olihar skrifaði:Það er mikið kvartað undan þessu Global Shipping Program á support forums á eBay, ég t.d. hafði samband við eBay þar sem það fylgdi hvorki með kvittun né útreikningur á þessu hjá þeim.
Svona var þetta hjá mér.
globalShippinge.JPG
Það er alveg sama hvernig ég reiknaði þetta þá stóðst þetta engan veginn. miðað við þetta eru þeir að taka yfir $20 í auka gjöld þar sem það var bara VSK af þessari vöru.
Þegar ég hafði samband við eBay þá segja þeir mér að það geti tekið allt að 4 mánuði að fá kvittun/sundurliðun á þessum kostnaði. Sem já að sjálfsögðu þýðir að ég get örugglega engan veginn fengið þetta nokkurtíman til baka.
Ég mun ALDREI nota Global Shipping Program, Sem er að verða pínu flókið þar sem eBay er að ýta þessu að öllum sem eru að selja.
Ég er núna loksins búinn að fá svör og það sést svart á hvítu að þeir eru að svindla á fólki. Þegar ég bið um leiðréttingu segja þeir að of langt sé liðið til þess að ég eigi rétt á því, s.s. ég sendi þeim spurningar um þetta sama dag og ég fekk vöruna í hendurnar og langi tíminn er þeirra eigin seinkun á málunum.