Celeron


Höfundur
kermit
Nýliði
Póstar: 15
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 09:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Celeron

Pósturaf kermit » Mið 01. Des 2004 21:59

Eru þessir örgjörvar ekki bara ágætir???

Intel Celeron D 2.8 GHz Prescott



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2727
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Pósturaf SolidFeather » Mið 01. Des 2004 22:15

Nei.



Skjámynd

viddi
Stjórnandi
Póstar: 1310
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 12:50
Reputation: 7
Staðsetning: <?php
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf viddi » Mið 01. Des 2004 22:31

SolidFeather skrifaði:Nei.


ertu með einhver rök fyrir þessu ?



A Magnificent Beast of PC Master Race

Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2727
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Pósturaf SolidFeather » Mið 01. Des 2004 23:03

Nei.



Skjámynd

arnarj
Gúrú
Póstar: 571
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 8
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf arnarj » Mið 01. Des 2004 23:43

þetta er celeron, m.ö.o. budget rusl örgjörvar. Hann bað ekki um rök, hann spurði og fékk skýrt svar.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Fim 02. Des 2004 00:18

arnarj skrifaði:þetta er celeron, m.ö.o. budget rusl örgjörvar. Hann bað ekki um rök, hann spurði og fékk skýrt svar.

En ef að maður er á budget? Eru þeir þá ekki ágætir?



Skjámynd

arnarj
Gúrú
Póstar: 571
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 8
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf arnarj » Fim 02. Des 2004 00:22

2.8 celeron er að afkasta minna en 1.8 p4, hvað menn kalla góð kaup er bara matsatriði. ég held að vélbúnaðargúrúar hérna séu allirflestir á þeirri skoðun að celeron er drasl, annars máttu hvetja til kaupa á celeron mín vegna.

ég sjálfur mundi samt taka AMD anyday framyfir celeron ef ég væri á budget. En það er jú bara mitt álit.




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Fim 02. Des 2004 11:30

The perfect answer




ParaNoiD
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 307
Skráði sig: Fim 26. Feb 2004 21:08
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ParaNoiD » Fim 02. Des 2004 11:36

ef þetta er semsagt 478 Celeron D örgjörvi þá er þetta bara ristavél og skilar minni orku en venjulegur Celeron örgjörvi.




wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fim 02. Des 2004 12:37

Æ hvað það er pirrandi að horfa upp á hvern vaktaran á fætur öðrum tala af þvílíkri vanþekkingu, það er ekki hægt að nota sömu tugguna endalaust í tölvumálum þar sem hlutir breytast svo hratt.

Celeron hafa í gegn um tíðina skiptst á því að vera algjört skran og því að vera pottþétt kaup. Þegar Celeron kom fyrst til sögunar var hann að gera á við margfalt dýrari Pentium III örgjörva og hélt sessi sínum sem afbragðs örgjörvi til yfirklukkunar allt fram að 1000MHz, þegar pentium 4 línan kom til sögunar og celeron örgjörvarnir þurftu að þola það að nota aðeins 128KB skyndiminni til að fylla 20 stiga pípunina og 400MHz brautarhraða fyrir innra minni tölvunar. Það hefti þá og gerði þá að einhverju fjölfatlaðasta örgjörva sögunar.

Með tilkomu D línunar var skyndiminnið tvöfaldað (256KB, þjafn mikið og gömlu AthlonXP TB og nýju sempron gjörvarnir nota) og brautarhraðinn aukinn upp í 533MHz. Jafnvel þótt pípan hafi lengst upp í 31 stig þá er eru nýju Celeron D gjörvarnir miklu betri en þeir þeir gömlu og eru betri kaup en samsvarandi Sempron (ef frá er skilinn 3100+ sem er S754 örri).

Sjá samanburð hér:
http://www.digit-life.com/articles2/lowend-cpus-aug2k4/index.html

Það skal tekið fram að S775 Celeron gjörvarnir eru ekkert hraðvirkari en S478, en S478 móðurborð eru mun ódýrari og því betri kostur ef menn ætla á annað borð að spara pening með Celeron D kaupum.

