Ágú 2008 18:16

Persónulega myndi ég einnig horfa mjög mikið á þyngd....

Mikið til af mjög góðum og ódýrum vélum en þær eru allar 2,8-3,2kg.

Mér persónulega finnst það mikið ef þú ert með námsbækur einnig.

Segir einn sem er einnig að leita af fartölvu og finnst úrvalið frekar takmarkað á íslandi


Vélar
Leikja:Corsair Carbide 400C Clear - AMD 7800X3D - ASROCK b650 lightning - Samsung 990 1tb, Sabrent m.2 1TB, s 32GB(2x16 GB) 6000 MHz - ASRock Radeon RX 6900XT Phantom Gaming D 16GB -1x Odyssey G7 32, 240hz, 1ms, QHD 1440p

Vinnuvélin:Corsair Carbide 275R White - AMX 3900x -Samsung 1TB Pro-32GB (2x16 GB) 3400 MHz Corsair -2060 MSI Ventus 6 GB


Höfundur
Fernando
Fiktari
Póstar: 92
Skráði sig: Mán 17. Okt 2005 19:02
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf Fernando » Mið 13. Ágú 2008 20:20

Takk fyrir svarið.

Eins og þú bendur á er auðvelt að verða sér út um góðar ódýrar tölvur sem að eru um 3 kg. Miðað við það sem að ég hef skoðað eru léttari tölvur í svipuðum gæðaflokki mun dýrari :( . Ég er eiginlega búinn að sætta mig við þessa staðreynd.

Ég hef verið að skoða þessa. HP Pavilion dv6820ea á 119.000 kr.
Hvernig lýst ykkur á hana? Er einhver betri á svipuðu verði í boði? Ef svo, hver?


Kveðja,

Fernando



Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1108
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf mind » Mið 13. Ágú 2008 20:32

Ef þér er illa við Acer gæti þér verið vel við Asus.

http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... 0SL-AP150C

Veit ekki hvort þetta vandamál á við þessa HP tölvu. En gott að skoða.
viewtopic.php?f=21&t=18595
http://www.tomshardware.com/news/nvidia ... ,6121.html




Höfundur
Fernando
Fiktari
Póstar: 92
Skráði sig: Mán 17. Okt 2005 19:02
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf Fernando » Mið 13. Ágú 2008 20:47

Takk fyrir svarið. Það borgar sig að athuga hvort að þetta tiltekna HP módel eigi við þetta vandamál að stríða.

Þessi Asus tölva lítur mjög vel út, speccarnir þ.e.a.s =P~ . Virðist líka vera meiri "leikjavél" heldur en HP tölvan.
Ég hef enga reynslu af Asus, og því spyr ég. Hver er reynsla spjallverja af Asus? Eru þetta áreiðanlegar, góðar, vélar? Hver hefur umboðið fyrir þessar vélar hér á landi?


Kveðja,
Fernando




TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf TechHead » Mið 13. Ágú 2008 22:04

Fernando skrifaði:Takk fyrir svarið. Það borgar sig að athuga hvort að þetta tiltekna HP módel eigi við þetta vandamál að stríða.


Já öll DV6xxx línan þjáist af gölluðum Nvidia grafískum kjörnum.

Sjá :Hér
og hér fyrir listann af HP vélum sem eru með gölluðum nvidia kubbum

Ljótt mál hjá Nvidia og ekki er nú lausnin við vandamálinu skárri, Bios uppfærslur sem setja viftuna einfaldlega í 100% alltaf til að tölvurnar þrauki nú út ábyrgðartímann [-(

Síðan ég skrifaði póstinn í viewtopic.php?f=21&t=18595 þá hefur komið í ljós að REV á kjörnunum skipta engu máli.
Þetta eru einfaldlega allir G84 og G86 kjarnanir sem hafa þennann vægast sagt stóra galla. Punktur.

Asus vélarnar hafa verið að koma feikivél út og build Quality á þeim þykir mér vera betra en á öllum öðrum tölvum á markaðnum fyrir utan kannski IBM/Lenevo Thinkpad.
IOD hafa verið að flytja inn frá ASUS Nordic í stórum stíl síðastliðin misseri og myndu því líklegast flokkast sem umboðsaðili.




sigurbrjann
Fiktari
Póstar: 65
Skráði sig: Mið 06. Ágú 2008 08:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf sigurbrjann » Mið 13. Ágú 2008 23:03

ég persónulega laðast mikið af hp, en held að þær séu margar í þyngri kantinum




Höfundur
Fernando
Fiktari
Póstar: 92
Skráði sig: Mán 17. Okt 2005 19:02
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf Fernando » Fim 14. Ágú 2008 00:26

TechHead skrifaði:
Fernando skrifaði:Takk fyrir svarið. Það borgar sig að athuga hvort að þetta tiltekna HP módel eigi við þetta vandamál að stríða.


