Sallarólegur skrifaði:Bílaverkstæði eru ekki með græjur til að hjólastilla alla bíla sem þeir vinna við, það eru bara nokkur "sér" verkstæði sem hjólastilla
Ekki hægt að gera ráð fyrir því að sá sem skiptir um varahluti hjólastilli bílinn þinn í leiðinni
Þeir fullyrtu að það væri algjörlega nauðsynlegt að hjólastilla bílinn eftir svona aðgerð og þeir hefðu allar græjur í það, ég samþykkti það og það átti að vera síðasti verkþátturinn. Hringi svo fyrir hádegi (þá voru þeir búnir að hafa bílinn í tvo daga) og spyr hvort þetta sé búið en fæ þau svör að allt sé klárt nema að það sé verið að bíða eftir lyftu. Klukkan tvö hringi ég til að athuga stöðuna og fæ að vita að lyftan sé ekki laus en þeir láti mig vita þegar þetta sé búið, fæ svo SMS klukkutíma síðar að bíllin sé tilbúinn. Ég hringi og spyr hvort hann hafi ekki örugglega verið hjólastilltur en fæ þá þau svör að þeir hafi metið það svo að hann þyrfti ekki hjólastillingu, þegar skipt var um fóðringar hafi hann dottið í nýju fóðringuna og sé því réttur. Mín tilfinning var sú að þeir hefðu brunnið inni á tíma og vildu losna við hann fyrir lokun.
Þegar ég keyri heim þá hangir stýrið svona 5° til vinstri og bíllinn leitar í allar áttir í og úr hjólförum. Ég hringi til baka strax daginn eftir og segi að bíllinn sé alveg vonlaus svona, hálfstjórnlaus og ég þurfi stanslaust átak á stýrið svo hann þverbeygji ekki til vinstri þá segir kallinn að þetta sé út af lélegum bremsum, þær hljóti að liggja útí og valda því að bíllinn leiti svona til vinstri.
Stuttu síðar skipti ég um diska, klossa og bremsuvökva og bíllin jafnslæmur, þegar ég fór svo með hann í skoðun þá voru dekkin ónýt og ég fékk athugasemd á hjólastillinguna. Hann var svo slæmur að það þurfti að hjólastilla hann tvisvar og mér finnst hann ekki alveg 100% ennþá þrátt fyrir tvær hjólastillingar. Stýrið örlítið til hægri núna þegar ég keyri beint.