Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
-
Höfundur - Bara að hanga
- Póstar: 1582
- Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
- Reputation: 58
- Staða: Ótengdur
Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Varð bara að henda í smá væluþráð
MSI GTX1080 Gaming X skjákortið mitt sem var akkurat að skríða yfir 2 ára aldurinn fyrr í sumar (svo ábyrgðin er farin) ákvað bara alltíeinu að deyja.
Ég skellti mér í sumarfrí og slökkti á tölvunni á meðan, þegar ég ætlaði svo að kveikja á henni þegar heim var komið þá blikkar ljósið á skjákortinu einusinni og svo slökknar á öllu. Kippti því út og prófaði gamalt skjákort sem ég átti (hágæða AMD Radeon 7770) þá nátturúrulega flaug allt í gang.
Hefur einhver lent í svipuðu með þessi skjákort og er eitthvað sem ég get gert í þessu?
MSI GTX1080 Gaming X skjákortið mitt sem var akkurat að skríða yfir 2 ára aldurinn fyrr í sumar (svo ábyrgðin er farin) ákvað bara alltíeinu að deyja.
Ég skellti mér í sumarfrí og slökkti á tölvunni á meðan, þegar ég ætlaði svo að kveikja á henni þegar heim var komið þá blikkar ljósið á skjákortinu einusinni og svo slökknar á öllu. Kippti því út og prófaði gamalt skjákort sem ég átti (hágæða AMD Radeon 7770) þá nátturúrulega flaug allt í gang.
Hefur einhver lent í svipuðu með þessi skjákort og er eitthvað sem ég get gert í þessu?
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Myndi heyra í söluaðila þar sem kortið var í ábyrgð og kanna hvort þeir væru tilbúnir að hafa samband við framleiðanda og óska eftir "goodwill" ábyrgðartilfelli þar sem kortið er að bila svona nýlega eftir að ábyrgð líkur.
Löglegt WinRAR leyfi
-
- Kóngur
- Póstar: 6396
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 463
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Tengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Eru ekki allir framleiðendur farnir að bjóða 3-5 ára ábyrgð?
CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow
-
- Fiktari
- Póstar: 81
- Skráði sig: Mið 03. Okt 2012 13:22
- Reputation: 3
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Það er 5 ára kvörtunarfrestur á Íslandi talaðu við söluaðila ef þeir vilja ekkert gera talaðu við Neytendasamtökin.
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
MSI eru hættir að bjóða upp á 3 ára ábyrgð á skjákortum ef ég man rétt.
Ástæðan var mining.
Ef þú átt gamla 3 ára ábyrgðarblaðið þá ætti það að teljast sem bindandi 3 ára.
Ástæðan var mining.
Ef þú átt gamla 3 ára ábyrgðarblaðið þá ætti það að teljast sem bindandi 3 ára.
Síðast breytt af olihar á Mið 25. Júl 2018 15:43, breytt samtals 1 sinni.
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1051
- Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
- Reputation: 58
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Þú mátt ekki fara í sumarfrí, þá fer tölvan í fílu.
Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m
-
Höfundur - Bara að hanga
- Póstar: 1582
- Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
- Reputation: 58
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Kíkti með kortið niður í att.is þar sem það var keypt (02.06.2016) og hann sagðist ekki vongóður en ætlaði að athuga hvort það væri eitthvað sem þeir gætu gert fyrir mig.
Kem með update hérna þegar ég fæ svör frá þeim
Kem með update hérna þegar ég fæ svör frá þeim
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1043
- Skráði sig: Fim 06. Jan 2011 12:39
- Reputation: 20
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Það er helvíti lélegt hjá @tt
Twenty years from now you will be more disappointed by the things that you didn't do than by the ones you did do
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
tanketom skrifaði:Það er helvíti lélegt hjá @tt
Eiga þeir að taka á sig ábyrgðina ? Og fyrir löngu eru tölvuverslanir búnar að klóra augun úr hvorum öðrum !
