Half-Life 2 In teh house! (pínu spoiler, so beware!)


ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ErectuZ » Sun 21. Nóv 2004 16:51

mrpacman skrifaði:Alltaf núna þegar ég ætla að spila HL2 þá kemur bara þessi villa
Hefur einhver lent í essu?


Viss um að diskurinn er í DVD-Drifinu?



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6478
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 310
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 22. Nóv 2004 01:52

ertu viss um að dvd drifið þitt sé dvd drif.. :lol:


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Höfundur
Bendill
spjallið.is
Póstar: 415
Skráði sig: Lau 25. Okt 2003 03:06
Reputation: 0
Staðsetning: Mosfellsbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Bendill » Mán 22. Nóv 2004 11:41

Jæja, nú er ég búinn að spila þennan leik nokkuð og ég verð alltaf meira sáttari við að kalla þetta besta FPS leik síns tíma, hann gjörsamlega rúllar yfir alla aðra þegar á heildarmyndina er litið. Mér finnst gervigreindin betri en í FarCry og mikið betra gameplay en í Doom 3. Ég tel einnig grafíkina betri en í báðum þessum leikjum, að vísu býður FarCry upp á mikið flóknari og flottari útisenur.
Ég viðurkenni að ég er nú ekki búinn að klára kvikindið en ég get sagt það fyrir víst, ég er mikið smeykari við að spila þennan leik heldur en Doom3, þar óð maður bara í gegnum hann og þurfti hvorki að hugsa né að hafa fyrir neinu, en í HL2 er ég skíthræddur allan tíman, maður á aldrei skot í byssurnar og líf er af skornum skammti. Þá nefni ég sérstaklega Ravenholm, ég þurfti að byggja mér upp smá þor til að byrja á þeim kafla, skrölti í ísskápinn og náði í einn öl, svona aðeins til að róa taugarnar, og skellti mér síðan í þetta....

Svona eiga leikir að vera, það sem stendur upp úr þegar maður hugsar um þennan leik er "Gameplay" ekki grafík... og það er það sem skiptir máli!


OC fanboy


Hawley
Nörd
Póstar: 112
Skráði sig: Fös 21. Maí 2004 22:14
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hawley » Mán 22. Nóv 2004 12:35

mér þykir þú vera viðkvæm sál




einarsig
Gúrú
Póstar: 511
Skráði sig: Fös 18. Jún 2004 22:18
Reputation: 0
Staðsetning: 113 rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf einarsig » Mán 22. Nóv 2004 14:41

leikurinn er tær snilld, mér finnst eiginlega of léttur fyrir utan 1-3 atriði annars er enda kaflinn á leiknum ótrúlega flottur og bjóst ég ekki við svona geðsýki þegar ég byrjaði að spila hann :) annars er ég að spila hann með AA í 6 hitt þarna antiasoff... e-ð held það kallist AAF í 16 og 1024x768.




Sup3rfly
Nörd
Póstar: 129
Skráði sig: Fös 16. Apr 2004 16:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Sup3rfly » Mán 22. Nóv 2004 16:48

Anisotropic Filtering.

annars er ég að spila hann með allt í High og í 1024x764 líka með 4x AA og 8x AF á, ótrúlegt hvað hann gengur vel á lélegum vélum.


"Carrot is good for your eyes, but can it answer your phone?"


ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ErectuZ » Mán 22. Nóv 2004 16:49

Bendill skrifaði:Jæja, nú er ég búinn að spila þennan leik nokkuð og ég verð alltaf meira sáttari við að kalla þetta besta FPS leik síns tíma, hann gjörsamlega rúllar yfir alla aðra þegar á heildarmyndina er litið. Mér finnst gervigreindin betri en í FarCry og mikið betra gameplay en í Doom 3. Ég tel einnig grafíkina betri en í báðum þessum leikjum, að vísu býður FarCry upp á mikið flóknari og flottari útisenur.
Ég viðurkenni að ég er nú ekki búinn að klára kvikindið en ég get sagt það fyrir víst, ég er mikið smeykari við að spila þennan leik heldur en Doom3, þar óð maður bara í gegnum hann og þurfti hvorki að hugsa né að hafa fyrir neinu, en í HL2 er ég skíthræddur allan tíman, maður á aldrei skot í byssurnar og líf er af skornum skammti. Þá nefni ég sérstaklega Ravenholm, ég þurfti að byggja mér upp smá þor til að byrja á þeim kafla, skrölti í ísskápinn og náði í einn öl, svona aðeins til að róa taugarnar, og skellti mér síðan í þetta....

Svona eiga leikir að vera, það sem stendur upp úr þegar maður hugsar um þennan leik er "Gameplay" ekki grafík... og það er það sem skiptir máli!


Sjitt, já, ég er sammála þessu með Ravenholm. ég var drulluhræddur þegar ég sá alla þessa fast zombies hlaupa um húsþökin og öskra :? Ég var alveg með gæsahúð. Mér finnst HL-2 vera meira spooky en Doom 3 á köflum...




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Mán 22. Nóv 2004 17:14

Ég held að það sé til fullt af góðum gameplay leikjum.
Menn bjuggust líka alltaf við að gameplay-ið í þessum leik væri gott.
Svo voru allir að vona að grafíkin yrði svona revolution eins og í HL- 1.
Ég held að það hafi verið aðal pælinginn.

