8 þús í sýnatöku í dag
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
Smit er EKKI veikindi!
Við erum öll troðfull af veirum og bakteríum.
Hjarðónæmi er ekki ný uppfinnig.

-
- Vaktari
- Póstar: 2011
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Reputation: 276
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
Moldvarpan skrifaði:Hizzman skrifaði:audiophile skrifaði:Mun veiran ekki hægt og rólega fjara út? Er hún ekki að veikjast með hverju afbrigði? Kannski getum við farið að lifa nokkuð eðlilega með þessu á næstu 1-2 árum?
Við getum vonað að o-míkron sé þetta væga afbrigði, virðist vera komið víða og fáir veikjast alvarlega! Í besta falli er þetta að verða búið! Svo er bara að vona að þessar miklu smitvarnir hafi ekki gert okkur berskjölduð fyrir einhverju sem á eftir að koma
Samt ekki svo einfalt. Ég þekki eina manneskju sem smitaðist fyrir ca 4mánuðum af delta og var að smitast aftur núna fyrir jólin af ómíkron.
Svo það er vel hægt að fá þetta aftur og aftur, með nýjum afbrigðum.
Ég var að greinast áðan í 2 skipti á rúmum mánuði
Bætt við, ég er frekar slappur
Síðast breytt af einarhr á Sun 26. Des 2021 20:11, breytt samtals 1 sinni.
| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16519
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2116
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
einarhr skrifaði: Ég var að greinast áðan í 2 skipti á rúmum mánuði
Bætt við, ég er frekar slappur
Wtf?
Varstu nokkuð að sleikja handriðið á rúllustiganum í Kringlunni?
Væntanlega Delta í fyrra sinn og Omikron núna?
Vona að þú verðir ekki mikið veikur.
Ertu bólusettur?
-
- Vaktari
- Póstar: 2011
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Reputation: 276
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
GuðjónR skrifaði:einarhr skrifaði: Ég var að greinast áðan í 2 skipti á rúmum mánuði
Bætt við, ég er frekar slappur
Wtf?
Varstu nokkuð að sleikja handriðið á rúllustiganum í Kringlunni?
Væntanlega Delta í fyrra sinn og Omikron núna?
Vona að þú verðir ekki mikið veikur.
Ertu bólusettur?
Ég er í áhættuhóp, er með hjartagalla. Er búin að fá 2x Moderna en ekki örvunarskammt þar sem ég greindist í fyrra skipti sama dag og ég fékk boðun í bólusettningu
Var ekki mikið veikur í fyrra skiptið en var með hita í 10 daga og mjög þreyttur, er núna með beinverki í öllum líkama, hita og hósta en ekkert óbærilegt. Þetta hefst allt
PS, ég var ekki að sleikja neitt í Kringlunni þetta skiptið, hef líklega smitast af 8 ára dóttir nágrannas sem er með Covit en er einkennalaus
| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
einarhr skrifaði:GuðjónR skrifaði:einarhr skrifaði: Ég var að greinast áðan í 2 skipti á rúmum mánuði
Bætt við, ég er frekar slappur
Wtf?
Varstu nokkuð að sleikja handriðið á rúllustiganum í Kringlunni?
Væntanlega Delta í fyrra sinn og Omikron núna?
Vona að þú verðir ekki mikið veikur.
Ertu bólusettur?
