Nýja fartölvan mín


Höfundur
goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Nýja fartölvan mín

Pósturaf goldfinger » Þri 01. Mar 2005 20:50

Fékk nýja fartölvu í dag, ég keypti ekki að utan eins og planið var alltaf en það var hætt að selja elskuna sem mig langaði í, líka viss áhætta að kaupa að utan, ég meina það er ekkert 100% að maður sleppi i gegnum tollinn og svo vesen ef eitthvað bilar og þannig. Svo ég reddaði bara fjári góðum díl og þetta mun vera gripurinn:

Aopen Centrino 1.7GHz
Intel Pentium M 735 1.7GHz (Dothan 2MB)
Skjár 15" SXGA 1400x1050
Vinnsluminni 1024MB(2x512MB) DDR 333MHz
Harður diskur 80GB 5200rpm
Geisladrif DVD +RW skrifari
Skjákort ATI Mobility Radeon 9700 128MB DDR
10/100 netkort og 56k mótald
Þráðlaust netkort Intel Pro (802.11g)
Rafhlaða Li-Ion allt að 4,5 klst
Kortalesari Memory Stick, Secure Digital og MMC
Pcmcia rauf, S-Video sjónvarpsútgangur
USB2, Infrared, Firewire, Parallel tengi
Íslenskt lyklaborð í fullri stærð
Windows XP Professional
Fartölvu bakboki fylgir
Þyngt 2.72kg

Mynd: http://www.tolvutaekni.is/tolvur/Aopen/1557G.jpg

Er ekki ennþá kominn með netið í hana (er i PC tölvunni minni) en fæ tengingu fljotlega inn i herbergið mitt, ég er búinn að prófa NFSU2 og hann bara virkaði mjög vel, fínasta grafík (miðað við fartölvu) og ekkert hökt í gangi eða þannig. Ætla að taka 3dmark á henni á eftir. :8)

Tölvan er mjög nett og þægileg og bara mjög töff, ef eitthvað er þá er hún flottari en hún lítur út fyrir að vera á myndunum. :D

Svo er líka það sem mér finnst vanta í sumar, það er hægt að tvíklikka á *músarsvæðið* veit ekkert hvað þetta kallast, og það er eins og að vinstri klikka, það er ekkert á öllum :o

Búinn að prófa að pikka aðeins i word og mér finnst það bara mjög fínt, einn i bekknum minum er með hp tölvu og mér finnst frekar óþægilegt að pikka á henni en whatever.

Kem með fleiri comment fljótlega.




biggi1
spjallið.is
Póstar: 440
Skráði sig: Mið 01. Des 2004 00:33
Reputation: 3
Staðsetning: Brh..
Staða: Ótengdur

Pósturaf biggi1 » Þri 01. Mar 2005 21:24

mig lángar í sona :)

BTW á afmæli í nóvember :wink:




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1791
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 81
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Pósturaf axyne » Þri 01. Mar 2005 22:34

hvað kostaði svo gripurinn ?




Höfundur
goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf goldfinger » Mið 02. Mar 2005 15:26

hann kostaði 167þús :)

Reddaði fínum díl, hehe

Fyrsta tilraun með 3d mark 2003
Viðhengi
3dmark2003.JPG
Test nr1
3dmark2003.JPG (63.63 KiB) Skoðað 1524 sinnum



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Mið 02. Mar 2005 18:27

Það er minna en ég fékk á minni fartölvu með sama örgjörva, minna minni og 9600 skjákorti. Þú þarft líklega að uppfæra driverana eitthvað (eða ég að prófa aftur að keyra 3dmark 2003 :D )




Höfundur
goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf goldfinger » Fim 03. Mar 2005 10:43

hehe ja ég á eftir að uppfæra þá :)




Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Icarus » Þri 03. Maí 2005 17:55

keyptirðu hana þarna í tölvutækni ? Fann bara ekkert um aopen ferðatölvur á síðunni þeirra.

