Níu bjóða sig fram í Suðurkjördæmi hjá Pírötum....
Bergþór H. Þórðarson
Axel Pétur Axelsson....
Axel fucking Pétur að bjóða sig fram fyrir pírata á þing.. hahahha þvílíka steikin. Ég skil ekki hvaða jólasveinar munu kjósa þennan flokk lengur.
Alþingiskosningar 2024
-
- Vaktari
- Póstar: 2519
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 471
- Staða: Ótengdur
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 357
- Skráði sig: Fös 19. Júl 2013 20:55
- Reputation: 71
- Staðsetning: Reykjanesbæ
- Staða: Tengdur
Re: Alþingiskosningar 2024
Ertu til í að seigja mér frá hvað í stefnuskrá þíns flokks er betra en annar flokkur?
Er ekki að fara lesa allar stefnuskrár, þið virðist vera mjög fróðir um þetta þessvegna spyr ég ykkur
Með fyrir fram þökkum
Er ekki að fara lesa allar stefnuskrár, þið virðist vera mjög fróðir um þetta þessvegna spyr ég ykkur
Með fyrir fram þökkum
Asus Z390-A Prime i7 9700k CPU Thermaltake 3.0 Extreme Corsair 16GB (2x8) 3000MHz CL15 500 GB Samsung 970 EVO Plus m.2 palit 2080 super seasonic 760w 80+ platinum
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7468
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1154
- Staða: Ótengdur
Re: Alþingiskosningar 2024
Moldvarpan skrifaði:Níu bjóða sig fram í Suðurkjördæmi hjá Pírötum....
Bergþór H. Þórðarson
Axel Pétur Axelsson....
Axel fucking Pétur að bjóða sig fram fyrir pírata á þing.. hahahha þvílíka steikin. Ég skil ekki hvaða jólasveinar munu kjósa þennan flokk lengur.
Axel mun vonandi ekki komast á lista en ég hef alltaf fílað Bergþór, minnir að hann sé eða hafi verið virkur Vaktari.
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7468
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1154
- Staða: Ótengdur
Re: Alþingiskosningar 2024
Diddmaster skrifaði:Ertu til í að seigja mér frá hvað í stefnuskrá þíns flokks er betra en annar flokkur?
Er ekki að fara lesa allar stefnuskrár, þið virðist vera mjög fróðir um þetta þessvegna spyr ég ykkur
Með fyrir fram þökkum
Ég mun horfa á persónur og hvort kosnjbgu um ESB verði lofað.
Aðrar aðgerðir til að laga húsnæðisvandann yrðu alltaf fokdýrar.
Burt með krónuna hún er versti óvinur almennings og besti vinur ríka fólksins.
Skattasamstarf innan EU yrði vonandi líka til að styrkja skattheimtu þeirra sem flakka með fé milli landa.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 220
- Skráði sig: Sun 29. Sep 2002 00:19
- Reputation: 23
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Alþingiskosningar 2024
rapport skrifaði:Diddmaster skrifaði:Ertu til í að seigja mér frá hvað í stefnuskrá þíns flokks er betra en annar flokkur?
Er ekki að fara lesa allar stefnuskrár, þið virðist vera mjög fróðir um þetta þessvegna spyr ég ykkur
Með fyrir fram þökkum
Ég mun horfa á persónur og hvort kosnjbgu um ESB verði lofað.
Aðrar aðgerðir til að laga húsnæðisvandann yrðu alltaf fokdýrar.
Burt með krónuna hún er versti óvinur almennings og besti vinur ríka fólksins.
Skattasamstarf innan EU yrði vonandi líka til að styrkja skattheimtu þeirra sem flakka með fé milli landa.
Ég er á sama báti, því fyrr sem við komumst í alvöru gjaldmiðil, því betra verður það fyrir almenning í landinu.
ESB er ekki fullkomið en við eigum meiri séns á mannsæmandi lífi inni en fyrir utan. Kannski mér tækist loksins að versla bát og fara að veiða eftir allt saman
Q: Why can' t you get a cup of tea at Old Trafford?
A: All the mugs are on the field and all the cups are at Anfield.
A: All the mugs are on the field and all the cups are at Anfield.
-
- Kóngur
- Póstar: 6365
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 454
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Alþingiskosningar 2024
Le Drum skrifaði:rapport skrifaði:Diddmaster skrifaði:Ertu til í að seigja mér frá hvað í stefnuskrá þíns flokks er betra en annar flokkur?
