Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 323
- Skráði sig: Mið 01. Jún 2011 13:22
- Reputation: 21
- Staða: Ótengdur
Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Góðann daginn, ég hef búið í eldri blokk núna síðan í júní 2021 og síðan ég flutti inn hefur fólk á neðri hæð verið að taka íbúðina sína alveg í gegn (brjóta niður veggi o.s.f) og er ég alveg að verða brjálaður. Svo ofan á þetta eignast ég barn núna í lok september og hefur oft verið lítill svefnfriður fyrir hana út af þeim. Ég er búinn að tala við þau og biðja þau um að reyna að safna þessum þungu barsmíðum saman þannig þetta sé ekki daglegt brauð. Nú eru þau að taka baðherbergið í gegn og sömu barsmíðar og venjulega fylgja, plús það að þau skrúfuðu fyrir heita vatnið í blokkinni í yfir klukkutíma án þess að láta neinn vita.
Þá spyr ég er eitthvað hægt að gera í svona málum, húsfélag sínir lítin áhuga.
Þá spyr ég er eitthvað hægt að gera í svona málum, húsfélag sínir lítin áhuga.
TV: LG G4 | Soundbar: LG SNY7
Ryzen 5 2600X | GTX 1070 | Corsair Vengeance 16GB
Ryzen 5 2600X | GTX 1070 | Corsair Vengeance 16GB
-
- /dev/null
- Póstar: 1457
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Reputation: 163
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Mæta með byssu?
/s
/s
Síðast breytt af Lexxinn á Þri 22. Mar 2022 14:56, breytt samtals 1 sinni.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 213
- Skráði sig: Sun 08. Nóv 2015 15:00
- Reputation: 29
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Ég er einmitt í þessu nema ég er gajinn með læti
Ég er að taka baðherbergið mitt í gegn, mikið með stórar vélar í gangi sem fylgja mikil læti.
Ég Hringi alltaf í fólkið við hliðina á mér og læt vita, Hringi svo í fólkið fyrir neðan mig í kjallaraíbúð og spyr hvort að litla stúlkan þeirra sé sofandi.
Þau eru mjög ánægt með hvernig þetta hefur verið. En eru orðin þreytt sem ég skil.
Hætti hávaða klukkan 6 og vinn ekki á sunnudögum.

Cosmos C700M--AMD 5900X--Asus Strix x570-E--6800XT Red Devil limited-- Seasonic Prime Platinum 1300W-- Samsung 840 SSD 126gb- Samsung NVME 980 pro 512gb-- Teamgroup NVME 1TB--G Skill 3200Mhz CL 14 2x8 GB- EKWB 360 AIO
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Fá ráðgjöf frá Húseigendafélaginu (hagsmunafélag húseigenda)?
5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q
-
- Nörd
- Póstar: 138
- Skráði sig: Lau 19. Des 2020 11:05
- Reputation: 45
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Prentarakallinn skrifaði:Góðann daginn, ég hef búið í eldri blokk núna síðan í júní 2021 og síðan ég flutti inn hefur fólk á neðri hæð verið að taka íbúðina sína alveg í gegn (brjóta niður veggi o.s.f) og er ég alveg að verða brjálaður. Svo ofan á þetta eignast ég barn núna í lok september og hefur oft verið lítill svefnfriður fyrir hana út af þeim. Ég er búinn að tala við þau og biðja þau um að reyna að safna þessum þungu barsmíðum saman þannig þetta sé ekki daglegt brauð. Nú eru þau að taka baðherbergið í gegn og sömu barsmíðar og venjulega fylgja, plús það að þau skrúfuðu fyrir heita vatnið í blokkinni í yfir klukkutíma án þess að láta neinn vita.
Þá spyr ég er eitthvað hægt að gera í svona málum, húsfélag sínir lítin áhuga.
Ég held því miður fyrir þig (og alla í sömu stöðu) þá sé svarið nei. Þau mega líklegast byrja 8 á morgnana og vera að til 23 á kvöldin. Gæti verið að rugla með tímann hér en held að þetta séu lögin.
