Tölvusamsetning


Höfundur
GudlaugurGt
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Fös 20. Feb 2015 15:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Tölvusamsetning

Pósturaf GudlaugurGt » Mán 15. Sep 2025 23:12

Sjá viðhengi, er þetta góð tölva ? Er einhvað sem þið mynduð breyta eða bæta við?

Bestu kveðjur,
G
Viðhengi
IMG_0446.jpeg
IMG_0446.jpeg (647.6 KiB) Skoðað 844 sinnum




Viggi
Geek
Póstar: 807
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 128
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Viggi » Mán 15. Sep 2025 23:23

Lýst vel á þetta. Getur samt tekið windows út og keypt lykil á netinu fyrir klink


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.


Hausinn
FanBoy
Póstar: 759
Skráði sig: Mið 15. Jan 2020 18:14
Reputation: 170
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Hausinn » Þri 16. Sep 2025 08:20

Eina sem ég myndi breyta væri að taka aðeins ódýrari aflgjafa og kælingu og kaupa 2TB SSD í staðinn. Annars flott tölva.

Ég myndi einnig stela Windows.
Síðast breytt af Hausinn á Þri 16. Sep 2025 08:22, breytt samtals 3 sinnum.




ejm
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 3
Staða: Tengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf ejm » Þri 16. Sep 2025 10:08

Ef þetta er hugsað sem gjöf þá er kannski betra að hafa Windows legit með, en ég myndi frekar nota massgrave en að kaupa lykil á netinu á klink, miðað við vesenið sem maður hefur heyrt af.



Skjámynd

Oddy
Geek
Póstar: 837
Skráði sig: Sun 12. Jan 2020 20:34
Reputation: 77
Staðsetning: Akureyri
Staða: Tengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Oddy » Þri 16. Sep 2025 11:05

ejm skrifaði:Ef þetta er hugsað sem gjöf þá er kannski betra að hafa Windows legit með, en ég myndi frekar nota massgrave en að kaupa lykil á netinu á klink, miðað við vesenið sem maður hefur heyrt af.


Þarf orðið lykil við uppsetningu?




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1806
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 147
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf blitz » Þri 16. Sep 2025 11:07

Er ekki verið að ráðleggja fólki gegn því að taka AsRock borð með 9000-seríu af Ryzen?

https://www.youtube.com/watch?v=8UdTQbcduio&t=228s


PS4

Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2051
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 82
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf hfwf » Þri 16. Sep 2025 11:28

blitz skrifaði:Er ekki verið að ráðleggja fólki gegn því að taka AsRock borð með 9000-seríu af Ryzen?

https://www.youtube.com/watch?v=8UdTQbcduio&t=228s


Miðað við þau gögn sem liggja fyrir þá hefur ASROCK selt kannski 3-4-5m MBs fyrstu 9 mánuði ársins, ef miðað er við gögn þá frá 2024 (EST), amd selt eitthvað eitthvað, bios 3.40 kom út fyrir nokkrum vikum, ASROCK segja að þeir séu búnir að laga eitthvað bla bla, gefa ekkert upp, en frá 3.25 held ég segja þeir að þetta væri úr sögunni og kenna AMD um eða hvernig sem það var eða öfugt, en gefið að það er niche markaður af notendum inn á r/asrock, 200? kannski nenni ekki að telja sem þetta er að koma fyrir, þá sé ég ekkert að því að mæla með asrock og amd.

er með asrock og am5 9XXX x3d týpu, síðustu 3 mánuði á 3.25 bios þar sem téð á að hafa verið "lagað" ekkert vandamál hér *knock on wood*, en er í 3 ára ábyrgð og ef eitthvað kemur fyrir , þá er þetta tryggt.
Ef fólk efast eitthvað þá bara ekki taka asrock mb, mjög einfalt.




ejm
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 3
Staða: Tengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf ejm » Þri 16. Sep 2025 13:25

Oddy skrifaði:
ejm skrifaði:Ef þetta er hugsað sem gjöf þá er kannski betra að hafa Windows legit með, en ég myndi frekar nota massgrave en að kaupa lykil á netinu á klink, miðað við vesenið sem maður hefur heyrt af.


Þarf orðið lykil við uppsetningu?


Nei, held ekki. Kemur bara svona Activation banner á skjáinn hjá manni.