Er ekki að fara lesa allar stefnuskrár, þið virðist vera mjög fróðir um þetta þessvegna spyr ég ykkur
Með fyrir fram þökkum
Ég mun horfa á persónur og hvort kosnjbgu um ESB verði lofað.
Aðrar aðgerðir til að laga húsnæðisvandann yrðu alltaf fokdýrar.
Burt með krónuna hún er versti óvinur almennings og besti vinur ríka fólksins.
Skattasamstarf innan EU yrði vonandi líka til að styrkja skattheimtu þeirra sem flakka með fé milli landa.
Ég er á sama báti, því fyrr sem við komumst í alvöru gjaldmiðil, því betra verður það fyrir almenning í landinu.
ESB er ekki fullkomið en við eigum meiri séns á mannsæmandi lífi inni en fyrir utan. Kannski mér tækist loksins að versla bát og fara að veiða eftir allt saman
þá gætum við líka komist í banka sem rukka ekki 13% vexti á lánin.
CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16479
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2104
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Alþingiskosningar 2024
„Sagt er að rotturnar yfirgefi sökkvandi skip“
Eru þá einhverjir eftir?
Eru þá einhverjir eftir?
- Viðhengi
-
- IMG_0333.jpeg (651.14 KiB) Skoðað 189 sinnum
-
- has spoken...
- Póstar: 170
- Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
- Reputation: 75
- Staða: Ótengdur
Re: Alþingiskosningar 2024
kjartanbj skrifaði:
ÞETTA.. verst hvað það er búið að heilaþvo svo marga um hvað ESB er slæmt og eitthvað, að við missum völd yfir hinu og þessu þegar engin veit hvernig þetta yrði þar sem ekki fékkst að klára að ræða málin. ég vill losna við krónuna og fá stærri markað hér þannig við séum ekki kúguð eins og við erum núna undir þessari ónýtu krónu og þeir örfáu ríkari verði bara ríkari á kostnað okkar endalaust
Það liggur reyndar mjög ljóst fyrir hvernig þetta verður.
Heilaþvotturinn felst í því að þetta séu "aðildarviðræður" en ekki "aðlögunarviðræður".
Re: Alþingiskosningar 2024
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024 ... a_bidlaun/
Þarna finnst mér, þar sem þau neituðu að vera áfram Ráðherra í starfstjórn, að biðlaun yrðu felld niður.
Þarna finnst mér, þar sem þau neituðu að vera áfram Ráðherra í starfstjórn, að biðlaun yrðu felld niður.
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7468
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1154
- Staða: Ótengdur
Re: Alþingiskosningar 2024
brain skrifaði:https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/10/21/fyrrverandi_radherrar_vg_fa_bidlaun/
Þarna finnst mér, þar sem þau neituðu að vera áfram Ráðherra í starfstjórn, að biðlaun yrðu felld niður.
Vá! hvað ég er sammála!
Fólk sem neitar að vinna vinnuna á ekki að fá laun fyrir það...
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7468
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1154
- Staða: Ótengdur
Re: Alþingiskosningar 2024
Er að upplifa smölun í Pírata, frambjóðendur að hvetja til nýskráningar í flokkinm o.þ.h.
Það skemmir svolítið gæðastimpilinn sem átti að fylgja því að halda prófkjör.
Það skemmir svolítið gæðastimpilinn sem átti að fylgja því að halda prófkjör.
-
- Vaktari
- Póstar: 2760
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Reputation: 340
- Staðsetning: Danmark
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Alþingiskosningar 2024
rostungurinn77 skrifaði:kjartanbj skrifaði:
ÞETTA.. verst hvað það er búið að heilaþvo svo marga um hvað ESB er slæmt og eitthvað, að við missum völd yfir hinu og þessu þegar engin veit hvernig þetta yrði þar sem ekki fékkst að klára að ræða málin. ég vill losna við krónuna og fá stærri markað hér þannig við séum ekki kúguð eins og við erum núna undir þessari ónýtu krónu og þeir örfáu ríkari verði bara ríkari á kostnað okkar endalaust
Það liggur reyndar mjög ljóst fyrir hvernig þetta verður.
Heilaþvotturinn felst í því að þetta séu "aðildarviðræður" en ekki "aðlögunarviðræður".
Ísland er búið að vera hluti af innri markaði ESB síðan 1. Janúar 1994. Íslendingar eru nú þegar með rúmlega 2/3 af lögum ESB í gildi. Það sem er ekki inni er sjávarútvegur, landbúnaður, gjaldeyrismál (evran) og tollabandalagið. Síðan nokkur atriði varðandi samkeppni, einokun eins og er á Íslandi er bönnuð í ESB.