rapport skrifaði:C2H5OH skrifaði:Mér finnst einmitt að ríkið eigi að eiga banka, ekki bara afþví að ég treysti ekki stjórnmálamönnum okkar til að selja þá án þess að eiga hag að fyrir vini og vandamenn á undirverði, heldur tel ég það skárri kostinn að þessi þjóðarblóðmjólkaði hagnaður bankana skili sér í ríkiskassann og þannig út í samfélagið aftur í formi þjónustu, frekar en að hann skili sér út úr landi í vasan hjá Blackwater/Vanguard/Einhver erlendur vogunarsjóður.
Arðgreiðslur landsbankans voru til að nefna það 20.55 milljarðar árið 2022 og 16.5 milljarðar árið 2023.
Til að setja það í samhengi, þá skilaði veiðigjald af Fiskiauðlindum þjóðarinnar "aðeins" 7.9 milljarða í ríkiskassan 2022.
Ég sæi bara fyrir mér að sama/svipað regluverk yrði sett hér eins og í Þýskalandi og gildir um t.d. Allianz, að ef hagnaður fer yfir X prósent þá eigi að leggja það inn á þá sem eiga innistæður hjá sjóðnum.
s.s. ef hagnaður einhvers banka fer yfir 5% t.d. 6,5% þá eigi að útdeila 1,5% til allra sem eru með sparireikning hjá viðkomandi banka út frá innistæðu.
Svona reglur ýta undir aðskilnað fjárfestingabanka og almennra viðskiptabanka en tryggja líka að lán til almennings verða ekki nær botnlaus hít fyrir atvinnustarfsemi að ganga í og svissa svo bara um kennitölu.
Það væri draumur!
Spurning, miðavið stefnuskrár þeirra flokka sem ætla sér að selja bankana, sérðu einhverstaðar að þeir ætli sér að setja upp slíkt regluverk ? Eða bara eitthvað regluverk yfir höfuð til að breyta núverandi ástandi ?
*Edit tek út rant um spillingu..