Já öll DV6xxx línan þjáist af gölluðum Nvidia grafískum kjörnum.

Sjá :Hér
og hér fyrir listann af HP vélum sem eru með gölluðum nvidia kubbum

Ljótt mál hjá Nvidia og ekki er nú lausnin við vandamálinu skárri, Bios uppfærslur sem setja viftuna einfaldlega í 100% alltaf til að tölvurnar þrauki nú út ábyrgðartímann [-(

Síðan ég skrifaði póstinn í viewtopic.php?f=21&t=18595 þá hefur komið í ljós að REV á kjörnunum skipta engu máli.
Þetta eru einfaldlega allir G84 og G86 kjarnanir sem hafa þennann vægast sagt stóra galla. Punktur.


Þetta er slæmt mál :| . Lýst ekkert á að þurfa að hafa viftur á fullum snúningi útaf svona vitleysu.

TechHead skrifaði:Asus vélarnar hafa verið að koma feikivél út og build Quality á þeim þykir mér vera betra en á öllum öðrum tölvum á markaðnum fyrir utan kannski IBM/Lenevo Thinkpad.
IOD hafa verið að flytja inn frá ASUS Nordic í stórum stíl síðastliðin misseri og myndu því líklegast flokkast sem umboðsaðili.


Já, þú segir það. Mér er líka farið að lítast ansi vel á þessa Asus fartölvu sem að þú bentir á.


sigurbrjann skrifaði:ég persónulega laðast mikið af hp, en held að þær séu margar í þyngri kantinum


Ég hef einmitt líka verið hrifinn af HP fartölvunum, en ég held að þetta nvidia mál setji strik í reikninginn. Ég geri mér grein fyrir því að góðar, lesist "öflugar", fartölvur á þessu verði eru frekar þungar, það er allt í góðu.


Staðan hjá mér í þessum fartölvuhugleiðingum er sú að Asus vélin er í toppsætinu.
Er kominn tími á að tilkynna sigurvegara, eða eru aðrir betri valmöguleikar þarna úti?


Takk fyrir góð svör,
Fernando




GGG
Ofur-Nörd
Póstar: 216
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 00:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf GGG » Fim 14. Ágú 2008 00:42

Félagi minn á svipaða Asus vél og er þvílíkt sáttur við hana ef það hjálpar eitthvað.




Höfundur
Fernando
Fiktari
Póstar: 92
Skráði sig: Mán 17. Okt 2005 19:02
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf Fernando » Fim 14. Ágú 2008 00:53

GGG skrifaði:Félagi minn á svipaða Asus vél og er þvílíkt sáttur við hana ef það hjálpar eitthvað.


Það skemmir í það minnsta ekki fyrir. :)


Góða nótt,
Fernando



Skjámynd

egglumber
Græningi
Póstar: 40
Skráði sig: Sun 30. Des 2007 21:14
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf egglumber » Fim 14. Ágú 2008 13:05

TechHead skrifaði:
Já öll DV6xxx línan þjáist af gölluðum Nvidia grafískum kjörnum.

Sjá :Hér
og hér fyrir listann af HP vélum sem eru með gölluðum nvidia kubbum



á listanum sem þú birtir í linki hér fyrir ofan er ekki dv68xx, sem er einmit vélin sem fernando var að pæla í en það eru samt flestar í dv6xxx línunni en einsog áðan kom framm var ekki dv68xx


Mr.egglumber
ég vill biðjast forláts fyrir þær stafsetningarvillur sem ég gerði eða gerði ekki

Skjámynd

egglumber
Græningi
Póstar: 40
Skráði sig: Sun 30. Des 2007 21:14
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf egglumber » Fim 14. Ágú 2008 13:06

TechHead skrifaði:
Já öll DV6xxx línan þjáist af gölluðum Nvidia grafískum kjörnum.

Sjá :Hér
og hér fyrir listann af HP vélum sem eru með gölluðum nvidia kubbum



á listanum sem þú birtir í linki hér fyrir ofan er ekki dv68xx, sem er einmit vélin sem fernando var að pæla í en það eru samt flestar í dv6xxx línunni en einsog áðan kom framm var ekki dv68xx á þessum lista


Mr.egglumber

ég vill biðjast forláts fyrir þær stafsetningarvillur sem ég gerði eða gerði ekki


hallihg
Gúrú
Póstar: 524
Skráði sig: Mið 17. Sep 2003 22:06
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf hallihg » Fim 14. Ágú 2008 13:22

Boðeind, umboðsaðili Asus er hræðilegt fyrirtæki og ekki stunda viðskipti við þá. Held ég hægt að fá Asus vélar hjá Tölvuvirkni, þó ég mæli ekki sérstaklega með þessum vélum.


count von count


einarornth
has spoken...
Póstar: 195
Skráði sig: Fim 12. Jún 2008 12:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf einarornth » Fim 14. Ágú 2008 13:26

Ég hef alltaf verið hrifinn af Dell. Á eina svoleiðis, 4 ára, ennþá mjög spræk og góð.

