To enter or not to enter "The Hive"


Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

To enter or not to enter "The Hive"

Pósturaf hahallur » Lau 11. Des 2004 11:56

Jæja eina sem stoppar mig í að fá mér HIVE er að ég er ekki búin að sjá neyn jákvæð comments um það.
Samkveimmt vitneskju sem ég hef safnað held ég að 90-100gb séu leyfileg í erlendu download-i (þó ég sé ekki að alhæfa um það).

Þeir í HIVE hlógu allavega þegar ég spurði þá hvort að ég gæti farið yfiri 40-50gb og sögðu ójú.

En annars var ég einusinni hjá Fjöltengi þegar það var nýbyrrjað, þá kommst ég á netið á 1 vikna fresti og besta ping-ið sem ég fékk var 150.

Ég vil bara ganga úr skugga um að þetta sé allveg jafn pottþétt og síminn sem hafa aldrei klikkað hjá mér, en þeir mega þó eiga það að þeir eru okrarar.

En hver hérna hefur reynslu að HIVE þ.e. á það eða hefur séð það "in action" eða á þannig tengingu.



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2843
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 214
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Pósturaf CendenZ » Lau 11. Des 2004 14:15

ég spyr nú bara hvernig gastu virkilega skrifað Neyn með Y og sammkveimmt

Nein vs Neyn
Samkvæmt vs Sammkveimmt. :shock:
(þetta kemur dyslexíu ekkert við)

en annars, ég ætla að bíða í svona mánuð, og gá hvernig fólk er að fíla þessa tengingu.




Amything
Ofur-Nörd
Póstar: 221
Skráði sig: Fim 26. Sep 2002 11:16
Reputation: 0
Staðsetning: 101
Staða: Ótengdur

Pósturaf Amything » Lau 11. Des 2004 16:31

Ég þekki 3 með hive fyrir utan sjálfan mig. Allir mjög sáttir og þá sérstaklega með hversu góð þjónusta er hjá Hive. Þetta er í rauninni mun betra en ég bjóst við, því tengingin er alveg stöðug en ég bjóst við einhverjum martröðum á byrjunarstiginu.

Þeir einu sem ég hef séð segja eitthvað neikvætt um þá eru þeir sem hafa ekki tengingu hjá þeim og hafa fundið eitthvað í smáa letrinu til að noja sig yfir.

Þekki ekki um neinn forfallin online spilara á Hive en ég pingið er amk fínt.




ParaNoiD
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 307
Skráði sig: Fim 26. Feb 2004 21:08
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ParaNoiD » Lau 11. Des 2004 16:34

í rauninni er það eina sem er að bögga mig að hafa ekki .is host á irkinu .. annars er þetta að virka flott :)



Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dagur » Lau 11. Des 2004 16:44

Ég er bara búinn að hafa Hive í 2 daga en hingað til er ég mjög sáttur :)

Ég vildi að þeir hefðu opnað portin fyrir mig fyrir helgi :cry:




ParaNoiD
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 307
Skráði sig: Fim 26. Feb 2004 21:08
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ParaNoiD » Lau 11. Des 2004 19:35

ok þarna fóru þeir í taugarnar mínar !!!


þetta með að hringja til að fá opnað port er hriiikalega lame !!!


ég ætlaði að setja upp leikjaserver fyrir mig og félagana en NEEEIII!!!

þeir opna bara port á milli 10 og 18 á virkum dögum !!!


Aumingjaþjónusta þar á ferð !

ég ætla að hringja eftir helgi og fá 2-3 port opnuð til að hafa þau opin svo ég geti átt þau inni :evil:




Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Lau 11. Des 2004 19:42

Þetta myndi ekki trufla mig þar sem ég er ekkert í svonleiðis veseni.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Lau 11. Des 2004 20:33

ParaNoiD skrifaði:þeir opna bara port á milli 10 og 18 á virkum dögum !!!

Uss, það er ofur-slappt. Gerðirðu 12 mánaða samning?

Ég myndi íhuga að gera eitthvað í svipuðum dúr og gnarr benti á, láta þá t.d. forwarda öllum portum á eina litla linux dollu þar sem að þú forwardar portunum svo sjálfur




Amything
Ofur-Nörd
Póstar: 221
Skráði sig: Fim 26. Sep 2002 11:16
Reputation: 0
Staðsetning: 101
Staða: Ótengdur

Pósturaf Amything » Lau 11. Des 2004 20:35

ParaNoiD skrifaði:ég ætlaði að setja upp leikjaserver fyrir mig og félagana en NEEEIII!!!


Já í akkúrat svona stöðu er þetta ferlega leiðinlegt. Vissi heldur ekki að þeir opna bara port á þessum tíma núna.

Ég lét opna 100 port sem ég nota ekkert bara til að eiga þau inni. Mun aldrei koma til með að nota þau öll but you never know you know.




ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ErectuZ » Lau 11. Des 2004 22:49

ParaNoiD skrifaði:ok þarna fóru þeir í taugarnar mínar !!!


þetta með að hringja til að fá opnað port er hriiikalega lame !!!


ég ætlaði að setja upp leikjaserver fyrir mig og félagana en NEEEIII!!!

þeir opna bara port á milli 10 og 18 á virkum dögum !!!


Aumingjaþjónusta þar á ferð !

