Umferðin í Reykjavík

Allt utan efnis

Sporður
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Mán 22. Okt 2018 09:06
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf Sporður » Fös 30. Ágú 2019 19:29

Sallarólegur skrifaði::-" :-" :-"


Ég sat í tveimur strætisvögnum í dag. Í þeim fyrri stóð 39 sæti 44 standandi, 4 hjólastólar, alls 77 manns
Í þeim síðari var ekkert sundurliðað, þar stóð bara 96 manns.

Ég get ímyndað mér að í hinum hefðbundna troðna strætó séu kannski 60 manns hámark og það er þegar allir standa þétt saman og á ganginum þar sem sætin eru. Ég myndi ekki borga pening til að vera í strætó með 95 öðrum.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16575
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2137
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf GuðjónR » Þri 03. Sep 2019 14:23

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019 ... unda_soad/

Það jafngildir hátt í 14 mannsöldrum miðað við 75 ára ævi.
Hvorki hagkvæmt né vistvænt.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf jonsig » Þri 03. Sep 2019 20:27

Þetta fylgir því að kjósa R-listann eða samfó. Það hefur ekki verið neitt gert hérna fyrir vegina síðan R-dæmið komst í meirihluta "94. Bara einhver dagur í holunni á hjálmari að tala um einhverja draumkennda borgarlínu. :lol:

Þetta væri svo gott ef fólkið sem kaus þennan komma -saur yfir sig hefði verið eitt um það að njóta umferðaröngþveitisins.



Skjámynd

ElGorilla
Nörd
Póstar: 136
Skráði sig: Mán 09. Des 2002 10:26
Reputation: 19
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf ElGorilla » Þri 03. Sep 2019 22:02

jericho skrifaði:
rapport skrifaði:https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/08/28/bilarodin_naer_upp_ad_mosfellsbae/

Af hverju er ekki einhverstaðar búið að koma upp live mælingum á umferð.

Ef fólk gæti stuðst við gögn og séð hvenær umferð er mikil og hvenær lítil o.þ.h. þá væri auðveldara að taka ákvarðanir um hvenær ætti að leggja af stað.

Með slík gögn þá gætu heilu vinnustaðirnir planað vaktaskipti út frá umferð, staðir sem eru með 24/7 starfsemi, þá er það virkilega kjánalegt að hafa vaktaskipti kl.8 og kl.16. það mundi líklega spara öllum mikinn tíma að hafa vaktaskiptin t.d. kl. 7 og 15.

Þá hafa fyrirtæki oft eytt gríðarlegum fjármunum í húsnæði og innviði en nota þeta svo bara hluta af sólarhringnum.

Vörulagerar og jafnvel heilu vöruhúsin bara opin 10-12 klst á sólarhring, gætu unnið sér mikið í haginn og bætt þjónustu með því að dreifa álaginu á fleiri klukkustundir. Aðföng spara sér líklega formúgu á að keyra út vörur í verslanir á nóttunni, engin umferð = minni tími og færri tjón + bílastæði við verslanir tóm = fljótlegra að komast að + minni líkur á tjóni, minna stress og miklu, miklu betri nýting á eigum fyrirtækisins.

En já, af hverju eru engar live mælingar á umferð og væri mikið mál að koma slíkum mælingum af stað?


Vegasjá Vegagerðarinnar er með live mælingu á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu (t.d. rétt hjá Bauhaus nálægt Mosó). Einnig er hægt að nota Borgarvefsjá Reykjavíkurborgar en hún er einnig með live mælingu á nokkrum stöðum.

Hvorug þessara síða er reyndar mjög notendavæn eða sýnir þetta á flottan hátt og ég efast um að það fæst fjármagn til að bæta úr því.


worghal skrifaði:til að byrja með, þeir sem ákveða hvernig umferðin á að liggja og haga sér hérna í reykjavík eru líklegast ekki rétta fólkið í starfið.
það eru margir "choke points" sem fá enga athygli til þess að laga umferðina og svo er bara bætt við ljósum og lækkað umferðar hraða í staðinn.
nú ættla ég að vera miðaldra og öskra út í buskan en HVER Í ANDSKOTANUM ber ábyrgð á þessum auka ljósum við hörpu sem komu þarna um daginn?


