Gallar við timburhús?
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2485
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Reputation: 235
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Gallar við timburhús?
Góðan daginn,
Nú erum við að skoða það að stækka við okkur húsnæðið og hef ég rekist á nokkur timburhús. Ég þekki þau ekkert, alltaf búið í steyptum húsum, og því að spá hvort þið þekkið til galla/kosti þess?
Þetta er sérbýli á einni hæð svo ég er ekkert að spá í hávaða á milli hæða, steypt botnplata og byggt rúmlega 1980.
Gallar:
Aukið viðhald að utan, mála/fúaverja á 3-5 ára fresti.
Hljóðbært á milli herbergja en hugsaði að ég gæti klætt veggina með auka gifsplötum.
Eldhætta.
Kostir:
Andar betur.
Hlýlegra.
Pottþétt betra þráðlaust net um alla íbúðina.
Þolir mögulega betur jarðskjálfta/myndast ekki þessar spurngur eins og í steypu.
Hvað segið þið?

Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||
NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 384
- Skráði sig: Fös 02. Jan 2015 00:20
- Reputation: 49
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
Varðandi viðhald þá er ekkert mál að álkæða hús að utan þó það sé reist úr timbri. Allavegana er það möguleiki
Is it aught or is it God ? No its just me who did a MOD
Re: Gallar við timburhús?
Eru Amerísku hjallarnar sem hrynja í hvert skipti sem keyrir þungur flutningabíll framhjá eða bærir vind umfram 4m/s ekki álíka timburhús?
Síðast breytt af TheAdder á Fös 19. Nóv 2021 20:16, breytt samtals 1 sinni.
NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 341
- Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
- Reputation: 116
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
Kostur: Mikið ódýrara og auðveldara að breyta að innan, stækka/minnka herbergi.
Galli: líður einsog þú sért alltaf í sumarbústað (hljóðið þegar þú ert labbandi um)
Galli: líður einsog þú sért alltaf í sumarbústað (hljóðið þegar þú ert labbandi um)
Re: Gallar við timburhús?
Myndi gera ráð fyrir því að timbur sé mun viðkvæmara gegn myglu og rýrnun. Ætti ekki að vera vandamál ef farið er vel með húsið en eitthvað sem gæti verið mikilvægt að skoða fyrir kaup.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 956
- Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
- Reputation: 130
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
Að mínu mati betra að búa í timburhúsi. Helsti ókosturinn sem ég sé við þau er að ef upp kemur langvarandi lekavandamál geta þau hreinlega skemmt húsið ef burðurinn fúnar, en steypt hús er alltaf hægt að gera fokhelt og laga.
Re: Gallar við timburhús?
Ég bý í timburhúsi og það eru steyptir burðarveggir eins og í steyptum húsum og léttu veggirnir alveg eins og í steyptum húsum, þannig að ég held að eini munurinn sé viðhaldið að utan.
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 663
- Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
- Reputation: 61
- Staðsetning: 107
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
Kostir við timburhús:
Mörgum finnst hljóðvist/endurvarp af innan rýmis í timburhúsi betra heldur en þar sem eru steyptir veggir. (Ss. hljóðið virðist "mýkra")
Varðandi gallana við timburhús...
Ekki vanmeta þetta, og depending á hvernig húsið er þá ertu ekki að fara að gera neitt með gipsplötum sem mun skipta máli...
T.d. í sumum timburhúsum er gólfplatan steypt, en í öðrum þá er gólfið líka tré-grind þó að sökkullinn sé steyptur.
Ég er í einu slíku, og allt helvítis húsið er eins og mini-vibrator þegar þvottavélin byrjar að þurrka...
Og allt hljóð berst mjög vel hvort sem er milli herbergja eða bara þvert yfir allt húsið...
Mörgum finnst hljóðvist/endurvarp af innan rýmis í timburhúsi betra heldur en þar sem eru steyptir veggir. (Ss. hljóðið virðist "mýkra")
Varðandi gallana við timburhús...
GullMoli skrifaði:Hljóðbært á milli herbergja en hugsaði að ég gæti klætt veggina með auka gifsplötum.
Ekki vanmeta þetta, og depending á hvernig húsið er þá ertu ekki að fara að gera neitt með gipsplötum sem mun skipta máli...
