Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1128
- Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
- Reputation: 8
- Staðsetning: Rivertown
- Staða: Ótengdur
Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Ég er að spá i nýjan síma og er aðallega að spá í annað hvort Samsung Galaxy S9+ eða LG G7 en er með smá valkvíða Einhver annar sími sem menn mæla kannski frekar með (allt nema iPhone)?
Ég hallast aðeins að Samsung símanum, hann er örlítið stærri og með betra batterí en ég er samt svoldið óákveðinn, hef átt bæði Samsung og LG og kann vel við bæði merkin. Ætla að skoða báða símana í verslun á morgun, en hvað segið þið?

Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
-
- FanBoy
- Póstar: 753
- Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
- Reputation: 117
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Myndi taka galaxy allan daginn. Lg hafa verið þektir fyrir að vera með frekar slæmt software support
B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 985
- Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
- Reputation: 105
- Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Ég mæli með S9+ yfir LG G7.
Ryzen 7 5800X | ASRock B550M Steel Legend | Corsair 32GB (2x16) LPX 3200Mhz | RTX 3060ti | Seasonic Focus+ Gold | ATX Lancool II
-
- Vaktari
- Póstar: 2542
- Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
- Reputation: 43
- Staðsetning: Kópavogur
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Viggi skrifaði:Myndi taka galaxy allan daginn. Lg hafa verið þektir fyrir að vera með frekar slæmt software support
ha ?
Hvenær og hvar hefur það áhrif á þig
Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Er búinn að vera með Note 9 í nokkra daga núna, ef S9+ er einhvað eins og Note-inn að þá myndi ég sjálfsagt stökkva á hann án þess að vita einhvað um LG G7.
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1128
- Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
- Reputation: 8
- Staðsetning: Rivertown
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Er enginn hér sem mælir eitthvað frekar með LG? Og hvernig eru símarnir að standa sig í myndatökum á tónleikum? Fólk á sviði hefur alltaf verið alltof bjart í andlitinu á öllum símum mínum til þessa.
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 310
- Skráði sig: Þri 05. Ágú 2014 12:11
- Reputation: 64
- Staða: Tengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Er bara mjög sáttur við minn S9+. Myndavélin að sjálfsögðu mjög góð og ekki skemmir fyrir 2x optical zoom á þeim síma.
-
- Vaktari
- Póstar: 2542
- Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
- Reputation: 43
- Staðsetning: Kópavogur
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Hef bæði notað LG GX línuna og Galaxy línuna.
Mjög svipaðir símar í nær öllu, mesti munurinn er líklegast hvernig þeir nota Android.
Þá finnst mér Samsung áberandi verri þar sem síminn er TROÐINN af rusli frá Samsung sem ég amk hef 0 áhuga á að nota. Og maður virðist engan veginn geta losnað almennilega við.
Held að mér hafi fundist LGG2 og LGG4 vera þæginlegustu símarnir sem ég hef notað, ásamt iphone 4 þegar hann var nýr.
Mun amk ekki fá mér Galaxy S9 eða Samsung aftur í bráð held ég.
Mjög svipaðir símar í nær öllu, mesti munurinn er líklegast hvernig þeir nota Android.
Þá finnst mér Samsung áberandi verri þar sem síminn er TROÐINN af rusli frá Samsung sem ég amk hef 0 áhuga á að nota. Og maður virðist engan veginn geta losnað almennilega við.
Held að mér hafi fundist LGG2 og LGG4 vera þæginlegustu símarnir sem ég hef notað, ásamt iphone 4 þegar hann var nýr.
Mun amk ekki fá mér Galaxy S9 eða Samsung aftur í bráð held ég.
Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1744
- Skráði sig: Sun 02. Jan 2011 12:37
- Reputation: 41
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
ÓmarSmith skrifaði:Hef bæði notað LG GX línuna og Galaxy línuna.