Ég er í áhættuhóp, er með hjartagalla. Er búin að fá 2x Moderna en ekki örvunarskammt þar sem ég greindist í fyrra skipti sama dag og ég fékk boðun í bólusettningu
Var ekki mikið veikur í fyrra skiptið en var með hita í 10 daga og mjög þreyttur, er núna með beinverki í öllum líkama, hita og hósta en ekkert óbærilegt. Þetta hefst allt
PS, ég var ekki að sleikja neitt í Kringlunni þetta skiptið, hef líklega smitast af 8 ára dóttir nágrannas sem er með Covit en er einkennalaus
Vá óheppnin! Ég eyddi heilum degi með covidsmituðum litla bróður kæró, skiptumst á að nota sömu tölvuna og allt, en slapp samt
Ryzen 9 5900x // X470 Aorus Gaming // RTX4080 Super // 48 GB 3200MHz // 32" G5 165hz
-
- Vaktari
- Póstar: 2796
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Reputation: 349
- Staðsetning: Danmark
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
SARS‑CoV‑2 er eingöngu loftborin samkvæmt nýlegum fréttum. Það á eftir að staðfesta það betur engu að síður. Þessar grímur sem eru seldar í búðum í dag virka ekki gegn smiti, þar sem þær grímur sem eru seldar á Íslandi miða við dropasmit frá einstaklingum, sem eru stærri agnir sem eru ekki svo lengi í loftinu (nokkrar mínútur til 1 klukkutíma). Loftbornar agnir geta hangið í loftinu í allt að sólarhring eða lengur eftir því hversu ör loftskipti eiga sér stað. Það er ekkert snertismit af SARS-CoV-2. Íslensk stjórnvöld virðast vera mikið í gömlum og úreltum ráðleggingum. Það er samt sem er ekki vitað um SARS‑CoV‑2 ennþá en þetta er hægt og rólega að breytast í kvef sem verður árlega sýnist mér.
Ten scientific reasons in support of airborne transmission of SARS-CoV-2 (Maí, 2021)
COVID-19 mistakes and myths (UCDavisHealth)
Ten scientific reasons in support of airborne transmission of SARS-CoV-2 (Maí, 2021)
COVID-19 mistakes and myths (UCDavisHealth)
-
- Vaktari
- Póstar: 2011
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Reputation: 276
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
Frussi skrifaði:einarhr skrifaði:GuðjónR skrifaði:einarhr skrifaði: Ég var að greinast áðan í 2 skipti á rúmum mánuði
Bætt við, ég er frekar slappur
Wtf?
Varstu nokkuð að sleikja handriðið á rúllustiganum í Kringlunni?
Væntanlega Delta í fyrra sinn og Omikron núna?
Vona að þú verðir ekki mikið veikur.
Ertu bólusettur?
Ég er í áhættuhóp, er með hjartagalla. Er búin að fá 2x Moderna en ekki örvunarskammt þar sem ég greindist í fyrra skipti sama dag og ég fékk boðun í bólusettningu
Var ekki mikið veikur í fyrra skiptið en var með hita í 10 daga og mjög þreyttur, er núna með beinverki í öllum líkama, hita og hósta en ekkert óbærilegt. Þetta hefst allt
PS, ég var ekki að sleikja neitt í Kringlunni þetta skiptið, hef líklega smitast af 8 ára dóttir nágrannas sem er með Covit en er einkennalaus
Vá óheppnin! Ég eyddi heilum degi með covidsmituðum litla bróður kæró, skiptumst á að nota sömu tölvuna og allt, en slapp samt
Konan mín var með mér í einangrun í 10 daga í fyrra skiðtið ég fékk covit, hún fór í 5 skimanir og greindist aldrei en var samt með einkenni, sama á við núna, hún er núna með mér aftur í einangrun. Hún er með smá hita en greindist neikvæð í gær
| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1577
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Reputation: 130
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
Við erum 4 í fjölskyldu og vorum í 12 daga með Covid smituðu barninu okkar. Ekkert okkar hinna smitaðist. Mjög spes hvernig sumir smitast við nánast ekkert og aðrir bara ekki þrátt fyrir mikla nálægð við smitaðan einstakling. Kannski spurning um stað og stund hvenær mestu líkur eru á smiti.
Have spacesuit. Will travel.
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
audiophile skrifaði:Við erum 4 í fjölskyldu og vorum í 12 daga með Covid smituðu barninu okkar. Ekkert okkar hinna smitaðist. Mjög spes hvernig sumir smitast við nánast ekkert og aðrir bara ekki þrátt fyrir mikla nálægð við smitaðan einstakling. Kannski spurning um stað og stund hvenær mestu líkur eru á smiti.
