Dock station vandamál


Höfundur
ir15156
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Lau 06. Des 2003 11:09
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Dock station vandamál

Pósturaf ir15156 » Mið 04. Jan 2006 09:11

Ég var að vona að einhver hérna gæti hjálpað mér varðandi fartölvu. En það er þannig að þegar ég set fartölvuna mína í dock station og loka skjánum þá hafði ég haldið að háttalararnir í fartölvunni myndu disable-ast, en svo er ekki. Heldur þegar ég er að vinna á henni og hlusta kannski á tónlist þá heyrist tónlistin einnig úr háttölurunum á fartölvunni sem er frekkar þreyttandi. Þetta var ekki svona fyrst, en núna um dagin kom þetta allt í einu. Ef einhver hefur hugmynd hvernig maður eigi að losna við þetta þá væri það frábært.
Þetta er IBM fartölva og IBM dock-a.



Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1702
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Mið 04. Jan 2006 12:17

Ég er reyndar hvorki með IBM tölvu né þá dokku en ef það eru tengdir headphones/hátalarar við audio out tengið á dokkunni heyrist ekkert í hátölurunum á lappanum sjálfum.




Höfundur
ir15156
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Lau 06. Des 2003 11:09
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ir15156 » Mið 04. Jan 2006 13:05

Ég er með háttalara tengda við audio out tengið á dock-unni og það heyrist í þeim er ég spila tónlist, en það heyrist líka í háttölurunum í fartölvunni. En það er það sem ég vil losna við að það heyrist í fartölvunni á meðan hún er í dock-unni.

Takk samt fyrir.



Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1702
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Mið 04. Jan 2006 14:50

Búinn að bjalla í Nýherja? Kostar ekki mikið að hringja í þá og það hlýtur einhver að nenna að tala við þig.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mið 04. Jan 2006 14:53

ertu klikkaður?? kostar ekki mikið?? ég hringid einusinni í þá. beið í 10 mínútur, og talaði svo við einhvern gaur í 5 mínútúr, sem að gat btw ekkert hjálpað mér. Svo 2 vikum seinna fengum við 7.000kr reikning í pósti... :?


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1702
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Mið 04. Jan 2006 15:12

gnarr skrifaði:ertu klikkaður?? kostar ekki mikið?? ég hringid einusinni í þá. beið í 10 mínútur, og talaði svo við einhvern gaur í 5 mínútúr, sem að gat btw ekkert hjálpað mér. Svo 2 vikum seinna fengum við 7.000kr reikning í pósti... :?
Heh.. ekki segja mér að þú hafir borgað það?!?! Svo er kannski mismunandi hvort það er einstaklingur eða fyrirtæki með þjónustusamning að hringja. Get örugglega reddað þér betri þjónustusamningi á betri stað ;)

En annars er bara bjánalegt ef einstaklingur hringir í söluaðila til að nálgast upplýsingar um vöru sem þeir þjónusta fái reikning.

En, ir15156, ef þú notar audio out á lappanum sjálfum en ekki dokkuni. Slökknar þá á innbyggðu hátölurunum?




Höfundur
ir15156
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Lau 06. Des 2003 11:09
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ir15156 » Fim 05. Jan 2006 08:43

Ég prófaði að hringja í Nýherja og mér var bent góðfúslega á 900 númer. Þannig að það getur vel passað að gnarr hafi fengið 7000 kr reikning vegna þess að það er déskotans dýrt að hringja í 900 númer. Ég hef reyndar ekki prófað að nota audio á lappanum en reikna fastlega með að það virki til að slökkva á innbyggðu hátölurunum. En hugmyndin var að dock-an myndi disable innbyggðu hátalarana. Sem sagt finna út hvers vegna það gerðist ekki þannig.
Takk kærlega fyrir hjálpina.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 05. Jan 2006 08:59

Er ekki eitthvað forri t sem fylgir með dockinu, þar sem þú getur stillt á hverju á að slökkna og svona þegar þú setur tölvuna í það? eða einhver svona power profile sem er hægt að stilla þetta í?


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1702
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Fim 05. Jan 2006 15:17

Hmm.. þekki engan sem er á IBM lappa og notar dokku (nema hugsanlega starfsmenn Nýherja sem ég nenni ekki að tala við nema tilneyddur :P) þannig að ég get lítið hjálpað þér.

Búinn að fara vel yfir allar stillingar á sounddrivernum? Finn reyndar ekkert sem tengist þessu hjá mér en ég er með nákvæmlega þessa virkni sem þig vantar.. hélt að það væri bara eðlilegt.




Höfundur
ir15156
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Lau 06. Des 2003 11:09
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ir15156 » Fös 06. Jan 2006 08:47

Nei það kemur ekki neitt forrit með dock-unni. Þetta eru yfirlit bara stillingar í Control Panel-num, en ég finn ekkert þar. Ég er búinn að fara yfir allar stillingar á sounddriver-num. Þetta verður bara að vera svona, maður getur nú ekki fengið allt. Kannski að maður finni út úr þessu þegar maður er að reyna að laga eitthvað allt annað.
En strákar ég þakka ykkur samt fyrir að hafa reynt.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fös 06. Jan 2006 09:16

búinn að fara í gegnum driver listann á ibm síðunni? það eru oft nýjir driverar sem að laga svona issue.


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
ir15156
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Lau 06. Des 2003 11:09
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ir15156 » Mán 09. Jan 2006 14:29

Ég er búinn að fá svar við þessu. Málið er það að þetta er þekkt vandamál hjá IBM, en lausnin við þessu er víst að lækka hljóðið niður onboard, nota takana á lyklaborðinu til að lækka alveg niður. En það hefur ekki áhrif á external hátalarana.
En ég þakka ykkur samt kærlega fyrir að hafa hjálpað mér.