Vonandi erum við að tala um sömu ljós, en aukaljósin eru vegna vinnutækja sem þurfa að komast ofan í og upp úr risastóra grunninum.



Google Maps er líka með umferðar overlay.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5599
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1054
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf appel » Mið 04. Sep 2019 00:37

jonsig skrifaði:Þetta fylgir því að kjósa R-listann eða samfó. Það hefur ekki verið neitt gert hérna fyrir vegina síðan R-dæmið komst í meirihluta "94. Bara einhver dagur í holunni á hjálmari að tala um einhverja draumkennda borgarlínu. :lol:

Þetta væri svo gott ef fólkið sem kaus þennan komma -saur yfir sig hefði verið eitt um það að njóta umferðaröngþveitisins.


Það er rétt, það eru mörg svæði þar sem hægt er að fara í litlar framkvæmdir og leysa ákveðnar teppur sem mynda langar bílaraðir.

Mér dettur helst í hug teppuna sem myndast alltaf á Sæbrautinni suður að sprengisandi/grillhúsinu síðdegis. Þarna eru ljós sem hleypa 5 bílum upp á bústaðarveginn. Reyndar eru þeir búnir að loka fyrir umferð frá bústaðavegi til vinstri inn á Sæbraut á þessum tíma, en þarna þarf í raun að hafa sígrænt frá 15 til 18. Hægt er að fara yfir brúnna sem er milli Kóp og þar sem Aktu-Taktu er til að fara norður eftir Sæbraut.

Svo er óskiljanlegt hví fólk dreifir ekki umferðinni meira. Það er enginn að segja mér það að einhver skrifstofumanneskja ÞURFI að vera komin á slaginum 8 eða 9 í vinnuna, eða að skólar geti ekki byrjað klukkan 10. Þegar ég var í skóla þá byrjaði hann suma daga 8 og var búinn 13, stundum byrjaði 8, búinn 10 en hófst aftur 15. Þannig að ef þeir byrja 9:30 eða 10 þá myndi það hjálpa heilmikið.

Svo er hægt að neyða ríkisstofnanir og opinber fyrirtæki út úr borginni og flytja sig í nágrannabæi eða úthverfi.

Það eru til lausnir, menn bara vilja ekki fara út í þær. Frekar eyða 100-200 milljörðum í sömu sturlun, flytja alla inn í borgina á morgnanna og út úr borginni síðdegis á nákvæmlega sama tíma. Svo er það, mun þessi borgarlína geta flutt tugi þúsunda á sömu mínútunum? Því íslendingar eru þannig að vilja leggja af stað 5 mínútur áður en þeir þurfa að vera mættir einhversstaðar.


*-*

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6398
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 464
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf worghal » Mið 04. Sep 2019 00:57

appel skrifaði:
jonsig skrifaði:Þetta fylgir því að kjósa R-listann eða samfó. Það hefur ekki verið neitt gert hérna fyrir vegina síðan R-dæmið komst í meirihluta "94. Bara einhver dagur í holunni á hjálmari að tala um einhverja draumkennda borgarlínu. :lol:

Þetta væri svo gott ef fólkið sem kaus þennan komma -saur yfir sig hefði verið eitt um það að njóta umferðaröngþveitisins.


Það er rétt, það eru mörg svæði þar sem hægt er að fara í litlar framkvæmdir og leysa ákveðnar teppur sem mynda langar bílaraðir.

Mér dettur helst í hug teppuna sem myndast alltaf á Sæbrautinni suður að sprengisandi/grillhúsinu síðdegis. Þarna eru ljós sem hleypa 5 bílum upp á bústaðarveginn. Reyndar eru þeir búnir að loka fyrir umferð frá bústaðavegi til vinstri inn á Sæbraut á þessum tíma, en þarna þarf í raun að hafa sígrænt frá 15 til 18. Hægt er að fara yfir brúnna sem er milli Kóp og þar sem Aktu-Taktu er til að fara norður eftir Sæbraut.

