DAB + Tæki

Skjámynd

Höfundur
methylman
vélbúnaðarpervert
Póstar: 919
Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
Reputation: 17
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

DAB + Tæki

Pósturaf methylman » Mið 07. Mar 2018 15:28

Sælir vaktarar ég sé að bíltæki fyrir bæði FM og DAB+ eru komin í sölu á landinu, ég hef ekki fylgst með því sem er að gerast í útsendingarmálum á skerinu og er spenntur fyrir því að einhverjar nýjungar komi fram í útsendingamálum r einhvert við í því að kaupa DAB+ tæki eins og þetta hér https://elko.is/kwv235dbt-jvc-biltaki-2din-6-2-dvd-bt


Ekki treysta því að fólk skilji þig þó að það setji upp gáfulegan svip og segji já.


Televisionary
FanBoy
Póstar: 708
Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
Reputation: 123
Staða: Tengdur

Re: DAB + Tæki

Pósturaf Televisionary » Mið 07. Mar 2018 17:32

Ekkert planað síðast þegar ég vissi með DAB hér á landi:

Frá PFS síðan 2012
VHF rás nr. 12, þ.e. 223-230 MHz hefur ekki verið notuð allsstaðar í Evrópu fyrir hliðræna dreifingu sjónvarps. Þegar farið var að ræða um stafræna dreifingu hljóðvarps (DAB; Digital Audio Broadcasting) þá voru margar þjóðir í Evrópu sem fóru að nota og skipuleggja notkun rásar 12 (223- 230 MHz) fyrir DAB. Hér á Íslandi var hinsvegar stefnt að notkun á 230-240 MHz. Þó svo ekkert hafi enn orðið af innleiðingu DAB hér á landi væri vert að athuga það að taka rás 12 (223-230 MHz) frá fyrir DAB.




jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2796
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 349
Staðsetning: Danmark
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: DAB + Tæki

Pósturaf jonfr1900 » Þri 13. Mar 2018 00:23

Í dag í Evrópu er allt VHF III bandið notað fyrir DAB+ útsendingar. Það er búið að slökkva á upprunalega DAB (nema á Íslandi) útsendingum þar sem þær voru í gangi. Það sem er notað í dag í Evrópu er frá rás 5 - 12 og síðan tvær rásir á S bandinu (11 - 12). Einu DAB útsendinganar sem eiga sér stað á Íslandi í dag er tilraunarásin Rondo í Reykjavík og ég held að það sé bara einn sendir sem er notaður.




Televisionary
FanBoy
Póstar: 708
Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
Reputation: 123
Staða: Tengdur

Re: DAB + Tæki

Pósturaf Televisionary » Þri 13. Mar 2018 09:15

Var ekki löngu búið að drepa á Rondó sendingunum?

jonfr1900 skrifaði: Einu DAB útsendinganar sem eiga sér stað á Íslandi í dag er tilraunarásin Rondo í Reykjavík og ég held að það sé bara einn sendir sem er notaður.