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1043
- Skráði sig: Fim 06. Jan 2011 12:39
- Reputation: 20
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
jonsig skrifaði:tanketom skrifaði:Það er helvíti lélegt hjá @tt
Eiga þeir að taka á sig ábyrgðina ? Og fyrir löngu eru tölvuverslanir búnar að klóra augun úr hvorum öðrum !
Èg fèkk nýlega viðgerð á 980ti korti sem var einmitt ný komið úr ábyrð hjá tölvulistanum án nokkurn kosnað
Twenty years from now you will be more disappointed by the things that you didn't do than by the ones you did do
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Það er hægt að vera heppinn. Þeir hafa trassað að skrá ábyrgðina kannske.
-
Höfundur - Bara að hanga
- Póstar: 1582
- Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
- Reputation: 58
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Fékk svar frá @tt áðan. Það eina sem hann sagðist geta gert fyrir mig er að gefa mér 12.25% afslátt af eins skjákorti.
-
- Vaktari
- Póstar: 2105
- Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
- Reputation: 175
- Staðsetning: Heima
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Ég sé að það stendur að þetta sé úr frumvarpi um neytendalög, en eru þetta alveg gagnslaus rök?
https://www.althingi.is/altext/128/s/0904.html
Og
https://www.althingi.is/altext/128/s/0904.html
IV. KAFLI
Eiginleikar söluhlutar, gallar o.fl.
15. gr.
Eiginleikar söluhlutar.
Söluhlutur skal, hvað varðar tegund, magn, gæði, aðra eiginleika og innpökkun, fullnægja þeim kröfum sem leiðir af samningi.
Ef annað leiðir ekki af samningi skal söluhlutur:
a. henta í þeim tilgangi sem sambærilegir hlutir eru venjulega notaðir til;
b. hafa þá eiginleika til að bera sem neytandinn mátti vænta við kaup á slíkum söluhlut að því er varðar endingu og annað;
c. henta í ákveðnum tilgangi sem seljandinn vissi eða mátti vita um þegar kaup voru gerð, nema leiða megi af atvikum að neytandi hafi ekki byggt á sérþekkingu seljanda og mati hans eða hafi ekki haft sanngjarna ástæðu til þess;
d. hafa þá eiginleika til að bera sem seljandi hefur vísað til með því að leggja fram prufu eða líkan;
e. vera í venjulegum eða öðrum forsvaranlegum umbúðum sem nauðsynlegar eru til að varðveita og vernda hann;
f. vera í samræmi við þær kröfur opinbers réttar sem gerðar eru í lögum eða opinberum ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli laga á þeim tíma sem kaup eru gerð, ef neytandinn ætlar ekki að nota hlutinn á þann hátt að kröfurnar séu þýðingarlausar;
g. vera laus við kvaðir frá þriðja manni, t.d. eignarrétt eða veðrétt. Söluhluturinn skal einnig vera laus við kröfur þriðja manns um kvaðir í hlutnum, enda þótt þeim sé mótmælt, nema kröfurnar séu augljóslega órökstuddar.
Og
16. gr.
Gallar.
Söluhlutur telst vera gallaður ef:
a. hann er ekki í samræmi við þær kröfur sem fram koma í 15. gr.;
b. seljandi hefur við kaupin vanrækt að gefa upplýsingar um atriði varðandi hlutinn eða not hans sem seljandi hlaut að þekkja til og neytandi mátti ætla að hann fengi upplýsingar um, enda megi ætla að vanrækslan hafi haft áhrif á kaupin;
c. hann svarar ekki til þeirra upplýsinga sem seljandi hefur við markaðssetningu eða á annan hátt gefið um hlutinn, eiginleika hans eða notkun og ætla má að hafi haft áhrif á kaupin;
d. nauðsynlegar upplýsingar um uppsetningu, samsetningu, notkun, umönnun og geymslu fylgja ekki söluhlut.