Svo er óskiljanlegt hví fólk dreifir ekki umferðinni meira. Það er enginn að segja mér það að einhver skrifstofumanneskja ÞURFI að vera komin á slaginum 8 eða 9 í vinnuna, eða að skólar geti ekki byrjað klukkan 10. Þegar ég var í skóla þá byrjaði hann suma daga 8 og var búinn 13, stundum byrjaði 8, búinn 10 en hófst aftur 15. Þannig að ef þeir byrja 9:30 eða 10 þá myndi það hjálpa heilmikið.

Svo er hægt að neyða ríkisstofnanir og opinber fyrirtæki út úr borginni og flytja sig í nágrannabæi eða úthverfi.

Það eru til lausnir, menn bara vilja ekki fara út í þær. Frekar eyða 100-200 milljörðum í sömu sturlun, flytja alla inn í borgina á morgnanna og út úr borginni síðdegis á nákvæmlega sama tíma. Svo er það, mun þessi borgarlína geta flutt tugi þúsunda á sömu mínútunum? Því íslendingar eru þannig að vilja leggja af stað 5 mínútur áður en þeir þurfa að vera mættir einhversstaðar.

þetta bann með bústaðarveginn mætti alveg prufa annarstaðar líka, til dæmis þessi ljós við Súðarvog mættu vera sígræn á morgnanna.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

ZiRiuS
Of mikill frítími
Póstar: 1798
Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
Reputation: 387
Staðsetning: Við tölvuna
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf ZiRiuS » Mið 04. Sep 2019 01:12

jonsig skrifaði:Þetta fylgir því að kjósa R-listann eða samfó. Það hefur ekki verið neitt gert hérna fyrir vegina síðan R-dæmið komst í meirihluta "94. Bara einhver dagur í holunni á hjálmari að tala um einhverja draumkennda borgarlínu. :lol:

Þetta væri svo gott ef fólkið sem kaus þennan komma -saur yfir sig hefði verið eitt um það að njóta umferðaröngþveitisins.


Þú greinilega manst ekki eftir skítaborgarstjórn Davíðs Oddssonar? Það sem einkavæðing Sjálfstæðismanna fæddist og menntun, skólamál, velferð, menning og margt annað var svelt. Gúd tæms maður, vona að það gerist aftur... (það er ekki að ástæðulausu sem þessi flokkur hefur varla fengið að snerta stjórnvöldin aftur síðan 1994...)



Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf jonsig » Mið 04. Sep 2019 07:33

Það meikar sens að einkavæða sem flest, allt sem ríkið snertir skilar milljörðum í mínus til skattgreiðenda nema massíf orku- einokunnarfyrirtæki sem hækka bara fastagjaldið og þeir sem sætta sig ekki við það verða bara aftengdir útí götuskáp. Maður getur þakkað fyrir ef Dagur hefur ekki sett borgina á hausinn.

Burt frá því séð, getur maður ekki alveg séð fyrir sér hvernig á að breikka þessar sprungnu umferðargötur, þar sem fólk þyrfti þá hreinlega að labba til vinnu meðan framkvæmdir stæðu yfir.



Skjámynd

GullMoli
Vaktari
Póstar: 2485
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 235
Staðsetning: NGC 3314.
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf GullMoli » Mið 04. Sep 2019 08:24



Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

Skjámynd

ZiRiuS
Of mikill frítími
Póstar: 1798
Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
Reputation: 387
Staðsetning: Við tölvuna
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf ZiRiuS » Mið 04. Sep 2019 11:16

jonsig skrifaði:Það meikar sens að einkavæða sem flest, allt sem ríkið snertir skilar milljörðum í mínus til skattgreiðenda nema massíf orku- einokunnarfyrirtæki sem hækka bara fastagjaldið og þeir sem sætta sig ekki við það verða bara aftengdir útí götuskáp. Maður getur þakkað fyrir ef Dagur hefur ekki sett borgina á hausinn.

