Festa reykskynjara án þess að bora?
-
Höfundur - Tölvutryllir
- Póstar: 638
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 68
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Festa reykskynjara án þess að bora?
Hvernig er best að festa reykskynjara upp í loftið án þess að þurfa að bora?
-
- Vaktari
- Póstar: 2011
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Reputation: 276
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
falcon1 skrifaði:Hvernig er best að festa reykskynjara upp í loftið án þess að þurfa að bora?
Gott Doubble Tape og passa sig að þrífa flötinn vel áður en að límt er
| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
Ef botninn á þeim er flatur og með góðan límflöt, þá er hægt að reyna teppalím eða speglalím. Annars er límkítti möguleiki.
Ef líming nær að haldast, þá eru ágætis líkur að hún taki málningu með sér þegar á að taka þetta niður. Gæti mögulega verið minni viðgerð og minna mál að bora.
Ef líming nær að haldast, þá eru ágætis líkur að hún taki málningu með sér þegar á að taka þetta niður. Gæti mögulega verið minni viðgerð og minna mál að bora.
NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
Ég nota bara gamla góða double teipið og smelli þeim upp. Hefur ekki klikkað hingað til.
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
Ég hef notað límbyssu til að hengja upp allskonar hluti sem ég nenni ekki að bora fyrir, bara einusinni tekið málningu af þegar hluturinn var fjarlægður. Miklu betri festing þar sem flöturinn er ekki alveg sléttur
Ryzen 9 5900x // X470 Aorus Gaming // RTX4080 Super // 48 GB 3200MHz // 32" G5 165hz
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
Slökkviliðið hefur sagt að fólk eigi að festa reykskynjara vel, og ekki nota eitthvað kítti, límband eða álíka.
Keypti nýlega reykskynjara, og í leiðbeiningunum kom þetta einnig fram.
Það hlýtur að vera ástæða fyrir því.
Keypti nýlega reykskynjara, og í leiðbeiningunum kom þetta einnig fram.
Það hlýtur að vera ástæða fyrir því.
Síðast breytt af appel á Sun 06. Nóv 2022 22:36, breytt samtals 1 sinni.
*-*
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
appel skrifaði:Slökkviliðið hefur sagt að fólk eigi að festa reykskynjara vel, og ekki nota eitthvað kítti, límband eða álíka.
Keypti nýlega reykskynjara, og í leiðbeiningunum kom þetta einnig fram.
Það hlýtur að vera ástæða fyrir því.
Ástæðan er sú að ef hann dettur niður þá er ekkert gagn af honum. Það er nógu djöfulli erfitt að ná mínum niður þegar ég þarf að skipta um batterí þannig ég hef ekki áhyggjur af því.
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
Festi mína bara með 4mm múrtöppum. Ekkert gagn af fölsku öryggi.
-
Höfundur - Tölvutryllir
- Póstar: 638
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 68
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
jonsig skrifaði:Festi mína bara með 4mm múrtöppum. Ekkert gagn af fölsku öryggi.
Er hitt ekki öruggt?
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
falcon1 skrifaði:jonsig skrifaði:Festi mína bara með 4mm múrtöppum. Ekkert gagn af fölsku öryggi.
Er hitt ekki öruggt?
Límið er gjarnt að gefa sig, sérstaklega þegar hitnar aðeins, eins og í blábyrjun tiltekinna gerða af bruna.
NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
Ghost skrifaði:appel skrifaði:Slökkviliðið hefur sagt að fólk eigi að festa reykskynjara vel, og ekki nota eitthvað kítti, límband eða álíka.
Keypti nýlega reykskynjara, og í leiðbeiningunum kom þetta einnig fram.
Það hlýtur að vera ástæða fyrir því.
Ástæðan er sú að ef hann dettur niður þá er ekkert gagn af honum. Það er nógu djöfulli erfitt að ná mínum niður þegar ég þarf að skipta um batterí þannig ég hef ekki áhyggjur af því.
Þú getur keypt reykskynjara sem endast í 10 ár án þess að skipta um batterí. Hægt að fá þannig víða.
*-*
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 382
- Skráði sig: Mið 28. Maí 2014 13:57
- Reputation: 54
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
appel skrifaði:Ghost skrifaði:appel skrifaði:Slökkviliðið hefur sagt að fólk eigi að festa reykskynjara vel, og ekki nota eitthvað kítti, límband eða álíka.
Keypti nýlega reykskynjara, og í leiðbeiningunum kom þetta einnig fram.
Það hlýtur að vera ástæða fyrir því.
Ástæðan er sú að ef hann dettur niður þá er ekkert gagn af honum. Það er nógu djöfulli erfitt að ná mínum niður þegar ég þarf að skipta um batterí þannig ég hef ekki áhyggjur af því.
Þú getur keypt reykskynjara sem endast í 10 ár án þess að skipta um batterí. Hægt að fá þannig víða.
Þeir endast meira að segja lengur. Þetta er bara "safe" uppgefinn tími endingar.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 312
- Skráði sig: Lau 02. Des 2006 17:26
- Reputation: 9
- Staðsetning: RVK
- Staða: Ótengdur
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
Til hvers að skemma málninguna með lími? Ég nota UHU Patafix Deco, extra sterkt "kennaratyggjó". Algjör snilld fyrir svo margt.
Fæst í sumum bókabúðum, t.d. í Mjódd
Fæst í sumum bókabúðum, t.d. í Mjódd
Ryzen 7 5700X - MSI RTX 2080 Gaming X Trio
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 365
- Skráði sig: Þri 20. Jan 2004 20:13
- Reputation: 10
- Staðsetning: Rvk
- Staða: Ótengdur
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
Svo er bara hægt að bora hann upp. Er góð ástæða fyrir því að þú vilt ekki gera það?
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
falcon1 skrifaði:jonsig skrifaði:Festi mína bara með 4mm múrtöppum. Ekkert gagn af fölsku öryggi.
Er hitt ekki öruggt?
Maður er ekkert að fíflast með öryggistæki. Það er alveg eins hægt að prenta bara út mynd af reykskynjara og líma í loftið.
Fólk sem er að ráðleggja þér að nota UHU lím eða eitthvað álika hafa ekki þekkinguna til að ráðleggja þér um þetta.
það er algerlega undir þér komið hvort þú látir skynsemina ráða og hugsa útí hvort nokkur 4mm göt séu ekki þess virði þegar þú ert að verja þig og þína.
-
- Nörd
- Póstar: 138
- Skráði sig: Lau 19. Des 2020 11:05
- Reputation: 45
- Staða: Ótengdur
Re: Festa reykskynjara án þess að bora?
Gætir líka haft reykskynjarann á gólfinu.
Þá kemurðu í veg fyrir að hann detti í gólfið ef að límið gefur sig vegna hita!
Þá kemurðu í veg fyrir að hann detti í gólfið ef að límið gefur sig vegna hita!