Eina leiðin er bara að hefna sín og hringja stanslaust í þau á nóttunni.
https://www.youtube.com/watch?v=J-inCB3POqs
Get ekki ímyndað mér að það geti endað illa.
Annars ef ég ætti að setja pening á þetta þá eru núverandi eigendur væntanlega að gláfægja íbúðina til þess að geta selt hana á uppsprengdu verði vegna húsnæðismarkaðarins. Vonandi fyrir þig verða þau snögg að þessu og næstu eigendur verða hljóðlátustu íbúar blokkarinnar.
Getur vonandi huggað þig við það að þú telur þetta ástand í mánuðum en ekki árum eins og sumir hafa lent í:
https://www.facebook.com/pg/yfirgangur/posts/
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 323
- Skráði sig: Mið 01. Jún 2011 13:22
- Reputation: 21
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Haraldur25 skrifaði:Ég er einmitt í þessu nema ég er gajinn með læti
Ég er að taka baðherbergið mitt í gegn, mikið með stórar vélar í gangi sem fylgja mikil læti.
Ég Hringi alltaf í fólkið við hliðina á mér og læt vita, Hringi svo í fólkið fyrir neðan mig í kjallaraíbúð og spyr hvort að litla stúlkan þeirra sé sofandi.
Þau eru mjög ánægt með hvernig þetta hefur verið. En eru orðin þreytt sem ég skil.
Hætti hávaða klukkan 6 og vinn ekki á sunnudögum.
Væri akkúrat algjör snilld ef þau myndu ræða við okkur áður en framkvæmdir hefjast til aðs spurja hvort dóttir okkar sé sofandi, er búinn að segja þeim að ég sé með lítið barn. Þau allavega halda sig innan laga núna eftir að ég missti mig á þau einn laugardaginn klukkan 22:30 og lætin vökti stelpuna eftir langt kvöld. Lögin segja semsagt að allur hávaði útfrá framkvæmdum í fjölbýli á að vera milli 7:00 og 21:00 á virkum dögum og 10:00 og 19:00 um helgar
TV: LG G4 | Soundbar: LG SNY7
Ryzen 5 2600X | GTX 1070 | Corsair Vengeance 16GB
Ryzen 5 2600X | GTX 1070 | Corsair Vengeance 16GB
-
- FanBoy
- Póstar: 761
- Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
- Reputation: 179
- Staðsetning: Terran Empire
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Það er ekki eðlilegt að þetta sé daglegt brauð. Þú getur haft áhrif á það.
Megin reglan er sú að fólki er leyfilegt vera með hávaða, reglan sem segir hvenær dags það má er yfirleitt sett af sjálfu húsfélaginu.
Las þessar reglur fyrir nokkrum árum og þar er tiltekið að þurfa taka tillit til allra aðila, þú til þeirra og þau til þín.
Svo er líka tilgreint í þessum lögum um að síendurtekin truflun er ekki í lagi.
Besta sem þú getur er að lesa þessi lög og fá svo aðstoð um hvað þu getur gert

Úrræði húsfélags við vanefndir og brot eiganda.
55. gr.
Gerist eigandi, annar íbúi húss eða afnotahafi sekur um gróf eða ítrekuð brot á skyldum sínum gagnvart húsfélaginu eða eigendum, einum eða fleirum, þá getur húsfélagið með ákvörðun skv. 6. tölul. B-liðar 41. gr. lagt bann við búsetu og dvöl hins brotlega í húsinu, gert honum að flytja og krafist þess að hann selji eignarhluta sinn.
Áður en húsfélag grípur til aðgerða skv. 1. mgr. skal það a.m.k. einu sinni skora á hinn brotlega að taka upp betri siði og vara hann við afleiðingum þess ef hann lætur sér ekki segjast. Er réttmæti frekari aðgerða háð því að slík aðvörun, sem vera skal skrifleg og send með sannanlegum hætti, hafi verið gefin og send og að hún hafi ekki borið árangur.
Láti hinn brotlegi ekki skipast skv. 2. mgr. er húsfélagi rétt að banna honum búsetu og dvöl í húsinu og skipa honum að flytja á brott með fyrirvara, sem skal að jafnaði ekki vera skemmri en einn mánuður. Þó má fyrirvari vera skemmri ef eðli brota, viðbrögð við aðvörun eða aðrar knýjandi ástæður valda því að aðgerðir þola ekki bið.