Burt frá því séð, getur maður ekki alveg séð fyrir sér hvernig á að breikka þessar sprungnu umferðargötur, þar sem fólk þyrfti þá hreinlega að labba til vinnu meðan framkvæmdir stæðu yfir.


Við ættum kannski bara að einkavæða vegakerfið? Láta eitthvað fyrirtæki rukka okkur stórfé fyrir að halda vegunum góðum (og fá auðvitað fullt í vasann líka).

Get varla hamið mig við að skrifa svona heimskulega hluti :-#



Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe

Skjámynd

Hauxon
spjallið.is
Póstar: 415
Skráði sig: Fös 10. Júl 2009 12:32
Reputation: 123
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf Hauxon » Mið 04. Sep 2019 11:40

Ég foreldrar mínir og systur greiddum uþb 10 milljónir kr. í nefskatt (fyrir að vera Akurnesingar) þann tíma sem rukkað var í Hvalfjarðargöng. Eins glatað og það var þá myndi ég borga álíka nefskatt fyrir afnot af Sundabraut. Verst að hún verður sennilega ekki gerð meðan á næstu áratugum því enginn stjórnmálamaður hefur pung í að ýta þessu áfram. Samt augljóslega það sem þarf að gera í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6799
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf Viktor » Mið 04. Sep 2019 12:55

Það er grátbroslegt að fólk haldi í alvöru að umferðarflæði sé vandamálið, en ekki fjöldi bíla á Íslandi.
Það er algerlega litið framhjá þeirri staðreynd að við erum í ruglinu varðandi samgöngur, og aukið flæði fyrir einkabíla gerir vandamálið einfaldlega stærra.

Það að kenna núverandi meirihluta um stjarnfræðilega illa skipulagt höfuðborgarsvæði - sem gerir bara ráð fyrir óhagkvæmasta ferðamáta sem er til í veröldinni til að flytja fólk á milli staða - er algerlega út í hött.

Um 50% af notuðu landsvæði á höfuðborgarsvæðinu er undir vegi og bílastæði. Hver bíll stendur ónotaður og óhreyfður í 80-90% af líftíma hans ef mig misminnir ekki.

Hvenær ætla Íslendingar að vakna?
Viðhengi
bilar.png
bilar.png (61.72 KiB) Skoðað 5948 sinnum
okutaeki.png
okutaeki.png (164.43 KiB) Skoðað 5948 sinnum


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


everdark
Ofur-Nörd
Póstar: 261
Skráði sig: Sun 04. Apr 2004 18:29
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf everdark » Mið 04. Sep 2019 13:15

Fólk sem ákveður sjálfviljugt að flytja í útjaðra höfuðborgarsvæðisins (t.a.m Mosfellsbæ, Grafarvog- og holt, Úlfársdal, ytri byggðir Hafnarfjarðar, Vatnsenda, Keflavík, Hveragerði, etc) fyrirgerir að mínu mati rétti sínum til að röfla yfir umferðarþunga.



Skjámynd

Hauxon
spjallið.is
Póstar: 415
Skráði sig: Fös 10. Júl 2009 12:32
Reputation: 123
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf Hauxon » Mið 04. Sep 2019 14:31

everdark skrifaði:Fólk sem ákveður sjálfviljugt að flytja í útjaðra höfuðborgarsvæðisins (t.a.m Mosfellsbæ, Grafarvog- og holt, Úlfársdal, ytri byggðir Hafnarfjarðar, Vatnsenda, Keflavík, Hveragerði, etc) fyrirgerir að mínu mati rétti sínum til að röfla yfir umferðarþunga.


Skv. þessu þá eru einu sem hafa "rétt" til að kveða sér máls eru þeir sem eiga penthouse í skuggahverfinu ..og samt engan bíl.


