Sjá titil..
Hvað er best til þess að hafa góðan pakka af erlendum stöðvum/fréttaþjónustum/cable ef maður vill ekki nota Sjónvarp Símans?
Bæði heima og á ferðinni..
Aðeins búinn að skoða YouTube TV en sýnist þeir blokka VPN ansi grimmt. Leiðinlegt að borga hátt mánaðargjald fyrir þjónustu en vera svo blokkaður. Er einhver svona þjónusta þar sem maður þyrfti ekki að nota VPN?
E-d annað á Íslandi en Sjónvarp Símans?
Hvað eru menn að taka í sjónvarpsþjónustu?
-
- Vaktari
- Póstar: 2796
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Reputation: 349
- Staðsetning: Danmark
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað eru menn að taka í sjónvarpsþjónustu?
Ef þú getur. Þá getur þú sett upp þinn eigin gervihnattadisk. Þá getur þú náð 28.3E, 19.2E og síðan 13.0E sem nást best á Íslandi. Það er hægt að fá diska með þannig uppsetningu að þú getur verið með mörg LNB á sama armi. Það er einnig 0.8W sem er með norrænu stöðvanar og Rúv (allt læst).
Þannig ertu laus við internetið og allar takmarkanir. Síðan er ekkert mál að tengja saman alla gervihnattadiskana með DiSeqC í einn kapal sem fer í sjónvarpið hjá þér.
Þannig ertu laus við internetið og allar takmarkanir. Síðan er ekkert mál að tengja saman alla gervihnattadiskana með DiSeqC í einn kapal sem fer í sjónvarpið hjá þér.
Re: Hvað eru menn að taka í sjónvarpsþjónustu?
Ég er nú bara svo ílla gefinn að sjónvarp símans og premium hefur verið í áskrift hjá mér síðan ég flutti tilbaka á skerið fyrir 5 árum, það hefur aldrei komið til tals að hætta með það, það er virkilega mikið af góðu stöffi þarna og eru með nýjustu þættina mjög snemma. Ég er líka með Amazon prime, það kostar bara rétt $7 eða álíka á mánuði, hef ekki skoðað. Það er ekki mikið þar en það eru helv skemmtilegir þættir inn á milli, top gear gaurarnir, Clarkson Farm, Goliath og nokkrar bíó myndir. Svo er ég með Netflix, en hef mikið spáð í að segja því upp en ekki gert ennþá. Það er alltaf eitthvað þarna, en búið að vera slappt síðustu 2 árin, en samt, notað.
Svo borga ég fyrir plain youtube.
Svo borga ég fyrir plain youtube.
Síðast breytt af traustitj á Fim 24. Okt 2024 19:41, breytt samtals 1 sinni.
-
- 1+1=10
- Póstar: 1177
- Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
- Reputation: 166
- Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað eru menn að taka í sjónvarpsþjónustu?
Það fer eftir hvað þú villt horfa á þessum erlendum stöðvum. Ef það eru þættir og myndir þá bara torrent og Plex og málið dautt.
Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''
My CPU's Hot But My Core Runs Cold
My CPU's Hot But My Core Runs Cold
-
- FanBoy
- Póstar: 752
- Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
- Reputation: 116
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað eru menn að taka í sjónvarpsþjónustu?
Er með netflix og það er farið að poppa upp í hugan oftar og oftar til hvers maður er með þetta því að 95% af efninu er algjört rusl líður oft langt á milli að það komi eithvað gott stuff. Svo er youtube premium svo plex og torrent bara
B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.
Re: Hvað eru menn að taka í sjónvarpsþjónustu?
Netflix, Disney+ og Viki... Það er nokkuð misjafnt hverjir í fjölskyldunni nota hvað, en svo lána ég nokkrum utan familíunnar Viki aðganginn því ég er að reyna koma fleirum inn í mína kóresku veröld ;-)
Var með Prime í tvo mánuði til að sjá Jinny´s Kitchen þættina sem voru teknir upp á Íslandi + var matargestur á staðnum og bíð núna eftir heimsfræðgðinni ;-)
Var með Prime í tvo mánuði til að sjá Jinny´s Kitchen þættina sem voru teknir upp á Íslandi + var matargestur á staðnum og bíð núna eftir heimsfræðgðinni ;-)
Re: Hvað eru menn að taka í sjónvarpsþjónustu?
ég borga fyrir Netlix, og prime, en aðallega bara svo fjöllan fái access í þær þjónustur, ég sjálfur horfi nánast ekkert á línulega dagskrá, er svoddans sjóræningi, að ég nota bara ákveðið forrit+Real-Debrid (real-debrid kostar 32 evrur per ár), og svo streymisviðbætur í þessu ákveðna forriti, og tengi allt áhorf við Trakt.tv, þá fæ ég að vita hvenær næsti þáttur kemur út sem ég er að fylgjast með, og nægir mér það vel, og þetta er svo notendavænt (og engar auglysingar, né popups eins og mörgum sjóræningjastreymissíðum) að konan mín og tengdapabbi sem eru mjög svo tækniheft, eiga í engum vandræðum með þetta
ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV
Re: Hvað eru menn að taka í sjónvarpsþjónustu?
Það má benda á Kodi með Crew repository ef menn sætta sig við viðmótið.
How To Install The Crew Kodi Addon
https://www.wirelesshack.org/how-to-install-the-crew-kodi-addon.html
How To Install The Crew Kodi Addon
https://www.wirelesshack.org/how-to-install-the-crew-kodi-addon.html
Re: Hvað eru menn að taka í sjónvarpsþjónustu?
(Besta Sjónvarpsþjónustan) https://www.facebook.com/profile.php?id=61558057037143
IPTV Streymi með pretty much öllu sem manni dettur í hug að leita að eða liggja yfir, hræódýrt og virkar bara. Allt sport, allar útlensku, íslensku, allur streymisveitu cataloggin osfrv
Skemmir ekki EPG stuðningurinn, hægt að spóla til baka líka og hægt að setja upp á öllum tækjum
IPTV Streymi með pretty much öllu sem manni dettur í hug að leita að eða liggja yfir, hræódýrt og virkar bara. Allt sport, allar útlensku, íslensku, allur streymisveitu cataloggin osfrv
Skemmir ekki EPG stuðningurinn, hægt að spóla til baka líka og hægt að setja upp á öllum tækjum
Re: Hvað eru menn að taka í sjónvarpsþjónustu?
elri99 skrifaði:Það má benda á Kodi með Crew repository ef menn sætta sig við viðmótið.
How To Install The Crew Kodi Addon
https://www.wirelesshack.org/how-to-install-the-crew-kodi-addon.html
akkúrat þetta sem ég var að benda á hér að ofan, vildi bara ekki styggja suma sem eru viðkvæmir fyrir því að svona hlutir séu nefndir á nafn
kodi+the crew er allavega það einfalt að konan getur notað þetta auðveldlega
Síðast breytt af kizi86 á Sun 27. Okt 2024 22:57, breytt samtals 1 sinni.