T.d. í sumum timburhúsum er gólfplatan steypt, en í öðrum þá er gólfið líka tré-grind þó að sökkullinn sé steyptur.
Ég er í einu slíku, og allt helvítis húsið er eins og mini-vibrator þegar þvottavélin byrjar að þurrka...
Og allt hljóð berst mjög vel hvort sem er milli herbergja eða bara þvert yfir allt húsið...
Mkay.
Re: Gallar við timburhús?
Veit ekki hvernig það er með að fá húsnæðislán... en minnir að það gæti verið erfiðara fyrir timburhús.... bankar vilji frekar lána út á steinsteypu.
*-*
Re: Gallar við timburhús?
oliuntitled skrifaði:Galli: líður einsog þú sért alltaf í sumarbústað (hljóðið þegar þú ert labbandi um)
Unglingum er oft þungbært að búa í timburhúsum.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
appel skrifaði:Veit ekki hvernig það er með að fá húsnæðislán... en minnir að það gæti verið erfiðara fyrir timburhús.... bankar vilji frekar lána út á steinsteypu.
Hefurðu eitthvað fyrir þér í þessu? Ég keypti (á síðustu 5 árum) timburhús og fékk lán hjá banka. Það var aldrei minnst á tegund byggingarefnis og ég hef raunar aldrei heyrt þetta sem þú segir áður.
TheAdder skrifaði:Eru Amerísku hjallarnar sem hrynja í hvert skipti sem keyrir þungur flutningabíll framhjá eða bærir vind umfram 4m/s ekki álíka timburhús?
Það væru nú líklega fá timburhús standandi á Íslandi ef þau myndu ekki þola hefðbundið haustrok og nokkra jarðskjálfta upp á 5.
Annars tek ég undir þetta með hljóðbærnina, en það fer líklega eitthvað eftir hversu góð einangrun er í veggjum og gólfum. Truflar okkur ekkert samt. Ég hef ekkert sérstaklega orðið var við þvottavélina hjá mér, í það minnsta hristir hún alls ekki húsið!
-
- Kóngur
- Póstar: 4257
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Reputation: 192
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
oliuntitled skrifaði:Galli: líður einsog þú sért alltaf í sumarbústað (hljóðið þegar þú ert labbandi um)
Það er sama hljóð að labba um í timburhúsi og steyptu húsi ef það er með steypta plötu eins og mörg eða flest þeirra eru með.
Varðandi hljóðbærni í gifsi vs steypu þá eru eingöngu burðarveggir í steyptu húsi úr öðru en gifsi/hleðslustein. Hljóðbærnin í gifsi þarf alls ekki að vera verri ef veggurinn er með tvöfalt gifs og ull.
Flest hús á íslandi eru með gifsi, byggingaraðilar fóru eitthvað að fikta við hleðslusteina (vikur og gifsteina) Algjör martröð að vinna með þá samanborið gifsinu og hef ég horft á steinana verða græna á lit vegna raka í byggingarferli þannig rökin með myglu er ég ekki viss að standist.
Ég myndi ekki hika við að skoða timburhús sjálfur en þá myndi ég alltaf gera úttekt á húsinu áður en kaupferli er lokið. þ.e.a.s. ef húsið er komið á aldur. Ef komið er tími á viðhald að utan er algengt að fólk klæði það og þá er það ekkkert ósvipað því að eiga við steypt hús í viðhaldi utanfrá.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3750
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Reputation: 474
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
kunglao skrifaði:Varðandi viðhald þá er ekkert mál að álkæða hús að utan þó það sé reist úr timbri. Allavegana er það möguleiki
Já það þarf bara að passa að standa fáránlega vel að því.
Alltof mörg gömul hús sem að hafa komið upp mygla í eftir að þau eru klædd, semsagt ekki næg loftun.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Re: Gallar við timburhús?
Veggjatítlur!
Ekki setja peningana í timburhús.
Einsog amma mín gamla segir, "settu peningana í steinsteypu". Hún sagði það nokkurnveginn þannig. Hef alltaf hlustað á hana því hún hefur aldrei haft rangt fyrir sér og ég hef aldrei tapað á fjárfestingarráðum hennar.
Timburhús eru líklega "jokerinn" í íslenskum byggingaiðnaði. Annaðhvort ertu með vel smíðað hús sem endist í 150 ár, eða veggjatítlu og myglusveppa étið hús sem er dæmt óíbúðarhæft stuttu eftir að þú kaupir það nema þú eyðir miklu efforti í að rannsaka.

