Vifta úr sambandi - má það?


Höfundur
enypha
Fiktari
Póstar: 81
Skráði sig: Lau 31. Maí 2003 23:21
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Vifta úr sambandi - má það?

Pósturaf enypha » Þri 07. Okt 2003 09:14

Ég er með Sparkle GeForce MX440 (úr Tölvuvirkni - snilldarverslun). Það er lítil vifta á kortinu. Málið er að þetta litla kvikindi gefur frá sér leiðinda suð, sem ég heyri það vel því tölvan er að öðru leyti hljóðlaus (svo til).

Hefur einhver hugmynd um hver hitinn má vera á þessu? Ég er með hitamæli tengdan við heatsink-ið (sem er í minna lagi - svipað og var á 486 örrunum hérna í gamla daga ca.). Er málið bara að kippa þessu úr sambandi og sjá?

Ég er ekki að keyra neina 3D leiki, mest að horfa á myndir og kannski smá sjónvarp. Einstaka AutoCAD verkefni.

Allar upplýsingar vel þegnar.


x86 4Mhz - 640KB RAM - 30MB HDD - Gultintaður skjár

Skjámynd

°°gummi°°
Nörd
Póstar: 148
Skráði sig: Mið 06. Ágú 2003 09:09
Reputation: 0
Staðsetning: rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf °°gummi°° » Þri 07. Okt 2003 13:24

ég sleit viftuna af mínu msi geforce 440mx korti fyrir sirka mánuði síðan, tölvan hefur verið svo að segja í gangi síðan, engin vandræði. það eina sem blæs lofti úr kassanum er psu-ið en ég tók samt session á kassanum og lokaði fyrir öll göt nema þau sem eru nálægt HD og skjákortinu í von um að lofti sogist þar inn...

skjákortið mitt er með tv-in og tv-out og ég horfi töluvert á tv-in og bíómyndir í henni og skjákortið virðist alveg höndla þetta - heatsinkið er samt frekar heitt, ég get ekki haldið fingrinum við það nema í nokkrar sek.


coffee2code conversion


Höfundur
enypha
Fiktari
Póstar: 81
Skráði sig: Lau 31. Maí 2003 23:21
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf enypha » Þri 07. Okt 2003 13:40

°°gummi°° skrifaði:ég sleit viftuna af mínu msi geforce 440mx korti


Þú tókst viftuna semsagt af? Væntanlega ekki það sniðugasta að hafa hana á - hár hiti og plast fara víst illa saman hef ég heyrt.

Btw. Kannski henda því með hérna, er einhver sem hefur skipt um hliðarviftuna á Dragon kassa? Er málið að nota afl eða er einhver tækni betri en önnur?

enypha


x86 4Mhz - 640KB RAM - 30MB HDD - Gultintaður skjár

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3759
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Þri 07. Okt 2003 13:44

Kaupa bara Sona eða Sona :D



Skjámynd

BoZo
Fiktari
Póstar: 67
Skráði sig: Þri 15. Júl 2003 12:28
Reputation: 0
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf BoZo » Þri 07. Okt 2003 16:19

Pandemic skrifaði:Kaupa bara Sona eða Sona :D


uhh.. þetta kostar svipað mikið og skjákortið :roll:



Skjámynd

odinnn
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 26. Sep 2002 20:37
Reputation: 8
Staðsetning: Hef ekki glóru!
Staða: Ótengdur

Pósturaf odinnn » Þri 07. Okt 2003 16:22

það á ekki að vera neitt mál að ná viftunni af dragon kassanum. ef það er ekki skrúfa þá þarf bara að ýta pinnanum út.