Mjög svipaðir símar í nær öllu, mesti munurinn er líklegast hvernig þeir nota Android.
Þá finnst mér Samsung áberandi verri þar sem síminn er TROÐINN af rusli frá Samsung sem ég amk hef 0 áhuga á að nota. Og maður virðist engan veginn geta losnað almennilega við.
Held að mér hafi fundist LGG2 og LGG4 vera þæginlegustu símarnir sem ég hef notað, ásamt iphone 4 þegar hann var nýr.
Mun amk ekki fá mér Galaxy S9 eða Samsung aftur í bráð held ég.
Var að fectory reseta S8+ hjá mér og það er Samsung folder þarna með heilum 3 öppum í... hvað ertu að tala um að hann sé troðinn?
edit>> sorry veit ekkert um LG símana, til að hafa þetta on topic
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1577
- Skráði sig: Mán 11. Maí 2009 16:44
- Reputation: 95
- Staðsetning: 600
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Fengi mér örugglega G7. LG símar hafa reynst mér mun betur en Samsung.
Eplakarfan: Apple Watch S8 | iPad Pro M1 | Macbook Pro 14” M3 | Apple TV 4K | iPhone 16 Pro Max | Airpods Pro | Airpods Pro 2 | iMac 27”
Tölvan: PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro | ThinkPad T14
Útiveran: Honda CR-V 2021 | Land Cruiser 150 | Vsett 11+ | Bettinsoli | Savage B22 |
Tölvan: PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro | ThinkPad T14
Útiveran: Honda CR-V 2021 | Land Cruiser 150 | Vsett 11+ | Bettinsoli | Savage B22 |
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1128
- Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
- Reputation: 8
- Staðsetning: Rivertown
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
ÓmarSmith skrifaði:Hef bæði notað LG GX línuna og Galaxy línuna.
Mjög svipaðir símar í nær öllu, mesti munurinn er líklegast hvernig þeir nota Android.
Þá finnst mér Samsung áberandi verri þar sem síminn er TROÐINN af rusli frá Samsung sem ég amk hef 0 áhuga á að nota. Og maður virðist engan veginn geta losnað almennilega við.
Held að mér hafi fundist LGG2 og LGG4 vera þæginlegustu símarnir sem ég hef notað, ásamt iphone 4 þegar hann var nýr.
Mun amk ekki fá mér Galaxy S9 eða Samsung aftur í bráð held ég.
Ég er sammála Kristjáni, hvað ertu að tala um? Ég kannast reyndar við það að á einhverjum síma eða símum (gæti hafa verið Samsung, man ekki alveg) sem ég hef átt hef ég séð eitthvað af óþarfa öppum í gangi eða amk. inná símanum við fyrstu ræsingu en ég kannast hins vegar ekki við að það hafi eitthvað verið að bögga mann eða verið eitthvað erfitt að slökkva á því.
ColdIce skrifaði:Fengi mér örugglega G7. LG símar hafa reynst mér mun betur en Samsung.
Eins og ég nefndi í upphafsinnleggi þá þekki ég Samsung og LG jafnvel þar sem ég hef átt bæði og hef ekki lent í neinu veseni nema á Samsung Galaxy S2 þar sem galli gerir það að verkum að hann segir að það vanti pláss þegar það eru bara örfá öpp inná honum og nóg af plássi en ég geri ráð fyrir því að það vandamál sé ekki í nýjasta módelinu. LG G3 síminn minn hefur reynst mér vel fyrir utan það að ég missti hann í gólfið og braut skjáinn sem gerðist svo aftur með alveg eins síma sem ég keypti á slikk fyrir stuttu En það er allt í lagi, ég var orðinn þreyttur á hve léleg myndavélin var í lítilli birtu og nýjustu símarnir eru víst þúsund sinnum betri á því sviði, þarf bara að passa að missa næsta síma ekki líka í gólfið
Ég ákvað annars fyrr í dag að festa kaup á Samsung símanum og ætlaði mér að versla við Símann þar sem hann er ódýrastur hjá þeim (124.990 kr) og það stendur á síðunni þeirra að ef maður kaupir símann á raðgreiðslum þá er enginn aukakostnaður svo hann kostar það sama og staðgreitt, sem hentar mér vel þar sem ég er ekki alveg svona ríkur eins og er.