Að fá leik sem toppar allt og alla með yfirburðum.

Þeim tókst það ekki allveg



Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Mán 22. Nóv 2004 17:56

hahallur skrifaði:Ég held að það sé til fullt af góðum gameplay leikjum.
Menn bjuggust líka alltaf við að gameplay-ið í þessum leik væri gott.
Svo voru allir að vona að grafíkin yrði svona revolution eins og í HL- 1.
Ég held að það hafi verið aðal pælinginn.

Að fá leik sem toppar allt og alla með yfirburðum.

Þeim tókst það ekki allveg

Ég held þig sé að misminna eitthvað. Þegar Half Life kom út var mesta byltingin við hann ekki hvað grafíkin væri flott enda var þetta tæknilega séð bara enn einn leikurinn með Quake-license (með smá viðbót reyndar) heldur var það sem skipti mestu máli hversu góð sagan var og hvað leikurinn var skemmtilegur.

Ég held það sé nefnilega alveg ljóst að langflestir leikir sem gefnir eru út í dag, líkt og árið '98, eru ágætlega flottir en þegar kemur að sögu og gameplay eru þeir crap.




talkabout
Fiktari
Póstar: 88
Skráði sig: Fös 26. Mar 2004 14:49
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Dr. Kári

Pósturaf talkabout » Mán 22. Nóv 2004 23:59

Jæja, er nú bara rétt byrjaður á honum, en er ég sá eini sem finnst doktorinn ógurlegi á skjánum og talar niður til manns minna skuggalega á Dr. Kára? Bæði í útliti og svo þegar hann fer að tala um DNA og erfðafræði mannskepnunnar.......




Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorrmund » Þri 23. Nóv 2004 15:37

ég skil þetta engan veginn, mér fannst doom3 ekkert góður.. og hann var ssvo fyrirsjáanlegur að ef að ai hefðu verið betra þá hefði maður alltaf geta brugðið skrímslunum.. ég vissi í svona 99% tilvika um þau..




einarsig
Gúrú
Póstar: 511
Skráði sig: Fös 18. Jún 2004 22:18
Reputation: 0
Staðsetning: 113 rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf einarsig » Þri 23. Nóv 2004 16:06

doom III var náttúrulega bara auglýsing á vélinni, held að ID munu græða meira á að selja vélina frekar en leikinn sjálfan.



Skjámynd

Höfundur
Bendill
spjallið.is
Póstar: 415
Skráði sig: Lau 25. Okt 2003 03:06
Reputation: 0
Staðsetning: Mosfellsbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Bendill » Mið 24. Nóv 2004 00:29

einarsig skrifaði:doom III var náttúrulega bara auglýsing á vélinni, held að ID munu græða meira á að selja vélina frekar en leikinn sjálfan.


Half-Life 2 er nú það sama, sem og FarCry. Mér finnst það allavega með HL2, ég tek eftir því þegar ég spila hann, svona senur þar sem einhverjir rosa flottir effectar eru sem ekkert gagn er af, hvorki fyrir söguþráð né framgang þinn í leiknum :roll:


OC fanboy

Skjámynd

Höfundur
Bendill
spjallið.is
Póstar: 415
Skráði sig: Lau 25. Okt 2003 03:06
Reputation: 0
Staðsetning: Mosfellsbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Bendill » Mið 24. Nóv 2004 00:36

BTW, var að klára leikinn, frekar snubbóttur endir ef ég segi mitt álit. Ég hef verið að safna screenshots og ég læt fylgja með það skot sem mér fannst flottast :D

Ég spilaði hann í gegn með allt í botni, reflect all, 1600x1200, 16xAF og 6xAA ...
Viðhengi
d3_c17_020002.jpg
Dog!
d3_c17_020002.jpg (250.89 KiB) Skoðað 1226 sinnum


OC fanboy


Gestir
Staða: Ótengdur

Pósturaf Gestir » Lau 27. Nóv 2004 16:09

Já.. verð að vera sammála Bendlinum....... soldið snubbóttur endir og leikurinn var .. oggu ponsu mínus.... enda svo sem ekki skrítið þar sem að maður er búinn að bíða í 2 ár eftir honum ... gat ekki í raun fengið betra samt held ég ;)


ég gef samt leiknum topp einkun og fannst mér hann mjög flottur ... grafíkin er mjög góð og effectarnir flottir, hljóðið er magnað og spennan alveg til fyrirmyndar.... mér fannst HL2 amk gjersamlega Girða niðrum Doom3 og sápuþvo hann.... svo um munar :8)


En fannt hann samt of stuttur fyrir minn smekk .....

jæja.. þá kveð ég héðan úr Náralind ... takk og bless :roll:




ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ErectuZ » Lau 27. Nóv 2004 16:22

Endirinn átti að vera svona cliffhanger því að VALVe sögði að þetta væri trioligy. Það er að segja þrír leikir. Og síðasti á eftir að koma úr :8)

En já, hann er voðalega stuttur, ég er sammála. En hei, Source vélin er mod-vænasta vél veraldar, þannig að þá eru öll moddin sem eiga eftir að koma eftir! Vá. Séu mod tekin til greina, þá er leikurinn eiginlega endalaus :D