Það er samt pínu naívt að halda því fram að bílarnir séu bara vandamálið. Ef það er vandamálið getur maður spurt sig hvað er verið að gera til þess að vinna á því? Hvers vegna er ekki frítt í Strætó, eða amk frítt fyrir nemendur? Af hverju hefur ekki verið gert neitt við stofbrautir borgarinnar þegar ný hverfi með tugþúsundum íbúa er bætt inn á æðarnar? Á síðasta ári fór ég á fund þar sem Dagur borgarstjóri kynnti nýtt hverfi við Elliðaárósa þar sem nú er iðnaðarhverfi (skútuvogur, Súðavogur osfrv.) Þarna eiga 20.000 manns að eiga heima. Í skipulaginu er ekki gert ráð fyrir breytingum á þeim stofnæðum sem liggja meðfram nýja hverfinu, sem eru Sæbraut og Ártúnsbrekka!! Ef ég man rétt er bílastæði við eina af hverri fimm íbúðum. Þetta kann að virka allt saman eftir nokkra áratugi þegar við svífum öll um í sjálfkeyrandi ökutækjum en stjórnsýsla snýst líka um að láta hlutina virka í nútímanum/raunveruleikanum. Það má heldur ekki gleyma að einn af örfáum kostum þess að vera íslendingur er að búa í nágrenni við stórkostlega náttúru. Bíllaus maður er fastur í borginni. Það virðist líka alltaf verið farið í að túlka gagnrýni á ófremdarástandið í umferðinni sem pólitískan áróður þegar einfaldlega er verið að biðla til stjórnvalda um að bregðast við ástandinu.
Síðast breytt af Hauxon á Mið 04. Sep 2019 16:10, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Sydney
1+1=10
Póstar: 1108
Skráði sig: Lau 29. Mar 2008 19:26
Reputation: 55
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf Sydney » Mið 04. Sep 2019 14:44

everdark skrifaði:Fólk sem ákveður sjálfviljugt að flytja í útjaðra höfuðborgarsvæðisins (t.a.m Mosfellsbæ, Grafarvog- og holt, Úlfársdal, ytri byggðir Hafnarfjarðar, Vatnsenda, Keflavík, Hveragerði, etc) fyrirgerir að mínu mati rétti sínum til að röfla yfir umferðarþunga.

Ok, flytjum þá alla á höfuðborgarsvæðinu í 101 og málið dautt.


Gigabyte X570 Aorus Ultra | Ryzen 9 5900X | Corsair Vengeance RGB Pro 32GB 3200MHz CL16 | Fractal Design Define S
Aorus Xtreme RTX 2080 Ti | 500GB Samsung 980 Pro | Corsair AX860 | ROG Swift PG279Q
Ducky YOTM | Glorious Model O | Sennheiser HD650 | Thrustmaster Warthog HOTAS
Thinkpad X1 Yoga 2nd Gen OLED


KristinnK
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 95
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf KristinnK » Mið 04. Sep 2019 22:29

Sallarólegur skrifaði:Það er grátbroslegt að fólk haldi í alvöru að umferðarflæði sé vandamálið, en ekki fjöldi bíla á Íslandi.


Það sem er grátbroslegt er að fólk haldi í alvöru að það sé ekki hægt að hafa ásættanlega umferð líka á álagstímum í 200 þúsund manna þéttbýliskjarna. Vandamálið eru ekki einkabílar heldur skipulag höfuðborgarsvæðisins. Eins og appel sagði:

appel skrifaði:Svo er hægt að neyða ríkisstofnanir og opinber fyrirtæki út úr borginni og flytja sig í nágrannabæi eða úthverfi.


AMD Ryzen 5 5600X | 2x16GB DDR4 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580

Skjámynd

izelord
has spoken...
Póstar: 181
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 17:29
Reputation: 16
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf izelord » Mán 09. Sep 2019 21:44

Þetta gæti þá verið áhugavert. Ferðatími vestur Miklubraut frá Grafarholti að Snorrabraut, plottuð á 7 mínútna fresti út frá upplýsingum Google um umferð á leiðinni.