Einnig.. hvernig hefur gripurinn verið að virka.. alveg að standa sig ? mig vantar nefnilega ferðatölvu og þessi lítur helvíti sweet út

ps: Snorrmund, sorry að ég er að draga upp gamlan þráð :wink:




Andri Fannar
Tölvutryllir
Póstar: 687
Skráði sig: Fim 08. Jan 2004 20:53
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Andri Fannar » Þri 03. Maí 2005 19:48

Icarus fáðu þér Dell.


« andrifannar»


Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Pósturaf Yank » Mið 04. Maí 2005 11:17

prufaðu omega drivera fyrir skjákortið
Framleiðendur eru mjög latir að uppfæra þá, ef þeir gera það yfir höfuð.




Höfundur
goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf goldfinger » Mið 04. Maí 2005 12:51

Icarus skrifaði:keyptirðu hana þarna í tölvutækni ? Fann bara ekkert um aopen ferðatölvur á síðunni þeirra.

Einnig.. hvernig hefur gripurinn verið að virka.. alveg að standa sig ? mig vantar nefnilega ferðatölvu og þessi lítur helvíti sweet út

ps: Snorrmund, sorry að ég er að draga upp gamlan þráð :wink:


Svínvirkar !!!

Jámm, það er ekkert um þær á síðunni en geta pantað hana frá tölvudreifingu.

Hann er að standa sig, hef farið með hann á lön og spilað tölvuleiki og allt þannig. Ræður alveg við Call of duty, Driv3r, Need for speed Underground 2, medal of honor og svo framvegis. Hún er eldsnögg að starta sér og þannig.

Ef þú hefur áhuga geturu örugglega fengið hana á sama verði og ég fékk hana á, það er að segja ef þú villt alveg eins. :wink:

Get tjekkað á því ef þú villt fyrir þig, er með dúddann á msn




Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorrmund » Mið 04. Maí 2005 13:20

Icarus skrifaði:keyptirðu hana þarna í tölvutækni ? Fann bara ekkert um aopen ferðatölvur á síðunni þeirra.

Einnig.. hvernig hefur gripurinn verið að virka.. alveg að standa sig ? mig vantar nefnilega ferðatölvu og þessi lítur helvíti sweet út

ps: Snorrmund, sorry að ég er að draga upp gamlan þráð :wink:
hahah ekki málið.. fannst þetta mjög fyndið.. fattaði ekki strax að þetta væri ekkert gamall þráður.þ.




Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Icarus » Mið 04. Maí 2005 19:14

Takk goldfinger.. ég verð þá bara að tala við þig aðeins seinna.. fartölvukaupin eru ennþá á frumstigi

Annars var ég að pæla í þessari vél

http://extranet.ejs.is/extranet/Product ... P6000%2301

Fæ hana eitthvað ódýrari, veit reyndar ekki hve mikið en hvernig líst fólki annars á hana ?




Höfundur
goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf goldfinger » Mið 04. Maí 2005 20:15

ekkert eitthvað geðveikt...

Sendi þér smá skilaboð




Xtremerer
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Sun 08. Maí 2005 19:44
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

..

Pósturaf Xtremerer » Sun 26. Jún 2005 13:30

Ég skil ekki út af hverju einginn fær ser IBM á þessu spjalli :S:S:S ( hún er reyndar frekar dír her á landi )




einarsig
Gúrú
Póstar: 511
Skráði sig: Fös 18. Jún 2004 22:18
Reputation: 0
Staðsetning: 113 rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf einarsig » Sun 26. Jún 2005 14:20

vóó ! rólegur á stafsetningunni og að endurvekja dauðann þráð :?


IBM er kúl og allt það ... en þeir eru of dýrir fyrir minn smekk.




Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: ..

Pósturaf Icarus » Sun 26. Jún 2005 16:31

Xtremerer skrifaði:Ég skil ekki út af hverju einginn fær ser IBM á þessu spjalli :S:S:S ( hún er reyndar frekar dír her á landi )



IBM eru náttúrulega afskaplega dýrir á Íslandi og svo eru þetta meiri vinnuvélar heldur en leikja...




Höfundur
goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf goldfinger » Mán 27. Jún 2005 14:32

oft á tíðum er þetta spurning um að fá sem mest fyrir peninginn