Sæl öll, mig langar að forvitnast varðandi viðmót Sjónvarp Símans, voru þeir að uppfæra viðmótið fyrir nokkrum dögum eða hvað? Viðmótið hjá henni múttu er allavega ekkert líkt í dag því sem það var áður (fyrir sirka 2-3 dögum) en þetta leit dagsins ljós og er mikil óánægja með þetta, ekki að það hafi verið eitthvað spes en þetta er ekki að hjálpa, hún er alveg brjáluð útaf þessu.
Þakka fyrir öll svör.
Sjónvarp Símans
Re: Sjónvarp Símans
Fékk nýtt útlit í gær, finnst það reyndar mjög flott. Þetta er bara eins og þegar að Facebook breytir einhverju hjá sér í viðmótinu að þá verður allt brjálað en eftir nokkra daga er allt orðið business as normal og fólk orðið vant.
Þetta lítur að minnsta kosti miklu betur út á stóru sjónvarpi og er nær því sem maður þekkir frá erlendu risunum og þeirra UI.
Þetta lítur að minnsta kosti miklu betur út á stóru sjónvarpi og er nær því sem maður þekkir frá erlendu risunum og þeirra UI.