Í augnablikinu er Celeron D 2.66GHz á 8.950Kr og ætti að vera hæglega yfirklukkanlegur upp í 3.2-3.4GHz, það þýðir ekki að hann sé jafn hraður og 3.4GHz P4 en þó nokkuð fínn í flest.

Ef að þú ætlar að fá þér leikjavél ræð ég þér þó eindregið frá Celeron kaupum, þá er Sempron 3100+ besti ódýrir örgjörvinn, hann er fáanlegur á 12.650Kr og er að slaga upp í afköst 3.4GHz P4 í leikjum. Svo ekki sé minnst á yfirklukk, en menn hafa náð 45% hærri klukkuhraða á þeim og eru þeir þá orðnir þræl magnaðir.




Höfundur
kermit
Nýliði
Póstar: 15
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 09:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf kermit » Fim 02. Des 2004 17:19

Þakka ykkur kærlega fyrir þetta.

Held að ég fari þá að spá í sempron 3100+




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Fim 02. Des 2004 17:41

eða AMD 64 3200.
Og miklu frekar.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Fim 02. Des 2004 18:57

hahallur skrifaði:eða AMD 64 3200.
Og miklu frekar.

Ertu að meina örgjörvan sem kostar tvöfalt meira en Semproninn? Ertu að meina örgjörvan sem er alveg örugglega ekki tvöfalt betri en Semproninn?




wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fös 03. Des 2004 12:41

Það virðist vera sem ansi margir hérna á þráðunum séu fæddir með einhverja silfurskeið í munnvikinu því að það virðist alltaf vera rétta svarið að kasta meiri pening í uppfærsluna.

Málið með þennan bransa er að það er ekkert rétt svar, þetta er samsuða margra þátta: fjárráða, notkunar, uppfærslumöguleika, afkasta o.s.fv.

Fyrir marga er fyrsti þátturinn sá mikilvægasti og þá er málið að reyna að sníða sér stakk eftir vexti og þá er Sempron 3100+ afar góður kostur í leikina.

Það er það sama með skjákort, það segja allir þér að kaupa 6800Ultra eða X800XT PE eins og maður hafi efni á því! Það væri gaman að vita hvaðan menn hér á vaktinni fá alla þessa peninga :)



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6466
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 300
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fös 03. Des 2004 13:37

háhallur fær þá úr ísvélinna hjá pabba sínum.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Sun 05. Des 2004 12:24

wICE_man skrifaði:Það virðist vera sem ansi margir hérna á þráðunum séu fæddir með einhverja silfurskeið í munnvikinu því að það virðist alltaf vera rétta svarið að kasta meiri pening í uppfærsluna.

Málið með þennan bransa er að það er ekkert rétt svar, þetta er samsuða margra þátta: fjárráða, notkunar, uppfærslumöguleika, afkasta o.s.fv.

Fyrir marga er fyrsti þátturinn sá mikilvægasti og þá er málið að reyna að sníða sér stakk eftir vexti og þá er Sempron 3100+ afar góður kostur í leikina.

Það er það sama með skjákort, það segja allir þér að kaupa 6800Ultra eða X800XT PE eins og maður hafi efni á því! Það væri gaman að vita hvaðan menn hér á vaktinni fá alla þessa peninga :)


Já þetta reyni ég að predika líka, maður verður að sníða sér stakk eftir vexti. Ég reyni einmitt alltaf að benda mönnum á aðra möguleika ef mér þykir það sem þeir eru að íhuga að kaupa sér mjög dýrt. Sumir eru náttúrulega til í að borga tvöfalt hærra verð fyrir 2 fps auka...




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Sun 05. Des 2004 12:36

Ég kaupi allt á heildsölu og fæ vaskin endurgreiddan :8) :D

Ætti kannski að huggsa um það áður en ég segi ykkur að kaupa eitthvað.

BTW gnarr þá hef ég keypt nánanst allt í tölvunni minni, en nátla í gegnum pabba á heildsölu :P