Búa til viftupláss á kassa?


Höfundur
Geit
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Mið 31. Okt 2007 19:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Búa til viftupláss á kassa?

Pósturaf Geit » Mán 18. Feb 2008 22:52

Ég var að spá, ég er með svona kassa : http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=32&products_id=694
og var að spá hvort það væri í lagi að ég myndi búa mér til speis fyrir viftu ofan á kassanum? Þá er ég að meina að "cötta það út" :þ

Það er semsagt staður beint í miðjunni ofan á kassanum sem er alveg auður
og myndi semsagt alveg passa vifta þar en ég hef heyrt eitthvað um að það eyðileggi "loftrásina" og setji kerfið úr balance.
Er í lagi að gera þetta?



Skjámynd

HR
Ofur-Nörd
Póstar: 247
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 23:59
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf HR » Mán 18. Feb 2008 23:19

Það myndi mjög ólíklega hafa slæm áhrif á loftflæðið ef þú lætur hana blása út.

En ef þú ætlar að skera úr kassanum, þá ertu um leið búinn að tapa hljóðeinangrun.

Mér persónulega finnst það vera hálfgerð óþörf að gera þetta við þennan kassa..

En svona, þá ætti að vera í lagi að gera þetta, ef þú kannt það þar að segja :)


Gigabyte Z68x-UD4 | Intel i7-2600K | 32GB Mushkin Blackline 1333MHz CL8 | Gigabyte GTX660Ti OC 2GB WF2X | 240GB Mushkin Chronos Stripe | Antec P280 | Dell U2410M


Höfundur
Geit
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Mið 31. Okt 2007 19:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Geit » Mán 18. Feb 2008 23:26

Já, ég er með allt fullt af viftum en vantar bara meira :/
Ég myndi alveg geta reddað þessu vel, fæ góða hjálp.
En hljóðmengun, er þetta ekki bara eins og aðrar tölvur sem eru með viftur á toppnum?




Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dazy crazy » Mán 18. Feb 2008 23:34

Hann var ekki að tala um hljóðmengun heldur hljóðeinangrun.

Semsagt það mun meira af hljóði sem er inní kassanum sleppa útúr honum þannig að ef þú ert með háværa harða diska, hávært skjákort, háværa örgjörvaviftu þá mun það að öllum líkindum að einhverju leiti sleppa út um toppinn.




Höfundur
Geit
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Mið 31. Okt 2007 19:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Geit » Mán 18. Feb 2008 23:38

Já oki ég skil.
Eitt enn, þetta myndi kæla kassann vel, ef ég hef góða viftu er það ekki?



Skjámynd

einzi
spjallið.is
Póstar: 439
Skráði sig: Þri 27. Maí 2003 11:25
Reputation: 1
Staðsetning: Ísafjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf einzi » Þri 19. Feb 2008 11:37

Jú mér sýnist að þetta viftupláss sem þú ert að spá í myndi bæta kælinguna því jú hitinn leitar upp og með því að blása honum þarna út ertu að ná að losna við mikið af hita og þetta myndi jafnvel lengja lífið á PSU þar sem heita loftið þyrfti ekki að fara í gegnum hann, hence betri kæling.

Loftflæðið helst í mjög góðu jafnvægi á meðan viftur að aftan og að ofan eru að blása út og viftur að framan og á hliðum blása inn. Þá helst það nokkuð stöðugt í gegnum kassann.

En þar sem þetta er svona sleek kassi þá myndi gatið að ofan valda "sjónmengun" og já og myndi auka hávaða sem kæmi frá kassanum. Ekkert hættulegt samt sem áður og aukaatriði ef þú ert tilbúinn að sætta þig við það.

En þá væri eitt semþú gætir gert bæði til að bæta útlitið og laga hávaðamengun og orðið flottur moddari. Útbúa "funnel" ofan á sem myndi takmarka hávaða en ekki hindra loftflæmi.

Eitthvað í líkingu við þetta >>
Viðhengi
sonatabig.jpg
sonatabig.jpg (102.71 KiB) Skoðað 1720 sinnum
sonatabig2.jpg
sonatabig2.jpg (120.88 KiB) Skoðað 1719 sinnum




TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf TechHead » Þri 19. Feb 2008 12:47

Leet Sketchup hjá þér Einzi :8)



Skjámynd

einzi
spjallið.is
Póstar: 439
Skráði sig: Þri 27. Maí 2003 11:25
Reputation: 1
Staðsetning: Ísafjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf einzi » Þri 19. Feb 2008 14:00

hehe takk takk :)



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2780
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 126
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf zedro » Þri 19. Feb 2008 15:28

Geggjað scetchup :8)


Kísildalur.is þar sem nördin versla


Höfundur
Geit
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Mið 31. Okt 2007 19:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Geit » Þri 19. Feb 2008 15:35

Já þetta er alveg svakalega flott hjá þér, bravo!
Það væri mjög gaman og spennandi að prufa að gera þetta, en úr hvaða efni ætti ég að gera þetta "funnel" ?
Einhvað efni sem þú myndir mæla sérstaklega með?