Regla c-liðar 1. mgr. gildir með sama hætti þegar söluhlutur svarar ekki til þeirra upplýsinga sem annar en seljandi hefur gefið á umbúðum hlutarins, í auglýsingum eða við aðra markaðssetningu á vegum seljanda eða fyrri söluaðila.
Neytandi getur ekki borið neitt það fyrir sig sem galla sem hann vissi eða mátti vita um þegar kaupin voru gerð.
Neytandi getur ekki borið fyrir sig galla ef orsök gallans má rekja til efniviðar sem neytandinn hefur sjálfur lagt til. Þetta gildir þó ekki ef seljandinn hefði átt að ráða neytanda frá notkun efnisins vegna óhentugra eiginleika þess.
i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|
-
- Fiktari
- Póstar: 81
- Skráði sig: Mið 03. Okt 2012 13:22
- Reputation: 3
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
https://www.ns.is/is/content/kvortunarfrestur-samkvaemt-logum-um-neytendakaup
Hér eru dæmi af vefsíðu neytendasamtakanna
Hér er directly sagt á vefsíðu neytendasamtakanna að tölvuíhlutir beri tveggja ára ábyrgð.
Hér eru dæmi af vefsíðu neytendasamtakanna
Meginreglan er að neytandi hefur tvö ár frá afhendingu söluhlutar til að kvarta vegna galla. Í lögunum er hins vegar einnig kveðið á um lengri frest, eða fimm ár frá afhendingu. Sú regla gildir um hluti sem ætlaður er verulega lengri endingartími en gerist almennt með hluti. Samkvæmt framkvæmdinni hér á landi hafa til dæmis þvottavélar, ísskápar, sófasett o.þ.h. verið felld undir fimm ára regluna.
Neytendasamtökin hafa einnig fengið margar fyrirspurnir hvað varðar kvörtunarfrest vegna galla á hlutum sem úrbætur hafa farið fram á. Í sumum tilvikum hafa fartölvur til dæmis farið í viðgerð innan tveggja ára og seljandi greitt viðgerðina á grundvelli laganna en sama bilun komið aftur fram eftir að meira en tvö ár eru liðin frá kaupunum. Við þær aðstæður hafna seljendur stundum ábyrgð á þeim forsendum að meira en tvö ár séu liðin frá kaupum. Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa hefur hins vegar talið að við viðgerð hefjist nýtt ábyrgðartímabil hvað umræddan hluta varðar og það kemur einnig fram í greinargerð með lögum um neytendakaup. Ef skipt er til dæmis um móðurborð í tölvu vegna galla eftir eitt ár gildir ábyrgðin á móðurborðinu þar til tölvan er þriggja ára gömul. Aðrir hlutir tölvunnar myndu hins vegar falla úr ábyrgð eftir tvö, eða eftir atvikum fimm ár, frá kaupum.
Hér er directly sagt á vefsíðu neytendasamtakanna að tölvuíhlutir beri tveggja ára ábyrgð.
-
- Vaktari
- Póstar: 2542
- Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
- Reputation: 43
- Staðsetning: Kópavogur
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Og þar er einnig sagt
"eða eftir atvikum fimm ár, frá kaupum."
"eða eftir atvikum fimm ár, frá kaupum."
Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1268
- Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
- Reputation: 143
- Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
5 ár er fyrir stór raftæki, sbr ofna, ísskápa, þvottavélar, þurrkara.
2 ár er grunnur fyrir önnur raftæki, sbr skjákort.
2 ár er grunnur fyrir önnur raftæki, sbr skjákort.
Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það
-
Höfundur - Bara að hanga
- Póstar: 1582
- Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
- Reputation: 58
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Ákvað að kippa því í sundur og sjá hvort ég sæi augljóst vandamál. Þetta virðist allavegana ekki vera eitthvað sem hægt er að gera við
-
- Kóngur
- Póstar: 6396
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 463
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Tengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Xovius skrifaði:Ákvað að kippa því í sundur og sjá hvort ég sæi augljóst vandamál. Þetta virðist allavegana ekki vera eitthvað sem hægt er að gera við
er þetta ekki bara korter í bökunarofninn?
CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow
-
- FanBoy
- Póstar: 778
- Skráði sig: Mið 05. Maí 2010 15:23
- Reputation: 45
- Staðsetning: Grafarholt
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Myndi prófa RMA hjá msi, tapar engu á því
Fractal Design R4 White | MSI Z270 Gaming Pro Carbon | i7 7700K @4.5GHz | Noctua NH-D15 | 32GB Corsair DDR4 @3200MHz | MSI GTX 1080 Ti Gaming X 11GB | 250GB Samsung 850 EVO SSD | Corsair RM750x | 27" ASUS PG279Q | Presonus 22VSL | M-Audio BX5a
Fractal Design R5 Black | FreeNAS | Gigabyte M3 Sniper | i7 3770K @3.9GHz | Noctua NH-U12s | 24GB DDR3 | 10TB | Eaton 5SC 1000i UPS
Fractal Design R5 Black | FreeNAS | Gigabyte M3 Sniper | i7 3770K @3.9GHz | Noctua NH-U12s | 24GB DDR3 | 10TB | Eaton 5SC 1000i UPS
-
- Kóngur
- Póstar: 6496
- Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
- Reputation: 315
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Xovius skrifaði:Ákvað að kippa því í sundur og sjá hvort ég sæi augljóst vandamál. Þetta virðist allavegana ekki vera eitthvað sem hægt er að gera við
Er PCB'ið sjálft brunnið?
"Give what you can, take what you need."
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Storm skrifaði:https://www.ns.is/is/content/kvortunarfrestur-samkvaemt-logum-um-neytendakaup
Hér eru dæmi af vefsíðu neytendasamtakannaMeginreglan er að neytandi hefur tvö ár frá afhendingu söluhlutar til að kvarta vegna galla. Í lögunum er hins vegar einnig kveðið á um lengri frest, eða fimm ár frá afhendingu. Sú regla gildir um hluti sem ætlaður er verulega lengri endingartími en gerist almennt með hluti. Samkvæmt framkvæmdinni hér á landi hafa til dæmis þvottavélar, ísskápar, sófasett o.þ.h. verið felld undir fimm ára regluna.Neytendasamtökin hafa einnig fengið margar fyrirspurnir hvað varðar kvörtunarfrest vegna galla á hlutum sem úrbætur hafa farið fram á. Í sumum tilvikum hafa fartölvur til dæmis farið í viðgerð innan tveggja ára og seljandi greitt viðgerðina á grundvelli laganna en sama bilun komið aftur fram eftir að meira en tvö ár eru liðin frá kaupunum. Við þær aðstæður hafna seljendur stundum ábyrgð á þeim forsendum að meira en tvö ár séu liðin frá kaupum. Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa hefur hins vegar talið að við viðgerð hefjist nýtt ábyrgðartímabil hvað umræddan hluta varðar og það kemur einnig fram í greinargerð með lögum um neytendakaup. Ef skipt er til dæmis um móðurborð í tölvu vegna galla eftir eitt ár gildir ábyrgðin á móðurborðinu þar til tölvan er þriggja ára gömul. Aðrir hlutir tölvunnar myndu hins vegar falla úr ábyrgð eftir tvö, eða eftir atvikum fimm ár, frá kaupum.
Hér er directly sagt á vefsíðu neytendasamtakanna að tölvuíhlutir beri tveggja ára ábyrgð.
Reyndar ekki. Það er verið að tala um að ef skipt er um íhlut sem er með tveggja ára ábyrgð í tölvu sem var keypt fyrir ári þá fær sá íhlutur nýja tveggja ára ábyrgð (þ.e. hann fellur úr ábyrgð 3 árum eftir að tölvan var keypt). Aðrir íhlutir í tölvunni haldast undir upphaflegu ábyrgðinni sem er 2 eða 5 ár eftir atvikum.