EJS var með eitthvað skólablað um daginn, þar var fín vél á 109.900. EJS er náttúrulega okurbúlla, en þetta er samt ágætisverð.

Þekki nokkra sem eiga ACER, alltaf eitthvað vesen á þeim, sérstaklega varðandi viftur og hávaða.




Höfundur
Fernando
Fiktari
Póstar: 92
Skráði sig: Mán 17. Okt 2005 19:02
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf Fernando » Fim 14. Ágú 2008 14:48

Takk fyrir svörin.

hallihg skrifaði:Boðeind, umboðsaðili Asus er hræðilegt fyrirtæki og ekki stunda viðskipti við þá. Held ég hægt að fá Asus vélar hjá Tölvuvirkni, þó ég mæli ekki sérstaklega með þessum vélum.


Hvaða vélum mælir þú með?

egglumber skrifaði:
TechHead skrifaði:
Já öll DV6xxx línan þjáist af gölluðum Nvidia grafískum kjörnum.

Sjá :Hér
og hér fyrir listann af HP vélum sem eru með gölluðum nvidia kubbum



á listanum sem þú birtir í linki hér fyrir ofan er ekki dv68xx, sem er einmit vélin sem fernando var að pæla í en það eru samt flestar í dv6xxx línunni en einsog áðan kom framm var ekki dv68xx á þessum lista


Já, þetta er satt hjá þér. Ég skil þetta samt þannig að þetta eigi við alla G84 og G86 kjarna, samkvæmt Tom's hardware . Nvidia skjákortið í HP tölvunni hefur þennan kjarna. Ég á eftir að kynna mér þetta mál nánar, geri það við tækifæri.

einarornth skrifaði:Ég hef alltaf verið hrifinn af Dell. Á eina svoleiðis, 4 ára, ennþá mjög spræk og góð.

EJS var með eitthvað skólablað um daginn, þar var fín vél á 109.900. EJS er náttúrulega okurbúlla, en þetta er samt ágætisverð.

Þekki nokkra sem eiga ACER, alltaf eitthvað vesen á þeim, sérstaklega varðandi viftur og hávaða.


Ég ætla að skoða Ejs, mér lýst vel á að þriggja ára ábyrgð sé á tölvunum hjá þeim.

Sama reynsla hér af Acer, hef séð alltof margar hrynja.


Kveðja,
Fernando



Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1108
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf mind » Fim 14. Ágú 2008 16:25

Eru dell ekki bara dýrir flugeldar ?

http://gizmodo.com/gadgets/laptops/dell ... 182257.php

Nei þetta er meira gert í gríni , Dell eru fínar tölvur þegar maður borgar USD +vsk verð fyrir þær.



Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf Halli25 » Fim 14. Ágú 2008 16:38

hallihg skrifaði:Boðeind, umboðsaðili Asus er hræðilegt fyrirtæki og ekki stunda viðskipti við þá. Held ég hægt að fá Asus vélar hjá Tölvuvirkni, þó ég mæli ekki sérstaklega með þessum vélum.

Fyrir mitt vit þá hefur Boðeind ekki flutt inn Asus ferðavélar í háa herrans tíð, IOD er að flytja inn flestar Asus vélar sem eru seldar hér á landi og það beint frá Asus. Endilega ekki commenta ef þú ert ekki með hlutina á hreinu Nafni


Starfsmaður @ IOD

Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf Halli25 » Fim 14. Ágú 2008 16:41

einarornth skrifaði:Ég hef alltaf verið hrifinn af Dell. Á eina svoleiðis, 4 ára, ennþá mjög spræk og góð.

EJS var með eitthvað skólablað um daginn, þar var fín vél á 109.900. EJS er náttúrulega okurbúlla, en þetta er samt ágætisverð.

Þekki nokkra sem eiga ACER, alltaf eitthvað vesen á þeim, sérstaklega varðandi viftur og hávaða.


