Enn og aftur: Hive
Korter skrifaði:Væntanlega hafa flestir Hive notendur fengið póst í dag:Stækkun á útlandagátt hafin.
Um miðbik næstu viku mun Hive ljúka fyrsta áfanga á stækkun útlandagáttar Þessi stækkun eykur gagnaflutningsgetu Hive út úr landi um 50%- 100%. Í lok janúar mun Hive taka í notkun sína eigin útlandagátt, óháða öðrum fjarskiptafyrirtækjum, sem mun gera okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu.
Eftir að við fórum í loftið hefur aðsókn í tengingar frá Hive farið fram úr björtustu vonum. Íslendingar kunna greinilega vel að meta það frelsi að geta halað niður gögnum frá útlöndum án þess að hafa áhyggjur af aukakostnaði.
Með bestu kveðju
Hive.
Voru þeir ekki að tala um sexföldun um daginn?
-
- spjallið.is
- Póstar: 405
- Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
- Reputation: 0
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Mér leikur smá forvitni á að vita það hjá ykkur sem verslið við Hive hvort þið hafið prófað þessa sjónvarpsútsendingu þeirra? Þeir eru víst að senda út poppTV (og kannski eitthvað meira?). Hvernig er þetta að koma út eiginlega - eru gæðin alveg ásættanleg og hvaða spilara þarf maður að nota; Real, Quicktime eða Media player?
Íslenskar gæsalappir eru „ og “ (99 og 66). Þær má framkalla með alt-0132 og alt-0147.
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1616
- Skráði sig: Lau 19. Apr 2003 22:56
- Reputation: 45
- Staðsetning: REYKJAVIK
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
(Ég er búin að vera með vesen með netið hjá hive.is). 'Eg þarf að slökkva á router af og til frá síðan ég fékk fyrir mánuð síðan. Svo er ég búinn að marg oft að hringja og kvarta á þessu og þeir, Segja sé simalínann sé biluð inna í símankassan í húsið en ég hringdi í Landsíman láta ath símalínu það er í topp standi svo hringdi sem stjórna yfir þessu eða ekki veit það ekki mamma svarið í síman og hann sagði ætlar að lækkar um 800 kb af af 20 mb gefa mér áfslátt verðinu á þessu hann fékk vita af þessu í fyrra dag 21/01 Ég vera með vesen á router en hef þeir rétt á að lækka hraða um 800 kb aðalega hvort sé að brjóta réttinn á þessu ?? PS þráðstjórar er welkomanir að laga þetta er eða læsa eða delete ps ég nenni ekki að leiðrétta !!!
-
- Fiktari
- Póstar: 77
- Skráði sig: Mán 26. Apr 2004 23:24
- Reputation: 0
- Staðsetning: Njarðvík, Reykjanesbær
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
gutti skrifaði:(Ég er búin að vera með vesen með netið hjá hive.is). 'Eg þarf að slökkva á router af og til frá síðan ég fékk fyrir mánuð síðan. Svo er ég búinn að marg oft að hringja og kvarta á þessu og þeir, Segja sé simalínann sé biluð inna í símankassan í húsið en ég hringdi í Landsíman láta ath símalínu það er í topp standi svo hringdi sem stjórna yfir þessu eða ekki veit það ekki mamma svarið í síman og hann sagði ætlar að lækkar um 800 kb af af 20 mb gefa mér áfslátt verðinu á þessu hann fékk vita af þessu í fyrra dag 21/01 Ég vera með vesen á router en hef þeir rétt á að lækka hraða um 800 kb aðalega hvort sé að brjóta réttinn á þessu ?? PS þráðstjórar er welkomanir að laga þetta er eða læsa eða delete ps ég nenni ekki að leiðrétta !!!
Bara að forvitnast... af hvaða þjóðerni ertu, og hvað ertu gamall?
-
- spjallið.is
- Póstar: 466
- Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Bróðir minn (22 ára, ég 17) vildi strax fá mig með sér í að tala við pabba um að fá tengingu hjá hive bara svona 1-2 vikum eftir að hive kom upp, ég harðneitaði því og sagði að það yrði pottþétt eitthvað vesen fyrstu mánuði og maður fengi ekkert áætlaðan hraða og svona og væri búinn að heyra ýmisslegt um þá á netinu og að menn væru ekki að fá áætlaðan hraða og utanlandsgáttin væri ekki það stór og þannig, ég þurfti að senda hann inn á nokkrar síður til að hann myndi trúa mér þar sem að hann var svo viss um að þetta væri bara vitleysa hjá mér.
Ennþá er hann feginn að ég hafi ekki verið sammála honum.
En kannski fær maður sér tengingu hive eftir svona 2-3 mán þegar allt verður komið í réttar skorður ?
