[Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 16568
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2135
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
[Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Er búinn að skipta um nokkur móðurborð í tölvum gegnum tíðna en þetta var í fyrsta skipti sem ég skipti um móðurborð (stýringu) í þvottavél.
Það kom mér á óvart hversu auðvelt þetta var. Ég tók nokkrar myndir að ganni mínu það sem þetta er frekar nördaleg aðgerð.
Það kom mér á óvart hversu auðvelt þetta var. Ég tók nokkrar myndir að ganni mínu það sem þetta er frekar nördaleg aðgerð.
- Viðhengi
-
- Móðurborð í kassanum
- IMG_5240.jpg (103.11 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Vel innpkakkað í bóluplast
- IMG_5241.jpg (180.27 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Antistatic bag
- IMG_5242.jpg (148.98 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Úr kassanum
- IMG_5245.jpg (134.38 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Rúmlega tveggja ára gömul top of the line 12kg
- IMG_5250.jpg (95.91 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Framhlið séð ofan frá
- IMG_5251.jpg (114.6 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Bakhlið, losa tvær skrúfur og renna toppstykki af
- IMG_5252.jpg (93.65 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Lets rock!
- IMG_5253.jpg (85.62 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Toppstykkið farið af, móðurborðið undir plathlífinni
- IMG_5254.jpg (86.21 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Hlífin farin af, nýa móðurborðin hlið við hlið
- IMG_5255.jpg (153.33 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Þá er að losa alla kaplana
- IMG_5256.jpg (162.94 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Kaplarnir lausir
- IMG_5257.jpg (137.85 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Nýja móðurborðið komið í og tengt
- IMG_5258.jpg (140.55 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Allt virkar, velja tungumál
- IMG_5259.jpg (88.17 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
- Loka boxinu, toppstykkið á og byrja að þvo
- IMG_5260.jpg (103.85 KiB) Skoðað 4450 sinnum
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 16568
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2135
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
AntiTrust skrifaði:Ég vil þvottavél með litaskjá.
Þessi er í lit! (bláum lit) hahaha
-
- Stjórnandi
- Póstar: 1310
- Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 12:50
- Reputation: 7
- Staðsetning: <?php
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
GuðjónR skrifaði:AntiTrust skrifaði:Ég vil þvottavél með litaskjá.
Þessi er í lit! (bláum lit) hahaha
9" OLED
A Magnificent Beast of PC Master Race
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
AntiTrust skrifaði:Ég vil þvottavél með litaskjá.
Ég vil bara þvottavél sem skilur mig!
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Bjosep skrifaði:AntiTrust skrifaði:Ég vil þvottavél með litaskjá.
Ég vil bara þvottavél sem skilur mig!
Einkamal.is!
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1702
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Reputation: 38
- Staða: Ótengdur
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Með stock kælingu?!? Og svo þarf að ganga betur frá þessum köplum, sleeva þá og svoleiðis. Setja hliðarglugga og ljós og allskonar. Mæli bara ekki með að yfirklukka þvottavélina, konan verður ekki ánægð með vindingu á 10000 snúningum.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Ég vil þottavél með wi-fi !
_______________________________________________________________________________
Do what you love and you'll never work a day in your live !
Do what you love and you'll never work a day in your live !
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 16568
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2135
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Freysism skrifaði:Ég vil þottavél með wi-fi !
Það er til:
http://www.samsung.com/uk/consumer/home ... bble-vrttm
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Virkilega gaman að sjá svona pósta og maður ætti sjálfur að vera duglegri að pósta hinum og þessum raftækjaviðgerðum sem maður hefur staðið í.
Væri gaman ef þú hentir með hvernig bilunin lýsti sér og týpunr á þvottavélinni ef eitthver skyldi vera í sama basli og ramba á þennan þráð af google.
Væri gaman ef þú hentir með hvernig bilunin lýsti sér og týpunr á þvottavélinni ef eitthver skyldi vera í sama basli og ramba á þennan þráð af google.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Mjög flott og vel framsett hjá þér
Verð samt að segja helvítis drasl þvottavél ef þetta dugði bara í 2x ár.
Hvað kostar að kaupa svona móðurborð ? er ekki vesen að versla svona ?
Verð samt að segja helvítis drasl þvottavél ef þetta dugði bara í 2x ár.
Hvað kostar að kaupa svona móðurborð ? er ekki vesen að versla svona ?
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 16568
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2135
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Já endingin var ekki nógu góð, líklega hefur þetta bara verið óheppni, mánudagsvél.
Hún kostaði um 200k í Elko í ágúst 2012 en þetta var vaxtabótavél, hún var byrjuð að láta eitthvað undarlega í desember síðastliðnum.
Vélin fór að stoppa í miðjum þvotti, oft 2-3x í hverjum þvotti og einnig tók 60° þvottaprógram 2 - 3 tíma sem venjulega tók 1.5 tíma.
Í hvert sinn sem hún stoppaði þá kom 3E error á skjáinn.
Það var mat viðgerðarmanns að stýringin eða móðurborðið eins og ég kalla það væri ónýtt og það reyndist rétt.
Það er fimm ára kvörtunarfrestur á tækjum sem eiga að bera lengri líftíma, Samsung framleiðandinn hefur ekki meiri trú á sínum vörum sen svo að þeir neituðu að taka þetta á sig þótt þetta væri augljóslega framleiðslugalli, eftir stendur að Elko tók það á sig. Verð að segja að ég var mjög ánægður með hvernig Guðni þjónustustjóri hjá Elko leysti málið. Aldrei neitt vesen og ekkert nema liðlegheitin.
