Mossi__ skrifaði:worghal skrifaði:vesley skrifaði:En ég mun seint rífast yfir þessu á húsfundi þar sem fólki er nógu illa við mig eftir að ég gerði upp íbúðina
Að fá hávaðakvartanir yfir því að ég var að parketleggja kl 14 á virkum degi því einn íbúi er vanur að leggja sig þá.
Eða í þær heilu 15 mínútur sem ég fræsti lögn í gólf þá barst kvörtun því íbúi heyrði ekki í sjónvarpinu á meðan því stóð. Held það sé tapaður slagur.
á hvaða elliheimili varstu að flytja inn á?
Knúsaðu nágrannana þína Worghal, ef þér er svonalagað ókunnugt.
Lífið væri svo ljúft ef það væru ekki nágrannar.
já ég verð að segja að ég tel mig heppinn með mína nágranna, í þau tvö ár sem ég hef búið hérna þá hef ég aldrei upplifað jafn mikin frið þrátt fyrir suma að gera sínar endurbætur og ekki stakt partý sem hægt er að taka eftir