Með sama hætti er húsfélagi rétt að krefjast þess að hinn brotlegi selji eignarhluta sinn svo fljótt sem auðið er. Skal veita honum sanngjarnan frest í því skyni sem skal þó að jafnaði ekki vera lengri en þrír mánuðir.
Ef hinn brotlegi sinnir ekki kröfum húsfélagsins skv. 3. og 4. mgr. getur það framfylgt þeim með lögsókn, eftir atvikum lögbanni og/eða útburði án undangengins dóms. Á grundvelli dóms um skyldu hins brotlega til sölu eignar getur húsfélagið krafist þess að hún verði seld nauðungarsölu samkvæmt lögum nr. 90/1991, sbr. 3. mgr. 8. gr. þeirra laga.
Ef brot og ónæði bitnar aðallega eða eingöngu á einstökum eða fáum eigendum, en húsfélagið vill eigi beita úrræðum þeim sem í fyrri málsgreinum þessarar greinar felast, þá geta þeir sem misgert er við (einn eða fleiri) án atbeina húsfélagsins hafist handa gagnvart hinum brotlega og beitt og framfylgt ofangreindum úrræðum.
https://www.althingi.is/lagas/nuna/1994026.html
-
- Nörd
- Póstar: 138
- Skráði sig: Lau 19. Des 2020 11:05
- Reputation: 45
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
mikkimás skrifaði:-Veggur af texta -
Hvað nákvæmlega þarna ertu að vísa í ?
-
- Kóngur
- Póstar: 4257
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Reputation: 192
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Það er ekkert sem er hægt að gera er varðar hávaða ef hann er ekki fyrir kl 8 á morgnanna eða á kvöldin. (eftir kl 10 er oft reglan)
Ókostur þess að búa í fjölbýli.
Getur hugsað þetta sem innneign fyrir alvöru party í framtíðinni
Hinsvegar er nauðsynlegt að tilkynna með smávegis fyrirvara ef skrúfað er fyrir vatn, en ef það gerist eingöngu einu sinni í klukkutíma tel ég það ekki stórmál, gæti verið tilfallandi vegna skemmdar eða leka sem þurfti að lagfæra umsvifalaust.
Þegar ég var að starfa sem rafvirki reyndu flestir aðilar að miða við að byrja ekki með mesta hávaðan fyrr en eftir kl 10 á morgnanna og klára fyrir kl 8 á kvöldin ef verkið krafðist lengri daga. Auðvitað var reynt að kúpla hávaða niður ef það var einstakt tilfelli, t.d. í Covid var íbúi á efri hæð að fara í atvinnuviðtal einn daginn og þá drápum við á öllu broti og bramli akkúrat þá. En ef það er á hverjum degi sem beðið er um þögn á ákveðnum tímum þá er ekki hægt að fylgja því eftir í framkvæmdum. Oft koma margir aðilar að og komast ekki á hinum og þessum tímum og þarf að púsla það allt saman.
Ég hef bæði staðið í því að vinna vaktavinnu og íbúðin fyrir neðan mig var í framkvæmdum heilt sumar og svaf ég aldrei eftir næturvaktir vegna hávaða, en ekki get ég kvartað enda ekkert sem bannaði framkvæmdir.
Svo hef ég líka verið í uppgerð á minni eigin íbúð þar sem nágranni ætlaði að banna mér að parketleggja á laugardögum kl 15 því þá er hann vanur að leggja sig.

- Kerfisstjóri
- Póstar: 1229
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 414
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Ekkert hægt að gera, þetta er alveg sér íslenskt fyrirbrigði að svona rugl líðist, laugardagsvinna er einnig bann annars staðar á Norðulöndum, skil ekki að það þyki ennþá eðlilegt að skemma laugardagana fyrir fólki... mán-föst 8-16 og ekki mínútunni lengur, menn verða einfaldega að fara að læra að skipuleggja sig en á meðan reglurnar eru eins og þær eru, miðast við sveitaþorp með 50 íbúa, þá er ekkert hægt að gera.