- Of mikill frítími
- Póstar: 1903
- Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
- Reputation: 64
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
Voðaleg þvæla er í sumum hér, ég hef búið í timburhúsi án nokkurra vandræða og ekkert mál að fá lán. Varð aldrei var við neinn sumarbústaðarfíling eða brak í einu eða neinu.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
appel skrifaði:Veggjatítlur!
Ekki setja peningana í timburhús.
...
Timburhús eru líklega "jokerinn" í íslenskum byggingaiðnaði.
...
Alkaliskemmd hús úr íslensku sementi og fjörusandi. Þú ert að tala um þau.
Ekki kaupa 40-50 ára gömul steinsteypt hús. (er jafn tilhæfulaus, en auðtrúanleg setning)
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6799
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 940
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
Það er bara gömul mýta að steypt hús séu eitthvað betri en timburhús. Það er hægt að klúðra báðu.
Þegar maður ræðir þetta við húsasmiði þá segja þeir að timbrið sé alltof lítið notað.
Það er komin miklu betri tækni til að styrkja og eldverja timburhús, og auðvitað var ekki mikið spáð í hljóðvist þegar timburhús voru reist fyrir 100 árum þegar fólk átti varla efni á að kaupa sér mat.
Hér er myndband ef menn vilja kynna sér nýja tækni í þessu, til dæmis er verið að reisa stórar blokkir úr timbri:

- Viðhengi
-
- concretealsteel.png (226.68 KiB) Skoðað 4047 sinnum
Síðast breytt af Viktor á Mið 24. Nóv 2021 14:00, breytt samtals 1 sinni.
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
Re: Gallar við timburhús?
Að öllu öðru jöfnu (ef svo má segja) hversu miklu myndi muna krónulega séð á timburhúsi og steinsteyptu húsi?
-
- Kóngur
- Póstar: 4257
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Reputation: 192
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
mikkimás skrifaði:Að öllu öðru jöfnu (ef svo má segja) hversu miklu myndi muna krónulega séð á timburhúsi og steinsteyptu húsi?
20-30% er alveg hægt að áætla. Erfitt að segja hvað það kosti í krónum að byggja eitt stk hús. Er eigandi að fara að taka þátt í framkvæmd frá upphafi til enda eða láta verktaka sjá um hvert einasta smáatriði. Það getur munað 10+ milljónum á einbýli, þarf ekki að þekkja nema einn góðan vin sem er iðnmenntaður eða vinnur hjá fyrirtæki sem selur eitt af þeim hráefnum sem notað er í framkvæmdina til að maður spari sér stórfé.
Ég gerði sem dæmi mína íbúð fokhelda og græjaði allt sjálfur að pípulögn og múrverki frátöldu. Hugsa að ég hafi sparað rúmlega milljón í vinnukostnað þar. Gott er að taka fram að ég er rafvirki og endurnýjaði allt raflagnaefni íbúðarinnar líka ásamt því að cat6 væða hvert einasta rými.
Var þetta gólfefni, baðherbergi eins og það leggur sig, rafmagn, eldhús, allar hurðar og málningarvinna.
Spilar svo inn í að maður er farinn að þekkja mann og annan í verslunum með byggingarefni og farinn að geta fengið afslætti sem hefðu annars ekki fengist.
Re: Gallar við timburhús?
Ég hef búið í timburhúsi í 22 ár, ekkert nema gott um það að segja, þetta er bara bull að það sé erfiðara að fá lán á timburhús, ég smíðaði 4 lítil hús fyrir ferðaþjónustu fyrir 3 árum, bankinn spurði ekkert um það úr hverju ég ætlaði reysa húsin. Það er mjög lítill munur á fermetra verði ef hann er þá einhver, timbur eða steypa. Það er auðvitað steyptur sökkull undir þessu öllu,sama vinnan og allt það, svo er bara spurning hvort maður setur timbur eða steypu á sökkulinn, þar sem ég bý, á suðausturlandi, er búin að vera mikil uppbygging, stæðsti hlutinn timburhús, mér skilst að það sé sáralítill munur á kostnaði, enda er búið að leggja út mikinn kostnað áður enn húsið kemur á grunninn, svo eru gluggar, pípur, rafmagn,innréttingar,golfefni og teikningar mjög stór hluti af kostnaði, sama hvort það sé timbur eða steypa. Bara spurning um nokkra rúmmetra af steypu eða nokkur timburbúnt, eins og timburverð er í dag, þá gæti ég best trúað að þetta væri á pari.