(Album link: https://imgur.com/a/sSiWLXJ )

7 daga graf:

Mynd


Mán og Þri síðustu viku:

Mynd

Dagurinn í dag:

Mynd



Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 153
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf jericho » Þri 10. Sep 2019 00:35

Áhugavert.. umferðartopparnir eru að verða lægri. Mátt gjarnan pósta update eftir 7 daga, og þá með 14 daga aftur í tímann. Vel gert izelord



5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q


Vaski
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 15:11
Reputation: 12
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf Vaski » Þri 10. Sep 2019 10:52

Þetta er frábært @izelord
Gaman að sjá hvernig koma Pence hefur áhrif á umferðina þann 4.9. Er möguleiki á því að leggja gögn um umferðina austur Miklubrautina ofan á þessi gögn, þannig að toppurinn úr vinnu og heim sjáist?



Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1179
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 166
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf g0tlife » Þri 10. Sep 2019 11:25

Eina lausnin sem er raunhæf er svo einföld en enginn hefur pælt í henni. Ég bý í Hafnarfirði t.d. og veit alveg hvernig það er að fara í háskólann ofl.

Bæjarfélög ættu að gera parking svæði. Á vissum tíma morgna færi strætó beint í HR, beint í HÍ, menntaskóla strætóar og fleira frá þeim stöðum og svo til baka. Ég myndi taka strætó ef ég væri ekki bara 30 - 40 min að koma mér úr hafnarfirði með strætó. Þá get ég komið til baka hér í hfj, farið í minn bíl og keyrt út í búð og fleira. Stytta labbið, biðina og troðning, veðrið hefur minni áhrif.

Væri góð byrjun.


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold


dISPo
Fiktari
Póstar: 64
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2018 15:06
Reputation: 11
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf dISPo » Þri 10. Sep 2019 11:45

Þar sem ég sé að komið var inn á þetta framar langar mig að segja frá því að ég ferðast á hverjum með strætó til og frá vinnu, úr 108 í 101, og hef gert í nokkur ár án vandræða. Ég hef örsjaldan lent í því að þurfa að standa þótt Íslendingar virðist vera feimnir við að sitja við hlið ókunnugra. Þá er ég fljótari með strætó heldur en á bíl á álagstímum og get nýtt tímann í strætó. Ég á tvö ung börn og geng með annað sem er á leikskólaaldri í skólann áður en ég fer í strætó sem er ótrúleg gæðastund.

Ég gæti þó ekki hugsað mér bíllausan lífstíl enda get ég ekki ímyndað mér hvernig það væri að fara í búðir með tvö ung börn í strætó sem og ýmislegt annað sem fjölskyldan fer saman.



Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1457
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 163
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf Lexxinn » Þri 10. Sep 2019 11:58

2 sjónarmið;
Það er svo ruglað að öll fyrirtæki landsins vilji planta sér niður "miðbænum"
-2010 opnar HR í Nauthólsvík - dekurskóli landsins þar sem allir ferðast um á bíl og 3500 nemendur stunda nám
-Landsbankinn er að byggja höfuðstöðvar sínar við Hörpu - dýrasti valmöguleiki sem var á teikniborðinu í stað á landsvæði sem Kópavogsbær var tilbúinn að bjóða á miklu lægra verði
-Heimska ríkisstjórnin er að láta byggja nýjan spítala á brotnu skeri í stað á miðpunkt höfuðborgarsvæðisins - þegar þetta er skrifað eru 2544 við vinnu á LSH
Ef aðeins þessar 3 stofnanir hefðu ákveðið að byggja utan "miðbæjarins" myndu einkabílum á háannatímum á leið í miðbæinn fækkað um hið minnsta 5000

