mikkimás skrifaði:Flott, þá getum við mjólkað ferðamennina næstu árin.
Þeir munu gjörsamlega hrauna yfir okkur.
mikkimás skrifaði:Flott, þá getum við mjólkað ferðamennina næstu árin.
mikkimás skrifaði:Ég hef ekki heyrt eina einustu manneskju með þekkingu á sviði jarðeðlisfræði tala um raunhæfan möguleika á stórgosi á þessum slóðum,
Þorvaldur Þórðarson skrifaði:Við gerðum þetta fyrir ákveðið svæði og margfölduðum upp. Við vorum að leika okkur með Þingvallahraunið sem er gömul dyngja og Skjaldbreið og við vorum að fá goslengd upp á 250 til 500 ár fyrir stóru dyngjurnar, og þá vorum við jafnvel of rausnarlegir í framleiðninni.“
Þorvaldur segir þetta ekki beint segja okkur hversu lengi gos sem mynda stórar dyngjur vara, en samt sem áður að dyngjur séu myndaðar í mjög löngum gosum.
mikkimás skrifaði:jonfr1900 skrifaði:mikkimás skrifaði:Lol þú mátt spara stóru orðin.
Það er kvikusöfnun í gagni vestan við Grindavík sem á uppruna sinn í djúpu kvikuhólfi. Það er væntanlega ekki ennþá komið að eldgosi þar alveg strax en teljarinn í það eldgos er orðinn mjög stuttur tel ég. Það er fyrir utan þetta eldgos í Geldingadalir sem mun renna þangað hægt og rólega eftir að eldgosið er búið er að fylla upp í alla dali sem þarna eru í dag.
Dyngjur eru einnig mjög sérstök eldgos.
Hvað er dyngjugos? (Vísindavefurinn)
Edit: Bætti aðeins við textann.
Ég hef ekki heyrt eina einustu manneskju með þekkingu á sviði jarðeðlisfræði tala um raunhæfan möguleika á stórgosi á þessum slóðum, burtséð frá kvikusöfnun og þrýstingi, nú eða þá að hraun úr þessu gosi muni flæða yfir Grindavík á endanum. Þú veist að það er ekki langt í sjóinn frá gosinu?
Fyrir ári síðan þegar landris stóð yfir við Þorbjörn talaði Maggi Tumi m.a.s. um að yrði gos þarna yrði það *ekki* stórt.
appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?
mjolkurdreytill skrifaði:appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?
Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.
STÓRHÆTTU!
GuðjónR skrifaði:mjolkurdreytill skrifaði:appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?
Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.
STÓRHÆTTU!
Hættu að hræða mig!!!!
rapport skrifaði:GuðjónR skrifaði:mjolkurdreytill skrifaði:appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?
Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.
STÓRHÆTTU!
Hættu að hræða mig!!!!
Capture.PNG
thorhs skrifaði:Athyglisvert, virðist vera að koma upp rautt hraun að einhvrerju leiti... nýjir rauðhólar að myndast?
Þótt dalurinn fyllist er ekki þar með sagt að strax byrji að leita í aðrar lægðir, heldur er einnig möguleiki að það nái að taka á sig dyngjulögun og þá verður hraunflæðið ekki út á við heldur fer það að flæða jafnt yfir gígveggina hringinn um kring og mynda hefðbundna dyngju.
Graven skrifaði:Nennir einhver að henda þessum aumingjum í gíginn!
https://youtu.be/BA-9QzIcr3c
12:57:54
falcon1 skrifaði:Mér sýnist að eitthvað hafi hægt á gosinu eftir jarðskjálftann í gær, er það vitleysa í mér?
jonfr1900 skrifaði:Það er orðin stór spurning hvort að það fari að gjósa við Keili. Það er áhugaverð og stöðug smáskjálftavirkni þarna núna, ekki mjög mikil en það þarf ekki að segja mikið.