Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K


Höfundur
gunnihall
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Fös 14. Apr 2023 17:40
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf gunnihall » Fös 12. Maí 2023 17:49

Ég ætla að setja saman tölvu með i9-13900K og RTX 4090. Ég hélt að ég væri búinn að velja alla íhluti og að allt væri á góðu róli þar til að ég áttaði mig á að setja saman kælingu og kassa er töluvert meira vesen en ég bjóst við.

Mér líst best á Liquid Freezer línuna frá Arctic og hafði ætlað mér að taka 360mm stærðina en tók þá eftir að 420mm stærðin er aðeins 5þús kr dýrari sem mér finnst vel þess virði ef það getur skofið af 3°C.
Þá fyrst fattaði ég hvað það eru fáir kassar sem koma 420mm radiator í toppinn. Meira að segja 360mm er of stór fyrir flesta kassa - sérstaklega þar sem ég hef hug á að kaupa G.Skill Trident vinnsluminni sem er 44mm hátt. Ég er meira hikandi við að taka stærri gerðina ef það kostar 30þús kr aukalega í stærri kassa.

Ég skoðaði Completed Builds á pcpartpicker og af þeim sem nota 420mm sýnist mér enginn hafa notað kassa sem verslanir hérlendis eru með til sölu.

Annars leist mér nokkuð vel á þennan frá Kísildal:
https://kisildalur.is/category/14/products/2661
Nema að ég er ekki viss um að ég komi fyrir nógu mörgum intake viftum til að halda positive pressure. Finn heldur ekki mikið af umsögnum um hann á netinu.

Ég hef aldrei sett saman tölvu í þessum gæðaflokki áður og hef notað Noctua NH-D15 í tæpan áratug. Ef einhver hefur reynslu af þessu og gæti gefið mér góð ráð væri það afar vel þegið. Ég er þegar kominn með Thermalright Contact Frame sem ég vona að fari langleiðina með að halda hitastiginu í skefjum.

Ég ætla að fikta mig eitthvað áfram með yfirklukkun en það er ekkert sem ég mun alveg missa mig í.

Ætti ég að panta risa kassa að utan og setja 420mm í push+pull config í toppinn?
Eða eru þetta of miklar áhyggjur og ég gæti allt eins keypt ódýran kassa og skellt 360mm að framan og kallað það gott?



Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1570
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Reputation: 44
Staðsetning: Breiðholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf Benzmann » Fös 12. Maí 2023 19:17

Ég fór í Corsair 7000d kassa og Corsair h170 vatnskælingu, bætti við 3x auka viftum á vatnskælingun


CPU: Intel i9 13900K | MB: Asus ROG Strix Z790-E Gaming| GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair 7000D| PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Kingston Fury 5600mhz 64gb |Storage: 2x Samsung 980Pro 2Tb| OS: Windows 11 Enterprise E5 64bit

Skjámynd

Templar
Kerfisstjóri
Póstar: 1221
Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
Reputation: 414
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf Templar » Fös 12. Maí 2023 19:26

Kældu vel, það er svaka hiti frá kortinu í leikjum, mun meira en cpu. Nóg 360mm á 13900k, keyptu gott móðurborð svo þú getir undirvoltað, cpu er í kringum 90 til 110w í leikjum á meðan kortið er með 200 til 400w.

Push pull skefur aftur 5c, nota svo washer mod eða contact frame, 5c+ aftur þar. Góð kassa kæling gerir þetta svo skemmtilega hljóðlátt en super öflugt.


--
|| Core Ultra 9 - Z890 - 96GB DDR6600 - 4090 - ||


agnarkb
Tölvutryllir
Póstar: 649
Skráði sig: Fös 03. Okt 2008 20:36
Reputation: 111
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf agnarkb » Fös 12. Maí 2023 20:12



Leikjavél | ROG Strix X570-E | 5800x3D | LF II 240| RTX 3090 | G.Skill 32GB Flare X 3200Mhz | RM850x | Pure Base 500
Server | ASRock H610M-ITX/ac | i5 12400 | Dark Rock TF2 | 32GB | 14 TB | Unraid Basic

Skjámynd

Templar
Kerfisstjóri
Póstar: 1221
Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
Reputation: 414
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf Templar » Fös 12. Maí 2023 21:28

Annað sem þú getur gert er fyrir utan að undirvolta, eitthvað sem er mjög auðvelt og á flestum intel móðurborðum er tilbúið undirvolt því að Intel speccarnir eru svo langt yfir því sem þarf. Asus útskýrði þetta sem svo að Intel leyfði móðurborðsframleiðendum að framleiða mun verri borð en þeir gera, markaðurinn er hins vegar komin hraðar en Intel ætlaðist til. Auto volt fyrir 13900K í flestum tilfellum tekur unlimited notkun frá 320W niður í 270W. Svo er hægt að setja bara t.d. 225W cap með undervolt, færð fleiri FPS per W en AMD non 3d gummíburnir CPUs og jafnvel líka 3d gúmmibirnir CPUs.
Kísildalur selur svo Silent PC Silent Wings 4 vifturnar, nýju kóngana í viftum.
Síðast breytt af Templar á Fös 12. Maí 2023 22:03, breytt samtals 2 sinnum.