Vaktarinn
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2025 17:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Vaktarinn » Þri 16. Sep 2025 18:56

Mundi forðast Assrock með 9000 seríunni og alls ekki borga fyrir windows, það er frítt




oskarom
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 326
Skráði sig: Mán 05. Mar 2007 18:51
Reputation: 12
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf oskarom » Mið 17. Sep 2025 09:53

Hæ,

Til að fá sem gagnlegust svör þá væri mjög sniðugt að taka fram hvernig í hvað tölvan verður notuð ásamt hugmyndum um kröfur og budget.




Sinnumtveir
Gúrú
Póstar: 577
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 181
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Sinnumtveir » Mið 17. Sep 2025 18:54

Mín tvö sent:

Aflgjafi og kæling eru overkill. 32GB minni finnst mér fáránlega lítið.

Meira minni er alltaf betra, þýðir m.a. minna slit á SSD sem búbót.

Ég mynd sennilega reyna að hafa SSD aðeins stærri, en 1TB er alveg vel nothæft.



Skjámynd

Úlvur
Fiktari
Póstar: 80
Skráði sig: Þri 30. Jan 2018 13:52
Reputation: 9
Staðsetning: Keflavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Úlvur » Mið 17. Sep 2025 21:41

Sinnumtveir skrifaði:Mín tvö sent:

Aflgjafi og kæling eru overkill. 32GB minni finnst mér fáránlega lítið.

Meira minni er alltaf betra, þýðir m.a. minna slit á SSD sem búbót.

Ég mynd sennilega reyna að hafa SSD aðeins stærri, en 1TB er alveg vel nothæft.


Sammála þessum herramanni.
Nema ég hef aldrei heyrt um að overkill af minni hjálpi ssd drifum að slitna minna. Myndi mæla með 32gb fyrir gaming, meira fyrir video vinnslu eða einhverja álíka vinnu.

Hjálpar að nefna hvað tölvan er notuð í. :)
Síðast breytt af Úlvur á Mið 17. Sep 2025 21:49, breytt samtals 1 sinni.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4236
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1394
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Klemmi » Mið 17. Sep 2025 23:42

Bara sama og hinir hafa sagt.

Óþarflega öflugur aflgjafi og kæling.
Móðurborðið líka óþarflega dýrt, en reyndar lítið í boði þar nema m-ATX ódýrara.

Færi í ódýrari týpu af 2TB disk, ef þetta er leikjavél, þá er 1TB fljótt að fyllast nema þið spilið takmarkað magn af leikjum.

Svo fer það eftir notkun og budgetti, en mögulega kæmi betur út að taka þennan sparnað, og spara meira og fara í 7800X3D og skella í RTX 5080 í staðin, eða hlæja með mismuninn í bankann, eða eyða honum í jaðartæki... skjá, heyrnatól eða USB eldflaugar.


Starfsmaður Tölvutækni.is


Sinnumtveir
Gúrú
Póstar: 577
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 181
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Sinnumtveir » Fim 18. Sep 2025 00:12

Úlvur skrifaði:
Sinnumtveir skrifaði:Mín tvö sent:

Aflgjafi og kæling eru overkill. 32GB minni finnst mér fáránlega lítið.

Meira minni er alltaf betra, þýðir m.a. minna slit á SSD sem búbót.

Ég mynd sennilega reyna að hafa SSD aðeins stærri, en 1TB er alveg vel nothæft.


Sammála þessum herramanni.
Nema ég hef aldrei heyrt um að overkill af minni hjálpi ssd drifum að slitna minna. Myndi mæla með 32gb fyrir gaming, meira fyrir video vinnslu eða einhverja álíka vinnu.

Hjálpar að nefna hvað tölvan er notuð í. :)


Skrif á SSD slítur disknum, hann hefur endanlegan líftíma í skrifum. Meira minni == minna "paging", minna slit, meiri ending.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17106
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2325
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf GuðjónR » Fim 18. Sep 2025 12:33

Það er ekkert að ASRock móðurborðunum með 9000 seríuna af AMD.
Löngu búið að laga það með BIOS uppfærslum, sá nýjasti er 3.40 og ekki gleyma það er ábyrgð á þessu dóti.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2776
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 528
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Moldvarpan » Fim 18. Sep 2025 13:19

Er þetta aðallega fyrir leikja spilun?

Ég myndi persónulega taka ódýrari örgjörva og móðurborð, og taka dýrara skjákort.