Það sakar ekki að láta reyna á hvort skjákort séu falli undir 5 ára regluna þó mig gruni að þau geri það ekki.
Minuz1 skrifaði:5 ár er fyrir stór raftæki, sbr ofna, ísskápa, þvottavélar, þurrkara.
2 ár er grunnur fyrir önnur raftæki, sbr skjákort.
Þetta er ekki metið út frá stærð raftækisins. T.d. hafa fartölvur og sjónvörp (óhæð stærð) minnir mig verið flokkaðar sem 5 ára hlutir. Vissulega gerir maður svo ráð fyrir að stóru eldhúsraftækin lifi öll önnur raftæki heimilisins.
-
- Geek
- Póstar: 828
- Skráði sig: Mið 02. Apr 2008 13:14
- Reputation: 108
- Staðsetning: Vestmannaeyjar
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Ég skil ekki alveg afhverju það er eitthvað verið að setja út á Att hérna, það er 2 ára ábyrgð á þessu af ástæðu. Ef menn fara eitthvað að teygja það fram og til baka endar það bara í rugli. Finn til með þér í þessu máli þó, á einmitt eins kort. Hvernig aflgjafa ertu með ?
TOW : Be quiet! Pure Base 500DX PSU : Corsair RMx 850W MB : MSI B550 Gaming Edge Wifi CPU : AMD 5800X3D + EK-Nucleus AIO CR240 H2OMem : 32GB 3600Mhz G.Skill Neo RGB GPU : PALIT 4080 RTX GAMEROCKSSD : 250GB Samsung Evo 960 + 1TB WD 770 M2 + 500GB Samsung Evo 850 + 1TB WD HDD OS : W10LCD : LG 32GP850 32" + AOC 24G2U KEY : Roccat Vulcan 121 MOU : Logitech PRO X Superlight
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1268
- Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
- Reputation: 143
- Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
frappsi skrifaði:Minuz1 skrifaði:5 ár er fyrir stór raftæki, sbr ofna, ísskápa, þvottavélar, þurrkara.
2 ár er grunnur fyrir önnur raftæki, sbr skjákort.
Þetta er ekki metið út frá stærð raftækisins. T.d. hafa fartölvur og sjónvörp (óhæð stærð) minnir mig verið flokkaðar sem 5 ára hlutir. Vissulega gerir maður svo ráð fyrir að stóru eldhúsraftækin lifi öll önnur raftæki heimilisins.
Tók það fram að þetta ætti við langlífari tæki, en þessi flokkur er kallaður stór raftæki, stundum hvítvara.
Líftími þessara tækja á að vera um 15+ ár þannig að ábyrgð á þeim er 5 ár, það er líka meiri ábyrgð sem fylgir, eins og viðgerð á staðnum í staðinn fyrir viðgerð á verkstæðum þar sem stundum er frekar erfitt að hoppa með ofn eða 100kg þvottavél á verkstæði á leiðinni í vinnuna.
Hef heyrt af sjónvörpum sem hafa verið flokkuð sem stór raftæki en sé ekki alveg hvernig það gangi með fartölvur.
Gangi þér annars vel með þetta.
Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það
-
Höfundur - Bara að hanga
- Póstar: 1582
- Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
- Reputation: 58
- Staða: Ótengdur
Re: Skjákort dó eftir 2 ár og 1 mánuð
Alfa skrifaði:Ég skil ekki alveg afhverju það er eitthvað verið að setja út á Att hérna, það er 2 ára ábyrgð á þessu af ástæðu. Ef menn fara eitthvað að teygja það fram og til baka endar það bara í rugli. Finn til með þér í þessu máli þó, á einmitt eins kort. Hvernig aflgjafa ertu með ?
Er með Corsair RM750x sem er 80+ Gold vottaður.
Ég sjálfur hef ekkert að setja út á Att, auðvitað hefði ég viljað fá þetta afgreitt sem ábyrgðarmál en ábyrgðin er útrunnin.