--
|| Core Ultra 9 - Z890 - 96GB DDR6600 - 4090 - ||


andriki
spjallið.is
Póstar: 488
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 00:31
Reputation: 31
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf andriki » Fös 12. Maí 2023 22:38

deliddar bara cpuinn og direct die mountar vatnsblockina, fær um 23c lægri hita með því :happy



Skjámynd

Templar
Kerfisstjóri
Póstar: 1221
Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
Reputation: 414
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf Templar » Lau 13. Maí 2023 16:33

agnarkb skrifaði:https://elko.is/voruflokkar/frystikistur-310

Bara alls ekki, 13900K er hanga í 75-120W í flestum leikjum. Það er hins vegar frábært að eiga CPU sem hægt er að tjúna upp ef menn vilja. Að því sögðu er i9 ekki consumer CPU, þetta er prosumer stöff sem og lang skemmtilegasta CPUið að eiga því þarna er hægt að gera svo margt eins og látið CPUið vera ultra effecient eða akkurat öfugt, ultra hraðvirkt á kostnað orku. Ekkert af þessu er hægt að gera með Ryzen kubbunum.


--
|| Core Ultra 9 - Z890 - 96GB DDR6600 - 4090 - ||

Skjámynd

jojoharalds
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1619
Skráði sig: Þri 02. Nóv 2010 20:42
Reputation: 295
Staðsetning: Cicada - 3301
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf jojoharalds » Lau 13. Maí 2023 20:03

gunnihall skrifaði:Ég ætla að setja saman tölvu með i9-13900K og RTX 4090. Ég hélt að ég væri búinn að velja alla íhluti og að allt væri á góðu róli þar til að ég áttaði mig á að setja saman kælingu og kassa er töluvert meira vesen en ég bjóst við.

Mér líst best á Liquid Freezer línuna frá Arctic og hafði ætlað mér að taka 360mm stærðina en tók þá eftir að 420mm stærðin er aðeins 5þús kr dýrari sem mér finnst vel þess virði ef það getur skofið af 3°C.
Þá fyrst fattaði ég hvað það eru fáir kassar sem koma 420mm radiator í toppinn. Meira að segja 360mm er of stór fyrir flesta kassa - sérstaklega þar sem ég hef hug á að kaupa G.Skill Trident vinnsluminni sem er 44mm hátt. Ég er meira hikandi við að taka stærri gerðina ef það kostar 30þús kr aukalega í stærri kassa.

Ég skoðaði Completed Builds á pcpartpicker og af þeim sem nota 420mm sýnist mér enginn hafa notað kassa sem verslanir hérlendis eru með til sölu.

Annars leist mér nokkuð vel á þennan frá Kísildal:
https://kisildalur.is/category/14/products/2661
Nema að ég er ekki viss um að ég komi fyrir nógu mörgum intake viftum til að halda positive pressure. Finn heldur ekki mikið af umsögnum um hann á netinu.

Ég hef aldrei sett saman tölvu í þessum gæðaflokki áður og hef notað Noctua NH-D15 í tæpan áratug. Ef einhver hefur reynslu af þessu og gæti gefið mér góð ráð væri það afar vel þegið. Ég er þegar kominn með Thermalright Contact Frame sem ég vona að fari langleiðina með að halda hitastiginu í skefjum.

Ég ætla að fikta mig eitthvað áfram með yfirklukkun en það er ekkert sem ég mun alveg missa mig í.

Ætti ég að panta risa kassa að utan og setja 420mm í push+pull config í toppinn?
Eða eru þetta of miklar áhyggjur og ég gæti allt eins keypt ódýran kassa og skellt 360mm að framan og kallað það gott?


Myndi ekki setja vatnskassa að framan ef þú vilt ná besta árangri í kælingu,
vatnskassinn er til að koma hítanum frá kassanum (er það ekki ) svo þú vilt væntanlega ekki blása heita loftið sem kemur af vatnskassanum beint á íhlutina þína.
mæli með að setja vatnskassan á toppin og láta loftið blása beint út og setja bara viftur að framan sem blása loft inn,
og til að kæla örran þá bara eins og menn eru búnir að leggja til delidda,direct die mount eru að skíla besta árangri.