Skoðaðirðu speccanna á þessari DELL vél LOL færð vélar undir 100K með þessum speckum.. EJS okurbúlla dauðans, veit ekki hvort þeir séu með svona vondan deal við Dell eða hvað. Sjálfur á ég Acer vél sem er 3 ára gömul og gengur en og spilar WoW í fínum gæðum, að vísu búinn að stækka minnið á henni og ég telst til þeirra sem kunna að fara með tölvur svo kannski ekki að marka :)


Starfsmaður @ IOD


einarornth
has spoken...
Póstar: 195
Skráði sig: Fim 12. Jún 2008 12:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf einarornth » Fim 14. Ágú 2008 17:07

faraldur skrifaði:
einarornth skrifaði:Ég hef alltaf verið hrifinn af Dell. Á eina svoleiðis, 4 ára, ennþá mjög spræk og góð.

EJS var með eitthvað skólablað um daginn, þar var fín vél á 109.900. EJS er náttúrulega okurbúlla, en þetta er samt ágætisverð.

Þekki nokkra sem eiga ACER, alltaf eitthvað vesen á þeim, sérstaklega varðandi viftur og hávaða.


Skoðaðirðu speccanna á þessari DELL vél LOL færð vélar undir 100K með þessum speckum.. EJS okurbúlla dauðans, veit ekki hvort þeir séu með svona vondan deal við Dell eða hvað. Sjálfur á ég Acer vél sem er 3 ára gömul og gengur en og spilar WoW í fínum gæðum, að vísu búinn að stækka minnið á henni og ég telst til þeirra sem kunna að fara með tölvur svo kannski ekki að marka :)


Já, ég veit að maður getur fengið ódýrari vélar með sömu spekka, en þær eru að mínu mati lélegri, þó svo að spekkarnir séu þeir sömu. Fyrir langflesta skiptir meira máli að vera með áreiðanlega og hljóðláta tölvu sem lítur vel út, en að spara 10-20 þúsund.

Þó að vissulega sé EJS okurbúlla, þá má ekki gleyma því að verðmunurinn á þeim og dell.com fer ekki allur í vasann hjá EJS. Til að mynda er 24,5% vsk, EJS verður að vera með 2 eða 3 ára ábyrgð (30-90 dagar hjá dell.com minnir mig) fyrir utan það hversu mikið minni markaðurinn hérna er.



Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf Halli25 » Fim 14. Ágú 2008 17:36

einarornth skrifaði:
faraldur skrifaði:
einarornth skrifaði:Ég hef alltaf verið hrifinn af Dell. Á eina svoleiðis, 4 ára, ennþá mjög spræk og góð.

EJS var með eitthvað skólablað um daginn, þar var fín vél á 109.900. EJS er náttúrulega okurbúlla, en þetta er samt ágætisverð.

Þekki nokkra sem eiga ACER, alltaf eitthvað vesen á þeim, sérstaklega varðandi viftur og hávaða.


Skoðaðirðu speccanna á þessari DELL vél LOL færð vélar undir 100K með þessum speckum.. EJS okurbúlla dauðans, veit ekki hvort þeir séu með svona vondan deal við Dell eða hvað. Sjálfur á ég Acer vél sem er 3 ára gömul og gengur en og spilar WoW í fínum gæðum, að vísu búinn að stækka minnið á henni og ég telst til þeirra sem kunna að fara með tölvur svo kannski ekki að marka :)


Já, ég veit að maður getur fengið ódýrari vélar með sömu spekka, en þær eru að mínu mati lélegri, þó svo að spekkarnir séu þeir sömu. Fyrir langflesta skiptir meira máli að vera með áreiðanlega og hljóðláta tölvu sem lítur vel út, en að spara 10-20 þúsund.

Þó að vissulega sé EJS okurbúlla, þá má ekki gleyma því að verðmunurinn á þeim og dell.com fer ekki allur í vasann hjá EJS. Til að mynda er 24,5% vsk, EJS verður að vera með 2 eða 3 ára ábyrgð (30-90 dagar hjá dell.com minnir mig) fyrir utan það hversu mikið minni markaðurinn hérna er.

Var nú meira að skoða markaðinn hér, veit vel að flestir horfa á verðin í bandaríkjunum á netinu og bölva verðinu hérna en auðvitað er VSK aldrei settur í auglýst verð þar :)


Starfsmaður @ IOD


TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á fartölvu, budget ca. 120 þús

Pósturaf TechHead » Fim 14. Ágú 2008 18:32

egglumber skrifaði:
TechHead skrifaði:
Já öll DV6xxx línan þjáist af gölluðum Nvidia grafískum kjörnum.

Sjá :Hér
og hér fyrir listann af HP vélum sem eru með gölluðum nvidia kubbum



á listanum sem þú birtir í linki hér fyrir ofan er ekki dv68xx, sem er einmit vélin sem fernando var að pæla í en það eru samt flestar í dv6xxx línunni en einsog áðan kom framm var ekki dv68xx á þessum lista


Skiptir engu, allar vélar með G84 og G86 eru affectaðar af þessum galla.
HP eiga bara efir að gúddera svika BIOS á dv68