GuðjónR skrifaði:
Ég er mjög sammála þessu.
Ekki ég, ég er að spá í að vera leiðinlegi gaurinn, bara svona útaf því ég hef lítið sem ekkert gert hérna undanfarin ár.
En svona að gríninu slepptu.
Ekki er verð að spá í banni síðan 2015 núna ?
fólk virðist svolítið misskilja það að GuðjónR gæti bannað notendanöfn sem að byrja á G ef að hann vildi, bara svona til þess að vera sá eini með þessu nafni, hann gæti líka bannað mig fyrir að vera alveg hrikalega lélegur/óvirkur stjórnandi ef honum langaði til.(eða er ég ekki ennþá stjórnandi, minnir það allavega)
Semsagt, ef að honum finnst einhver vera með leiðindi bara til þess að vera með leiðindi, þá er finnst mér akkúrat ekkert óeðlilegt að hann banni svoleiðis aðila, ég geri það síður, en það er ekkert óeðlilegt að eigandinn geri það.
Það er bara svona svipað og að henda einhverjum leiðinlegum útúr partýi heima hjá sér, ég fer kannski ekki að henda einhverjum sem að mér finnst leiðinlegur útúr partýi annar staðar, en geri það alveg hiklaust heima hjá mér.
Annars hef ég bara rosalega lítið verið hérna, þarf að fara að bæta úr því, þið eruð nefnilega upp til hópa alveg helvíti fínt fólk, sumir með meiri leiðindi en aðrir en fáir að fara yfir strikið.
Ég ætla gera það að markmiði að fyrir þetta ár að athuga hvort að ég geti ekki bætt úr því, verið annað hvort hundleiðinlegur eða öfga skemmtilegur.
Má fastlega gera ráð fyrir því að hvort tveggja misheppnist algerlega