Eruði bólusett?
Því þetta var auðvitað markmiðið með bólusetningu þó að það hafi misgóða virkni milli einstaklinga.
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1577
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Reputation: 130
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
Við foreldrarnir erum bæði bólusett en áttum eftir að fá þriðju sem við erum komin með núna. Yngsti er á leikskóla og ekki bólusettur en smitaðist ekki heldur.
Have spacesuit. Will travel.
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
Er með eldra afkvæmið (19) í einangrun í sínu herbergi síðan 22. des, hún hefur sloppið nokkuð vel, sofið mikið, smá hiti, hósti og beinverkir en varð líka smá hrædd um tíma.
Jólin voru spes, fólk í áhættuhóp á heimilinu og allir með öfga í að passa sig. Klósettir sótthreinsað í döðlur 2-3 sinnum á dag, hefur aldrei verið jafn hreint.
Ég hef einna mestar áhyggjur af því að ef ég sjálfur verð veikur að geta ekki sinnt heimilinu, ég ætti virkilega erfitt með að vera sá sem þyrfti umönnun og geta ekki verið til staðar fyrir mitt fólk.
Jólin voru spes, fólk í áhættuhóp á heimilinu og allir með öfga í að passa sig. Klósettir sótthreinsað í döðlur 2-3 sinnum á dag, hefur aldrei verið jafn hreint.
Ég hef einna mestar áhyggjur af því að ef ég sjálfur verð veikur að geta ekki sinnt heimilinu, ég ætti virkilega erfitt með að vera sá sem þyrfti umönnun og geta ekki verið til staðar fyrir mitt fólk.
-
- Vaktari
- Póstar: 2796
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Reputation: 349
- Staðsetning: Danmark
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
Covid-19 omicron afbrigðið er farið af stað í bólusettum hópum, bæði fullorðnum og börnum. Ég reikna með að smit muni toppa í 800 til 900 manns í 14 til 20 daga fljótlega. Þeir sem eru bólsettir munu sleppa í flestum tilfellum vel, þeir sem ekki eru bólusettir munu lenda mjög illa í því.
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
jonfr1900 skrifaði:Covid-19 omicron afbrigðið er farið af stað í bólusettum hópum, bæði fullorðnum og börnum. Ég reikna með að smit muni toppa í 800 til 900 manns í 14 til 20 daga fljótlega. Þeir sem eru bólsettir munu sleppa í flestum tilfellum vel, þeir sem ekki eru bólusettir munu lenda mjög illa í því.
Jón, þú ert skemmtilega fróður um svo margt. Eldgosainnleggin þín eru í uppáhaldi.
Og aðrir endilega ef þið vitið svarið.
Er nýgengi smita reiknað fyrir alla hópa út frá:
a) "fjöldi smita í hóp/fólksfjöldi á Íslandi"
eða
b)"fjöldi smita í hóp/áætluðum fjölda fólks í hóp"
Ef það er reiknað skv. leið "a" þá er það skelfilega rangt (skewed) og ætti að reyna að reikna það eða vega það meira skv. leið "b".
Gróflega má áætla, út frá tölum á mynd "vegið" nýgengi smita hjá fullorðnum einstaklingum, þar sem þú deilir nýgengi hópsins með stuðli (hlutfalli) hvers hóps til að finna vegið nýgegi hópsins.
Stuðlar hópanna eru:
- Óbólusettir, fullorðnir fá stuðulinn 0,1 (10% af fullorðnum)
- Fullbólusettir fá stuðulinn 0,399 (39,95 af fullorðnum)
- Fullbólusettir með örvunarskammt fá stuðulinn 0,501 (50,1% af fullorðnum)
Ég vil benda á að þetta úreiknaða nýgengi er samt rangt því stuðlarnir ættu í raun að vera lægri, þeir eru einungis % af fullorðnum en ekki fólksfjölda í heild.