--
|| Core Ultra 9 - Z890 - 96GB DDR6600 - 4090 - ||
|| Core Ultra 9 - Z890 - 96GB DDR6600 - 4090 - ||
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Jamm, doldið vonlaust að eiga við þetta. Þetta er happdrætti, nágrannar. Þú þarft að fara í styrjaldarrekstur til að ráða við þetta, basically hamast á þeim einsog óþokki, mæta með hnefana á dyrnar þeirra í hvert skipti sem þau bora. Ekki skemmtileg þannig sambúð í sama húsi.
Mæli með að gera ekkert, ef þú vilt búa þarna áfram. Þú býrð bara til óvini með aðgerðum. Þessum framkvæmdum mun linna, enginn nennir að standa endalaust í framkvæmdum. En ágætt að setja þeim skýran tímaramma og vísa til þess að þú sért með ungabarn.
Að vísa í reglur og lög er bara bull í þessum málum, þú þarft að stunda málarekstur í mörg mörg ár til að ná einhverju framgengt á þessu landi.

Síðast breytt af appel á Mið 23. Mar 2022 00:51, breytt samtals 1 sinni.
*-*
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Kannast við þetta, en hef sloppið ágætlega. Lenti í því í vetur að vakna þegar var -9c frost úti og skrúfað var fyrir ofnana kvöldið áður án þess að láta nokkurn vita. Helvíti vaknaði ég hress þá og lét fólk heyra það.
Versti nágranni sem ég hef átt var samt miðaldra djammari og sennilega alkóhólisti. Alltaf eitthvað dauðadrukkið fólk að koma og fara um miðja nótt á virkum dögum, blasta tónlist og læti kl 5 á virkum morgni. Einu sinni var einn gæji svo fullur að hann ætlaði inn í mína íbúð, þegar ég hrópaði á hann úr eldhúsinu datt hann afturábak niður stigann og tók hurðina mína með sér.
Því miður er þetta vandamál í fjölhýsi og þú getur reynt að stuðla að opnum boðleiðum og samskiptum, að fólk sé duglegt að setja á facebook grúppur og þess háttar og kvarta þegar það er ekki gert. Ég set á grúppuna sjálfur og banka hjá nærstu nágrönnum áður en ég er með læti, enda lítil börn á ganginum.

LG 38GN95B-B 3840x1600p160Hz - Logitech GMX508 - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
codemasterbleep skrifaði:mikkimás skrifaði:-Veggur af texta -
Hvað nákvæmlega þarna ertu að vísa í ?
Lög um fjöleignarhús. Er ekki lögfróður maður en er efins um að þessi lagatexti eigi við um tímabundnar framkvæmdir. Hins vegar eru lögin skýr um að íbúar geti ekki hagað sér eins og þeir vilja gagnvart nágrönnum sínum. Það er hægt að neyða fólk til að selja og hypja sér burt í grófum tilfellum, og til þess þarf ekki einu sinni samþykkt húsfélagsins.
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1620
- Skráði sig: Lau 19. Apr 2003 22:56
- Reputation: 45
- Staðsetning: REYKJAVIK
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Ég er leigja hjá hátún 10a þar eru stækka íbúð á 2 hæðum í blokk þannig mar verða að lifa með þetta gera það í 12 ár
-
- /dev/null
- Póstar: 1341
- Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
- Reputation: 101
- Staðsetning: 109 Rvk
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Nágranna næði
Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander
Búnaður: Lazyrolling Armored Jacket, Alpha Motorsport-pants, TSG Pass Pro, Fox Proframe
187 KP Wrist Guards, Leatt Dual-Axis, Kinetic DL EUC Shoes, P65 BOBLBEE Backpack

- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6799
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 940
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Það er hægt að setja reglur um þetta á húsfundi.
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Templar skrifaði:Ekkert hægt að gera, þetta er alveg sér íslenskt fyrirbrigði að svona rugl líðist, laugardagsvinna er einnig bann annars staðar á Norðulöndum, skil ekki að það þyki ennþá eðlilegt að skemma laugardagana fyrir fólki... mán-föst 8-16 og ekki mínútunni lengur, menn verða einfaldega að fara að læra að skipuleggja sig en á meðan reglurnar eru eins og þær eru, miðast við sveitaþorp með 50 íbúa, þá er ekkert hægt að gera.
