pejun skrifaði:HalistaX skrifaði:Ohhh, ég er svo spenntur fyrir þína hönd! Það er ekkert betra en tilfinningin þegar maður kyssir 30-60hz@1080pPlaystation bless og byggir sér annað hvort sjálfur eða fær verkstæði til þess að gera það fyrir sig eins og ég gerði á sýnum tíma og fá í hendurnar sýna fyrstu alvöru leikjavél!
Líf mitt breyttist að eilífu þegar ég fékk mína í hendurnar snemma í Ágúst 2012! Hef verið svo mikill anti-console maður síðan að fyrsti leikurinn sem ég prufaði á Playstation 4 var Red Dead Redemption 2! OG ÞAÐ ER SKO LEIKUR!!! Oddly enough var það að sjá RDR2 á Playstation að því að console fordómar mínir snarlækkuðu því þessi leikur look'ar og feel'ar eins og stórfenglegur PC leikur með ömurlegum Joystick controls...
Gangi þér innilega vel við að velja og hafna íhlutum í drauma budget build'ið!
Þetta er framtíðar fjárfesting, það má svo sannarlega segja!
>
Ég var einmitt PC maður alla leið og hélt ég myndi ekki snerta playstation, auðvitað var það að veruleika og búinn að spila playstation núna 6-8 ár og þarf að koma mér yfir í PC aftur (viðurkenni aðallega útaf Wow-classic)
Hahahaha skil þig vel! Ég ólst upp við Playstation! Fékk PS1 í fyrsta eða öðrum bekk, svo PS2 í 5 eða 6.bekk og svo loksins mest notuðu Playstation vélina, PS3 í níunda bekk! Þetta var eitt af síðustu 60GB módelunum sem voru til eftir á landinu! Eitt af þeim síðustu sem fór útum hurðina hjá Elko af sinni tegund! Og elskaði ég hana heitt! Hún varð meira að segja 10 ára og var þá enn í fullu fjöri í minni eigu! Entist betur en ég þorði að vona með allar þessar fréttir af ofhitnunum og Yellow Light of Death!
Þetta var sko maskína sem entist! Japanska Stálið! En hún er því miður dauð í dag.... Byrjaði að slá út rafmangi þó það væri ekki kveikt á henni þegar hún lá undir sjónvarpinu hjá mömmu og pabba heima í sveitinni 2018 minnir mig... Held að mamma sé búin að henda Japanska Stál Hlunknum, ég amk gaf henni leyfi til þess bara núna nýlega, hvort það hafi ekki bara verið í Júlí held ég...
Elskaði Playstation og sagði oft, sem ég hef komist að frá Ágúst 2012 til dagsins í dag að var bara stórkostlegur lygi, að mér fynndist Joystic controls betri en Keyboard+Mouse... Hvað var ég að pæla? Og ég sagði þetta oft opinberlega á netinu.... Fólk hefur líklega haldið að ég væri stórkostlega þroskaheftur...
En all good things must come to an end og í Ágúst 2012 þá eignaðist ég minn fyrsta turn og kyssti Playstation bless að eilífu! Er meira að segja enþá með þennan gamla lúna i5 3570k örgjörva sem ég keypti með tölvuni! Af því sem er enþá original í turninum, hef reyndar uppfært kassann sjálfann einu sinni, er 2x4gb 1600mhz RAM kubbar, i5 3570k örgjörvinn sem ég dundaði mér einu sinni við að yfirklukka meira að segja, og móðurborðið! Allt annað hefur verið uppfært, oft ítrekað líkt og með skjákortin!
Skjákorta sagan fyrir forvitna: AMD 6850, AMD 7850, R9 290, 2x R9 290(Mine'aði um það bil 2-300 Ethereum á sínum tíma, hefði átt að sitja á þeim en í staðinn seldi stashið fyrir rúmann 20k til þess að fæða eiturlyfja fíknina sem var að byrja að grassera í mér á þessu tímabili...
), GTX 1080, GTX 1080Ti, GTX 1070, og svo loksins RX 580 sem ég er með í dag og verð að viðurkenna að er hörku kort! Mæli eindregið með því fyrir budget gamerinn!
Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...