Ennþá er hann feginn að ég hafi ekki verið sammála honum.
En kannski fær maður sér tengingu hive eftir svona 2-3 mán þegar allt verður komið í réttar skorður ?
-
- Nörd
- Póstar: 108
- Skráði sig: Fim 07. Okt 2004 00:44
- Reputation: 0
- Staðsetning: Island
- Staða: Ótengdur
Já ég trú ekki öðru en þetta eigi eftir að smella saman hjá þeim en það veldur mér samt áhyggjum hvað þetta er alltaf að dragast hjá þeim.
Fyrst átti þetta að lagast 6 Jan ef mig minnir rétt svo í kringum 20 Jan þá að hluta, en núna er ég að heyra að það gerist ekkert fyrr en í fyrsta lagi um mánaðarmótinn jafnvel ekki fyrr en um miðjan Feb.
Miðað við þann drátt sem hefur verið á þessu veit ekki hvað skal halda, en ég hef samt enn trú á Hive og trúi því að þetta eigi eftir að komast í lag, en þessi endalausa seinkunn á stækkun utangátta er ekki að skapa þeim gott orð.

Alveg er nú endalaust fyndið að sjá þessa polla sem að kjósa að vera áfram hjá $ímnet eftir að hafa verið teknir grimmt í rassinn síðustu 4 ár, já og finnst það bara allt í lagi. Tala nú ekki um þegar þeir eru að rífa Hive í sig með einhverjum fúkyrðum þegar þeir gerðu ekkert minna en að byrja byltingu hér á .is
Er þetta ekki bara sama syndrome og fær maka ofbeldisfullra manna til að halda í þá þrátt fyrir ítrekað ofbeldið?... Það held ég.
Svo er líka spurning hvort þessir helstu (og líklega yngstu) verjendur Símnet séu ekki bara allir fastir á 12mánaða samning, og þessvegna finni sig nánast ósjálfrátt verjandi Símnet vegna þess að þeir sitja uppi með þá.
-Einn helvíti sáttur Hive notandi. (sem lætur ekki smá byrjunarörðuleika stoppa sig, enda man hversu *ónothæft* dynip ADSL hjá Símanum var á tímabili)

Ég tek undir síðasta komment.
Landssíminn hefur, og mun alltaf vera sama sora fyrirtækið sem reynir að okra á öllu sem það getur.
Ef það væri ekki fyrir Tal, Íslandssíma og Hive værum við ennþá að borga 20.000kr á mánuði fyrir GSM síma (ég var með einn svoleiðis áður en Tal kom til sögunnar) og hvað ætli ADSL tenging myndi kosta á mánuði í dag ef engin samkeppni við Landssíman væri í dag?
Mjög mikið.
Ég fékk mér einnig ADSL hjá Landssímanum þegar það var nýkomið.
Það var rándýrt, og mun verra en sú tenging sem ég er með í dag hjá Hive.

nu11 skrifaði:-Einn helvíti sáttur Hive notandi. (sem lætur ekki smá byrjunarörðuleika stoppa sig, enda man hversu *ónothæft* dynip ADSL hjá Símanum var á tímabili)
Ég fékk mér einnig ADSL hjá Landssímanum þegar það var nýkomið.
Það var rándýrt, og mun verra en sú tenging sem ég er með í dag hjá Hive.
ég er viðskiptavinur Hive - og ég er ekki sáttur. Engan veginn sáttur! En vitiði hvað? Ég gef þeim sjens og ætla að sjá hvernig þetta verður þegar stækkunin kemur í hús.
Nú voru þeir í gær að ljúka við 1.áfanga stækkunarinnar sem þeir reyndar lofuðu fyrir viku síðan. Ég fékk það samt ekki upp úr manninum hve mikil stækkunin var en ég skýt á 50-100% aukning frá því sem var.
Svo næstu mánaðarmót munu þeir (skv. heimildum þeirra) fá sína eigin utanlandstengingu óháð öllum öðrum og geta því farið að stjórna sjálfir forgang á utanlandstraffík og stækkunin á að vera margfalt stærri en sú sem þeir byrjuðu með (hjá Línu.net ef ég skildi þjónustufulltrúann rétt).
Ég hvet þá áfram! Go Hive!