En svo þegar ég mætti í verslunina þá komst ég að því að ósýnilega smáaletrið er að maður fær þennan díl á svokölluðum léttgreiðslum bara ef maður er búinn að vera viðskiptamaður Símans síðustu 6 mánuði, síðan getur maður ekki borgað raðgreiðslur hjá þeim með Visa, bara Netgíró, og þá er síminn ekki lengur ódýrastur hjá þeim
Þannig að núna stendur valið milli þess að kaupa hann annað hvort hjá Elko eða Nova. Ef ég kaupi hann hjá Elko á raðgreiðslum þá er það um 11 þúsund á mánuði í 12 mánuði sem endar í 133.946 kr, en 11 þúsund á mánuði er svoldið hátt fyrir mig svo ég hallast meira að Nova þar sem ég þarf bara að borga aðeins yfir 7 þúsund á mánuði í 18 mánuði en þá endar síminn í 140.670 kr. Svo fylgir þar að vísu 50 gb inneign með, en miðað við endalegt verð hjá Elko þá væri ég í raun að borga um 7 þúsund eða svo fyrir þá inneign og sú inneign kostar eins og er um 5 þúsund ein og sér, svo ég er með smá valkvíða
Það er greinilega ekki nóg að vera búinn að velja rétta símann, það þarf líka að velja rétta söluaðilann
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
verð að segja mig langar að prufa nokia símann næst. líst rosavel á hann og clean android á honum superfast og frekar öflugur er búin að vera samsung maður síðustu ár en held ég prufi nokia næst
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
miðað við mína reynslu af samsung símum já og bara alment allt það sem ég hef átt frá samsung (sem er ekki góð) þá færi ég allan daginn frekar í lg reyni helst að forðast allt sem er merkt samsung eins og Guðjón forðast þvottavélarnar frá þeim.
mín reynsla af lg símum hefur bara verið góð sérstaklega af nexus 5 sem er örugglega einn sá besti sími sem ég hef átt í gegnum tíðina

i5-4690k @ 4.5ghz / z97x-GAMING 5 / gigabyte G1 gaming gtx 970 4gb / Mushkin 8GB DDR3 1600MHz / 128GB Mushkin Chronos / HDD 3Tb / Noctua NH-D15 / Fractal Design Define R5 / 28" BenQ GW2870h / 24" BenQ GL2450
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 310
- Skráði sig: Þri 05. Ágú 2014 12:11
- Reputation: 64
- Staða: Tengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
DoofuZ skrifaði:Ég ákvað annars fyrr í dag að festa kaup á Samsung símanum og ætlaði mér að versla við Símann þar sem hann er ódýrastur hjá þeim (124.990 kr) og það stendur á síðunni þeirra að ef maður kaupir símann á raðgreiðslum þá er enginn aukakostnaður svo hann kostar það sama og staðgreitt, sem hentar mér vel þar sem ég er ekki alveg svona ríkur eins og er.