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
Hizzman skrifaði:Jæja, eftir næstum 2 ár fattast ÞETTA!
https://www.frettabladid.is/frettir/hel ... d-med-pcr/
Voru hraðprófin hér heima ekki bara leyfð eða tekin gild sumarið 2021?
Það á að vera einstaklega sjaldgæft að próf gefi false positive sbr. https://www.healthline.com/health/how-a ... id-testing
Það sama á við fíkniefnapróf, allskonar dipsticks og önnur svona hraðpróf, þau gefa sárasjaldan "false positive" ef viðurkennd gæðapróf eru notuð.
Þetta gefur tilefni til að láta Lyfjastofnun vita sem ætti að yfirfara markaðsleyfi viðkomandi seljanda og framleiðanda (því að við erum ekki í EU og þessvegna er allt lyfjatengt erfiðara og dýrara hér á landi).
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
rapport skrifaði:Hizzman skrifaði:Jæja, eftir næstum 2 ár fattast ÞETTA!
https://www.frettabladid.is/frettir/hel ... d-med-pcr/
Voru hraðprófin hér heima ekki bara leyfð eða tekin gild sumarið 2021?
Það á að vera einstaklega sjaldgæft að próf gefi false positive sbr. https://www.healthline.com/health/how-a ... id-testing
Það sama á við fíkniefnapróf, allskonar dipsticks og önnur svona hraðpróf, þau gefa sárasjaldan "false positive" ef viðurkennd gæðapróf eru notuð.
Þetta gefur tilefni til að láta Lyfjastofnun vita sem ætti að yfirfara markaðsleyfi viðkomandi seljanda og framleiðanda (því að við erum ekki í EU og þessvegna er allt lyfjatengt erfiðara og dýrara hér á landi).
Miðað við nýgengis tölurnar á covid.is í dag eru uþb. 1 af hverjum 1000 Íslendingum að greinast smitaður á dag. Ef prófið skilar false positive í 1 af hverjum 1000 prófum þá myndi það passa að annaðhvert jákvætt hraðpróf sé "false positive".
Mig minnir endilega að ég hafi séð þessa 1/1000 tölu um hraðprófin. Annars held ég að false positive séu ekki vandamálin, miklu frekar false negative (vera smitaður en prófið segir neikvætt).
Edit : quote-aði vitlausan póst
Síðast breytt af Daz á Mið 29. Des 2021 14:38, breytt samtals 1 sinni.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 956
- Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
- Reputation: 130
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
rapport skrifaði:Hizzman skrifaði:Jæja, eftir næstum 2 ár fattast ÞETTA!
https://www.frettabladid.is/frettir/hel ... d-med-pcr/
Voru hraðprófin hér heima ekki bara leyfð eða tekin gild sumarið 2021?
Það á að vera einstaklega sjaldgæft að próf gefi false positive sbr. https://www.healthline.com/health/how-a ... id-testing
Það sama á við fíkniefnapróf, allskonar dipsticks og önnur svona hraðpróf, þau gefa sárasjaldan "false positive" ef viðurkennd gæðapróf eru notuð.
Þetta gefur tilefni til að láta Lyfjastofnun vita sem ætti að yfirfara markaðsleyfi viðkomandi seljanda og framleiðanda (því að við erum ekki í EU og þessvegna er allt lyfjatengt erfiðara og dýrara hér á landi).
Ef þau eru notuð rétt, ég talaði við 1700 áður en ég fór í hraðpróf um daginn og var sagt að það að drekka ávaxtasafa fyrir hraðpróf geti valdið jákvæðri niðurstöðu.
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1034
- Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
- Reputation: 132
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
arons4 skrifaði:rapport skrifaði:Hizzman skrifaði:Jæja, eftir næstum 2 ár fattast ÞETTA!
https://www.frettabladid.is/frettir/hel ... d-med-pcr/
Voru hraðprófin hér heima ekki bara leyfð eða tekin gild sumarið 2021?