Stýringin kostaði 25.000.- en líklega hefði vinnan verið annað eins. En þar sem ég er uppá Kjalarnesi og þokkalega handlaginn þá fannst mér alveg sjálfsagt að spara þeim vinnuna og setja móðurborðið sjálfur í vélina. Ef ég hefði lent í vandræðum þá hefði Guðni örugglega sent viðgerðarmann á staðinn. Allaveganna þá fær þjónustustjóri Elko 5 stjörnur af 5 mögulegum fyrir það hvernig hann leysti þetta. Hann vissi ekkert að tengslum mínum við þennan vef þannig að það hafði engin áhrif.
Linkur 1
Linkur 2

- error.jpg (245.1 KiB) Skoðað 4233 sinnum
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1268
- Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
- Reputation: 143
- Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
- Staða: Ótengdur
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Það ætti að vera 5 ára ábyrð á þessu, flokkast sem stórt raftæki. Flott framtak hjá þér samt
Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Já ok, hafði ekki hugmynd um svona fresta en virkilega flott hvernig þessu var reddað en vá sorglegt af samsung að gera svona bara sorglegt.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 16568
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2135
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
bigggan skrifaði:Sérðu eikvað augljóslega að gamla móðurbóriðið?
Góð spurning, málið er nefninlega að það sést ekkert á gamla móðurborðinu, þéttar virðast í lagi engin merki um óeðlilega hitamyndun eða rakaskemmdir. En auðvitað getur verið gallaður íhlutur sem ekki sér á.
Svo gæti líka verið að "built-in obsolescence timer" hafi bilað og farið of snemma af stað og vélin dáið rúmlega tveggja ára en ekki 10 ára eða eftir 5.000 þvotta hvort heldur kemur fyrst.
Muna ekki allir eftir eftir málinu með Epson prentarana sem deyja eftir x-fjölda af prentunum þó það sé allt í lagi með þá?
Það var svo forritari sem bjó til crack og með því þá var hægt að blása lífi í prentarann aftur.
http://consumerist.com/2011/11/30/your- ... ugh-pages/
http://en.wikipedia.org/wiki/Planned_obsolescence
Ég hefð ekkert orðið hissa þótt góður forritari hefði náð að fixa "ónýtu" stýringuna.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
GuðjónR skrifaði:
Ég hefð ekkert orðið hissa þótt góður forritari hefði náð að fixa "ónýtu" stýringuna.
Keppni!
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Ég er búinn að horfa siðastaliðinn á EEVBlog, og hann er með nokra "repair" þættir sem han reynir að laga tæki, þar er lika algeng galli að þettar sem springa og bíla, eða eikvað þvi tengt.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Starfsmaður í heimilistækjum sagði við mig í dag að kvörtunarréttur væri aðeins einhver skoðun hjá neytendastofu en engin lög á bakvið.
Sagði að eina tilvikið sem dómstólar hefðu dæmt neytendanum í hag hafi verið við kaupa á 650 þúsund króna ísskáp sem bilaði.
Sagði að eina tilvikið sem dómstólar hefðu dæmt neytendanum í hag hafi verið við kaupa á 650 þúsund króna ísskáp sem bilaði.
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
snaeji skrifaði:Starfsmaður í heimilistækjum sagði við mig í dag að kvörtunarréttur væri aðeins einhver skoðun hjá neytendastofu en engin lög á bakvið.
Sagði að eina tilvikið sem dómstólar hefðu dæmt neytendanum í hag hafi verið við kaupa á 650 þúsund króna ísskáp sem bilaði.
Hann hefur væntanlega ekki verið að vinna þarna með lögfræðináminu sínu er það ?
internetið skrifaði:Kaupandi glatar rétti sínum til að kvarta undan galla ef hann tilkynnir ekki seljanda í hverju gallinn er fólginn, án ástæðulauss afdráttar frá því að hann varð gallans var. Kvörtunarréttur vegna galla fyrnist á tveimur árum.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2859
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Reputation: 217
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Það er helling á YT, ég hef lagað eldhúsviftur, ískápa, þvottavélar og þurrkara... og ég þarf að fara laga þurrkarann aftur. Alveg stórmerkilegt að þetta drasl fer að bila eftir 3-4 ár... jafnvel þótt þetta eru dýr og vönduð tæki ! (gorenje td!)
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Bjosep skrifaði:Hann hefur væntanlega ekki verið að vinna þarna með lögfræðináminu sínu er það ?internetið skrifaði:Kaupandi glatar rétti sínum til að kvarta undan galla ef hann tilkynnir ekki seljanda í hverju gallinn er fólginn, án ástæðulauss afdráttar frá því að hann varð gallans var. Kvörtunarréttur vegna galla fyrnist á tveimur árum.
Eflaust ekki og ég fann það ekki í mér að fara sóa lofti í rökræður við sölumann hjá þeim
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 16568
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2135
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Helvítis móðurborðið er farið AFTUR!
Hvað er AÐ þessu Samsung drasli!!
Hvað er AÐ þessu Samsung drasli!!
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
á ekki að smella vatnskælingu í þetta? Þegar með dælu i þvottavélina... just sayin.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 16568
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2135
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: [Next Level] Að skipta um móðurborð í þvottavél
Lunesta skrifaði:á ekki að smella vatnskælingu í þetta? Þegar með dælu i þvottavélina... just sayin.
hehehe ég hló upphátt núna ...