Ég er að setja saman nýja tölvu og ætla að kaupa allt í hana í næstu viku. Aðalhlutverk tölvunnar verður mynd/vídeóvinnsla og svo tónsmíðar. En ég fór aðeins að hugsa að það gæti verið gaman ef maður gæti líka gripið í einhverja leiki af og til. Eftirfarandi er líklegasta niðurstaðann í vali á íhlutum og spurning mín er hvort að tölvan væri nothæf líka í einhverja leikjaspilun. Hérna í gamla daga var maður í Counter-Strike og slíkum leikjum.
Móðurborð: ASRock Z690 Extreme ATX Intel LGA1700
Örgjörvi: Intel i7-12700K
Minni: 2666mhz 64gb
Aflgjafi: Be quiet! Dark Power 12 750W
Örgjörvakæling: Be quiet! Dark Rock Pro 4
Skjákort: Palit GeForce RTX 3060 Dual 12GB
1tb SSD stýrikerfi/forrit
1tb SSD vinnudrif
2tb SSD hljóðsöfn
18tb HDD gagnadrif
Gæti maður spilað marga nútímaleiki með þessum grip?
Mynd- og hljóðvinnslutölva, nothæf fyrir leiki?
-
- Vaktari
- Póstar: 2730
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Reputation: 159
- Staða: Ótengdur
-
- has spoken...
- Póstar: 162
- Skráði sig: Fös 30. Ágú 2013 20:23
- Reputation: 17
- Staða: Ótengdur
Re: Mynd- og hljóðvinnslutölva, nothæf fyrir leiki?
Alveg leikandi, rúsínan í pylsuendanum væri að maxa ram speed sem i7inn styður. Taka 3200MHz ram?
No bullshit hljóðkall
-
Höfundur - Tölvutryllir
- Póstar: 644
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 68
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Mynd- og hljóðvinnslutölva, nothæf fyrir leiki?
SolviKarlsson skrifaði:Alveg leikandi, rúsínan í pylsuendanum væri að maxa ram speed sem i7inn styður. Taka 3200MHz ram?
Ég á vinnsluminnið til, munar miklu á 2666mhz og 3200mhz?