Svo gleymist oft umræða um óþarfa umferðaljós fyrir gangandi vegfarendur. Þá á ég ekki við að gangandi eigi ekki að komast leiðar sinnar heldur vil ég láta byggja undirgöng eða göngubrýr svo umferð fái að halda áfram.
Dæmi 1; Frá ljósum á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar framhjá Klambratúni eru þrenn umferðarljós, að undanskildum kringluljósum. Á þessum kílómetrakfala eru tvenn göngubrautarljós þar sem auðveldlega væri hægt að setja einfaldar göngubrýr eða undirgöng - ein hjá 365 og hin hjá Klambratúni.
Dæmi 2; Tilgangslaus umferðarljós fyrir framan Bakarameistarann í Suðurveri. Tillaga; fjarlægja ljósin, setja yfirbyggða göngubrú, hafa opna aðrein frá Hlíðunum og leyfa umferð að ganga.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf dori » Þri 10. Sep 2019 12:30

Lexxinn skrifaði:Svo gleymist oft umræða um óþarfa umferðaljós fyrir gangandi vegfarendur. Þá á ég ekki við að gangandi eigi ekki að komast leiðar sinnar heldur vil ég láta byggja undirgöng eða göngubrýr svo umferð fái að halda áfram.
Dæmi 1; Frá ljósum á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar framhjá Klambratúni eru þrenn umferðarljós, að undanskildum kringluljósum. Á þessum kílómetrakfala eru tvenn göngubrautarljós þar sem auðveldlega væri hægt að setja einfaldar göngubrýr eða undirgöng - ein hjá 365 og hin hjá Klambratúni.

Þú veist samt að þessi kafli Miklubrautar er að skera í sundur hverfi þar sem þjónusta er dreifð sitthvoru megin við Miklubrautina. Þessi gata er ekki og getur ekki (án talsvert meiri framkvæmda en 2-3 brýr/undirgöng) verið hraðbraut.

Svo tekur það talsvert mikið pláss að byggja göngubrýr, þú getur til dæmis skoðað hvernig þær eru sem fara yfir Miklubrautina við Skeifuna og Kringluna. Ég er ekki viss um að það sé pláss fyrir það við Klambratún.

En algjörlega, það mætti endilega fækka ljósum sem gangandi og hjólandi þurfa að fara yfir og það er líka eitthvað sem mætti skoða hvernig er hægt að dreifa starfsstöðvum um borgina (og ég geri ráð fyrir að það sé eitthvað sem er í skoðun, ákvarðanir um að hafa LHÍ þar sem hann er voru teknar fyrir meira en 15 árum, það má alveg gera ráð fyrir að áhrif af svona ákvörðunum taki langan tíma að koma fram).




kjartanbj
FanBoy
Póstar: 709
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 155
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf kjartanbj » Þri 10. Sep 2019 12:45

Umferðin er bara orðin langt frá því að vera normal, bróðir minn var 90 mínútur um daginn frá HR út á Bústaðaveg



Skjámynd

Hauxon
spjallið.is
Póstar: 415
Skráði sig: Fös 10. Júl 2009 12:32
Reputation: 123
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf Hauxon » Þri 10. Sep 2019 13:24

Án þess að hafa mikið vit á því þá spyr maður sig hvort ekki sé eðlilegt að skoða að hafa metro/jarðlestakerfi í Reykjavík. Það hlýtur að hafa verið skoðað í öllum Borgarlínupælingunum en ég hef nánst ekki heyrt kjaft mynnast á neðanjarðarlestir. Slatti af borgum á stærð við höfuborgarsvæðið eru með metro, Rennes, Lille, Lausanne, Brescia ofl. Sum þessara kerfa eru tiltölulega nýleg t.d. í Brescia. Stundum þarf bara að hugsa stórt. Höfuðborgarsvæðið mun bara halda áfram að stækka og það sem þarf að gera í samgöngumálum þarf að virka eftir 50 eða 100 ár.

Sammála þessum spekingi: https://www.ruv.is/frett/leggur-til-jardlestakerfi-i-reykjavik