Skjámynd

einzi
spjallið.is
Póstar: 439
Skráði sig: Þri 27. Maí 2003 11:25
Reputation: 1
Staðsetning: Ísafjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf einzi » Þri 19. Feb 2008 15:55

Tja .. held að aðstaða þín og aðgangur að verkfærum ráði því hvaða efni skal nota í þetta .. Ál er þægilegt að vinna með og frekar ódýrt, en svo væri alveg hægt að gera þetta úr plasti ( plexi eða akríl ).

Álið þyrftiru að beygja til, sjóða og klippa á meðan plastið væri hægt að móta eftir einhverju móti í ofni.

Allt bara spurning hversu langt þú vilt ganga og hve miklum tíma þú vilt eyða í projectið :)




Höfundur
Geit
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Mið 31. Okt 2007 19:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Geit » Þri 19. Feb 2008 16:59

Hehe já, besta við þetta er að þetta væri svolítið skemmtilegt ;D
Ég hugsa að ég sjóði saman ál bara, er svosem ekki búinn að hugsa þetta alveg í gegn.




Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dazy crazy » Þri 19. Feb 2008 20:33

Gerir þetta bara úr áli og skellir steinull inní, djö góð hljóðeinangrun :arrow:




Höfundur
Geit
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Mið 31. Okt 2007 19:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Geit » Þri 19. Feb 2008 21:16

Já ætlaði einmitt að gera þetta úr áli, get ég ekki lóðað það saman annars?
Eða pabbi á svosem ofur-lím sem ég gæti notað líka.
Hvað með þessa steinull, hvert myndi hún fara?




Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dazy crazy » Þri 19. Feb 2008 21:23

:arrow: = kaldhæðni

En það væri svosem mögulegt að gera þetta tvöfallt og skella einhverju hljóðeinangrandi efni á milli, held að steinull sé kannski ekki málið þar sem hún er mjög hitaeinangrandi en eitthvað sniðugt kannski eins og... leður?

Annað sem kæmi til greina væri að nota blikk, það er ekki þykkt en sterkt og hægt að sjóða.




Höfundur
Geit
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Mið 31. Okt 2007 19:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Geit » Þri 19. Feb 2008 22:06

Ok, er semsagt ekki hægt að sjóða ál?




Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dazy crazy » Þri 19. Feb 2008 22:07

Það þarf einhverja sérstaka suðu fyrir það, allavega gat ég ekki soðið hjólið mitt með pinnasuðu.

kannski argon suður geti það, hef ekki reynslu af þeim.




Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorrmund » Þri 19. Feb 2008 23:54

dagur90 skrifaði:Það þarf einhverja sérstaka suðu fyrir það, allavega gat ég ekki soðið hjólið mitt með pinnasuðu.

kannski argon suður geti það, hef ekki reynslu af þeim.
Einfaldasta leiðin til að sjóða ál er að nota mag eða tig suðu það eru hlífðargassuður, ef þú kemst einhverstaðar í tig suðu þá er alltaf hægt að prufa sig áfram... bara ekki vera viss um að það takist í fyrstu tilraun :)




Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dazy crazy » Mið 20. Feb 2008 00:31

Einfaldasta leiðin til að gera þetta er að nota blikk. :wink: (ekki svona blikk heldur málminn blikk).

Turnarnir eru held ég úr blikki.

o.t. hahahaha leit á undirskriftina þína og hugsaði bara "hey hvar komst hann í 9800 kort" en áttaði mig svo á því að þetta er ekki sá framleiðandi hehe. (þetta voru hugs gæsalappir)



Skjámynd

Rednex
Nörd
Póstar: 147
Skráði sig: Sun 15. Jún 2003 18:00
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfirði
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Búa til viftupláss á kassa?

Pósturaf Rednex » Lau 05. Apr 2008 04:05

Ég verð að vera sammála síðasta ræðumanni með að nota blikkið... beygir það bara með töngum og skrúfstykki. Það ætti heldur ekki að vera mikið mál að nota akríl plast og hitablásara. Gæti komið vel út að hafa þetta gegnsætt.... spurning

En til að festa þetta myndi ég setja smá hak innan á stykkið sem hægt væri að skrúfa eða hnoða í. Festa þetta innan á svo þetta væri nú aðeins flottara en bara eitthvað sem virkar :)
Það er alveg hægt að sjóða blikkið en verður að vera alveg hrikalega varkár því annars ferðu bara í gegn.


Ef það virkar... ekki laga það !