ég ætla að hringja eftir helgi og fá 2-3 port opnuð til að hafa þau opin svo ég geti átt þau inni :evil:


Nákvæmlega! Þetta er það eina sem er að halda mér frá því að hóta að drepa fjölskylduna mína nema ég fái Hive :twisted:

Ég er sjálfur alltaf að fikta router-stillingum vegna þess að ég er alltaf að hosta hitt og þetta bara í smá tíma í senn. Mikið mikið vesen að þurfa alltaf að hringja :cry:

En ef ég fer í Hive, þá ætla ég að reyna að gera þetta sem Gnarr vill að við gerum við server-vélina mína (Hún, ahem, *verður* lítil sæt linux vél :P )



Skjámynd

halanegri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 955
Skráði sig: Mán 23. Sep 2002 21:17
Reputation: 0
Staðsetning: Err Vaff Ká
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf halanegri » Sun 12. Des 2004 05:00

PPTP for the win.


"open source fólkið gerir ekkert nema að stela hugmyndum annara" -- "open source fólk hugsar bara um sinn eigin rass" - IceCaveman, 2003

Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dagur » Sun 12. Des 2004 18:36

Kannski er hægt að hvetja þá til þess að búa til eitthvað viðmót á heimasíðunni sinni fyrir okkur. Það er eins og þeir hafi ekki spáð í þessu áður en þeir byrjuðu.



Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dagur » Mán 13. Des 2004 12:41

Þeir opnuðu fyrir allt sem ég bað um nema port 80 og 21. Vilja þeir ekki opna fyrir þau?



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6466
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 300
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 13. Des 2004 12:49

wtf.. !! er 80 lokað! :x


"Give what you can, take what you need."


traustis
Fiktari
Póstar: 81
Skráði sig: Þri 04. Mar 2003 11:18
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf traustis » Mán 13. Des 2004 13:04

gnarr skrifaði:wtf.. !! er 80 lokað! :x


Kannski nota þeir akkúrat port 80 til að komast inn í routerinn og opna port fyrir ykkur :P




ParaNoiD
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 307
Skráði sig: Fim 26. Feb 2004 21:08
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ParaNoiD » Mán 13. Des 2004 13:34

þeir opnuðu 80 fyrir mig ..



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6466
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 300
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 13. Des 2004 13:37

traustis skrifaði:Kannski nota þeir akkúrat port 80 til að komast inn í routerinn og opna port fyrir ykkur :P


veistu ekki hvað er á porti 80... :?


"Give what you can, take what you need."


hallihg
Gúrú
Póstar: 524
Skráði sig: Mið 17. Sep 2003 22:06
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Pósturaf hallihg » Mán 13. Des 2004 13:49

Haha þær ætlast greinilega ekkert til að maður browse-i um internetið.


count von count

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 13. Des 2004 14:37

gnarr skrifaði:
traustis skrifaði:Kannski nota þeir akkúrat port 80 til að komast inn í routerinn og opna port fyrir ykkur :P

veistu ekki hvað er á porti 80... :?

Þeir gætu nú einmitt notað port80 til þess að komast í web interface á routernum þar sem að þeir opna port ;)
hallihg skrifaði:Haha þær ætlast greinilega ekkert til að maður browse-i um internetið.

Port 80 er default HTTP server portið, þarft ekki port 80 opið til þess að browsa :)

(er 99% viss á þessu :=)




ParaNoiD
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 307
Skráði sig: Fim 26. Feb 2004 21:08
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ParaNoiD » Mán 13. Des 2004 14:59

hefur ekkert að gera með port 80 opið nema þú sérst með t.d. Apache webserver eða eitthvað.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6466
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 300
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 13. Des 2004 15:20

já, eins og ég hef verið með síðustu 5 árin á öllum mínum tölvum... ég er ekkert að fara að hætta með webserver á tenginunni minni vegna lúðaskapar hjá fyrirtæki.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dagur » Mán 13. Des 2004 15:29

Nú er ég hættur að skilja. Ég er búinn að prófa að hafa apache og annan server á portum sem ég veit að virka, samt kemur connection refused.... það er greinilega eitthvað annað að



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 13. Des 2004 15:36

gnarr skrifaði:já, eins og ég hef verið með síðustu 5 árin á öllum mínum tölvum... ég er ekkert að fara að hætta með webserver á tenginunni minni vegna lúðaskapar hjá fyrirtæki.
ParaNoiD skrifaði:þeir opnuðu 80 fyrir mig ..
Þetta hefur líklegast verið eitthvað klikk hjá Degi þegar þeir opnuðu ekki port 80.

----------
Dagur skrifaði:Nú er ég hættur að skilja. Ég er búinn að prófa að hafa apache og annan server á portum sem ég veit að virka, samt kemur connection refused.... það er greinilega eitthvað annað að

Og ég ekki byrjaður að skilja :) Ertu búinn að forwarda þessum portum á rétta vél? Er http serverinn að hlusta á réttu porti? Er clientinn að requesta á réttu porti?




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mán 13. Des 2004 15:37

Ertu nokkuð að nota lén sem bendir á ip-töluna þína (sem hive úthlutar)?



Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dagur » Mán 13. Des 2004 15:45

MezzUp skrifaði:
Dagur skrifaði:Nú er ég hættur að skilja. Ég er búinn að prófa að hafa apache og annan server á portum sem ég veit að virka, samt kemur connection refused.... það er greinilega eitthvað annað að

Og ég ekki byrjaður að skilja :) Ertu búinn að forwarda þessum portum á rétta vél? Er http serverinn að hlusta á réttu porti? Er clientinn að requesta á réttu porti?


Já þetta er forwardað á rétta vél, ég prófaði til dæmis að nota portin sem ég nota í emule og bittorrent og virka vel í þeim forritum.

Ég prófaði að láta apache hlusta á porti 80 og hinum og fór síðan í firefox og gerði ip-tala:port

gumol skrifaði:Ertu nokkuð að nota lén sem bendir á ip-töluna þína (sem hive úthlutar)?


Ég er með þannig en ég nota samt alltaf ip-tölun beint í firefox. Hvorugt virkar.

Þetta er ekki windows firewall heldur btw.