En svo þegar ég mætti í verslunina þá komst ég að því að ósýnilega smáaletrið er að maður fær þennan díl á svokölluðum léttgreiðslum bara ef maður er búinn að vera viðskiptamaður Símans síðustu 6 mánuði, síðan getur maður ekki borgað raðgreiðslur hjá þeim með Visa, bara Netgíró, og þá er síminn ekki lengur ódýrastur hjá þeim
Þannig að núna stendur valið milli þess að kaupa hann annað hvort hjá Elko eða Nova. Ef ég kaupi hann hjá Elko á raðgreiðslum þá er það um 11 þúsund á mánuði í 12 mánuði sem endar í 133.946 kr, en 11 þúsund á mánuði er svoldið hátt fyrir mig svo ég hallast meira að Nova þar sem ég þarf bara að borga aðeins yfir 7 þúsund á mánuði í 18 mánuði en þá endar síminn í 140.670 kr. Svo fylgir þar að vísu 50 gb inneign með, en miðað við endalegt verð hjá Elko þá væri ég í raun að borga um 7 þúsund eða svo fyrir þá inneign og sú inneign kostar eins og er um 5 þúsund ein og sér, svo ég er með smá valkvíða
Það er greinilega ekki nóg að vera búinn að velja rétta símann, það þarf líka að velja rétta söluaðilann
Það er einnig hægt að fá þessa síma á 110þúsund hjá Heimkaup
https://www.heimkaup.is/samsung-galaxy-s9-plus
Ég fékk minn á tilboði þar í sumar á 104þúsund.
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Myndi persónulega ekki skoða annað en Nokia ef ég ætlaði að kaupa Android síma í dag. Virkilega solid tæki með hreinu Android sem fær uppfærslur nánast um leið og þær koma, þarf ekki meira til að selja mig allavega.
https://tolvutek.is/leita/Nokia
https://tolvutek.is/leita/Nokia
Löglegt WinRAR leyfi
-
- FanBoy
- Póstar: 753
- Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
- Reputation: 117
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Myndi líka skoða oneplus 6 ef þú vilt clean android. Virkilega vel speccaðir símar má flottu verði en fúla er að maður verður að flytja hann inn og þá verður maður að gera við sjálfur ef eithvað kemur uppá. En ættli að maður fari ekki í næsta samsung upp á ábyrgð hér og allt það
B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1128
- Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
- Reputation: 8
- Staðsetning: Rivertown
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
B0b4F3tt skrifaði:Það er einnig hægt að fá þessa síma á 110þúsund hjá Heimkaup
https://www.heimkaup.is/samsung-galaxy-s9-plus
Ég fékk minn á tilboði þar í sumar á 104þúsund.
Takk fyrir að benda mér á þetta, gleymdi alveg að tjékka á Heimkaup. Var að staðfesta kaup á símanum með raðgreiðslum í gegnum Netgíró og fæ símann heimsendan milli 17 og 22 í dag
Takk allir fyrir aðstoðina Nú þarf ég bara að kaupa hulstur eða einhvers konar vörn utanum símann svo hann endi ekki á gólfinu hjá mér með brotinn skjá eins og allir hinir
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Hvernig eru lg v30 símarnir, er það ekki flaggskipið frá lg.
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
isr skrifaði:Hvernig eru lg v30 símarnir, er það ekki flaggskipið frá lg.
V30 og G7 eru "flaggskipin" í dag. V30 er samt orðinn ársgamall. Þú getur ímyndað þér að VXX línan er svipuð og Note símarnir frá Samsung og GX línan er svipuð og Galaxy.
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
dori skrifaði:isr skrifaði:Hvernig eru lg v30 símarnir, er það ekki flaggskipið frá lg.
V30 og G7 eru "flaggskipin" í dag. V30 er samt orðinn ársgamall. Þú getur ímyndað þér að VXX línan er svipuð og Note símarnir frá Samsung og GX línan er svipuð og Galaxy.
Takk fyrir þetta, er neflilega að skoða dual sim síma, þess vegna datt mér í hug að forvitnast um v30 símann.
Re: Samsung Galaxy S9+ eða LG G7? Eða...?
Á sjálfur LG G6 síma sem ég er ánægður með að flestu leiti en þó ekki hvað hann endist stutt yfir daginn.
Sé á netinu að G7 og V30 eru með enn verri rafhlöðuendingu en G6.
Það er eitthvað til að hafa í huga ef mikil notkun verður á símanum.