Re: Gallar við timburhús?
isr skrifaði:Ég hef búið í timburhúsi í 22 ár, ekkert nema gott um það að segja, þetta er bara bull að það sé erfiðara að fá lán á timburhús, ég smíðaði 4 lítil hús fyrir ferðaþjónustu fyrir 3 árum, bankinn spurði ekkert um það úr hverju ég ætlaði reysa húsin. Það er mjög lítill munur á fermetra verði ef hann er þá einhver, timbur eða steypa. Það er auðvitað steyptur sökkull undir þessu öllu,sama vinnan og allt það, svo er bara spurning hvort maður setur timbur eða steypu á sökkulinn, þar sem ég bý, á suðausturlandi, er búin að vera mikil uppbygging, stæðsti hlutinn timburhús, mér skilst að það sé sáralítill munur á kostnaði, enda er búið að leggja út mikinn kostnað áður enn húsið kemur á grunninn, svo eru gluggar, pípur, rafmagn,innréttingar,golfefni og teikningar mjög stór hluti af kostnaði, sama hvort það sé timbur eða steypa. Bara spurning um nokkra rúmmetra af steypu eða nokkur timburbúnt, eins og timburverð er í dag, þá gæti ég best trúað að þetta væri á pari.
Forvitinn... af hverju að byggja á timbri þá? Hverjir eru kostirnir fyrst þú ert að byggja frá grunni?
Re: Gallar við timburhús?
bjoggi skrifaði:isr skrifaði:Ég hef búið í timburhúsi í 22 ár, ekkert nema gott um það að segja, þetta er bara bull að það sé erfiðara að fá lán á timburhús, ég smíðaði 4 lítil hús fyrir ferðaþjónustu fyrir 3 árum, bankinn spurði ekkert um það úr hverju ég ætlaði reysa húsin. Það er mjög lítill munur á fermetra verði ef hann er þá einhver, timbur eða steypa. Það er auðvitað steyptur sökkull undir þessu öllu,sama vinnan og allt það, svo er bara spurning hvort maður setur timbur eða steypu á sökkulinn, þar sem ég bý, á suðausturlandi, er búin að vera mikil uppbygging, stæðsti hlutinn timburhús, mér skilst að það sé sáralítill munur á kostnaði, enda er búið að leggja út mikinn kostnað áður enn húsið kemur á grunninn, svo eru gluggar, pípur, rafmagn,innréttingar,golfefni og teikningar mjög stór hluti af kostnaði, sama hvort það sé timbur eða steypa. Bara spurning um nokkra rúmmetra af steypu eða nokkur timburbúnt, eins og timburverð er í dag, þá gæti ég best trúað að þetta væri á pari.
Forvitinn... af hverju að byggja á timbri þá? Hverjir eru kostirnir fyrst þú ert að byggja frá grunni?
Það er spurning, sumir vilja bara vera í timbri og aðrir í steyptu. Kostir eða gallar, þeir eru bara mismunandi eftir því hvern þú spyrð.
Re: Gallar við timburhús?
Hef búið í ansi mörgum húsum í gegnum tíðina (12+), þar af hafa 5 verið timburhús. Myndi ekki hafa neinar áhyggjur af hljóðbærni, fjögur af þessum timburhúsum voru mjög vel einangruð og heyrðist mun minna milli íbúða heldur en í meðal steypuhúsi. Þetta eina sem var dáldið hljóðbært á milli í var mjög gamalt hús niðrí bæ, og eflaust lítið einangrað
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 639
- Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
- Reputation: 112
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Gallar við timburhús?
Kostir og gallar við bæði. Byggingarkostnaður er mjög svipaður.
Þetta er svolítið eins og spyrja hvort finnst þér betra - súkkulaði- eða vanilluís. Mér er nokk sama, í báðum tilfellum fæ ég ís.
Þetta er svolítið eins og spyrja hvort finnst þér betra - súkkulaði- eða vanilluís. Mér er nokk sama, í báðum tilfellum fæ ég ís.
ps5 ¦ zephyrus G14