Það á að vera einstaklega sjaldgæft að próf gefi false positive sbr. https://www.healthline.com/health/how-a ... id-testing
Það sama á við fíkniefnapróf, allskonar dipsticks og önnur svona hraðpróf, þau gefa sárasjaldan "false positive" ef viðurkennd gæðapróf eru notuð.
Þetta gefur tilefni til að láta Lyfjastofnun vita sem ætti að yfirfara markaðsleyfi viðkomandi seljanda og framleiðanda (því að við erum ekki í EU og þessvegna er allt lyfjatengt erfiðara og dýrara hér á landi).
Ef þau eru notuð rétt, ég talaði við 1700 áður en ég fór í hraðpróf um daginn og var sagt að það að drekka ávaxtasafa fyrir hraðpróf geti valdið jákvæðri niðurstöðu.
Hraðpróf leita eftir einni gerð mótefnavaka meðan PCR próf notast við kjarnsýrugreiningu á tveimur mismunandi stöðum til að lágmarka falsk-jákvæða niðurstöðu.
Þessi hraðpróf eru prófuð á rannsóknarstofum við bestu aðstæður og gefa óraunhæfar væntingar um næmni og sértæki.
Ef þið skoðið t.d. EU Rapid Antigen Test List eru mörg próf að ná kannski <80-90% næmni/sértæki út á mörkinni meðan framleiðandinn segir næmni/sértæki vera 98%+.
Sýnatakan er líka stór óvissuþáttur hvort eitthvað greininst eða ekki.
-
- Vaktari
- Póstar: 2796
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Reputation: 349
- Staðsetning: Danmark
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
rapport skrifaði:jonfr1900 skrifaði:Covid-19 omicron afbrigðið er farið af stað í bólusettum hópum, bæði fullorðnum og börnum. Ég reikna með að smit muni toppa í 800 til 900 manns í 14 til 20 daga fljótlega. Þeir sem eru bólsettir munu sleppa í flestum tilfellum vel, þeir sem ekki eru bólusettir munu lenda mjög illa í því.
Jón, þú ert skemmtilega fróður um svo margt. Eldgosainnleggin þín eru í uppáhaldi.
Og aðrir endilega ef þið vitið svarið.
Er nýgengi smita reiknað fyrir alla hópa út frá:
a) "fjöldi smita í hóp/fólksfjöldi á Íslandi"
eða
b)"fjöldi smita í hóp/áætluðum fjölda fólks í hóp"
Ef það er reiknað skv. leið "a" þá er það skelfilega rangt (skewed) og ætti að reyna að reikna það eða vega það meira skv. leið "b".
Gróflega má áætla, út frá tölum á mynd "vegið" nýgengi smita hjá fullorðnum einstaklingum, þar sem þú deilir nýgengi hópsins með stuðli (hlutfalli) hvers hóps til að finna vegið nýgegi hópsins.
Stuðlar hópanna eru:
- Óbólusettir, fullorðnir fá stuðulinn 0,1 (10% af fullorðnum)
- Fullbólusettir fá stuðulinn 0,399 (39,95 af fullorðnum)
- Fullbólusettir með örvunarskammt fá stuðulinn 0,501 (50,1% af fullorðnum)
Ég vil benda á að þetta úreiknaða nýgengi er samt rangt því stuðlarnir ættu í raun að vera lægri, þeir eru einungis % af fullorðnum en ekki fólksfjölda í heild.
Capture.PNG
Ég hef haft tvö ár núna í þessu veiru veseni og ég fylgist mikið með því sér sérfræðingar og fólk með mjög sérhæfða menntun í þessu er að segja. Ég vona að þetta klárist sem fyrst eins og aðrir faraldar (orðinn þreyttur á þessu eins og aðrir). Gæti samt tekið fram til ársins 2025 að klárast almennilega. Miðað við sögu eldri cornoveiru faraldra sem hafa gengið yfir. Þessi vírus hverfur á endanum og verður bara kvef, en það tekur tíma að gerast.
