Rakst á þessa síðu fyrir tilviljun og datt í hug amk próf að spurja hér.
Er einhver möguleiki á að fá hjálp við Rstudio?? Ég er semsagt að fara í próf á næstunni og kann mjöööög lítið í þessu

Öll hjálp er vel þegin

kv Óli
emilbesti skrifaði:Af minni reynslu er lang best að fikta sig bara aðeins áfram og vera duglegur að gúgla, ég get mögulega leiðbeint þér eitthvað með þetta en það er lítið hægt að hjálpa þér ef við vitum ekki hvað þig vantar hjálp við.
Edit:
Er þetta mögulega próf í líkinda og tölfræði uppi í HÍ?
Hjaltiatla skrifaði:Getur prófað að tékka á þessum kúrs á Udemy.
https://www.udemy.com/r-programming/
Ef þú ert í tímaþröng þá er 80/20 reglan ágæt (fókusa á stöffið sem skiptir mestu máli sem þú telur að komi á prófi en passa uppá að ná hlutunum sem tengir efnið saman svo þú skiljir efnið).
Btw er ekki sjálfur búinn að fara í gegnum þennan kúrs (þetta er í raun bara best rate-aði R/rstudio kúrsinn á Udemy)
Ólafur skrifaði:Snilld, get tékkað á þessu takk!
Enn ég er samt í rosalegri tímaþröng með þetta Lokaverkefni (s.s Lokaverkefni ekki próf , ruglaðist aðeins)
er að vinna í annari ritgerð samhliða þessu verkefni, ég bara kann minnst á þetta Rstudio (sirka 20-30% sem ég tel mig kunna.)
BTW get ég nálgast þetta Udemy prógram hvenær sem er?? Að ég þurfi ekki að kaupa það aftur ef til vill illa færi?![]()