"gleymast",ekki koma upp við leit, þessir helstu aðilar

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
vesi
Bara að hanga
Póstar: 1524
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Reputation: 132
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Tengdur

"gleymast",ekki koma upp við leit, þessir helstu aðilar

Pósturaf vesi » Fim 17. Okt 2024 16:54

Eftir smá naflaskoðun komst ég að því að ég er veikasti hlekkurinn í "heimaörigginu",og "rétti"(allar upplýsingar mjög aðgengilegar) öllum sem um það biðja allar upplýsingar. þessu langar mig að breyta. Hvaða leiðir færu þið?


MCTS Nov´12
Asus eeePc

Skjámynd

rostungurinn77
Ofur-Nörd
Póstar: 216
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 81
Staða: Tengdur

Re: "gleymast",ekki koma upp við leit, þessir helstu aðilar

Pósturaf rostungurinn77 » Fim 17. Okt 2024 21:51

Eitthvað finnst mér titillinn ekki ríma við innihaldið en ...

Að nota ekki fullt_nafn_og_kennitala@tolvupostur.is þegar þú skráir þig allsstaðar er ágætis regla.

Getur notað svona email alias til að þynna fótsporið þitt.

Ef ekki það þá mörg netföng sem þú notar til að hólfa fótspor þitt á netinu niður.

Hvað er annað? Facebook, x og pornhub aðgangur undir fullu nafni? Mögulega allir tengdir í eitt netfang?

Er ég að misskilja eitthvað?




traustitj
Fiktari
Póstar: 99
Skráði sig: Lau 31. Júl 2021 23:49
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: "gleymast",ekki koma upp við leit, þessir helstu aðilar

Pósturaf traustitj » Fös 18. Okt 2024 10:53

Ég er ekki alveg að skilja þig ... en það sem ég tel mig skilja er að ég myndi mæla með að þú notir password manager. Þá geturu notað einkvæm email netföng og virkilega löng lykilorð og þarft bara að muna eitt. Ég var skeptískur á þetta en fékk svo 2 mánuði fría til að prufa og það er ekki séns að ég fari til baka.

Hinn skilningurinn. Þú getur gert eins og all flestir fjárglæpamenn á Íslandi og látið Google hreinlega fjarlægja þig af internetinu. Það er svo öflugt að þó þú hafir verið forsíðufrétt á mogganum fyrir nokkrum árum, þá finnur þig enginn nema hreinlega að vita dagsetninguna á blaðinu til að sjá þig.

Bara sem einfalt dæmi. Reyndu að finna eitthvað um pabba hennar Semu Erlu Serdaroglu. Pabbi hennar var rosalega mikið í fjölmiðlum fyrir ekki svo löngu síðan, bæði bara sem maður sem hafði skoðanir og vesen og allt þar á milli. Ég er ekki að dæma hann neitt. Ég bara segi, reyndu að finna staf um manninn sem var í öllum fjölmiðlum.
Já eða fréttir um "vinninga" kaupþings liðsins, Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að segja að bankarnir og sérstaklega Kaupþing (kb og öll hin nöfnin) væru flottustu fjármálastofnanir í heiminum. Eða þegar þessi Ásgeir var í bæjarpólítík og gerði allt vitlaust. Ekki stafur um það. Málið er að upplýsingar sem tengjast þér og eru fjarlægðar, þær koma aldrei aftur nema það sé frá annari þjónustu. Plús, þér senda örugglega svoleiðis leitir bara beint á /dev/null

Það eru til þjónustur sem gera ekkert nema að finna upplýsingar um þig og eyða þeim. Það versta við það er að þær kosta ekki einu sinni mikið.

Annars, kannski, útskýra betur það sem þú ert að leitast eftir.