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
stefhauk skrifaði:1557 manns
https://www.visir.is/g/20212202762d/nyt ... nds-i-gaer
Að stytta sóttkví eru líklega mistök. Fréttir um þá ákvörðun sögðu alltaf "ráðherra í samráði við Þórólf" sem ég skil bara sem "hugmynd ráðherra sem hann ræddi við Þórólf sem hafði ekki vald til að segja nei"
Þessi nýja ríkisstjórn var ekki lengi að fokka þessu upp.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5592
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1053
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
stefhauk skrifaði:1557 manns
https://www.visir.is/g/20212202762d/nyt ... nds-i-gaer
þetta er 0,5% þjóðarinnar á einum degi. Svo er þetta líklega under-reported, því margir sem fara ekki í próf, eru bara með eitthvað "smá kvef".
Líklega er þessi veira að fara sem wild-fire um samfélagið.
*-*
-
- Vaktari
- Póstar: 2796
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Reputation: 349
- Staðsetning: Danmark
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
appel skrifaði:stefhauk skrifaði:1557 manns
https://www.visir.is/g/20212202762d/nyt ... nds-i-gaer
þetta er 0,5% þjóðarinnar á einum degi. Svo er þetta líklega under-reported, því margir sem fara ekki í próf, eru bara með eitthvað "smá kvef".
Líklega er þessi veira að fara sem wild-fire um samfélagið.
Samkvæmt sérfræðingum þá tvöfaldast omicron smit á hverjum tveim dögum. Líklega er omicron með R10 eða nálægt því. Sem dæmi þá eru mislingar með R milli 12 til 18.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3750
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Reputation: 474
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
appel skrifaði:stefhauk skrifaði:1557 manns
https://www.visir.is/g/20212202762d/nyt ... nds-i-gaer
þetta er 0,5% þjóðarinnar á einum degi. Svo er þetta líklega under-reported, því margir sem fara ekki í próf, eru bara með eitthvað "smá kvef".
Líklega er þessi veira að fara sem wild-fire um samfélagið.
Já ætli það séu ekki þúsundir á þúsundir ofan sem að í raun eru smitaðir.
Sem að sýnir þá í raun hvað omricon er hættulítið fyrir þjóðina.
Yrði ekkert hissa á því að 5% þjóðarinnar væru smituð, væri í raun hissa ef að talan væri ekki töluvert hærri.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Re: 8 þús í sýnatöku í dag
urban skrifaði:appel skrifaði:stefhauk skrifaði:1557 manns
https://www.visir.is/g/20212202762d/nyt ... nds-i-gaer
þetta er 0,5% þjóðarinnar á einum degi. Svo er þetta líklega under-reported, því margir sem fara ekki í próf, eru bara með eitthvað "smá kvef".
Líklega er þessi veira að fara sem wild-fire um samfélagið.
Já ætli það séu ekki þúsundir á þúsundir ofan sem að í raun eru smitaðir.
Sem að sýnir þá í raun hvað omricon er hættulítið fyrir þjóðina.
Yrði ekkert hissa á því að 5% þjóðarinnar væru smituð, væri í raun hissa ef að talan væri ekki töluvert hærri.
Er búinn að vera í sóttkví síðan 22.des þegar mín eldri (19) greinist. Við erum ekki laus úr sóttkví því að hún er enn með einkenni núna 9 dögum seinna og við losnum ekki úr sóttkví fyrr en degi eftir að hún losnar úr einangrun.
Þá förum við í test og ef einhvert okkar er jákvætt þá lengist sóttkvíin hjá öllum nema þeim sem losnaði úr einangrun.
Á covid.is er svo talað um að fólk sem losnar úr einangrun getur verið smitandi í allt að tvær vikur og þurfi að fara varlega.