Langflest fólk er í vinnu milli 8 og 16 á virkum dögum. Hvenær ímyndar þú þér að það fólk eigi að vinna í húsnæði sínu?
AMD Ryzen 5 5600X | 2x16GB DDR4 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Ég þoli tímabundnar framkvæmdir en ekki endalaust tuð.
Er með nágranna sem tekur og postar myndum af því hvernig fólk setur frauðplast í plastgáminn og pappa utanaf húsgögnum í þann bláa.
Er svo með ofnæmi (án vottorðs) fyrir öllum dýrum í húsinu.
Blockaði hana um tíma bara svo húsfélagssíðan væri lesanleg.
Er með nágranna sem tekur og postar myndum af því hvernig fólk setur frauðplast í plastgáminn og pappa utanaf húsgögnum í þann bláa.
Er svo með ofnæmi (án vottorðs) fyrir öllum dýrum í húsinu.
Blockaði hana um tíma bara svo húsfélagssíðan væri lesanleg.
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
KristinnK skrifaði:Templar skrifaði:Ekkert hægt að gera, þetta er alveg sér íslenskt fyrirbrigði að svona rugl líðist, laugardagsvinna er einnig bann annars staðar á Norðulöndum, skil ekki að það þyki ennþá eðlilegt að skemma laugardagana fyrir fólki... mán-föst 8-16 og ekki mínútunni lengur, menn verða einfaldega að fara að læra að skipuleggja sig en á meðan reglurnar eru eins og þær eru, miðast við sveitaþorp með 50 íbúa, þá er ekkert hægt að gera.
Langflest fólk er í vinnu milli 8 og 16 á virkum dögum. Hvenær ímyndar þú þér að það fólk eigi að vinna í húsnæði sínu?
Nota iðnaðarmenn... eða orlofið sitt.
-
- Kóngur
- Póstar: 4257
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Reputation: 192
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
rapport skrifaði:KristinnK skrifaði:Templar skrifaði:Ekkert hægt að gera, þetta er alveg sér íslenskt fyrirbrigði að svona rugl líðist, laugardagsvinna er einnig bann annars staðar á Norðulöndum, skil ekki að það þyki ennþá eðlilegt að skemma laugardagana fyrir fólki... mán-föst 8-16 og ekki mínútunni lengur, menn verða einfaldega að fara að læra að skipuleggja sig en á meðan reglurnar eru eins og þær eru, miðast við sveitaþorp með 50 íbúa, þá er ekkert hægt að gera.
Langflest fólk er í vinnu milli 8 og 16 á virkum dögum. Hvenær ímyndar þú þér að það fólk eigi að vinna í húsnæði sínu?
Nota iðnaðarmenn... eða orlofið sitt.
Það er ekki í það hlaupir að allir geta nýtt sitt orlof í framkvæmdir, eða pening í að greiða iðnaðarmönnum.
Þetta er einfaldlega ókostur þess að búa í fjölbýli að stundum eru framkvæmdir.
Ég t.d. bý við nágranna sem virðist sofa með hamar í lófanum á nóttunni og missir í gólfið 4-5 sinnum
Hef enn ekki getað fundið út hver sé með þann hávaða eða getað kvartað almennilega þar sem fáir aðrir heyra þetta.. Á meðan dreg ég bara andann og vona að aðilinn sér í sér sóma að banka í gólf og veggi ekki á nóttunni.
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6799
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 940
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
- Viðhengi
-
- 990E8C9F-FA91-4102-A79B-AEA32029EEEE.jpeg (98.72 KiB) Skoðað 4163 sinnum
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
-
- Geek
- Póstar: 837
- Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
- Reputation: 146
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: Endalausar framkvæmdir í fjölbýlishúsi
Fólk sem er meira en 2 mánuði að snýta einni íbúð gjörsamlega frá a-ö, ætti ekki að koma nálægt framkvæmdum.
Verðlöggur alltaf velkomnar.