Asrock X570 Taichi - Ryzen 7-5800X3d @ 4.5 Ghz -
G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3800MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 1200W - GTX3080
Samsung 980pro 2Tb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb -- Vökva Kæling C.A.S.E.L.A.B.S


the hooker
Græningi
Póstar: 36
Skráði sig: Fim 28. Maí 2015 18:35
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf the hooker » Þri 16. Maí 2023 00:06

Ég byggði eina með sömu pörtum fyrir stuttu og gerði myndband.

https://www.youtube.com/watch?v=vBq6N6eRDes

Allar helstu upplýsingar eru í description, þetta vonandi gefur þér einhverjar hugmyndir.


| GPU Gainward RTX 4090 24GB - CPU i9-13900K - MBO Gigabyte Z790 Gaming X AX - RAM Aorus 2x16GB DDR5 @6000MHz - HDD 1TB PCIe Gen4 x4 NVMe SSD M.2 AORUS 7000s - 2TB PCIe Gen4 x4 NVMe SSD M.2 AORUS 7000s - AIO ARCTIC Liquid Freezer II 360 - CASE Lian-Li O11 Dynamic XL - PSU Gigabyte Aorus AP1200PM Platinum 1200W |


littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2401
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 153
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf littli-Jake » Þri 16. Maí 2023 13:27

the hooker skrifaði:Ég byggði eina með sömu pörtum fyrir stuttu og gerði myndband.

https://www.youtube.com/watch?v=vBq6N6eRDes

Allar helstu upplýsingar eru í description, þetta vonandi gefur þér einhverjar hugmyndir.


Var að horfa á þetta. Geggjað allt saman.

Ég var sérstaklega ánægður með hvíta power kapalinn :sleezyjoe


i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180


Höfundur
gunnihall
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Fös 14. Apr 2023 17:40
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að velja kælingu og kassa fyrir 13900K

Pósturaf gunnihall » Þri 30. Maí 2023 18:45

Þakka góð svör.

Til þess að útskýra aðeins betur hvað var að vefjast svona fyrir mér:

Þegar það kom að því að velja tölvukassa átti ég erfitt með að sjá fyrir mér hvað ég væri að fá fyrir peninginn. Með aðra íhluti er lítið mál að finna gröf sem sýna nokkuð vel hversu mikið betri frammistöðu þú færð fyrir aukalegan kostnað. Ég gat ekki fundið neitt slíkt með tölvukassa þegar kom að hitastigi - næsta sem komst var hjá Gamers Nexus. Mér fannst þeirra standardized test gefa til kynna að minni kassar væru betri fyrir skjákortin en er það ekki bara af því að það eru bara 3 viftur í testinu á meðan stóru kassarnir koma fyrir 9 eða fleiri viftum?

Einnig las ég marg oft að það væri sniðugast að setja AIO vatnskassa í toppinn en ég átti erfitt með að finna tölur sem sýna muninn á hitastigum. Að vísu fann ég þessa grein á þýsku https://hardware-helden.de/aio-wasserku ... latzieren/ sem bendir til þess að hafa vatnskassann að framan gefi bestu niðurstöðurnar.

Ég hafði samband við Tölvutækni sem sögðu mér að það hefði verið erfitt undanfarið að fá Liquid Freezer línuna frá birgjanum þeirra. Ég var þá búinn að vera að velta þessu fyrir mér í 6 vikur og orðinn pínu óþolinmóður þannig ég ákvað að skella mér á Liquid Freezer 360mm sem var til á lager annars staðar.
Þá hafði ég minni áhyggjur af því að þurfa risa tölvukassa og keypti því Aerocool Cipher í linknum að ofan. Það er nokkuð ljóst að það voru mistök. Liquid Freezer vatnskassinn er svo stór að ég kem honum ekki fyrir í toppinn út af P8 köplunum fyrir örgjörvann. Ég setti vatnskassann því að framan en þar komast vifturnar aðeins fyrir í push config og ekki í boði að búa til samloku.

Þrátt fyrir það sýnist mér hitastigin vera nokkuð góð:
https://www.3dmark.com/3dm/94960387
newpctimespytemps.jpg
newpctimespytemps.jpg (172.01 KiB) Skoðað 3515 sinnum

Ég veit ekki hvort ég sé heppinn eða hreinlega að misskilja eitthvað en þetta lítur mun betur út en ég bjóst við out of the box. Það eina sem ég hef breytt er að enabla XMP.

Setupið eins og stendur:
Arctic Liquid Freezer II 360mm að framan með push config
Thermalright Contact Frame + Thermal Grizzly Kryonaut
4x Be Quiet Silent Wings Pro 4 120mm (tók 120mm frekar en 140mm til þess að geta prófað fleiri en eitt setup í þessum kassa)
- Exhaust: 1x að aftan og 2x í toppnum
- Intake: 1x í botninum ofan á aflgjafa hlífinni
Allar hliðar á kassanum lokaðar

Ég er ansi hræddur um að ég sé töluvert langt frá því að vera með positive pressure í kassanum og er að hugsa um að skipta Arctic viftunum fyrir Be Quiet að framan, en ég held að ég hafi ekki áhyggjur af því í bili.