5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q
-
- Gúrú
- Póstar: 572
- Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
- Reputation: 8
- Staðsetning: 113 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Í allri þessari umræðu held ég að fólk geri sér engan veginn grein fyrir því hvað ákvörðun Orkuveitunnar að byrja að ljósleiðaravæða hefur haft mikil áhrif síðustu ár á allan fjarskiptamarkaðinn. Hvar værum við ef það hefði ekki verið farið út í þetta. Jú ég get sagt ykkur það, við værum nákvæmlega þar sem landsíminn vill hafa okkur, í vasanum.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 960
- Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
- Reputation: 25
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
nu11 skrifaði:Alveg er nú endalaust fyndið að sjá þessa polla sem að kjósa að vera áfram hjá $ímnet eftir að hafa verið teknir grimmt í rassinn síðustu 4 ár, já og finnst það bara allt í lagi. Tala nú ekki um þegar þeir eru að rífa Hive í sig með einhverjum fúkyrðum þegar þeir gerðu ekkert minna en að byrja byltingu hér á .is
Er þetta ekki bara sama syndrome og fær maka ofbeldisfullra manna til að halda í þá þrátt fyrir ítrekað ofbeldið?... Það held ég.
Svo er líka spurning hvort þessir helstu (og líklega yngstu) verjendur Símnet séu ekki bara allir fastir á 12mánaða samning, og þessvegna finni sig nánast ósjálfrátt verjandi Símnet vegna þess að þeir sitja uppi með þá.
-Einn helvíti sáttur Hive notandi. (sem lætur ekki smá byrjunarörðuleika stoppa sig, enda man hversu *ónothæft* dynip ADSL hjá Símanum var á tímabili)
Persónulega hef ég íhugað að fara til hive og mun líklega gera það þegar þessi stækkun þeirra kemur í gegn, en það er bara útaf því sem þeir gerðu. þessar tengingar þeirra virðast vera rusl, innanlands sem utan.. færð ekki nema brot af lofuðum hraða. Þessir gaurar lofa upp í ermarnar á sér og standa svo ekki við það, þjónustufulltrúar þeirra virðast vita voða takmarkað um hvernig netið virkar. Og þeir svara aðeins þeim spurningum sem þeim hentar.
I have said it before and will say it again - BT anyone ?
-
- spjallið.is
- Póstar: 405
- Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
- Reputation: 0
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
arnarj skrifaði:Í allri þessari umræðu held ég að fólk geri sér engan veginn grein fyrir því hvað ákvörðun Orkuveitunnar að byrja að ljósleiðaravæða hefur haft mikil áhrif síðustu ár á allan fjarskiptamarkaðinn. Hvar værum við ef það hefði ekki verið farið út í þetta. Jú ég get sagt ykkur það, við værum nákvæmlega þar sem landsíminn vill hafa okkur, í vasanum.
Þú vilt kannski útskýra fyrir okkur afhverju koma Orkuveitunnar hefur skipt svona miklu máli? Ég efa svosem ekkert að þetta skref þeirra hafi valdið því að verð á gagnaflutningi innanlands hefur lækkað eitthvað (jafnvel umtalsvert?) en mér er eiginlega bara mikið til sama þar eð það var alltaf miklu frekar hátt verð á gagnaflutningi til/frá útlöndum sem fór fyrir brjóstið á mér. Ég veit ekki til þess að Orkuveitan hafi breytt nokkru til um það.
Annars er ég verulega ósáttur við hvernig Orkuveitan og R-listinn stóðu að þessu ljósleiðaraneti sínu. Í fyrsta lagi er þetta búinn að vera svakalegur fjáraustur á kostnað skattgreiðenda og í öðru lagi finnst mér að það hefði verið meira vit í því fyrir Orkuveituna að fara frekar út í ljósleiðaravæðinguna í samstarfi við aðila sem var fyrir á markaðnum og með einhverja þekkingu á málinu. Þar á ég auðvitað við Íslandssíma og/eða Tal. Það er nefnilega ekkert endilega sjálfgefið að það hafi verið heimskulegt fyrir Orkuveituna að fara út í ljósleiðaravæðingu - mér finnst bara að það hefði mátt standa miklu betur að þessu.
Mér dettur allavega ekki í hug að þakka Orkuveitunni fyrir lækkanir á gagnaflutningsverði ef ég þarf hvort eð er að borga þessa lækkun margfalt til baka í formi hærri skatta!!
Smá útúrdúr fyrst við erum farin að tala um Orkuveituna hvort eð er:
Þið þekkið þarna nýja flotta Orkuveituhúsið sem var verið að byggja í Árbænum? Allavega, við hönnun hússins var reynt að stuðla að flötu starfsmannaskipulagi og eru þessvegna til dæmis engar skrifstofur í húsinu - það vinna allir í sameiginlegu rými ... með einni undantekningu þó: það er ein skrifstofa í húsinu og hana á Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi með meiru!
Síðast breytt af skipio á Fim 27. Jan 2005 16:29, breytt samtals 1 sinni.
Íslenskar gæsalappir eru „ og “ (99 og 66). Þær má framkalla með alt-0132 og alt-0147.