kornelius skrifaði:appel skrifaði:kornelius skrifaði:Náði að laga epg-dagskrá hjá símanum - hvað svo sem það dugar lengi - greppa nú beint frá símanum sjálfum.
K.
Ættir kannski að spyrja lögfræðing hvort þú sért í áhættu að fá kæru á þig fyrir þessa "almannaþjónustu". Ekki það að EPG gögn séu eitthvað heilagasta heilagast, þá eru fyrirtæki sem starfa við þetta sem þú gætir keypt þessi gögn af. En með því að taka þau í heimildarleysi og dreifa þá ertu samkvæmt skilningi laganna að stela. Þetta er bara einsog að dreifa hugbúnaði ókeypis sem annar bjó til. Eini hugsanlegi "gróðinn" hjá þér er áhætta á kæru og milljónir í lögfræðikostnað.
Afhverju ætti það að vera óleglegt? Sjónvarps stöðvarnar eru að dreifa þessu sjálfar, og meira að segja auglýsa dagskrá fyrir fjölmiðla https://stod2.is/dagskra-fyrir-fjolmidla/ auk þess kemur það hvergi fram að ekki megi dreifa þessu, þannig að ég hef engar áhyggjur
K.
Ákveðnar sjónvarpsstöðvar geta ákveðið að gera þetta opinbert og ekkert að því. Alveg upp á þær komið að gera hvað þær vilja með sín gögn.
En þú verður að vita að þú getur ekki endurdreift öllu sem þú kemst yfir haldandi að þar sem það er aðgengilegt þá sé það "fair game" að taka og endurdreifa.
Þú segist vera að sækja þessi gögn frá Símanum. Ertu með leyfi frá Símanum til að taka þessi gögn og dreifa? Efast um það. Nota bene þá flokkast það sem stuldur.